Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 England Fulham – Wolves...................................... 0:1 Staðan: Manch. City 31 23 5 3 66:21 74 Manch. Utd 30 17 9 4 58:33 60 Leicester 30 17 5 8 53:34 56 West Ham 30 15 7 8 48:37 52 Chelsea 30 14 9 7 46:30 51 Tottenham 30 14 7 9 51:32 49 Liverpool 30 14 7 9 51:36 49 Everton 29 14 5 10 41:38 47 Aston Villa 29 13 5 11 42:31 44 Arsenal 30 12 6 12 40:35 42 Leeds 30 13 3 14 47:48 42 Wolves 31 10 8 13 31:41 38 Crystal Palace 30 10 8 12 32:48 38 Southampton 30 10 6 14 39:53 36 Burnley 30 8 9 13 24:40 33 Brighton 30 7 11 12 33:38 32 Newcastle 30 7 8 15 30:50 29 Fulham 32 5 11 16 24:42 26 WBA 30 4 9 17 25:59 21 Sheffield Utd 30 4 2 24 17:52 14 B-deild: Watford – Reading................................... 2:0 Staða efstu liða: Norwich 40 26 9 5 64:28 87 Watford 41 24 10 7 59:27 82 Brentford 39 19 13 7 66:40 70 Swansea 39 20 9 10 45:31 69 Barnsley 40 20 8 12 52:44 68 Reading 41 19 9 13 56:45 66 Bournemouth 39 18 11 10 60:38 65 Cardiff 40 16 10 14 55:43 58 Millwall 40 14 16 10 41:37 58 Middlesbrough 40 16 9 15 48:43 57 Stoke 40 14 13 13 45:44 55 Þýskaland B-deild: Hamburger SV – Darmstadt.................. 1:2 - Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstadt. Danmörk Fallkeppnin: OB – Vejle................................................. 0:1 - Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn með OB og Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 68. mínútu. _ AaB 31, OB 29, SönderjyskE 28, Vejle 28, Lyngby 21, Horsens 13. Holland B-deild: Excelsior – Nijmegen.............................. 2:1 - Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. Eindhoven – Jong PSV ........................... 0:2 - Kristófer Ingi Kristinsson lék allan leik- inn með Jong PSV. Jong Ajax – Oss........................................ 0:1 - Kristian Nökkvi Hlynsson var allan tím- ann á varamannabekk Jong Ajax. Undankeppni EM kvenna Umspil, fyrri leikir: Tékkland – Sviss....................................... 1:1 Úkraína – Norður-Írland ........................ 1:2 Portúgal – Rússland................................. 0:1 _ Seinni leikir fara fram á þriðjudag og sig- urliðin fara á EM 2022 á Englandi. Vináttulandsleikir kvenna Frakkland – England............................... 3:1 Wales – Kanada........................................ 0:3 Spánn – Holland ....................................... 1:0 Bosnía – Albanía....................................... 0:0 4.$--3795.$ Spánn Benidorm – Barcelona........................ 35:46 - Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Barcelona. _ Efstu lið: Barcelona 50, Bidasoa 39, Hu- esca 38, La Rioja 36. Frakkland Nimes – Aix .......................................... 25:26 - Kristján Örn Kristjánsson var ekki í leikmannahópi Aix. _ Efstu lið: PSG 36, Montpellier 34, Nantes 26, Aix 24, Limoges 22, Nimes 21. Þýskaland B-deild: Lübeck-Schwartau – Bietigheim ...... 22:24 - Aron Rafn Eðvarðsson var ekki í leik- mannahópi Bietigheim. %$.62)0-# Spánn B-deild: Real Canoe – Ourense......................... 70:90 - Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 8 stig, tók 2 fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 20 mínútum fyrir Real Canoe. NBA-deildin: Miami – LA Lakers .......................... 110:104 Toronto – Chicago ............................ 113:122 Oklahoma City – Cleveland............. 102:129 Dallas – Milwaukee .......................... 116:101 Utah – Portland ................................ 122:103 LA Clippers – Phoenix..................... 113:103 Sacramento – Detroit....................... 