Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 50

Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 50
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@ frettabladid.is Ég hlusta mikið á bækur á sumrin, enda er ég alltaf á ferð og flugi. Ævar Þór Benediktsson 6 kynningarblað 10. júlí 2021 LAUGARDAGURSUMARKILJUR Ævar Þór Benediktsson rithöfundur og leikari, sem margir þekkja betur undir nafninu Ævar vísindamaður, hefur gefið út fjöldann allan af bókum fyrir börn. Ævar mælir með nokkrum góðum bókum til að lesa í sumar- fríinu. Ævar gaf út bókina Fleiri hryllilega stuttar hrollvekjur í vor en í fyrra kom út bókin Hryllilega stuttar hrollvekjur. „Þetta eru tuttugu örstuttar hrollvekjur fyrir alla þá sem nenna ekki að fara að sofa í sumar. Sögurnar eru ríkulega mynd- skreyttar eftir Ágúst Kristinsson. Við notum sérstakt lesblinduletur í bókinni svo vonandi geta sem flestir notið bókarinnar. Hvort sem þau lesa bókina sjálf eða að öll fjölskyldan verði logandi hrædd einhvers staðar í tjaldi uppi á heiði. Sögurnar henta í öllum aðstæðum.“ Ævar les sjálfur mikið en á sumrin hlustar hann frekar á hljóðbækur. Hann mælir með nokkrum bókum sem hann ætlar að lesa í sumar og gaman er að lesa í sumarfríinu. Salem‘s Lot eftir Stephen King „Ég hlusta mikið á bækur á sumrin, enda er ég alltaf á ferð og flugi. Ég hlusta í bílnum eða þegar ég er að taka til og elda. Ég stefni á að lesa Salem‘s lot í sumar sem hljóðbók. Ég hef að vísu lesið hana áður, en ég reyni alltaf að lesa Stephen King þegar ég er að skrifa. Ég er að klára bók fyrir jólin og þá er gott að lesa King, til að fylla á tankinn. Það virkar hvetjandi, allavega fyrir mig, að lesa höfunda sem mér finnst vera góðir.“ Once upon a time in Hollywood eftir Quentin Tarantino „Ég var að kaupa þessa bók fyrir tveimur dögum og er mjög spenntur að lesa hana. Bókin var bara að koma út nýlega. Þetta er fyrsta skáldsaga Quentin Tarant- ino og er skrifuð upp úr sam- nefndri bíómynd. Ég hef heyrt að bókin sé mjög góð. Ég keypti hana bara niðri í bæ svo hún ætti að vera komin í allar betri bókabúðir býst ég við.“ Bál tímans eftir Arndísi Þórarinsdóttur „Það var að koma út mjög áhuga- verð bók eftir Arndísi Þórarins- Hvetjandi að lesa góða höfunda Ævar mælir með nokkrum góðum bókum til að lesa í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Hryllingssögur fyrir fólk sem nennir ekki að fara að sofa. Ævar hlakkar til að lesa þessa bók. Frábær bók að mati Ævars. Ævar er aðdáandi Stephen King. Miðaldahandrit eru í aðalhlutverki. dóttur. Bókin heitir Bál tímans og er mjög skemmtileg bók fyrir alla fjölskylduna. Hún fjallar um miðaldahandrit. Handritin eru aðalpersónan í bókinni. Það er mjög flott að tékka á þeirri bók ef einhver er að leita að einhverju fyrir börnin.“ Bráðum áðan eftir Guðna Líndal Benediktsson Ég get líka mælt með annarri barnabók, eða ungmennabók, sem kom út fyrir jólin. Það er bókin Bráðum áðan eftir Guðna Líndal Benediktsson, sem þér að segja er bróðir minn,“ segir Ævar hlæjandi. „En þetta er frábær bók, hún er mjög skemmtileg.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.