Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið fórum af stað með þetta í febrúar í fyrra, en ég hafði þá lokið jógakennaranámi og mig langaði að tengja þetta tvennt með einhverjum hætti, jóga og vinnustaðinn minn, listasafn- ið. Ég hafði séð að söfn úti í heimi opnuðu inn á fleiri aðferðir til að bjóða gestum að njóta lista, til dæm- is er boðið upp á jógatíma í Moma- nýlistasafninu í New York,“ segir Halla Margrét Jóhannesdóttir safn- vörður í Hnitbjörgum, Listasafni Einars Jónssonar, en hún hefur nú í rúmt ár boðið þar reglulega upp á listhugleiðslu. „Við getum ekki gert hvað sem er hér á safninu, því til er arfleiðslu- skrá sem segir til um hvernig starf- seminni hér skuli vera háttað. Við virðum það. Einar Jónsson væri sennilega ekki mjög hress með að hér væri dansaður djassballett eða mikið um stórar hreyfingar, safnið er ekki gert til þess. Ég sá að hug- leiðsla ætti mjög vel við verk Einars, því hann var andlega þenkjandi, hann aðhylltist guðspeki og í bóka- safni hans er m.a. að finna bækur um jóga. Hann var í Guðspekifélag- inu og var andlega leitandi mann- eskja,“ segir Halla og bætir við að þegar hún og Hildur samstarfskona hennar hafi farið á hugarflug með útfærsluna, voru þær sammála um að gera þetta að hæglætisstund, að allt í kringum þetta væri í hæglæti. „Rétt eins og slow art og slow food, sem eru þekktar hæglætis- nálganir. Við ákváðum því að bjóða upp á listhugleiðslu í hádeginu hér á safninu, svo fólk sem er í fastri vinnu gæti komið. Þetta stendur yfir í fjörutíu mínútur, frá tíu mínútum yf- ir tólf til tíu mínútur fyrir eitt.“ Yngsti 16 ára en elsti 96 ára Halla Margrét segist alltaf byrja listhugleiðslu á því að bjóða gesti velkomna og segja þeim ná- kvæmlega hvað sé fram undan. „Ég vel eitt af verkum Einars til að taka fyrir í hverjum tíma og áður en hugleiðslan hefst er verkið skoðað í þögn í nokkrar mínútur. Núna í samkomutakmörkunum þeg- ar halda þarf tveggja metra fjar- lægð, getum við tekið á móti færri í einu, en það er svo skemmtilegt að þá er næstum eins og dansflokkur sé að sveima í kringum verkið, það verður til einhvers konar hreyfilist í kringum verkið. Ég hvet fólk til að fara nálægt verkinu til að skoða það, beygja sig niður til að horfa upp með því, af því sjónarhornið er svo mikill þáttur í því hvernig fólk upplifir verkið. Því næst býð ég fólki sæti, sumir sitja á stól en aðrir á pullum og sumir koma með eigin jógadýnu eða hugleiðslupúða. Ég leiði inn í fimmtán mínútna hugleiðslu og helming þess tíma tala ég, en svo sitjum við í þögn. Að því loknu er ég með fræðslu um verkið og sögu þess og segi líka frá Einari og svara spurningum fólks. Þá eru allir búnir að upplifa og finna fyrir sinni eigin sköpun, því þegar fólk stendur frammi fyrir listaverkum þá fer sköpunarkraftur þess af stað, fólk er búið að taka inn og verða fyrir áhrif- um.“ Halla segir að þeir sem ætli að koma í listhugleiðslu hverju sinni, geti mætt snemma ef þeim sýnist svo. „Við opnum klukkan tíu á hverj- um morgni, þannig að þeir sem vilja geta þá skoðað safnið og farið upp í íbúð Einars og Önnu konu hans þar sem þau bjuggu. Nú eða gert það í kjölfar listhugleiðslunnar, því að- gangseyrir að safninu gildir inn á listhugleiðsluna. Ég er ánægð með að það eru nokkrir fastagestir í list- hugleiðslunni og þátttakendur hafa verið á öllum aldri. Áttatíu ár eru á milli yngsta þátttakanda og þess elsta, sá yngsti var 16 ára en elsti 96 ára. Þetta hentar því fólki á öllum aldri,“ segir Halla og bætir við að vegna Covid hafi þau farið af stað með listhugleiðslu í gegnum streymi á facebook-síðu