Morgunblaðið - 10.04.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 10.04.2021, Síða 42
Á sundi Úr stuttmyndinni Sundiðkun í Reykjavík frá árinu 1946. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hreyfimyndahátíðin Physical Cin- ema Festival verður haldin öðru sinni frá og með deginum í dag til 17. apríl í miðbæ í Reykjavíkur og nú utandyra vegna fjöldatakmark- ana og lokana kvikmyndahúsa. Helena Jónsdóttir stofnaði til hátíð- arinnar fyrir tveimur árum og stýr- ir henni. Var hún fyrst haldin í samstarfi við Stockfish-kvikmynda- hátíðina og þótti heppnast svo vel að ákveðið var að gera hana að tvíæringi, halda hana á tveggja ára fresti. Er hátíðin fyrst og fremst hugsuð sem vettvangur fyrir heim- ildarmyndir, vídeólistaverk, örverk og stuttmyndir og ætlað að vera tilraunasvið og leikvöllur fyrir alls konar kvikmyndagerð, eins og segir á vef hennar. Verður verkum varp- að á veggi og glugga á fjórum stöð- um í miðbænum. List í kófinu „Við ákváðum að fara af stað með útivörpunina út af ljósi, vorið er að koma mjög hratt,“ segir Helena og að myrkrið því á undanhaldi. Þá sé hugmyndin líka að leyfa fólki að njóta listar í kófinu, á tímum far- sóttarinnar. „Þetta eru fjórtán verk sem verð- ur varpað, það er hægt að byrja í Bíó Paradís, við mælum með því og að fólk hafi heyrnartól á sér en umhverfishljóðin eru líka mjög fín. Þar verður verkum varpað í glugga bíósins því hátíðin hefur verið hald- in þar. Síðan er hægt að labba upp á Vatnsstíg sem er nokkrum skref- um frá Bíó Paradís. Þar tökum við yfir nokkra glugga og byggingu, vörpum á bygginguna og glugga sem eru stórir og fallegir. Vatns- stígurinn verður eins og útigallerí, útibíóhús. Síðan er hægt að labba upp í Mengi sem er samstarfsaðili okkar og þau eru líka með frábæra tónlist, ef fólk er með valkvíða þeg- ar kemur að því að velja tónlist er hægt að fara á vefinn þeirra og ýta bara á „play“. Þar verða verk í glugganum og síðan er hægt að rölta niður í Tjarnarbíó. Þar mun- um við varpa á ráðhúsið og svo verður mónitor utan á húsinu og líka eitthvað í anddyrinu,“ segir Helena um uppsetningu hátíðar- innar og hvernig megi njóta hennar. Þöglar myndir –Þetta eru ekki hreyfimyndir í upphaflegri merkingu þess orðs, þ.e.a.s. ekki bara myndir sem hreyf- ast heldur líka tengdar dans- og hreyfilist, eða hvað? „Þetta er blandað. Þetta er byggt á hreyfimyndunum sem við köll- uðum í gamla daga „silent movies“ eða þöglu myndirnar og ég er ein- mitt þetta árið að byrja samstarf við Kvikmyndasafn Íslands og sýni tvær kvikmyndir frá Reykjavík á árunum í kringum 1940 og ’50,“ svarar Helena. Þær sýni m.a. bólu- setningar og ljósaböð barna vegna D-vítamínskorts. „Síðan er ég með brot úr sundmenningu Reykvík- inga. Við erum að byrja að byggja samband milli hátíðarinnar og kvik- myndasafnsins með því að sýna ger- semar úr stuttmyndasafni þess,“ bætir hún við og nefnir sem dæmi að í fyrra hafi fundist fyrsta kvik- myndin gerð af íslenskri konu, Ruth Hanson, dansmynd frá árinu 1927. Helena segist stefna síðar að innanhússsýningum á Ágirnd eftir Svölu Hannesdóttur og Óskar Gíslason frá árinu 1952 og Brennu- Njáls sögu Friðriks Þórs frá árinu 1980. „Þetta eru fyrstu skrefin að því að sýna gersemar