Morgunblaðið - 10.04.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 10.04.2021, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 Yfirlit fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 12. mars sl. um „Stórbætt kjör eldri borgara á Íslandi“ fjallar ekki um þær skerðingar sem eru á greiðslum Trygg- ingastofnunar ríkisins (TR) til eldri borgara, ef þeir njóta einhverra tekna úr eigin lífeyris- sjóðum eða af eigin vinnu. Með þessum skerðingum tekur ríkið til sín hátt í 40 milljarða króna árlega, sem eru hirtir af eldri borgurum. Þegar þessi upphæð er ekki reikn- uð með greiðir íslenska ríkið minnst allra ríkja innan OECD til eldri borgara – minna en Albanía greiðir til þessa málaflokks miðað við höfðatölu. Yfirlit ráðuneytisins Ráðuneytið sagði m.a. að aukn- ing á útgjöldum ríkissjóðs frá 2015 í málaflokkinn væri 70%, miðað við vísitölu og neysluverð, sem mætti bæði rekja til fjölgunar ellilífeyr- isþega og hækkunar greiðslna frá TR. Þá var einnig sagt að tekju- lægri hópar hefðu hækkað meira en þeir tekjuhærri, og eignastaða eldri borgara hefði batnað veru- lega. Ráðuneytið skiptir eldri borg- urum í tíu hópa eftir tekjum þeirra í „tekjutíundir“. Meðaltal heildar- greiðslna í níu tíundum var sýnd, þar sem kom fram að meðaltal í fjórum lægstu tíundunum náði frá lágmarksgreiðslu ellilífeyris upp í um 350 þúsund á mánuði. Engin skilgreining var gerð um fjölda þeirra sem byggju einir og væru með heimilisuppbót og hverjir væru í sambúð. Um 1/3 hópsins nýtur heimilisuppbótar, þannig að miða má við að um 15 þúsund eldri borgarar séu í þeirri stöðu að þiggja greiðslur, sem eru lægri en lægstu laun og að sambýlisfólk fær mun lægri greiðslu en atvinnuleys- isbætur. Auk þess hafa skattleys- ismörk lækkað undanfarin tvö ár í krónum og enn meira að verðgildi, sem bitnar harðast á þessum hópi, sem minnst fær. Í niðurlagi segir ráðuneytið síðan að bætur almannatrygg- inga hafi hækkað frá 2015 til 2021 um 5,4% að meðaltali á ári hjá ellilífeyrisþegum í sambúð og um 6,8% á ári hjá þeim sem búa einir og eru með heimilisuppbót, og að ellilífeyrir væri í dag 37% hærri en hann var 2015 og að ellilíf- eyrir ásamt heimilis- uppbót væri 48% hærri. Þessi niðurstaða ráðuneytisins kallar á að fá aðra útleggingu en fjármálaráðherra hefur gefið í ræð- um á Alþingi og í blaðagrein. Það verða að koma skýr svör frá ráðu- neytinu um tengingar greiðslna TR við skerðingarnar, hvaða fjárhæð sé greidd í málaflokkinn frá rík- issjóði og hvaða upphæð sé greidd frá eldri borgurum sjálfum með skerðingunum. Hækkun ellilífeyris reiknuð stærð en ekki greidd Reiknaður grunnellilífeyrir án heimilisuppbótar frá TR til eldri borgara var 1.1. 2015 kr. 191.271, sem skiptist á eftirfarandi hátt: Ellilífeyrir: 36.337, tekjutrygging: 114.670 og framfærsluuppbót: 40.270. Heimilisuppbótin var þá 33.799. Þetta ár 2021 er með óbreyttum grunnlífeyri út árið, kr. 266.033.- Hækkun er því á sjö ár- um um 39%, sem eru kr. 74.762! Á þessum sjö árum hækkaði launa- vísitalan a.m.k. um 70%. Í launa- samanburði við aðra launþega í krónum talið er þessi upphæð til skammar fyrir íslenska ríkið. Full- yrðing ráðuneytisins án skýringa um að „aukning á útgjöldum rík- issjóðs frá 2015 í málaflokkinn sé 70%“ er óskiljanleg miðað við þess- ar forsendur. Eftir að hafa greitt skatt af fyrr- nefndum grunnlífeyri nemur upp- hæðin um kr. 200.000 sem eldri borgarinn fær í vasann. Sá sem býr einn fær heimilisuppbót til við- bótar, kr. 