Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.07.1963, Síða 10
3. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 44 klst. hjá lög-
regluþjónum, fangavörðum, hjúkrunarkonum og
aðstoðarfólki við hjúkrun.
4. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 38% klst. á skrif-
stofum, teiknistofum, við rannsóknarstörf, í söfn-
um og við önnur hliðstæð störf.
5. gr.
Vikulegur vinnutími skal vera 36 klst. hjá
starfsfólki við röntgen og önnur geislavirk efni
og eftirtöldu fólki á reglubundnum vinnuvökum:
Talsímakonum, símriturum, loftskeytamönnum
og veðurfræðingum.
6. gr.
Vikulegur kennslustundafjöldi kennara skal
vera sem hér segir:
a) í barnaskólum 36 kennslustundir að jafn-
aði, en fækki í 30 stundir á því skólaári,
sem kennari verður 55 ára og í 24 stundir
þegar hann verður sextugur. Lengd
kennslustunda sé 40 mínútur.
b) í gagnfræðaskólum, húsmæðraskólum og
iðnskólum allt að 30 kennslustundir, en
fækki í 25 stundir, er kennari verður 55
ára og 20 stundir, er hann verður sextugur.
Lengd kennslustunda sé 45 mínútur.
c) í Stýrimannaskóla og Vélskóla allt að 27
stundir, en fækki i 22 stundir, er kennari
verður 55 ára og 17 stundir, er hann verður
sextugur.
Lengd kennslustunda sé 45 mínútur.
d) I menntaskólum, Kennaraskólanum og sér-
greinaskólum fyrir kennaraefni 24—27
stundir, en fækki í 22 stundir, er kennari
verður 55 ára, og í 17 stundir, er hann verð-
ur sextugur.
Lengd kennslustunda sé 45 mínútur.
Kennsluskylda söngkennara í barna- og gagn-
fræðaskólum og kennara afbrigðilegra barna sé
4/s af kennsluskyldu almennra kennara.
Kennsluskylda annarra kennara helzt óbreytt
frá því sem nú er.
Séu kennslustundir lengri eða skemmri en hér
greinir, breytist vikuleg kennsluskylda, sem því
nemur.
Kennsluskylda skólastjóra haldizt óbreytt frá
því, sem nú er.
Kennurum er skylt að hafa umsjón með nem-
endum í stundahléum eftir ákvörðun skólastjóra.
7. gr.
Eigi skulu framangreind ákvæði valda því, að
vinnutími nokkurs starfsmanns lengist frá því,
sem nú er.
Starfsstéttir og starfsmenn, sem ekki hafa verið
nefndir hér að framan, skulu halda þeim vinnu-
tíma, sem verið hefur.
8. gr.
a) Daglegur vinnutími þeirra, sem taldir eru
í 2. gr., skal vera á tímanum frá kl. 8—12
og 13—18 alla virka daga, nema laugardaga
kl. 8—12.
b) Daglegur vinnutími þeirra starfsmanna,
sem taldir eru í 4. gr., skal vera frá kl. 9—12
og kl 13—17. A laugardögum er vinnutím-
inn aðeins til kl. 12.30.
c) Daglegur vinnutími starfsfólks við inni-
störf hjá landssímanum, sem ekki er talið
í d-lið, er á tímabilinu kl. 8—18 alla virka
daga nema laugardaga, en þá til kl. 12.30.
d) Daglegur vinnutími á skrifstofum og teikni-
stofum landssímans skal vera á tímabilinu
kl. 8—18 alla virka daga nema laugardaga,
þá til kl. 12.30.
e) Daglegur vinnutími annarra starfsmanna,
þ. á. m. póstmanna, skal vera eins og tíðk-
azt hefur hingað til.
9. gr.
Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur
eftir því sem við verður komið vegna eðlis starfs-
ins.
Heimilt skal að halda óbreyttu fyrirkomulagi,
þar sem ósamfelldur vinnutími hefur tíðkazt til
þessa.
Fyrirkomulag við niðurröðun á vinnuvökum
skal vera óbreytt frá því, sem nú er, innan þeirra
takmarka um vikulegan vinnutíma, sem sett eru
í 1.—7. gr., enda byggist niðurröðunin á vilja
starfsmanna og þörfum viðkomandi stofnunar.
10. gr.
Matartímar skulu, eftir því sem við verður
komið, vera sem hér segir: kl. 12—13, kl. 19—20
og kl. 3—4, og teljast þeir ekki til daglegs vinnu-
tíma.
Kaffitímar teljast til vinnutíma og skulu hjá
þeim, sem hafa 45 og 48 stunda vinnuviku, vera
tvisvar í hinum daglega starfstíma, 20 mín. í
hvort sinn, þó ekki á laugardögum nema einu
sinni, ef vinnu lýkur á hádegi.
Hjá þeim, er hafa skemmri vinnuviku, sé í
10 ÁSGARÐUR