frá safninu inni í sýningasölum eða sem úti- vörpun. Þetta er fyrsta árið sem við munum varpa frá þeim,“ útskýrir Helena. Frá ólíkum tímum og löndum Helena segist hafa safnað 50 kvikmyndaverkum sem sum hver séu gamlar, svarthvítar, þöglar myndir en önnur nútímaútgáfur af þöglum myndum þar sem höfundar nýti sér tónlist eða hljóðmynd sem fylgi myndunum. Helena starfaði á árum áður sem dansari og segir að einnig megi finna svokallaðar dansmyndir. Hún leitist þó við að gæta jafnræðis og því megi finna myndir frá fólki úr hinum ýmsu listgreinum. Þá hafi hún líka fengið 14 myndir frá stofn- un í Belgíu, stuttmyndir eftir fólk úr ólíkum listgreinum og frá ólíkum löndum, verk sem þekkt séu á meg- inlandi Evrópu. Helena bendir að lokum á að best sé að njóta kvikmyndanna eftir kl. 20 á kvöldin, þegar dimma tekur og fram á nótt. Því sé tilvalið að fá sér göngutúr eftir kvöldmatinn og njóta listarinnar eða fara í bíltúr og njóta hennar inni í upphituðum farar- tækjunum. Frekari upplýsingar má finna á physicalcinemafest.com. Tilraunasvið og leikvöllur - Kvikmyndaverkum verður varpað á glugga og veggi í miðbæ Reykjavíkur á Physical Cinema Festival 10.-17. apríl - Hátíðin haldin öðru sinni og nú utandyra vegna takmarkana Covid-19 Ljósmynd/Sarah Blee Stj́órnandi Helena Jónsdóttir er stofnandi hátíðarinnar og stýrir henni. Samtöl Úr Conversations eftir Benedikte Esperi frá árinu 2020. Bólusetning Úr stuttmyndinni Ljósaböð og bólusetning frá árinu 1946. 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Einkasýning Helgu Páleyjar Frið- þjófsdóttur, Húsvörður slær í gegn, verður opnuð í galleríinu í Þulu, Hverfisgötu 34, í dag, laugardag, kl. 14 til 18. Sýningin stendur yfir til 25. apríl og verður opin kl. 14-18 alla daga. Í tilkynningu segir að hér sé á ferðinni rómantísk hugmynd um húsvörð sem fámálan einfara sem sinni vel sínu starfi og lifi sáttur og sæll og djúpt í sínum hugarheimi. Sá eiginleiki geti tapast við það að verða fullorðinn. „Þessi húsvörður vann lífið, hann spilar hasarmyndir í huganum og brosir út í annað af æðisgengnu vit- leysunni sem honum dettur í hug. Núna er hann fiðrildi og allt sem er svart drekkur í sig ljós þangað til að ekkert er eftir, hann er sá eini sem veit hvernig á að stoppa það. Þetta er alltaf að gerast, við tökum bara ekki eftir því,“ segir um sýninguna. Helga hefur í verkum sínum not- að teikningu og þá meðal annars til að kanna mörk miðilsins, bæði á striga og í skúlptúr, að því er fram kemur í tilkynningu og hefur hún haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á landi og erlendis. Hún var meðlimur í listamannarekna galleríinu Kunst- schlager í Reykjavík og hefur einn- ig tekið þátt í ýmsum verkefnum, t.d. Frystiklefanum á Rifi og verið listrænn stjórnandi listahátíð- arinnar Ærings. Helga lauk námi við myndlistadeild Listaháskóla Ís- lands árið 2011 og hefur samhliða myndlistinni unnið sem teiknari og þá bæði við myndskreytingar og hreyfimyndir. Teikning Helga hefur í verkum sín- um notað teikningu og þá meðal annars til að kanna mörk miðilsins, bæði á striga og í skúlptúr. Rómantísk hugmynd um húsvörð - Helga Páley opnar sýningu í galleríinu Þulu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.