Morgunblaðið - 10.04.2021, Page 38

Morgunblaðið - 10.04.2021, Page 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 30 ÁRA Þórdís er Reykvíkingur og ólst upp í Fossvogi. „Ég er borg- arbarnið í fjölskyldunni,“ segir Þór- dís. Hún er tónlistarkona og leik- kona, en hún er í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum og útskrifaðist sem leikkona frá Listaháskóla Ís- lands 2019. Reykjavíkurdætur er kvenkyns rapphljómsveit sem hefur hlotið mikla athygli fyrir tónlist sína og yrkisefni. Hljómsveitin hefur komið fram á fjölda tónlistarhátíða erlend- is og hlotið viðurkenningar hér- lendis sem erlendis, en Þórdís hefur verið í Reykjavíkurdætrum frá upp- hafi. Eftir útskrift frá LHÍ fékk Þór- dís strax stórt hlutverk í söng- leiknum Vorið vaknar hjá Leik- félagi Akureyrar og síðan í Benedikt búálfi, einnig hjá LA. „Ég er því búin að vera með annan fót- inn á Akureyri síðan ég útskrif- aðist. Við frumsýndum Benedikt búálf í byrjun mars og náðum að sýna það frekar þétt við góðar und- irtektir áður en allt lokaði.“ Þórdís hefur mikið verið að tal- setja teiknimyndir og barnaefni, eða í sjö ár, og lesið inn á Storytel, en hún fékk í fyrra Íslensku hljóð- bókaverðlaunin í flokki skáldsagna fyrir lestur sinn á bókinni Grímu eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. „Það er gott að geta gripið í þetta. Ég hef alltaf verið að syngja og leika frá því ég var barn, var í söng- keppni framhaldsskóla og sýningum í Þjóðleikhúsinu og fékk svo verk- efni við að talsetja og hef verið í því síðan.“ Sonur Þórdísar er Bjartur Esteban Pedro, f. 2017, og barns- faðir hennar er Logi Pedro Stef- ánsson tónlistarmaður. Foreldrar Þórdísar eru Aðalheiður Bragadótt- ir og Þorfinnur Björnsson. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þetta er dagurinn til að leiðrétta mis- skilning sem upp hefur komið milli þín og makans. Ekki gera þér rellu út af smámun- um. 20. apríl - 20. maí + Naut Það má vera, að eitthvert einkamál krefjist allrar þinnar athygli næstu daga. Búðu þig undir að hitta tengdaforeldrana. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Skriflegir samningar eru hluti af heildarmyndinni, hvort sem um er að ræða lán, tryggingaskilmála eða fjárhagslegar skuldbindingar. Þú færð símtal í kvöld sem veldur því að þú vakir fram á rauða nótt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú þolir ekki að láta þér leiðast en það er samt hollt að upplifa það. Sum tæki- færi koma aldrei aftur og þú munt ekki fyr- irgefa þér það að láta eitthvert þeirra ónotað. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Hafðu auga með peningunum þínum í dag. Láttu ekki erfiðar minningar úr fortíðinni standa í vegi fyrir góðri líðan í dag. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Leitaðu ekki langt yfir skammt. Hvað viltu? Með því að hugsa vel um grundavall- arþarfir þínar áttu að geta haldið þér í jafn- vægi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Sannfæring þín fyrir því að þú hafir á réttu að standa er afar sterk og því ert þú ekki fyrir málamiðlanir í dag. Gríptu gæsina á meðan hún gefst. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft að gera hlé á störfum þínum og reyna að safna orku. Forðastu að skuldbinda þig eða lofa nokkru sem truflar fríið þitt. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er nauðsynlegt að hafa sög- una á hreinu þegar menn meta nútímann og reyna að spá um framtíðina. Vinnufélagi kemst upp með lélega frammistöðu því þú bætir skaðann. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Hvort sem um er að ræða gleði eða sorg, muntu finna fyrir miklum tilfinn- ingasveiflum. Hafðu engar áhyggjur af börn- unum, þau hjálpa sér sjálf. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Auðvitað átt þú að gleðjast yfir þeim jákvæðu undirtektum, sem hugmyndir þínar fá. Gæfuhjólið snýst þér í vil. