Fréttablaðið - 10.07.2021, Side 65
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Sigurður Ásgeirsson
Kópavogstúni 5, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. júlí kl. 15.
Svanlaug María Ólafsdóttir
Ólafur Sigurðsson Sigrún Þorsteinsdóttir
Jónína Sigurðardóttir Jón Ágúst Benediktsson
Sigurður Sigurðsson Ásta G. Sigurðardóttir
Kolbrún G. Sigurðardóttir Sigmar Torfi Ásgrímsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ingvar Bragason
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
í Reykjavík, þriðjudaginn 22. júní.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Skógarbæjar fyrir umönnun og alúð.
Kristján Ibsen Ingvarsson Sif Grétarsdóttir
Fjóla Ingvarsdóttir Robert Woroszylo
Sigrún Elva Ingvarsdóttir Gunnar Ágúst Ásgeirsson
Íris Ingvarsdóttir Ingólfur Ívar Hallgrímsson
Inga Sif Ingvarsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dagbjört Jóns Sigurðardóttir
(Birta)
andaðist á dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, þann 8. júlí síðastliðinn.
Jarðarför auglýst síðar.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið.
Gísli Sigmundsson Hildur Einarsdóttir
Guðjón Sigmundsson Magnea Sigríður Guttormsdóttir
Gunnar Sigmundsson Sólrún Ólafsdóttir
Sigrún Sigmundsdóttir Grétar Kristinsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Alda Traustadóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann
29. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýndan hlýhug og vináttu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í
Hafnarfirði sem kom að umönnun hennar.
F.h. aðstandenda,
Dagbjörg Baldursdóttir Tómas Frosti Sæmundsson
Trausti Baldursson Gunnhildur Pálsdóttir
Gunnur Baldursdóttir Svavar Ellertsson
Alda Baldursdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Gunnar Einarsson
skipstjóri,
Reynigrund 36, Akranesi,
lést á Landspítalanum
þann 5. júlí síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Ragnheiður Jóhanna Pétursdóttir
Halldóra Gunnarsdóttir Hafþór Ólafsson
Pétur Emil Gunnarsson Ramona Höhne
Einar Örn Gunnarsson Stine Laatsch
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts
og útfarar kærrar systur okkar,
Sigríðar Alfreðsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
á Hólmavík fyrir góða umönnun.
Hlýjar kveðjur,
Jón E. Alfreðsson og Samúel Alfreðsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Sólbergs Jónssonar
sparisjóðsstjóra,
Bolungarvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunarheimilisins Bergs, Bolungarvík.
Lucie Einarsson
Ásgeir Sólbergsson Margrét Gunnarsdóttir
Bjarni Sólbergsson
Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Guðjón Jónsson
Sölvi Rúnar Sólbergsson Birna Guðbjartsdóttir
María Sólbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinlaug Sigurjónsdóttir
(Steina)
Vesturbergi 77,
lést á Landakoti aðfaranótt
sunnudagsins 4. júlí sl.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn 13. júlí kl. 13.00.
Anna Marie Georgsdóttir Steindór Steinþórsson
Sigurjón Georgsson
Reynir Georgsson Eyrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elsku
mömmu okkar, tengdamömmu,
ömmu og langömmu,
Ingibjargar Huldu
Ellertsdóttur
áður til heimilis að Brekkugötu 38,
sem lést á Dvalarheimilinu Hlíð þann 3. júní.
Jónína Freydís Jóhannesdóttir Ingvi Þór Björnsson
Anna Hafdís Jóhannesdóttir Óskar A. Óskarsson
Agnes Bryndís Jóhannesdóttir Reimar Helgason
Jórunn Eydís Jóhannesdóttir Páll Viðar Gíslason
Hanna Vigdís Jóhannesdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Móðir okkar,
Helga Hólm Helgadóttir
Vallarbraut 3, Akranesi,
andaðist á Hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi
fimmtudaginn 1. júlí. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 13. júlí
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni
á vef Akraneskirkju: akraneskirkja.is
Salvör Aradóttir og Inga Guðmunda Aradóttir
arnartomas@frettabladid.is
„Það hafa ekki verið margir tónleikar
upp á síðkastið en við erum með upp-
safnaða orku sem springur út í kvöld,“
segir Tómas R. Einarsson, sem leikur
ásamt Latínsveit sinni á sumarjazztón-
leikaröð Jómfrúarinnar í kvöld.
Tómasi til halds og trausts verða
trompetleikarinn Snorri Sigurðarson,
Samúel Jón Samúelsson, sem spilar á
básúnu og guiro, Sigtryggur Baldursson
kóngatrommuleikari og Daníel Helga-
son, sem leikur á kúbverska tres-gítar-
inn. Á efnisskránni verða ýmis þekkt lög
Tómasar frá síðustu tveimur áratugum,
sem hann hljóðritaði með íslenskum og
kúbverskum tónlistarmönnum. Latín-
lög hans hafa verið útsett fyrir stórsveit,
verið endurhljóðblönduð og komið
út á safndiskum í Bandaríkjunum og
Kólumbíu.
„Við ætlum að taka þessa klassísku
latíndagskrá mína. Ég kem nú með nýja
söngplötu í haust en við förum ekkert
inn á hana í kvöld,“ segir Tómas R., sem
ætlar sér að fylgjast með jazzinum á
Jómfrúnni á næstu dögum. „Ég var á fla-
menco-tónleikum í Gamla bíói í vikunni
og ætla að fylgjast með tónleikum um
allan bæ í sumar. Maður verður að byrja
að kíkja út fyrir veggi heimilisins.“ n
Tvíefld Latínsveit
Tómas R. Einarsson.
Hið fornfræga Hótel Valhöll á Þing
völlum brann til grunna þann 10. júlí
2009. Átta slökkviliðsbílar réðu niður
lögum eldsins, sem hófst á fimmta
tímanum, en húsið var gjörónýtt. Einn
starfsmaður hótelsins þurfti aðhlynn
ingu vegna reykeitrunar, og var hann
fluttur á Landspítalann í Reykjavík.
Aðra sakaði ekki í brunanum. List
munir sem prýddu hótelið glötuðust
einnig í brunanum, en starfsmönnum
tókst að bjarga einu málverki eftir
Svein Björnsson og öðru eftir
óþekktan málara.
Á forsíðu Fréttablaðsins daginn eftir
kom fram að engar úrbætur hefðu
verið gerðar á hótelinu eftir að skýrsla
frá árinu 2006 hefði varpað ljósi á
bagalegt ástand hússins, meðal annars
með tilliti til krafna um brunavarnir.
Hótel Valhöll var byggt árið 1898
og var árið 1929 flutt á þann stað sem
það stóð á til loka. Að flutningum
loknum var hafist handa við stórfelld
ar breytingar á húsinu eftir teikningum
Guðjóns Samúelssonar, húsameistara
ríkisins. Byggt var við það og því breytt
fyrir Alþingishátíðina á Þingvöllum
árið 1930. n
Þetta gerðist: 10. júlí 2009
Hótel Valhöll brann til kaldra kola
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 10. júlí 2021 Tímamót 33