67.691 á mánuði, og eftir að hafa greitt skatt nemur sú upp- hæð kr. 228.448. Þetta er hin ískalda reiknings- staða grunnlífeyris sem íslenska ríkið leggur til grundvallar á greiðslu grunnlífeyris til eldri borgara. Staðan er þó enn naktari fyrir ríkissjóð, því að þessi grunn- lífeyrir var aðeins greiddur til 1.300 einstaklinga árið 2018 sem þýðir að 31 þúsund einstaklingar fengu miklu lægri greiðslur frá TR vegna 45% skerðingar á móti líf- eyrissjóðsgreiðslum, fjármagns- tekjum og vinnuframlagi þeirra sjálfra. Samkvæmt svari við fyr- irspurn á Alþingi nam þessi skerð- ingarupphæð 35 milljörðum árið 2017 og er í dag a.m.k. 40 millj- arðar. Fáum staðreyndir fram Sú krafa er hér með sett fram, að ráðuneytið reikni nákvæmlega út þessar lækkandi greiðslur frá TR til ellilífeyrisþega eftir tíund- unum, frá fyrstu til níundu tíundar. Einnig að ráðuneytið greini frá tekjum og eignum í hverri tíund, þar sem væntanlega myndi koma fram, að eignastaða í efstu tíund- inni einni væri nálægt samanlagðri eignastöðu allra hinna í hinum níu tíundunum. Þá þyrfti einnig að greina frá fjölgun ellilífeyrisþega umrædd fimm ár í samanburðinum, sem skýrir einhverja hækkun greiðslna ríkisins til málaflokksins. Án þessara skilgreininga segja heildarútgjöld og meðaltöl lítið, sem yfirlit ráðuneytisins höfðaði til. Fáum réttan samanburð fram, fremur en óskilgreindra fullyrðingu ráðuneytisins um að útgjöld í mála- flokkinn hafi hækkað um 70% á fimm árum, þegar liggur fyrir að reiknaður, en ekki greiddur, grunnlífeyrir á sjö árum hækkaði um 39%. Hér þarf eitthvað nánari skoðunar við. Fjármálaráðherra getur ekki sagt gegn betri vitund við embættismann sinn: „Vigtaðu rétt strákur.“ Eftir Halldór Gunnarsson »Með þessum skerð- ingum tekur ríkið til sín hátt í 40 milljarða árlega, sem eru hirtir af eldri borgurum. Halldór Gunnarsson Höfundur er formaður kjararáðs Fé- lags eldri borgara í Rangárvallasýslu. „Vigtaðu rétt strákur“ Það skal áréttað að undirritaður hefur ekki notið mannrétt- inda vegna ólöglegs athæfis af hálfu dóm- stóla, ríkissaksókn- araembættis og lög- reglu. Um er að ræða sex dómsmál þar sem í öllum tilfellum er um réttarmorð eða utanlagadóma að ræða. Undirritaður hefur átt í baráttu við dómskerfið síðan 1990 vegna lögbrots hæstaréttardómara í máli 15/1990. Um var að ræða ólöglega álagningu virðisaukaskatts á und- irritaðan og fjárnám er því fylgdi. Undirritaður mætti á skrifstofu skattstjórans daginn eftir að bréf barst varðandi umræddan virð- isaukaskatt og fékk áritun skatt- stjórans á bréfið ásamt afsök- unarbeiðnum hans á alvarlegum mistökum hjá embættinu og full- yrðingu um leiðréttingu málsins. Þrátt fyrir það var nokkrum mán- uðum seinna gert fjárnám hjá und- irrituðum af hálfu tollstjóraemb- ættisins/borgarfógeta. Þegar ljóst varð um fjárnámið var rætt við fulltrúa borgarfógeta, Sigurð Stefánsson (fyrrverandi fulltrúa sýslumanns í Keflavík) sem sagði þegar hann sá sönnunargögn að nauðsynlegt væri að áfrýja mál- inu um fjárnámið til Hæstaréttar til að fá það afmáð úr bókum borg- arfógetaembættisins, því ljóst væri að um ólöglegt fjárnám væri að ræða. Í Hæstarétti var undirrituðum vísað til viðtals við Þór Vilhjálms- son hæstaréttardómara, sem bað undirritaðan um að fá einhvern lögmann til að annast málið, þetta væri svo augljóst mál að það gengi fljótt fyrir sig og ætti ekki að verða neinn kostnaður fyrir und- irritaðan. Var fenginn lögmaður strax til að annast málið, Haraldur