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sá friður sem þú býrð nú við á flest- um sviðum lífsins er mikils virði. Einhver rennir til þín hýru auga. B ragi Þorfinnsson er fæddur 10. apríl 1981 í Reykjavík en ólst upp á Ytri-Löngumýri í Blöndudal í Austur- Húnavatnssýslu til 5 ára aldurs. Fjöl- skyldan flutti þá í Hlíðahverfið í Reykjavík og Bragi fer í æfingadeild Kennaraháskóla Íslands, sem er nú Háteigsskóli. „Þar kynnumst við bræður skákinni fyrir alvöru og vor- um fljótir að ná góðum tökum á henni. Eðlisfræðikennarinn í skól- anum, sem hét Ólafur Guðmundsson, átti stóran þátt í að svo fór, en hann hlúði vel að skákinni og kveikti áhuga á henni hjá mörgum. Við urðum Íslandsmeistarar og Norðurlandameistarar í sveitakeppn- um og eftir það var ekki aftur snúið. Við urðum snemma virkir í allri starf- semi hjá Taflfélagi Reykjavíkur og það var nánast okkar annað heimili. Hápunkturinn á þessum árum var þegar við urðum ólympíumeistarar liða undir 16 ára, á Las Palmas. Okk- ur bræðrum hefur alltaf gengið vel saman í liði, en okkur hefur reynst erfiðara að berja á hver öðrum á hin- um 64 reitum, þau eru orðin ófá jafn- teflin sem við höfum gert í gegnum tíðina. Við viljum ekki raska fjöl- skyldufriðinum.“ Eftir grunnskólann fór Bragi í Fjöl- brautaskólann við Ármúla og varð stúdent þaðan árið 2003. Hann fór síð- ar í almenna bókmenntafræði í Há- skóla Íslands og lauk BA-gráðu úr henni árið 2011. Eftir það bætti hann við sig meistaragráðu í kennslufræði og útskrifaðist með hana árið 2017. „Ég hef þó alltaf sinnt skákinni af kappi og sett markið hátt í henni, en ég held að vinnubrögðin sem maður tem- ur sér í henni, hjálpi manni almennt í leik og starfi. Ef maður er einbeittur og sýnir þrautseigju þá gerast góðir hlutir, það má kannski segja að það sé mitt mottó.“ Bragi var síðan útnefndur stór- meistari í skák, 9. apríl 2018, eftir að hafa náð þriðja stórmeistara- áfanganum á alþjóðlegu skákmóti í Noregi í febrúar á því ári. „Þetta voru góðir tímar og ekkert Covid farið að gera okkur lífið leitt. Stærstu stundir mínar sem skák- manns eru þegar ég horfi til baka, að tefla á Ólympíumótum í skák fyrir Íslands hönd, en ég hef farið þríveg- is á slík mót, nú síðast til Bakú í Aserbaídsjan árið 2016. Ég stefni á að komast aftur á það í framtíðinni, þegar má halda skákmót aftur í heiminum.“ Bragi sinnir núna skák- kennslu í Skákskóla Íslands og for- fallakennslu í Hlíðaskóla. Bragi er mikill lestrarhestur. „Ég er yfirleitt með nokkrar bækur í gangi í einu, ég les oftast skáldsög- ur, bæði til að víkka sjóndeild- arhringinn og slaka á, og auðvitað glugga ég líka í skákbækur inn á milli. Ég hef líka gaman af því að horfa á góðar bíómyndir eða góða þætti á Netflix. Þá reyni ég að stunda útiveru og hreyfingu og er nýlega byrjaður að ganga á fjöll með konunni minni, og stundum tökum við gríslingana með í styttri ferðir, enda hafa allir gott af hreyfingu og fersku lofti. Við fórum síðast, eins og allir hinir, að skoða eldgosið í Geld- ingadölum, sem var magnað að sjá. Bragi mun fagna deginum með fjölskyldu sinni og sínu nánasta fólki, en systir hans, Þórdís Björk, fagnar þrítugsafmæli í dag. „Það verður því glatt á hjalla, ég mun væntanlega brjóta tveggja metra regluna og skála, í það minnsta við systur mína. Þakklæti er mér ann- ars ofarlega í huga á þessum degi. Það eru þrjár konur í lífi mínu sem mig langar til að þakka sérstaklega fyrir allan þann stuðning sem þær hafa veitt mér á þessum 40 árum. Þær eru konan mín, Dagný; móðir mín, Aðalheiður, og amma mín, hún Kristbjörg. Þær hafa borið mig á höndum sér.“ Bragi Þorfinnsson, stórmeistari í skák – 40 ára Fjölskyldan Stödd á gosstöðvunum í Geldingadölum. Stórafmæli hjá systkinum Systkinin Bragi, Þórdís Björk, sem á 30 ára afmæli í dag, og Björn. Morgunblaðið/Ómar Stórmeistarinn Bragi á Reykjavík- urskákmótinu árið 2019. Til hamingju með daginn BRÚÐKAUPSBLAÐIÐ Kemur út 16. apríl Viðtöl viðBRÚÐHJÓN Fatnaður, förðun og hárgreiðsla Giftingahringir BRÚÐKAUPSVEISLUR Veisluþjónustur og salir Dekur fyrir brúðhjón Brúðkaupsferðir ÁSTARSÖGUR og margt fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA til mánudagsins 12. apríl Katrín Theódórsdóttir S. 569 1105 kata@mbl.is - meira fyrir áskrifendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.