101:113 4"5'*2)0-# Aftur byrjaði hann illa í gær, fékk fjóra skolla og einn fugl á fyrri níu holunum. Aftur sneri hann þó taflinu við á endasprettinum, þó ekki jafn glæsilega og fyrri daginn. Rose fékk þrjá fugla á seinni níu holunum og lauk hringnum á pari. Hann er því enn á alls sjö höggum undir pari og einn efstur, en nú munar ekki nema einu höggi á hon- um og Bandaríkjamönnunum Will Zalatoris og Brian Harman sem eru sex höggum undir parinu. Nýliðinn í baráttunni Zalatoris er aðeins 24 ára gamall og að keppa á Masters-mótinu í fyrsta sinn. Hann lék ágætlega á fyrsta degi, fór hringinn á 70 högg- um eða tveimur undir pari en eftir fimm fugla á síðustu átta holunum í gær hefur hann heldur betur vakið athygli, hann lék hringinn á 68 höggum, fjórum undir pari. Aðeins þremur kylfingum hefur tekist að vinna stórmótið fræga í fyrstu tilraun, Horton Smith og Gene Sarazen unnu fyrstu tvö mót- in árin 1934 og 1935, og Fuzzy Zo- eller lék það eftir árið 1979. Zala- toris var einmitt minntur á þessa staðreynd í sjónvarpsviðtali áður en hann hóf keppni á einum erf- iðasta golfvelli heims á fimmtudag- inn. „Ef ég er nógu vitlaus til að halda að ég geti spilað hérna, þá er ég nógu vitlaus til að halda að ég geti unnið mótið!“ svaraði ungi maðurinn. Hinn örvhenti Harman fékk tvo fugla á tveimur síðustu holunum í gær til að enda á 69 höggum, rétt eins og hann gerði fyrsta daginn. Ástralinn Marc Leishman og Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth eru jafnir í 4. og 5. sæti á fimm höggum undir pari og því næst koma sex kylfingar á fjórum högg- um undir. Japaninn Hideki Matsu- yama er í þeim hópi en hann var annar að loknum fyrsta hringnum. Sigurvegari Masters-mótsins í fyrra og efsti maðurinn á heimslist- anum, Dustin Johnson, er aftur á móti ekki í baráttunni. Hann var á tveimur höggum yfir pari og átti þrjár holur óleiknar þegar blaðið fór í prentun. Flatirnar á vellinum eru erfiðar eftir þurrt og hlýtt veðurfar und- anfarið. Aðeins tólf kylfingar náðu pari eða betra skori á fyrsta degi. Búist er við rigningu og jafnvel gæti orðið vindasamt um helgina sem setur keppnina þá í allt annað samhengi. Nýliði berst á toppnum - Margir bítast um græna jakkann AFP Frumraun Kylfingurinn ungi Will Zalatoris keppir á Masters í fyrsta sinn. GOLF Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Ólympíumeistaranum Justin Rose fataðist aðeins flugið á öðrum keppnisdegi Masters-mótsins í golfi í gær en hann er þó áfram efstur eftir frábæran fyrsta hring. Mótið er fyrsta risamót ársins af fjórum hjá körlunum og fer ávallt fram á hinum sögufræga Augusta Nation- al-velli í Georgíu í Bandaríkjunum. Flestir kylfingar höfðu lokið leik á öðrum hring mótsins þegar blaðið fór í prentun en efstu fimmtíu kom- ast í gegnum niðurskurðinn og leika síðustu tvo hringina. Hringirnir tveir hjá Rose hafa fylgt samskonar uppskrift hingað til. Á fyrsta degi var fátt sem benti til þess að Englendingurinn væri að fara að eiga góða helgi, enda var hann á tveimur höggum yfir pari eftir fyrstu sjö holurnar. Næst tóku við sjö fuglar og einn örn á seinni ellefu holunum og Rose endaði dag- inn langefstur, með fjögurra högga forskot. Handknattleiksmaðurinn Adam Haukur Baumruk hefur framlengt samning sinn við Hauka og mun því spila á Ásvöllum næstu þrjú árin hið minnsta. Adam er einn af lykil- mönnum Hauka í úrvalsdeildinni og hefur verið það undanfarin ár en hann er einn reyndasti leikmaður liðsins. Hann hefur skoraði 41 mark í 15 leikjum á núverandi leiktíð. Hann er 27 ára skytta og hefur allan sinn feril leikið með Haukum, orðið Íslandsmeistari tvisvar, bikarmeistari tvisvar og fimm sinn- um deildarmeistari með liðinu. Adam heldur tryggð við Hauka Morgunblaðið/Eggert Haukur Adam er lykilmaður í liðinu og verður það áfram næstu árin. Handknattleiksdeild HK hefur lagt fram tillögu fyrir ársþing Hand- knattleikssambands Íslands, sem fram fer á mánudaginn, um að lið- um í úrvalsdeild kvenna verði fjölg- að í tíu frá og með næsta tímabili. Með breytingunni yrði því farið úr átta liðum í tíu og áfram leikin þreföld