Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 8
Tölvuteikning/Vegagerðin
Þorskafjörður Innifalið í verkinu er bygging 260 metra langrar brúar.
Framkvæmdir við þverun Þorska-
fjarðar hefjast strax í næstu viku.
Þetta segir Dofri Eysteinsson, fram-
kvæmdastjóri verktakans, Suður-
verks hf. Dofri og Bergþóra Þorkels-
dóttir, forstjóri Vegagerðarinnar,
skrifuðu undir verksamning sl.
fimmtudag.
Tilboð voru opnuð 16. febrúar sl. en
Suðurverk hf. átti lægsta tilboðið,
krónur 2.078.354.246. Um er að ræða
nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7
kílómetra kafla yfir Þorskafjörð.
Innifalið í verkinu er bygging 260
metra langrar steyptrar brúar yfir
fjörðinn.
Vegurinn er alfarið byggður í nýju
vegstæði en tengist núverandi Vest-
fjarðavegi í báða enda. Nyrðri endinn
tengist við gamla veginn þar sem
hann liggur upp Hjallaháls.
Áætlað er að útlögn fyllingar/fargs
verði lokið í lok júní á þessu ári en
smíði brúar og frágangi við hana
verði lokið í lok september á næsta
ári. Verkinu öllu á síðan að ljúka í júní
árið 2024.
Verktíminn er rúm þrjú ár sem
skýrist af því að fergja þarf botn
fjarðarins, sem er tímafrekt ferli.
Vegurinn þarf þannig að síga áður en
hægt verður að ganga frá honum í
rétta hæð. Fergingu verður skipt í
tvo áfanga til að loka firðinum ekki of
mikið í einu, m.a. til að vernda mar-
hálm á svæðinu og til þess að tak-
marka straumhraða og botnrof.
sisi@mbl.is
Hefja þverun
Þorskafjarðar
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
Stjórnvöld ætla sér að tryggja sumarnám og sum-
arstörf fyrir ungt fólk og atvinnuleitendur í sum-
ar, sem lið í aðgerðum sínum til þess að stuðla að
virkni og framtíðarsókn fyrir íslenskt atvinnulíf,
eins og segir í tilkynningu sem Ásmundur Einar
Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Lilja
D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð-
herra, sendu frá sér í gær.
Þau segjast ætla að ná til þess hóps námsmanna
sem ekki fær starf eða aðgang að öðru úrræði í
sumar og hyggst ríkið verja tæpum 2,4 milljörðum
kr. í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum
störfum fyrir námsmenn. Markmiðið er að með
átakinu verði til um 2.500 tímabundin störf fyrir
námsmenn, 18 ára og eldri, í samvinnu við op-
inberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök.
Hverjum nýjum námsmanni sem ráðinn er inn
með úrræðinu fylgir styrkur sem nemur fullum
dagvinnulaunum samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum, en mest að hámarki tekjutengdra atvinnu-
leysisbóta, allt að 472 þúsund kr. á mánuði auk
11,5% framlags í lífeyrissjóð. Ráðningartímabilið
er allt að tveir og hálfur mánuður.
2.500 sumarstörf fyrir námsmenn
- Stjórnvöld ætla í átak
fyrir ungt fólk í sumar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sumarstörf Stjórnvöld boða átak í sumar þannig
að námsmenn fái vinnu, allt að 2.500 manns.
Viðskiptablaðið fjallar í dálkinumÓðinn um Borgarlínuna og sú
mynd sem þar er dregin upp er ekki
fögur. Bent er
á að Davíð
Þorláksson,
fram-
kvæmdastjóri
félagsins Betri
samgöngur,
hafi sagt,
spurður um
rekstur Borg-
arlínunnar, að það sé „ekki hluti af
verkefnum félagsins að reka verk-
efnin, heldur aðeins að byggja þau
upp“.
- - -
Þá vísar Óðinn í frétt Morgun-blaðsins frá því í fyrra þar sem
haft var eftir einum af þáverandi
talsmönnum Borgarlínunnar að end-
anleg rekstraráætlun lægi ekki fyrir
en hann taldi þó að rekstrarkostn-
aður Strætó mundi aukast um tvo
milljarða vegna Borgarlínunnar.
- - -
Óðinn er, sem von er, ekki sátturvið að rekstrarforsendur liggi
ekki fyrir, og skrifar: „Það er brjál-
æði – í raun eins og að éta óðs manns
skít – að ráðast í útgjöld líkt og sam-
göngubætur án þess að vita með
meiri vissu hver rekstrarkostnaður-
inn er til framtíðar. Trúarbrögðin
og trúboðið í kringum borgarlínu-
verkefnið hefur líka verið svo mikið
að ástæða er til að óttast að menn
séu að fegra reikningsdæmið svo að
verkefnið falli ekki um sjálft sig.“
- - -
Loks furðaði Óðinn sig á því aðDegi B. Eggertssyni skyldi
hafa tekist að fá marga af núverandi
og fyrrverandi forystumönnum inn-
an Sjálfstæðisflokksins til að gerast
samseka um þetta verkefni „þegar
svo mörg viðvörunarljós blikka“.
- - -
Vissulega er það afskaplegafurðulegt.
Trúboðið um
Borgarlínuna
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/