Morgunblaðið - 06.04.2021, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 79. tölublað . 109. árgangur .
ER BÚINN MEÐ
1.600 AF 7.000
KÍLÓMETRUM
KOM Ú́T 25 ÁRUM SÍÐAR
SKORAÐI MARK Í
FYRSTA LEIKNUM
MEÐ MEISTURUNUM
ROYAL INBREED 29 SPILAR Í SKOTLANDI 27SJÖTUGUR SIGURÐUR 10
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
e
v
a
0
2
8
0
6
2
Hraunelfur streymir nú niður í Meradali aust-
an við Grindavík eftir að tvær nýjar sprungur
opnuðust um hádegi í gær á gosstöðvunum í
Fagradalsfjalli. Allt gerðist þetta hratt og
svæðið nærri gosinu, þangað sem þúsundir
hafa lagt leið sína undafarið, var rýmt í
skyndingu.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir þró-
un eldgossins nú fyrirsjáanlega. Með auknum
hraunmassa í Geldingadölum hækki vökva-
þrýstingur í gígunum tveimur í keilunni þar.
Eðlilegt sé að nýr kvikugangur brjótist út til
hliðar frá gosrásinni sem fyrir er. Hraun komi
nú upp í sprungum sem fyrir voru í jörð.
Krafturinn í gígunum sé minni en var og virð-
ist að talsverðu leyti kominn í sprungurnar.
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvökt-
unar Veðurstofunnar, segir að enginn augljós
fyrirvari hafi verið að því að sprungurnar nýju
opnuðust. Vísindamenn hafi þó vitað að þarna
liggi kvikan afar grunnt.
Lögregla ætlar nú með morgninum að fara
yfir stöðuna og meta hvort óhætt sé að hleypa
fólki að gosinu að nýju.
Mikill gasmökkur frá eldgosinu fór yfir Voga
á Vatnsleysuströnd í gærkvöldi og mældist þar
mengun. »4
Eldgosið tekur nýja stefnu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fagradals-
fjall
Mera-
dalir
Nýjar gossprungur
Geldingadalir
Gossprunga
HraunLoftmyndir ehf.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð-
herra fundar með velferðarnefnd
klukkan tíu í dag, þar sem farið verð-
ur yfir möguleika á framlagningu
frumvarps sem myndi tryggja reglu-
gerð um skyldudvöl á sóttkvíarhóteli
lagastoð.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær skyldudvöl á sóttkvíarhóteli
ólögmæta í sjö málum. Reglugerðin
og ákvarðanir byggðar á henni eru
því ólögmætar, að sögn Jóns Magn-
ússonar, lögmanns eins málsaðila.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, segir að fyrir liggi
að reglugerð heilbrigðisráðherra hafi
svipt fólk frelsinu án þess að hafa til
þess heimild: „Þingið var nýbúið að
ákveða að þessi heimild væri ekki til
staðar. Ég hvatti til þess fyrir langa
löngu að í stað þess að reyna að sníða
sóttvarnalög að þessum faraldri yrðu
sett sér lög um viðbrögð við honum og
þeim breytt eins og þörf þætti. Öðru-
vísi verður ekki tryggt það gagnsæi
um aðgerðir sem er forsenda meðal-
hófs gagnvart borgurunum,“ segir
hún í samtali við Morgunblaðið.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
velferðarnefndar, segir að nefndar-
menn hafi skiptar skoðanir á því
hvort setja eigi lög sem myndu heim-
ila skyldudvöl í sóttvarnahúsi. Treyst-
ir hún sóttvarnalækni til þess að meta
aðgerðir en telur að þvingunarað-
gerðir stjórnvalda verði að eiga sér
lagastoð.
Í kjölfar úrskurðarins tilkynnti
heilbrigðisráðuneytið að öllum þeim
sem gætu lokið sóttkví við viðunandi
aðstæður væri frjálst að yfirgefa sótt-
varnahúsið og hafa nokkrir gert svo.
Taldi héraðsdómur reglugerðina
ekki eiga sér nægjanlega lagastoð og
vóg skilgreining sóttvarnahúss í sótt-
varnalögum þungt. Eru húsin þar
skilgreind á þann veg að þau séu ætl-
uð þeim sem ekki eiga samastað á Ís-
landi. „Dómurinn segir með mjög af-
dráttarlausum hætti að það eigi ekki
við um minn umbjóðanda,“ sagði
Ómar R. Valdimarsson lögmaður eft-
ir að úrskurður hafði verið kveðinn
upp. Búast má við því að úrskurður-
inn gefi fordæmi fyrir þá sem eiga
samastað á Íslandi, líkt og átti við í öll-
um málunum. »2
Í skyldudvöl án lagastoðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sóttkvíarhótelið Við Þórunnartún.
- Frelsissviptingin hafi verið án heimildar - Fólki frjálst að yfirgefa sóttkvíarhótelið