Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 64

Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 64
Það var þess vegna ákveð- ið að prófa og sjá hvort þetta veki lukku hjá þeim sem vilja getað dansað og samt verið komin heim fyrir seinni fréttirnar með bólgna dansfæturna í rúmið. Ástkær móðir mín, Kolbrún Vilbergsdóttir Miðvangi 6, Hafnarfirði, lést þann 5. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Vilberg Guðmundsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Erlendsdóttir frá Brekkuborg, Fáskrúðsfirði, lést 27. júní. Útförin fer fram frá Kirkju Óháða safnaðarins fimmtudaginn 15. júlí kl. 15. Hörður Haraldsson Kristín Magnúsdóttir Trausti Haraldsson Elín Hauksdóttir og ömmubörn. Okkar elskaða móðir, tengdamóðir og amma, Friðgerður Þórðardóttir Brúnavegi 13, Reykjavík, áður Hraunbæ 111, Reykjavík, lést sunnudaginn 4. júlí á Hrafnistu í Reykjavík. Útförin fer fram frá Árbæjar- kirkju, fimmtudaginn 15. júlí kl. 15.00. Logi Ragnarsson Jóhanna Kr. Steingrímsdóttir Valur Ragnarsson Sigríður Björnsdóttir Halla Hrund, Haukur Steinn, Ingunn Ýr, Vaka Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Pálína Karlsdóttir lést fimmtudaginn 1. júlí á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju, miðvikudaginn 14. júlí kl. 13.00. Kristján Friðrik Sigurðsson Guðrún Rósa Sigurðardóttir Kristín Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gerður Jóna Benediktsdóttir Lönguhlíð 3, Reykjavík, lést á heimili sínu 2. júlí. Útför fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 13. júlí kl. 13.00. Hlíf Elfa Magnúsdóttir Hrefna Gerður Magnúsdóttir Þorsteinn V. Sigurðsson Benedikt Páll Magnússon Auður Eiðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Á laugardagskvöldum í júlí verða haldin dansiböll í Húsi Máls og menningar, þar sem dansþyrst- um býðst að svala þorstanum á kristilegum tíma. arnartomas@frettabladid.is „Í ansi langan tíma hefur fólk endur- tekið hálfpartinn tuðað yfir því að geta ekki farið neitt að dansa í mið- bænum,“ segir Daddi. „Yfirleitt þarf fólk að bíða langt fram eftir kvöldi og fram yfir miðnætti áður en byrjað er að spila einhverja danstónlist, sem hentar ekki öllum. Í ástandinu sem myndaðist í kringum Covid breyttist hegðunin vegna takmarkana og fólk fór að detta fyrr í bæinn og snemma heim og líkar bara vel við. Það var því ekkert annað í stöðunni en að smella í ball í bænum og höfða til þeirra fjölmörgu sem hafa óskað eftir þessu og eins bregðast við breyttri hegðun. Nú er hægt að taka snúning, vera komin heim fyrir seinni fréttirnar og leggjast með bólgna dans- fæturna í rúmið á kristilegum tíma.“ Daddi segir að erfitt sé að staðsetja markhóp ballanna út frá aldri, þar sem svo margir hafi gaman af því að dansa. „Það er fólk á öllum aldri sem hefur gaman af því að dansa og byrja kvöldið snemma,“ segir hann. „Ef þú hefur aðgang að alvöru danstónlist frá því fyrir klukkan tíu þá held ég að margir séu tilbúnir að stökkva á það tækifæri.“ Aðspurður um hvernig tónlist verði á boðstólum í kvöld, segir Daddi að það fari eftir vindátt. „Ég er það sem kallast „crowd plea- ser“ á góðri íslensku, eða „mannlegur glymskratti“ segir hann. „Eftir margra ára reynslu er maður orðinn lunkinn í að lesa salinn. En í grunninn verður þetta bara danstónlist sem maður veit að virkar og enginn þarf að hafa fyrir því að láta sér líka vel við.“ Hús Máls og menningar hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og hefur nú verið breytt í hið fínasta tónleika- og ballpláss. „Það er búið að setja þarna inn frábært hljóðkerfi og allir veggir eru þaktir bókum sem gefur gríðargóðan hljómburð,“ segir Daddi. „Þarna er búið að gera frábæra aðstöðu fyrir okkur hæfileikalausu listamenn- ina til að f lytja listir annarra til að skemmta fólki.“ Daddi mælir með því að gestir verði mættir tímanlega þar sem stundvísum skvísum mun bjóðast að smakka á sumarkokteil í boði hússins. n Tjúttað fyrir miðnætti Fjölmargir tónleikar hafa verið haldnir í húsnæðinu, sem liggur vel við dansiballi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Daddi diskó er einn þrautseigasti plötusnúður landsins. 32 Tímamót 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.