safnsins. „Við fengum tækniaðstoð við það og allt slíkt kostar, svo við sótt- um um styrk til lýðheilsusjóðs, og fengum, enda rökstuddum við um- sókn okkar með því að það að hafa aðgang að listupplifun sé lýðheilsu- mál. Það að geta orðið fyrir áhrifum af listaverkum hefur áhrif á heil- brigði, af því líkaminn bregst við og líka andinn. Að njóta lista er hverj- um einstaklingi nauðsynlegt. Við er- um afar þakklát fyrir styrkinn sem gerir okkur kleift að streyma fleiri listhugleiðslum næstu þrjá þriðju- daga, 13., 20. og 27. apríl,“ segir Halla og tekur fram að nú í sam- komutakmörkunum megi safnið að- eins taka á móti níu gestum inn í safnið í hverri listhugleiðslu. „Fyrir fólk sem á erfitt með gang eða kemst illa að heiman, þá er kjörið að vera heima með okkur í listhugleiðslu í streymi. Líka fyrir Íslendinga í útlöndum. Þetta er heil- mikil upplifun því við látum mynda- vélina til dæmis þysja inn að verkinu þegar við erum að skoða smáat- riðin.“ Hann varð alveg dolfallinn Halla sér fyrir sér að hjúkr- unarheimili og dagvistanir fyrir eldri borgara gætu nýtt sér list- hugleiðslustreymið. „Þetta er kjörin stutt stund sem hægt er að sækja eftir á inni á face- book-síðu okkar. Frábært tækifæri til að eiga stund með listaverki og njóta hugleiðslu. Börn elska líka að fara í hugleiðslu og þeim finnst þessi stóru verk hans Einars svo áhrifa- mikil,“ segir Halla og rifjar upp þeg- ar hún kom í fyrsta sinn inn á Lista- safn Einars. „Ég á mjög sterka minningu frá því afi minn og amma fóru með mig sem litla stelpu hingað inn á safnið. Ég man eftir tilfinningunni sem fylgdi því að stíga hér inn, að skynja hið stóra og mikla. Ég geymi bækl- inginn frá þessari heimsókn sem afi skrifaði á,“ segir Halla og bætir við að Íslendingar rati í auknum mæli inn á safnið í Covid-tíð. „Ömmur og afar koma með barnabörnin sín, það eru fallegar stundir og hér er yfirleitt rólegt og ákveðin lotning í loftinu. Börn elska þetta. Hingað kom kona með ömmu- dreng um daginn, en hann hafði séð lágmynd eftir Einar í Þjóðleikhúsinu þegar hann fór að sjá Kardimommu- bæinn. Hann varð alveg dolfallinn, svo amma dreif sig með hann hingað og þau tvö áttu góða stund við að skoða þessar stóru höggmyndir.“ Einar var andlega leitandi manneskja „Að njóta lista er hverj- um einstaklingi nauðsyn- legt,“ segir Halla Margrét sem býður upp á listhug- leiðslu á Listasafni Ein- ars Jónssonar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Halla „Ég á mjög sterka minningu frá því afi minn og amma fóru með mig sem litla stelpu hingað inn á safnið.“ 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is Nú þegar frostið bítur landsmenn svo fast í kinn sem raun ber vitni, getur verið erfitt að trúa því að vorið sé á næsta leiti. En almanakið lýgur ekki og farfuglarnir flykkjast heim að fögru landi ísa þessa dagana. Þá er nú um að gera að gauka mat að fiðr- uðum vinum og gefa þeim orku í kuldanum í formi fitu eða annars góðgætis, þeir þurfa á því að halda. Til að láta ekki bugast á frostköldum vordögum er um að gera að æða út og glenna sitt bros framan í sólina sem skín svo glatt í norðanáttinni, alla vegana hér fyrir sunnan. Í öðrum landshlutum er þá hægt að faðma vindinn og fagna því að láta hann rífa í sig, svona rétt áður en hlýju vind- arnir fara að leika um okkur. Ekki tapa trú á vorkomuna, hún er þarna. Glennið bjarta brosið framan í sól á frostdögum Ekki örvænta, bráðum kemur betri tíð með blóm í haga Morgunblaðið/Eggert Sólarlag Gott er að sjúga í sig orku frá sólinni sem skín þrátt fyrir kulda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.