Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýj
ar b
æku
r í h
verr
i vik
u
Einu
ngis
1.49
0 kr
. á m
ánu
ði
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing-
maður Pírata, segir virkilega alvar-
legt að heilbrigðisráðherra og ríkis-
stjórn hafi ráðist í að skylda fólk til
dvalar á sóttkvíarhóteli án þess að
hafa heimild fyrir því í lögum. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Miðflokksins, segir augljóst
að ekki sé hægt að halda núverandi
fyrirkomulagi áfram hvað sóttkvíar-
hótelið varðar.
„Þetta snýr ekki að því hvort að
fólk fari í sóttkví eða ekki, það er
óumdeilt að það sé rétt að setja fólk í
sóttkví eftir komuna til landsins. En
þetta snýr að því hvort að það sé ein-
hver lagaleg heimild til að neyða fólk
til að taka þessa sóttkví út á sótt-
varnahúsi og eins og ég benti á og
raunar fleiri þá skortir til þess laga-
stoð,“ segir Þórhildur og bætir við:
„Það er auðvitað mjög rík skylda
ráðherra að tryggja að reglugerðir
sem hún setur hafi lagastoð. Það að
fara í svona framkvæmd án þess að
hafa til þess trygga lagastoð er mjög
alvarlegt og mikil fljótfærni af þess-
ari ríkisstjórn að fara svona af stað
með þetta án þess að hafa til þess
tryggan lagagrundvöll.“
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að skyldudvöl í sótt-
varnahúsi væri ólögmæt í sjö málum
þar sem tólf einstaklingar áttu í hlut.
Með úrskurðinum er reglugerðin og
þær ákvarðanir sem á henni byggj-
ast ólögmætar, að sögn Jóns Magn-
ússonar, lögmanns eins vistmanns á
sóttkvíarhóteli.
„Þótt sú frelsisskerðing, sem felst
í dvöl í sóttvarnahúsi sé að vissu leyti
sambærileg þeirri sem felst í heima-
sóttkví verður af ýmsum, sumpart
augljósum, ástæðum að telja dvöl
þar þungbærari en dvöl í heima-
húsi,“ segir í úrskurði héraðsdóms.
Vóg skilgreining sóttvarnahúss í
13. tl. 1. gr. sóttvarnalaga þungt í
málinu en þar segir að úrræðið teljist
vera staður þar sem „einstaklingur
sem ekki á samastað á Íslandi eða
getur að öðrum sökum ekki eða vill
ekki einangra sig í sóttkví á eigin
vegum [...]“ og sagði í úrskurðinum
að með engu móti verði séð að mál
varnaraðila falli undir skilgrein-
inguna.
Þá segir Þórhildur það mikilvægt
að Alþingi skoði hvernig það vilji í
raun haga þessum málum.
„Heimildin til að ákveða það liggur
hjá þinginu, ekki hjá ráðherra og
ekki hjá ríkisstjórn. Þetta er það sem
gerist þegar ráðherrar gleyma því.“
Alvarlegar aðstæður
Sigmundur Davíð segir að bregð-
ast þurfi við úrskurðinum. „Það virð-
ist vera þannig að þegar ráðherrar
taka sóttvarnamálin í eigin hendur
að það klúðrist aftur og aftur.“
Sigmundur vill sjálfur leggja meiri
áherslu á að tekið sé harðar á bólu-
setningarmálum.
„Þetta eru alvarlegar aðstæður,
stjórnvöld þurfa alltaf að hafa laga-
legan grundvöll fyrir þeim aðgerðum
sem gripið er til. Þegar það eru ítrek-
að gefnar út tilkynningar um það
hvernig fólk eigi að haga sér, þá
þurfa þær tilkynningar að standast
lög, sem virðist ekki hafa verið til-
fellið í þessu máli. Þetta kallar á
breytingar og ég held að það væri
mjög æskilegt að heyra viðhorf sótt-
varnalæknis, sem virðist hafa verið
með efasemdir vegna þessa fyrir-
komulags,“ segir Sigmundur.
Heilbrigðisráðuneytið tilkynnti
skömmu eftir úrskurðinn að þeim
sem dvelja í sóttvarnahúsum sé
frjálst að ljúka sóttkví annars staðar,
hafi þeir viðunandi aðstöðu til þess.
Ráðuneytið biðlaði þó til vistmanna
að ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi og
mun ráðherra í framhaldinu skoða
hvaða leið verði farin til þess að lág-
marka hættu á að smit berist inn í
landið.
Ekki náðist í heilbrigðisráðherra,
forsætisráðherra eða sóttvarnalækni
við vinnslu fréttarinnar. Þá gaf fjár-
málaráðherra ekki kost á viðtali.
