Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 Fenix • Slitsterkt og hitaþolið yfirborðsefni • Silkimjúk áferð við snertingu • Sérsmíðum eftir máli Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Okkur finnst margt í þessum til- lögum mjög framúrstefnulegt en þarna eru þó allskonar hugmyndir sem væri gaman að vinna úr í fram- tíðinni,“ segir Ólöf Hallgrímsdóttir, formaður félags landeigenda á svæð- inu við Grjótagjá í Mývatnssveit. Nýverið voru kynntar niðurstöður alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um uppbyggingu á svæðinu. Þátttak- endur fengu það verkefni að hanna turn þar sem hægt væri að horfa yfir svæðið en myndi einnig rúma aðstöðu til veitingasölu og fyrir starfsmenn. Þeir áttu einnig að útfæra gönguleið- ir í næsta nágrenni. Sem kunnugt er má finna hella með heitu vatni í land- inu við Grjótagjá sem hafa notið hylli ferðamanna en landeigendur hafa neyðst til að takmarka aðgang vegna átroðnings og skorts á innviðum. Við hönnun útsýnisturnsins var þátttak- endum uppálagt að leggja áherslu á að svæðið væri á mótum flekaskila Evrópu og Norður-Ameríku. Bygg- ingarefni skyldi vera umhverfisvænt. Skemmst er frá að segja að mikill áhugi reyndist á hönnunarsamkeppn- inni sem fyrirtækið Bee Breeders hafði umsjón með. Yfir 40 tillögur bárust og voru margar mjög for- vitnilegar að sögn Ólafar. „Þarna fær hugmyndaflugið að njóta sín í botn. Það getur verið gaman að fá ut- anaðkomandi sýn á hlutina, glöggt er gestsaugað,“ segir hún. „Ég held nú ekki að nein tillaga verði notuð í heild sinni eins og þær liggja fyrir en það getur vel verið að einhverjar hugmyndir verði notaðar og einhverju verði blandað saman. Tíminn verður að leiða það í ljós en það er ljóst að uppbyggingar er þörf á svæðinu. Þannig ferli tekur þó lang- an tíma og það á eftir að ráðast í frek- ari hönnun á svæðinu. Öll uppbygg- ing er kostnaðarsöm og það er ekki auðvelt að ná peningum hér norður í land. Við höfum til að mynda í tví- gang sótt um í framkvæmdasjóð ferðamanna vegna Grjótagjár en fengið synjun.“ Þetta er fjórða alþjóðlega hönn- unarsamkeppnin sem Bee Breeders heldur vegna uppbyggingar hér og allar hafa þær verið vegna sama svæðis; eldfjallasafn við Hverfjall, miðstöð ferðamanna við Mývatn og gestahús við Vogafjós sem Ólöf rek- ur. Fyrstu verðlaun í samkeppninni um útsýnisturn við Grjótagjá hlutu þau Mareike Schlatow og Gaspar Cá- nepa frá Danmörku og bar tillaga þeirra yfirskriftina Rising from Grjótagjá. Önnur verðlaun hlutu Aleksandra Bieszka, Maria Pielach og Aleksandra Mucha frá Póllandi. Þriðju verðlaun hlutu svo Kamila Szatanowska og Paulina Rogalska frá Póllandi en verkefni þeirra kallaðist Hófsemi. Sigurtillagan Svona gæti útsýnisturn við Grjótagjá í Mývatns- sveit litið út verði sigurtillaga danskra arkitekta að veruleika. 2. verðlaun Arkitektanemar frá Póllandi lögðu til að byggður yrði lágreistur útsýnispallur sem félli vel inn í landslagið. 3. verðlaun Samkvæmt þessari tillögu er hægt að virða fyrir sér einstakt landslag úr háum turni með gestastofu við hliðina. Framúrstefnulegur turn við Grjótagjá - Yfir 40 tillögur bárust í alþjóðlegri hönnunarsamkeppni - Þörf er á uppbyggingu á svæðinu Algengast er orðið að mæður eignist börn sín þegar þær eru á aldrinum 30 til 34 ára. Allt frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára en í nýrri frétt Hag- stofunnar kemur fram að árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst innan aldurshópsins 30-34 ára. Það sama átti sér stað á seinasta ári en þá fæddust 113,1 barn á hverj- ar 1.000 konur á aldursbilinu 30-34 ára en 108,6 á aldursbilinu 25-29 ára. Það verður sífellt sjaldgæfara að konur eignist börn þegar þær eru undir tvítugu. Í fyrra var fæðingar- tíðni mæðra undir tvítugu 4,7 börn á hverjar 1.000 konur. Þetta er veru- leg breyting á skömmum tíma því fyrir tíu árum eða á árinu 2010 fæddu mæður á aldrinum 15-19 ára 12,9 börn á hverjar 1.000 konur. Meðalaldur frumbyrja, þ.e.a.s. mæðra sem eignast sitt fyrsta barn, hefur farið jafnt og þétt hækkandi á umliðnum árum „Frá byrjun sjö- unda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratug- inn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 28,6 ár í fyrra,“ segir í frétt Hagstofunnar. Sambærileg þróun hefur átt sér stað meðal feðra. Í fyrra voru þeir tæplega 31 árs að meðaltali þegar þeir eignuðust sitt fyrsta barn en fyrir 40 árum voru þeir að jafnaði um 24 ára þegar fyrsta barn þeirra kom í heiminn. Fæðingartíðni hæst 30-34 áraFrjósemi kvenna á Íslandi 1950 til 2020 Fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu 4,5 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 30,7 ár 28,6 ár Meðalaldur foreldra við fæðingu frumburðar Heimild: Hagstofa Íslands 3,86 1,72 Blái dagurinn var haldinn hátíðleg- ur í gær, 9. apríl. Af því tilefni fengu samtökin Blár apríl 500 þúsund króna styrk sem Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra veitti. Markmið samtakanna er að auka vitund um einhverfu og safna fé til styrktar málefninu. Allt fé sem safn- ast rennur óskert til verkefna sem hafa bein áhrif á börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra, segir í tilkynn- ingu. Fjárhæðin verður nýtt í fræðslu og námskeið fyrir foreldra, systkini og aðra nákomna einhverfum börn- um. „Við erum gríðarlega þakklát fyrir þennan stuðning sem verður vel nýttur í okkar starfi sem hefur þurft að laga sig að aðstæðum í sam- félaginu undanfarið ár. Öllum fjár- öflunarviðburðum á okkar vegum bæði í ár og á síðasta ári hefur verið slegið á frest sökum Covid,“ segir Regína Björk Jónsdóttir, formaður Blás apríl. Alþjóðlegur dagur ein- hverfu er jafnan 2. apríl hvert ár en vegna páskanna var haldið upp á daginn í gær. Samtökin Blár apríl styrkt um hálfa milljón Styrkur Á myndinni er Ásmundur Einar Daðason ásamt Regínu Björk Jóns- dóttur, formanni Blás apríl, og Arthúri Ólafssyni stjórnarmanni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.