Blöndal hrl. Þrívegis kom lögmaðurinn og sagði að þeir Hæstaréttardómarar er fengið hefðu málið (Pétur Haf- stein, Guðrún Erlendsdóttir og Guðmundur Jónsson) neituðu að taka það fyrir. Var alltaf krafist dóms af undirrituðum um að um hafi verið að ræða ólöglega álagn- ingu skattsins og fjárnámið ólög- legt. Í fjórðu tilraun lögmannsins var málið tekið fyrir af Hæstarétti. Þá gerðist það undarlega að hæsta- réttardómarar fundu það út að stjórnandi innheimtuaðgerða hjá Tollstjóraembættinu væri Jón H.B. Snorrason tengdasonur tollstjórans og hann væri vanhæfur til starfans vegna tengsla og hafi inn- heimtuaðgerð og fjárnámið verið ólöglegt á þeim forsendum. Niðurstaða Hæstaréttar er hrein svívirðing við íslenskt réttarkerfi, um að vanhæfi J.H.B.S sem inn- heimtustjóra fyrir Tollstjóraemb- ættið komi því við að álagning virð- isaukaskattsins og fjárnámið var ólöglegt. Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar þurfti tollstjórinn aðeins að setja annan mann til starfans í stað J.H.B.S. og halda áfram með inn- heimtuna á ólöglega á lögðum virðisauka- skatti og ólöglegu fjár- námi. Þessi dómur Hæstaréttar er einn af mörgum er leitt hafa til þess að Íslendingar treysta ekki dómstólum. Dómur þessi er mann- réttindaþjófnaður og þeir dómarar eru komu þar að eru mannrétt- indaþjófar. MÁL 1. Hæstiréttur: Mál 15/ 1991. Lögregluskýrsla nr. 007-215- 023922: 1. Hvaða starf hafði undirritaður er leiddi til þess að lagður var virð- isaukaskattur á hann samkvæmt úrskurði Hæstaréttar um lögmæti álagningarinnar? 2. Var álagning virðisaukaskatts lögleg aðgerð skattayfirvalda og samkvæmt lögum? 3. Samkvæmt hvaða lögum var skatturinn lagður á? Því hefur Hæstiréttur ekki svarað. (Engan skatt má leggja á án lagastoðar samkvæmt lögum og stjórnarskrá). 4. Hefur Hæstiréttur löglegt leyfi til dómsúrskurðar sem ekki er byggður á gildandi lögum landsins eins og í þessu tilviki? 5. Hvers vegna var krafa um úr- skurð á lagalegu gildi skattaálagn- ingar og fjárnáms ekki tekin til greina? Eftir fjárnámstilraunir borgarfógeta var þess krafist fyrir Hæstarétti að úrskurðað yrði um ólögmæti álagningar virð- isaukaskatts og ólöglegrar inn- heimtu skattsins. (Lögmaður Har- aldur Blöndal). Á lagður skattur án lagastoðar. 6.Hvað kom undirrituðum við hjónaband Jóns H.B. Snorrasonar sem tengdasonar tollstjórans sem Hæstiréttur dregur inn í málið með yfirklóri sínu og lögbroti (mannréttindabroti) með úrskurði dómsins utan íslenskra laga? 7.Ef álagning virðisaukaskattsins var ekki samkvæmt lögum: Hver var ástæða hæstaréttardómaranna að úrskurða um réttmæti skattsins og gefa tollstjóranum tækifæri til að ráða nýjan mann til að annast innheimtu skattsins samkvæmt úr- skurði Hæstaréttar? Barátta við réttarkerfið Eftir Kristján S. Guðmundsson Kristján Guðmundsson, fv. skipstjóri. »Undirritaður hefur ekki notið mannrétt- inda vegna ólöglegs at- hæfis af hálfu dómstóla, ríkissaksóknaraemb- ættis og lögreglu. Höfundur er fv. skipstjóri. Hinn 31. mars sl. voru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns Múla Árnasonar fréttamanns, þular og tónskálds. Langar mig að koma þeirri hug- mynd á framfæri að stytta verði reist þessum merka manni til heiðurs í ljósi þess hversu mikla gleði tónlist hans hefur veitt lands- mönnum í gegnum árin. Sigrún Sigurþórsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Stytta til heiðurs Jóni Múla Árnasyni Jón Múli Árnason Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.