Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 1
10 | 04 | 2021 Allt byrjará einu skrefi Hárkollurog japanska! Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, eða Sirrý eins og hún er kölluð, fékk krabbamein í tvígang og var tjáð að hún ætti aðeins fá ár eftir. Hún skoraði krabbameinið á hólm og hafði betur, en sérkennilegur draumur varð til þess að hugar- farið breyttist. Nú, sex árum síðar, er hún á leið upp á Hvannadals- hnjúk í hundrað kvenna hópi. Eitt skref í einu. 14 11.APRÍL 2021SUNNUDAGUR Rétt misstiaf Íslandi Netapótek LyfjaversFrí heimsendingum land allt!* BorghildurGunnarsdóttirsafnar hár-kollum ogtalar reip-rennandijapönsku. 22 Hvað kemurupp úr kössunum?Eru alþingskosningarnar í haust líklegar til að verða sögulegar og hvað gerist að þeim loknum? 8 Til stóð að fá Jimi Hend-rix til Íslands skömmuáður en hann lést. 28 L A U G A R D A G U R 1 0. A P R Í L 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 83. tölublað . 109. árgangur . Framúrskarandi ferðafjölskylda! Komdu í heimsókn og skoðaðu skemmtilega, sparneytna og örugga ferðabíla Kamiq Verð frá 3.990.000 kr. Karoq Verð frá 5.590.000 kr. Kodiaq Verð frá 7.290.000 kr. Dráttargeta 2,5 tonn! HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/skodasalur PAPPAKASSAR REYNDUST HEILLADRJÚGIR HREYFIMYNDUM VARPAÐ Á GLUGGA OG VEGGI HÁTÍÐ Í MIÐBÆNUM 42200 MÍLUR 24 SÍÐUR Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kostnaður við sjóflutninga frá Asíu hefur stóraukist og gæti það birst í vöruverði á Íslandi á næstunni. Björn Einarsson, framkvæmda- stjóri sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip, segir stóru erlendu skipa- félögin hafa dregið úr burðargetu eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst í fyrra. Flutningakeðjan hafi haldið nokkuð vel en neyslumynstrið breyst og markaðir reynst öflugri en ætlað var þegar faraldurinn hófst. Frá maí 2020 hafi eftirspurnin því reynst umfram burðargetuna og það haft í för með sér verðhækkanir. Þá hafi skapast mikill gámaskortur hjá stærstu skipafélögum heims og flöskuhálsar skapast í höfnum sem hafi lengt flutningstímann til mikilla muna. Dæmi séu um að sjófraktin við að flytja 40 feta þurrgám frá megin- höfnum Asíu til Íslands hafi hækkað úr 3.500 í um 7.000 dali. Innheimta forgangsgjald Þá séu dæmi um að erlend skipa- félög hafi innheimt forgangsgjald fyrir flutninga sem hleypi upp verð- inu enn frekar eða í um 10.000 dali. „Þvílíkar hækkanir hafa aldrei sést á flutningum til og frá Asíu og ekki er ólíklegt að það muni smitast í vöru- verðið,“ segir Björn. Við þetta bætist óhappið þegar flutningaskipið Ever Given stíflaði Súez-skurðinn. „Fyrir óhappið töldum við að þetta næði jafnvægi í gegnum þriðja fjórð- ung í ár. Þetta ótrúlega mál er hins vegar vandamál ofan á vandamál sem við sjáum að muni teygja enn frekar á þessari stöðu mála og jafnvel vel inn í haustið,“ segir Björn. Verslunareigandi í Reykjavík sagði alla sína birgja vera að hækka verð vegna hærri flutningskostnaðar. Það muni koma fram í verðlagi. Þá sagði sérfræðingur á flutningamark- aði dæmi um tugprósenta hækkanir. Þrýstir á vöruverðið - Kostnaður við sjóflutninga frá Asíu hefur hækkað mikið - Verslunareigandi segir það hafa áhrif á verðlag á Íslandi Hulda GK, sem Trefjar hafa smíðað fyrir Blakknes ehf. í Sandgerði, er líklega stærsti plastbátur sem smíð- aður hefur verið hér á landi. Bát- urinn var nýverið sjósettur og standa prófanir nú yfir. Um borð er hver í áhöfn með sinn klefa og er pláss fyrir 54 fiskikör í lestinni. Hönnunin miðar að því að há- marka afkastagetu og hagkvæmni veiða, tryggja góða aflameðferð og sem bestan aðbúnað fyrir áhöfnina, segir Högni Bergþórsson, tækni- og markaðsstjóri Trefja, í sérblaði 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stæðileg Hulda er í Hafnarfirði en verður afhent útgerð í næstu viku. Aldrei smíð- aður stærri plastbátur Þjóðarsorg ríkir nú í Bretlandi eftir að tilkynnt var um andlát Filippusar, eiginmanns Elísabetar 2. Bretadrottningar og hertoga af Edinborg, í gærmorgun. Filippus er sá sem lengst hefur gegnt hlutverki drottningarmanns í Bretlandi, og lýsti Elísabet 2. því eitt sinn yfir að hann hefði verið stoð sín og stytta í gegnum alla valdatíðina. Fjöldi Breta lagði leið sína að Buckingham-höll í gær og lagði blóm að girðingunni þar. »19 AFP Þjóðarsorg í Bretlandi vegna andláts Filippusar Íslensk stjórnvöld þurfa að leggja fram afléttingaráætlun um tilslakanir sóttvarnatakmarkana samfara ár- angri í bólusetningum. Þetta kemur fram í grein sem Ari Fenger, formað- ur Viðskiptaráðs Íslands, ritar í Morgunblaðið í dag. Ari bendir á að stjórnvöld hafi lagt fram áætlanir um bólusetningar og eðlilegt sé að samhliða séu lagðar fram áætlanir um afléttingu takmark- ana samhliða bólusetningu, eins og hafi til dæmis verið gert í Noregi og Danmörku. Í grein sinni minnir Ari á að fyrir- sjáanleiki sé öllum nauðsynlegur í líf- inu og að það eigi ekki síður við í rekstri. Mörg fyrirtæki hafi orðið fyr- ir verulegum búsifjum í faraldrinum og bráðnauðsynlegt að þau hafi ein- hver viðmið um tekjur, útgjöld, starfs- mannahald og þar fram eftir götum. Líkt og forsætisráðherra hafi lýst yfir myndi hætta á alvarlegum veik- indum, innlögnum og dauðsföllum minnka þegar 60 ára og eldri hefðu verið bólusettir. Miðað við yfirlýs- ingar heilbrigðisyfirvalda ætti það markmið að nást öðrum hvorum megin við næstu mánaðamót. Stjórn- völdum væri því ekkert að vanbúnaði að ráðgera skref til að draga úr sótt- varnaráðstöfunum og kynna þau. » 22 Vilja tilslakanir sam- hliða bólusetningu - Atvinnulíf þarf fyrirsjáanleika

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.