Morgunblaðið - 10.04.2021, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
„MÍN ER ALVEG EINS. ÞAÐ LÍTUR ÚT
FYRIR AÐ ALLT BATTERÍIÐ SÉ Á LEIÐ
SUÐUR.“
„ÉG SET ÞIG Á LISTANN YFIR „MÖGULEGA
HJARTA- OG LUNGNAGJAFA“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá allt í ljósi
ástarinnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÆLIR
JARÐARBÚAR!
VIÐ HÖFUM FERÐAST 65 MILLJÓN
LJÓSÁR TIL PLÁNETUNNAR YKKAR
VIÐ VITUM AÐ
ÞIÐ EIGIÐ
BEIKON!
KLÁRLEGA
FERÐALAGSINS
VIRÐI!
ÞAÐ ERU MARGIR HÁVAXNIR,
MYNDARLEGIR KARLMENN
HÉR INNI EN SAMT ER ÞESSI
FEGURÐARDROTTNING AÐ
TALA VIÐ MIG!
AFSAKIÐ FRÖKEN,
TÝNDIR ÞÚ ÞESSUM?
Ó, JÁ, ÞAKKA
ÞÉR FYRIR!
ÉG ÞARF AÐEINS AÐ
SKJÓTAST!
Fjölskylda
Eiginkona Braga er Dagný Edda
Þórisdóttir, f. 7.12. 1982, deildarstjóri
hjá Advania. Þau búa í Rimahverfi í
Grafarvogi. Foreldrar Dagnýjar eru
hjónin Þórir Ingvarsson, f. 6.3. 1958,
fjármálastjóri og Theódóra Ólafsdóttir,
f. 1.7. 1960, rakari. Þau búa í Reykja-
vík.
Börn Braga og Dagnýjar eru Þórir
Breki Bragason, f. 1.2. 2009; Ólafur
Bragi Bragason, f. 29.8. 2012, og
Aðalheiður Birna Bragadóttir, f. 23.11.
2014.
Systkini Braga eru Björn Þorfinns-
son, f. 25.10. 1979, alþjóðlegur skák-
meistari og blaðamaður, býr í Garða-
bænum, og Þórdís Björk
Þorfinnsdóttir, f. 10.4. 1991, leikkona
og söngkona, býr í Reykjavík.
Foreldrar Braga eru hjónin Þorfinn-
ur Jóhannes Björnsson, f. 18.10. 1956,
gjaldkeri Menntasjóðs, og Aðalheiður
Bragadóttir f. 18.5. 1960, aðstoðar-
skólastjóri. Þau búa í Reykjavík.
Bragi
Þorfinnsson
Aðalheiður Magnúsdóttir
verkakona í Reykjavík, frá
Ísafirði
Gunnar Sigursveinn
Arnbjörnsson
bifreiðarstjóri og sjómaður í
Reykjavík, frá Borgarnesi
Kristbjörg Gunnarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
og fv. verslunarmaður
Bragi Jónsson
bókbindari í Reykjavík
Aðalheiður
Bragadóttir
námsráðgjafi og
aðstoðarskólastjóri í
Reykjavík
Hallfríður Brynjólfsdóttir
húsfr. á Eskifirði og í Rvík og
hjúkrunarfr., frá Broddanesi á
Ströndum
Jón Grímsson
útibússtj. á Eskifirði, aðalbókari
Landsbankans og frkvstj.
KRON, frá Húsavík á Ströndum
Þuríður Elísa Pálsdóttir
húsfreyja í Flatey, frá Brett
ingsstöðum á Flateyjardal
Guðmundur Jónasson
útvegsbóndi og útibússtjóri í
Flatey á Skjálfanda, var þaðan
Ólöf Guðmundsdóttir
húsfreyja á YtriLöngumýri
í Blöndudal
Björn Pálsson
bóndi á YtriLöngumýri
og alþingismaður
Guðrún Björnsdóttir
húsfreyja á Guðlaugsstöðum,
f. á Hurðarbaki á Ásum
Páll Hannesson
bóndi á Guðlaugsstöðum í
Blöndudal, AHún., var þaðan
Úr frændgarði Braga Þorfinnssonar
Þorfinnur Jóhannes
Björnsson
gjaldkeri Menntasjóðs,
bús. í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Prúður á syllu hann situr.
Sálum hann boðskapinn flytur.
Höfuðið styrkir og styður.
Stefnuna sýnir hann yður.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Prestur, lundi er á syllu situr.
Sálum prestur boðskap kærleiks flyt-
ur.
Prestur, bein er hálsinn styrkir, styð-
ur.
Stefnu prestur sýnir öllum yður.
Helgi Þorláksson svarar:
Lundaprestur á syllu situr,
sín orð í kirkju prestur flytur,
prestur liður í hálsi heitir,
hjálpar prestur vegs við leitir.
Helgi R. Einarsson svaraði og
sagði að þau væru ekki mörg
skyldustörfin þessa dagana og því
ánægjulegt að fá gátuna í hend-
urnar:
Prestur á syllunni situr
og presturinn boðskapinn flytur,
líka er presturinn liður,
eins leiðbeinir presturinn yður.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Prestur á syllunni situr.
Sálum guðsorð prestur flytur.
Prestur á hrygg lítill liður.
Leið sýnir vegprestur yður.
Þá er limra:
Við sönglist frá séra Birki
ég sit í kirkju og yrki,
ég tónelskur er,
en ef tón eyru sker,
ég prestinn í kirkjunni kyrki.
Og síðan ný gáta eftir Guð-
mund:
Kári nú af kappi blæs,
kátar rísa öldur glæs,
gos og pestir geisa hér,
en gátan fremur léttvæg er:
x
Á fjalli þennan finna má.
Felling er hann segli á.
Daufur sá í dálkinn ver.
Við dýrategund kenndur er.
Í Vísnahorni á fimmtudag birt-
ist gamall húsgangur, sem Ársæll
Jónsson hefur lært öðru vísi og
leiðréttir í samræmi við það:
Svona vil ég sjá hana,
svona horfa á hana.
Fríða vil ég fá hana
hjá föðurnum sem á hana.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Allt verður fyllt
nema pokinn prestsins