Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 29

Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR. Risa Páskaknús á ykkur öll og hlökkum til að hitta alla í bíó aftur. VÆ NT AN LEG Í B ÍÓ VÆNTANLEG Í BÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Toymachine sendi í lok febrúar frá sér sína fyrstu breiðskífu, Royal Inbreed, í öðru formi en á vínil en vínillinn kom út öllu fyrr, í desember í fyrra. Er það nokkuð merki- legt í ljósi aldurs hljómsveitarinnar sem stofn- uð var á Akureyri árið 1996 af þeim Jens Ólafssyni, sem syngur og raddar, Baldvini Z sem leikur á trommur, Atla Hergeirssyni bassaleikara og Krist- jáni Örnólfssyni gítar- leikara. Undirbúningur fyrir plötuna var langt kominn árið 2001 en þá sauð upp úr í sveitinni og Toymachine lagði upp laupana. Núna er platan loksins komin út og var tekin upp í ágústmánuði 2020 í Stúdíó hljóðverki í Reykja- vík þar sem Einar Vilberg sá um upptökur og hljóðblöndun, auk þess að aðstoða sveitina við útsetningar að hluta. Hljómsveitin sér um út- gáfu plötunnar í samstarfi við bandaríska fyrirtækið ONErpm sem sér m.a. um mark- aðs- og dreifingarmál. Nokkur myndbönd munu fylgja útgáfunni á opinberri youtuberás Toymachine og Toy- machine stefnir að því að halda útgáfutónleika síðar á árinu. Ætluðu sér stóra hluti Atli bassaleikari er spurður að því hvers vegna svo langur tími hafi liðið fram að útgáfu plötunnar, þ.e. tæp 20 ár frá því drög voru lögð að henni. „Þetta er nú þannig að við ætluðum okkur stóra hluti hér áður fyrr og þó ég segi sjálfur frá vorum við ein af björtustu vonunum í „undergroundinu“ hérna á Íslandi í den. Við fórum til útlanda og spiluðum og þefuðum af því að komast á samning, spiluðum á CBGB á Manhattan, sem er nú ansi eftirminnilegt gigg, og líka á fyrstu Airwaves-hátíðinni,“ segir Atli. Hljómsveitin hafi komið niðurbrotin frá New York þar sem ekki hafi gengið vel þar, mikið partístand og spilamennskan ekki góð. Í fram- haldi, undirbúningi plötunnar, hafi sveitin sprungið þar sem liðsmenn hennar hafi verið fullsaddir hver á öðrum. „Mörgum árum síðar ákveðum við sem full- orðnir menn og heimilisfeður – og einn okkar orðinn afi – að taka upp þráðinn og gera bara þessa plötu loksins. Við gerðum það,“ segir Atli. Hann átti sig þó á því að framboðið sé meira en eftirspurnin árið 2021 á plötu með Toymachine. Platan var aldrei tekin upp á sín- um tíma, árið 2001, en sveitin var tilbúin í að fara í stúdíó þegar allt sprakk. Atli segir hljómsveitina hafa átt furðulétt með að taka þráðinn upp að nýju og leika lögin á plötunni. Pabba- og afarokk Toymachine var undir áhrifum frá vinsælum hljómsveitum þess tíma sem hún var virk og nefnir Atli sveitir á borð við Korn, System of a Down, Incubus og Deftones. „Við komum samt allir hver úr sínu horninu í tónlist, það er nefnilega svo merkilegt. En þessar hljóm- sveitir sem ég var að telja upp eru hljómsveitir sem við eigum sameiginlegar,“ segir Atli. Liðsmenn Toymachine eru önnum kafnir við önnur störf í dag, Jenni afinn í hópnum og býr í Danmörku en allir eru þeir á fimmtugsaldri og Jenni elstur. Atli segir að tónlist Toymach- ine sé pabbarokk og blaðamaður bendir á að það sé líka afarokk, í ljósi þess að Jenni er orð- inn afi. Endurkoma Toymachine á tónleikum á Iceland Airwaves árið 2018 og hafði ekki komið fram á henni frá árinu 1999 þegar hún var haldin fyrst. Afmæli Toymachine lék í fertugsafmæli Atla í Bæjarbíói árið 2019 og var það gleðistund. Tilbúnir fyrir stúdíó þegar upp úr sauð - Fyrsta breiðskífa Toymachine, Royal Inbreed, er nú komin út, 25 árum eftir stofnun hljóm- sveitarinnar - Taka átti plötuna upp árið 2001 en þá fengu rokkararnir nóg hver af öðrum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.