Snýst ekki um sóttkvíarskyldu
- Óumdeilt að rétt sé að senda fólk í sóttkví, að sögn þingmanns Pírata - Formaður Miðflokksins telur
ekki hægt að halda núverandi fyrirkomulagi áfram - Ráðherra ber skylda til að tryggja lagastoð
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Þessir vösku menn mættu til vinnu á föstudaginn
langa til þess að undirbúa Korpuskóla fyrir
komu nemenda úr Fossvogsskóla. Sífelld myglu-
vandamál hafa komið upp í Fossvogsskóla á und-
anförnum árum og því var brugðið á það ráð að
senda nemendur í autt húsnæði Korpuskóla í
Grafarvogi. Þar greindist þó mygla nýverið og
því þarf að vinna að úrbótum svo nemendum og
starfsfólki stafi ekki ógn af.
Stritað við Korpuskóla á föstudaginn langa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjarlægja myglu vegna flutnings vegna myglu
Halldór Kristmannsson, einn nánasti
samverkamaður Róberts Wessman í
18 ár, segist enn vilja útkljá umkvart-
anir sínar vegna stjórnarhátta og
hegðunar Róberts í sátt og utan dóm-
stóla. Þetta kemur fram í nýrri yfir-
lýsingu, en Halldór steig fram í liðinni
viku sem uppljóstrari um Róbert, for-
stjóra og stjórnarformann systur-
fyrirtækjanna Alvogen og Alvotech.
„Ég hef talsverðar áhyggjur af því
að aðgerðarleysi Alvogen og Alvotech
gagnvart Róbert Wessman, kunni að
skaða orðspor fyrirtækjanna,“ skrif-
ar Halldór. Málið hafi þegar vakið at-
hygli meðal samstarfsaðila, við-
skiptavina og fjárfesta, erlendis sem
hérlendis. Hann hafi sem hluthafi
hagsmuni af að fyrirtækin geti haldið
áfram að vaxa og dafna og því ítreki
hann sáttfýsi sína. Halldór segir það
gert þrátt fyrir að félögin hafi sýnt
honum, uppljóstraranum, „fordæma-
lausa hörku“. Sama dag og tilkynnt
hafi verið um „hvítþvottinn“ hafi ver-
ið setið fyrir honum fyrir utan World
Class í Smáralind, með uppsagnar-
bréf og stefnu.
Halldór vill
sátt utan
réttarsala
- Ný yfirlýsing um
mál Róberts Wessman
Staðnám hefst að nýju í dag eftir
páskafrí en þó með einhverjum tak-
mörkunum. Reglugerð um takmörk-
un á skólastarfi tók gildi 1. apríl og
gildir til 15. apríl næstkomandi.
Fjölda- og nálægðartakmarkanir
eru þá mismunandi milli skólastiga.
Þannig gilda engar takmarkanir um
börn á leik- og grunnskólastigi en í
framhaldsskólum er hámarksfjöldi
nemenda og starfsmanna í rými 30
og 50 í háskólum. Auk þess gilda ná-
lægðartakmarkanir í framhalds- og
háskólum.
Þorsteinn Sæberg, formaður
Skólastjórafélags Íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að dagur-
inn í dag væri að sjálfsögðu gleðidag-
ur og bætti við að það væri allt já-
kvætt við það að
börnin kæmust
aftur í skóla.
Þorsteinn sagði
þá skólahald með
ákveðnum tak-
mörkum betra en
ekkert skólahald
og benti á að
þetta sé með
vægari takmörk-
unum sem hafi
gilt um skólahald síðasta árið.
„Þetta er alveg eins þægilegt og
við hefðum getað kosið í ljósi þeirra
aðstæðna sem eru í samfélaginu og
það hlýtur að vera öllum fagnaðar-
efni að þó að skólahald sé með
ákveðnum skerðingum að þá sé-
skólahald þó staðbundið,“ sagði Þor-
steinn.
Þorsteinn segir það þó með mis-
munandi hætti hvort skólastarf byrji
í dag. Hann bendir á að sumir skólar
hafi verið með ráðgerðan starfsdag í
dag og að hann hafi sjálfur einnig
mælt með því að sveitarfélögin gæfu
skólastjórum tækifæri til að vera
með slíkan dag í dag svo svigrúm
gæfist til að undirbúa skólahaldið.
Hann hafi þó heyrt af skólum sem
byrji staðnám aftur í dag.
Aðspurður segir Þorsteinn þó að
auðvitað séu einhverjir skólastarfs-
menn sem hafi áhyggjur þegar það
eru smit í samfélaginu og ekki síður í
ljósi þess að nú hafi heyrst meira af
því að börn séu að smita.
Staðnám hefst á nýjan leik
- Reglugerð um takmörkun á skólastarfi gildir til 15. apríl
- Jákvætt að börnin komist aftur í skóla eftir páskafrí
Þorsteinn
Sæberg