Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 Á næstu dögum, nánar til- tekið þann 19. apríl nk., taka upp þráðinn aftur þeir átta keppendur sem hófu áskorendakeppni FIDE í Yekaterinburg í Rússland upp úr miðjum marsmánuði í fyrra. Það er mikið í húfi; sigurvegarinn öðl- ast réttinn til að skora á heims- meistarann Magnús Carlsen. Heimsmeistaraeinvígið hefur verið sett á dagskrá í Dubai í Samein- uðu arabísku furstadæmunum og hefst 24. nóvember nk. og lýkur í síðasta lagi 16. desember. Stóra fréttin frá sjónarhóli Íslendinga er sú að þetta heimsmeistaraeinvígi mun, ef að líkum lætur, fara fram á nákvæmri eftirlíkingu af einvígisborðinu sem smíðað var fyrir einvígi Fischers og Spasskís sumarið 1972. Eftir fyrstu sjö umferðir áskor- endamótsins er staðan þessi: 1. Jan Nepomniachtchi og Maxime Vachier-Lagrave 4 ½ v. (af 7) 3.- 6. Caruana, Giri, Wang Hao og Grischuk 3 ½ v. 7.- 8. Liren Ding og Alekseenko 2½ v. Efstu menn eru líklegastir en þó eiga allir keppendur einhverja möguleika. Og lítið þarf að gerast til að staðan gerbreytist og má bú- ast við æsispennandi loka- umferðum. Greinarhöfundi finnst Jan Nepomniachtchi einna líklegastur til að vinna mótið. Hann varð skákmeistari Rússlands í lok síð- asta árs, vann Magnús Carlsen í netskákmóti á dögunum og ætti að vera fullur sjálfstrausts. Frakkinn Vachier Lagrave hefur ekki verið alveg jafn sannfærandi en hann er af mörgum talinn betur undir- búinn í byrjunum en allir aðrir. Ég veit ekki til þess að neinn ís- lenskur skákmaður hafi teflt kapp- skák við Nepo – nema undirrit- aður. Það var á Aeroflot-mótinu í Moskvu í vetrarbyrjun árið 2008. Þegar skákinni lauk með sigri Nepo sló þeirri hugsun niður að þessi ungi maður myndi sennilega vinna mótið og það gerði hann. Skák okkar var athygliverð og ég reyndi lengi að kryfja ástæður ósigursins því ekki var byrjuninni um að kenna, staðan eftir þann þátt var býsna vænleg: Aeroflot-mótið 2008; 2. umferð: Helgi Ólafsson – Jan Nepomni- achtchi Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 c6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8. Bd3 Bb7 9. e4 b4 10. Ra4 c5 11. e5 Rd5 12. dxc5 Bxc5 13. Rxc5 Rxc5 14. Bb5+ Kf8 15. O-O Db6 16. Bc4 h6 17. Bxd5! Vel teflt. Hvítur reynir að not- færa sér leppun riddarans. 17. … Bxd5 18. Be3 Da5 19. Rd4 Rd7 20. f4 g6 21. Dd2 Rb6 22. b3 Be4 23. a3 Í sjálfu sér ágætt en 23. Hac1 kom einnig sterklega til greina. 23. … Rd5 24. axb4 Db6 Honum gast ekki að 24. … Dxb4 vegna 25. Rxe6+ fxe6 26. Dxb4+ Rxb4 27. Bc5+ og hvítur á peði meira þó að staðan sé jafnteflisleg. Hvíta staðan er nú mun betri. 25. b5?! Vélarnar vilja leika 25. Ha5, t.d. 25. ... Kg8 26. He1. Þetta lítur vel út en er samt ónákvæmt! 25. … Rxe3 26. Dxe3 Bb7 27. Hfc1 Kg7 28. b4? Staðan er jöfn eftir þennan leik en betra var 28. h3 eða 28. Hc4. 28. … Hhd8 29. Hc5 a5 30. bxa6 Hxa6 31. Hxa6 Dxa6 32. Hc1 Da2 33. Rf3 Db2 34. Hf1 Ba6 35. He1 Dxb4 36. h3 Hd3 37. Dc1 Bb7! Drægi biskupsins ræður úrslit- um. Það er ekki hægt að halda stöðunni saman. Lokin teflir Nepo af mikilli nákvæmni. 38. Hf1 Db6 39. Kh2 Bxf3 40. gxf3 Dd4 41. Kg3 Hd2 42. De1 g5 43. fxg5 hxg5 44. De4 Db2 45. f4 He2 46. Df3 Dd2 47. Hf2 gxf4 48. Dxf4 Hxf2 49. Dxf2 Dxf2 50. Kxf2 Kg6 51. Kg3 Kg5! - Hvítur gafst upp. Einvígisborðið frá 1972 aftur í notkun? Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Óli K. Magnússon Einvígisborðið og stólarnir frægu Kjörgripir í eigu Þjóðminjasafnsins. Vinur minn Brynjar Níelsson alþingismaður er nú kominn heim frá Spáni þar sem hann heimsótti bróður sinn og gamlan skólafélaga minn Gústaf Níelsson. Nú er Brynjar kominn í sóttkví heima hjá sér eins og lög gera ráð fyr- ir, og grillar þar humar og drekkur hvítvín í stað þess að vera í sóttvarnahóteli upp á vatn og brauð. Þórólfi sóttvarnalækni fannst hann ekki hafa átt að heimsækja bróður sinn. Brynjar hins vegar er ekki mikið fyrir það að láta aðra segja sér hvað hann á að gera. Hann vill ráða sér sjálfur enda sjálfráða. Ég held samt að Brynjar og Þór- ólfur beri hag þjóðarinnar fyrir brjósti og vilji kveða niður óværuna sem á okkur herjar. Þeir eru báðir prinsip- menn. Ég held þess vegna að við ætt- um að líta á þá sem einn og sama manninn. Við getum kallað hann Brynjólf. Annar maður hefur síðustu daga sent Brynjari pillur. Það er Kári Stefánsson sá mikli hugsuður og frumkvöðull. Pillurnar hafa verið bland af gráglettni, geðvonsku og yf- irlæti. Ekki góð blanda það. Ég er ekki viss um að Brynjar eða Brynj- ólfur muni taka þessar pillur. En Kári Stefánsson hefur sýnt það að hann ber einnig hag okkar fyrir brjósti. Ef við bætum honum við Brynjólf þá gæti sá maður heitið Brynjólfur Kári. Ég er ekki viss um að Brynjólfi Kára myndi farnast vel á meðal vor. Einna helst vegna þess að hann væri þá þrí- fættur. Þrífættir menn rata yfirleitt aldrei beinan veg. Miklu frekar ganga þeir á hlið eða í versta falli í hringi samanber söguna af þrífætta hund- inum frá Seville. Þess vegna held ég að fé- lagsskapur þeirra þriggja í formi Brynjólfs Kára væri í raun dauða- dæmdur. Ef hann væri t.d. staddur á Aust- urvelli þá myndi einn fóturinn vilja á Alþingi, annar í Vatnsmýrina og sá þriðji í heilbrigð- isráðuneytið. Það sjá all- ir að það myndi aldrei ganga upp. Við yrðum þess vegna að bæta við einum í viðbót. Miðað við orðræðu síð- ustu daga er augljóst hver það er. Það er Trump. Og hvað skyldi þá fjórfætti maðurinn heita eftir það? Jú, Brynj- ólfur Kári Trump. Verandi fjórfættur kæmist Brynjólfur Kári Trump mjög hratt yfir. Eina vandamálið væri að það yrði nokkuð erfitt fyrir hann að fá borð á kaffihúsum. En kannski gengi það upp. Hver veit? En skítt með það. Er það ekki annars dásamlegt að mega koma fram með svona dellu? Og er það ekki líka dásamlegt að menn megi skiptast á skoðunum án þess að meiða mann og annan og án þess að eiga það á hættu að vera settir í fang- elsi eins og í ófrjálsa ríkinu Tyrklandi? Og er það ekki einnig dásamlegt að mega vera á annarri skoðun en Trump eða Kári eða Brynjar eða Þór- ólfur? Ég veit að Brynjólfi Kára Trump finnst það. Brynjólfur Kári Trump Eftir Guðna Á. Haraldsson » Og er það ekki einnig dásamlegt að mega vera á annarri skoðun en Trump eða Kári eða Brynjar eða Þórólfur? Guðni Á. Haraldsson Höfundur er lögmaður. Páll Jónsson, kallaður Stað- arhóls-Páll, var sonur hjónanna Jóns Magnússonar ríka á Sval- barði við Eyjafjörð og Ragn- heiðar Pétursdóttur, sem var yfirleitt kölluð Ragnheiður á rauðum sokkum. Þau voru ætt- foreldrar Svalbarðsættar sem var ein valdamesta ætt Íslands á 16. og 17. öld, en meðal systkina Staðarhóls-Páls voru Jón Jóns- son lögmaður og Magnús prúði. Ekki er vitað hvenær Stað- arhóls-Páll fæddist, en móðir hans deyr fyrir 1540 og var hann þá barn að aldri. Hann var sýslumaður og bjó um tíma á Staðarhóli í Saurbæ í Dalasýslu en lengst af á Reykhólum í Reykhólasveit. Páll náði Stað- arhóli undan Skálholtsbiskupi, sem hafði tekið staðinn á sitt vald og kirkjunnar og var Stað- arhóll í eigu niðja Páls til alda- mótanna 1900. Til eru fjölmargar frásagnir af Staðarhóls-Páli, m.a. af hjónabandi hans og Helgu Ara- dóttur, barnabarni Jóns Ara- sonar biskups. Sagt var að þau hefðu ekki farið úr brúðkaups- sænginni fyrstu sex vikurnar og orti hann til Helgu funheit ást- arljóð, en hann var gott skáld. En svo endaði hjónabandið með skilnaði, sem var fáheyrt á þess- um tíma, málaferlum og nötur- legri níðvísu Páls. Staðarhóls-Páll lést 10. apríl 1598. Merkir Íslendingar Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Staðarhóls- Páll Staðarhólskirkja Páll var kenndur við Staðarhól. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.