umferð. Segir í greinargerð frá HK að leikmenn dreifi sér á of fá lið í úrvalsdeildinni í núverandi fyrirkomulagi. Tillaga HK verður tekin fyrir á ársþingi sambandsins sem fram fer rafrænt á mánudaginn. Vilja fjölga liðum í úrvalsdeildinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tíu HK-ingar vilja fjölga liðum í efstu deild kvenna í handbolta. SVÍÞJÓÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenskir knattspyrnumenn hafa orðið Svíþjóðarmeistarar í karla- flokki með átta félögum og fjórum sinnum á síðustu sex árum hafa svo- kölluð „Íslendingalið“ hreppt sænska meistaratitilinn. Ekki eru taldar miklar líkur á að Íslendingur hampi bikarnum í ár, nema Malmö kræki sér í íslenskan leikmann í sumar, því ríkjandi meistarar þykja afar sigurstrang- legir annað árið í röð. Malmö hefur titilvörnina í dag með upphafsleik deildarinnar á heimavelli sínum, gegn Hammarby. Arnór Ingvi Traustason vann meist- aratitilinn með Malmö á síðasta ári en hann var á dögunum seldur til New England Revolution í Banda- ríkjunum. Íslandstenging Malmö í augnablikinu er danski þjálfarinn Jon Dahl Tomasson sem er ættaður frá Íslandi eins og margoft var tí- undað á meðan hann var leikmaður í fremstu röð. Níu Íslendingar leika með fimm liðum deildarinnar nú í upphafi móts og þeir sem eru taldir líklegastir til að geta unnið titil með sínu liði eru vinstri bakverðirnir Valgeir Lund- dal Friðriksson og Oskar Tor Sverrisson hjá Gautaborgarliðinu Häcken. Liðið endaði í þriðja sæti í fyrra og margir sænskir sérfræð- ingar telja að einungis Häcken geti ógnað Malmö í baráttunni um meist- aratitilinn 2021. Valgeir, sem er aðeins 19 ára og varð Íslandsmeistari með Val á síð- asta ári, þreytir frumraun sína í at- vinnumennsku þegar Häcken sækir Halmstad heim í fyrstu umferðinni á morgun en sænskir fjölmiðlar reikna alfarið með honum í byrjunarliðinu. Oskar, sem er fæddur og uppalinn í Svíþjóð en lék sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd í fyrra, leikur sitt þriðja tímabil með liðinu en hefur ekki komið mikið við sögu og lék að- eins sjö leiki í deildinni á síðasta tímabil. Nýlendan í Norrköping Norrköping er Íslendinganýlend- an í deildinni. Ari Freyr Skúlason bættist í hópinn á dögunum og á að miðla þar af reynslu sinni. Ísak Bergmann Jóhannesson, 18 ára, sló í gegn með liðinu í fyrra, Finnur Tómas Pálmason, 20 ára, var keypt- ur af KR í vetur og Oliver Stef- ánsson, 19 ára Skagamaður, er í leikmannahópnum. Þá er Jóhannes Kristinn Bjarnason, 16 ára KR- ingur, kominn í unglingalið félagsins og faðir hans, Bjarni Guðjónsson, er nýr aðstoðarþjálfari Norrköping. Jón Guðni Fjóluson, miðvörð- urinn reyndi, kom til liðs við Hamm- arby í vetur frá Brann í Noregi og hjá Stokkhólmsliðinu eru bundnar miklar vonir við hann. Jón gat sér gott orð með Sundsvall og Norrköp- ing áður en hann fór til Rússlands fyrir þremur árum. Kolbeinn Sigþórsson gekk óvænt til liðs við Gautaborg í janúar eftir að hafa verið leystur undan samn- ingi hjá AIK. Hann handarbrotnaði í leik Íslands og Armeníu á dögunum og missir af byrjun mótsins. AIK er þó ekki án Íslendings því þróunarstjóri Stokkhólmsfélagsins er Magni Fannberg en enginn ís- lenskur leikmaður er þar á bæ. Aron Bjarnason gekk til liðs við Sirius frá Uppsala í janúar, frá Új- pest í Ungverjalandi, en Sirius kom á óvart sem nýliði í deildinni í fyrra. Þá bætist væntanlega markvörð- urinn efnilegi Hákon Rafn Valdi- marsson í hópinn en hann verður að óbreyttu keyptur til Elfsborg frá Gróttu á næstu dögum. Verður nýliðinn sænskur meistari? - Valgeir Lunddal og félagar í Häcken taldir líklegastir til að berjast við Malmö um titilinn - Níu íslenskir leikmenn í fimm liðum í byrjun tímabilsins í Svíþjóð Ljósmynd/Szilvia Micheller Svíþjóð Valgeir Lunddal Frið- riksson leikur með Häcken.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.