Morgunblaðið - 10.04.2021, Page 43

Morgunblaðið - 10.04.2021, Page 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA UM LEIÐ OG COVID LEYFIR. Starfsfólk Sambíóanna sendir ykkur öllum bestu kveðjur. Hlökkum til að hitta ykkur í bíó aftur og upplifa skemmtilegar stundir saman. VÆ NT AN LEG Í B ÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR VÆNTANLEG Í BÍÓ TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég hef oft lýst eftir meiriíslenskri þjóðlagatónlist ípistlum mínum. Mér hefur oft fundist skorta á þá ástundun, sér- staklega eftir að hafa búið í Skot- landi hvar þarlend þjóðlagatónlist er þrædd nokkuð kirfilega inn í þjóðar- sálina. Hún er sjálfsagður hluti af daglegu lífi, hvort heldur í hefð- bundnu formi eða framsæknu. Hlið- stætt dæmi væru Færeyjar. Mér finnst minna um þetta hérlendis, eins og sú hugsun liggi dálítið djúpt hjá okkur að slík- ar æfingar eigi helst heima á helgarviðburðum í Norræna húsinu eða Þjóðminjasafn- inu hvar eldra fólk sem talar um altan og skammel er mætt. Íslenskar þjóðlagaplötur koma vissulega út, ég hugsa um Ylju, Kjass og Snorra Helga t.d., þar sem nefndir aðilar leika sér með minni úr íslenskri þjóðlagatónlist, annaðhvort í textum eða sjálfri tónlistinni. Allir þessir aðilar heyra undir „mitt“ svið, eru í tengingum við popp og rokk ef svo mætti segja. Mig rak því í rogastans er ég fékk hressilegt tölvubréf frá Björk Níelsdóttur þar sem hún sagði mér frá nýrri plötu, Peysur & Parruk, sem hljómsveitin hennar var að gefa út. Ég fæ slatta af svona stöðluðum fréttatilkynningum en svalur tónn- inn og sérstaklega ljósmyndin af sveitinni, þar sem þau líta út eins og síðrokkshljómsveit frá Portland, kveikti hjá mér áhuga (ó, en ekki hvað!). Björk sagði mér að sveitin væri að leika sér með nýja tónlistar- stefnu sem hún kallaði baðstofu- barokk og þau væru að vinna með orðin „fágað en örlítið lúðalegt“. Snilld, hugsaði ég. Sveitina skipa, ásamt henni, þau Eyjólfur Eyjólfs- son (söngvari, langspil og flauta), Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir (barrokselló, söngur og skáldkona) og Björk syngur og leikur á langspil. Lykillinn að nálgun hópsins er samsláttur tveggja heima. Nafnið Gadus morhua er latneska fræði- heitið yfir atlantshafsþorsk og því þjóðlegt og alþjóðlegt í senn. Stefnu- mót sellós og langspils er hugsað sem sambræðsla barokks og bað- stofu, mörlandinn hittir fyrir menn- ingarlega evrópska strauma. En gengur þetta upp? „Yfir kaldan eyðisand“ hefur leika og setur dumbungslegan tón. Hópurinn tónar yfir tónlistinni sem er drónkennd og dularfull. „Vorið langt“ er næst og flautan setur glað- værari áferð á. Lagið íslenskt tví- söngslag. „Stúlkan og fullveldið“ er franskt lag frá 16. öld en textinn eft- ir Steinunni. Við erum að klifra upp í meiri fegurð og stillu. „Heimildar- skrá“ er hins vegar lag eftir Eyjólf við texta eftir sjálfan Eggert Ólafs- son, þann mikla meistara. Kersknis- legur ljóðabálkur og tónlistin fylgir efninu. Langspilið drynur undir (ásamt öðru strengjaplokki) á með- an flautan sér um melódíuna. Flott og vel heppnuð sambræðsla. Þessi dæmi lýsa heildinni ágæt- lega. Frumsamið í bland við æva- fornt, íslenskir textar og franskir, dökkleitt langspil úr innstu kynstr- um baðstofunnar og flauta úr furðu- skógi. Óvæntir bólfélagar, allir sam- an. Eyjólfur semur fleiri þjóðlög og svo á Steinunn lagið „Air Iceland eða Fósturlandsins flug“. Þvílíkur titill! Eyjólfur og Steinunn syngja þetta eins og þau séu uppábúin, norpandi í sveitabæ á Suðurlandi en í textanum segir m.a.: „Flugfreyjan með raunalega augnaráðið/ók vagn- inum á misfellu í gólfinu.“ Þetta er eiginlega ótrúlegt, hálfgert töfra- raunsæi. Vel spilað krakkar! Þetta síðasta dæmi sem ég tek færir heim sanninn um að tónlistar- mennirnir eru mjög svo áfram um að gera plötu sem fer ekki eftir hefð- bundnum, „þreyttum“ leiðum. Nei, unnið er með arfinn, líkt og Þursar gerðu í eina tíð. Það er ekki hægt að setja tónlist inn í glerskáp, eitthvað sem Gadus-félagar skynja greini- lega mætavel. Djöflast í forminu Peysur & parruk er plata eftir Gadus Mor- hua Ensemble, hvar ís- lensk þjóðlagatónlist er toguð eilítið og teygð. Hér er rýnt í plötuna sem slíka auk þess sem staða íslenskrar þjóð- lagatónlistar er gerð að umtalsefni. » Eyjólfur og Stein- unn syngja þetta eins og þau séu uppá- búin, norpandi í sveitabæ á Suðurlandi. Rokkarar Gadus morhua hafa nef fyrir skapandi framsetningu á sínu efni. Tónlistarkonan Sigurlaug Gísla- dóttir, sem gengur undir lista- mannsnafninu Mr. Silla, opnar myndlistarsýninguna Sub arc í Gallery Porti, Laugavegi 23b, í dag, laugardag, kl. 14 til 18. Á sýningunni verður röð málverka sem Sigurlaug vann að á undan- förnu ári í Berlín, Aþenu og Reykjavík. Í tilkynningu segir að Sigurlaug hafi einstakt næmi fyrir jafnvægi í litasamsetningum og myndbygg- ingu, líkt og sjá megi í tónlistar- myndböndum sem hún hafi unnið að. „Óræð rými verka sýning- arinnar verða til í flæði lista- mannsins þar sem hver flötur ákvarðar næsta og svo framvegis þar til eins konar borgarlandslag hefur myndast. Í verkunum leitast Sigurlaug eftir því að fanga arki- tektúr undirmeðvitundarinnar og skapar með því sögusvið eða sviðs- mynd drauma, minninga og hug- mynda,“ segir í tilkynningunni um listsköpun Sigurlaugar. Sigurlaug útskrifaðist með BA- gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009 og auk þess að starfa sem tónlistarmaður hefur hún starfað við hönnun, mynd- bandagerð og förðun. Sub arc er fyrsta einkasýning hennar. Fyrsta einka- sýning Mr. Silla í Porti Litríkt Verk eftir Sigurlaugu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.