Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA UM LEIÐ OG COVID LEYFIR.
Starfsfólk Sambíóanna sendir ykkur öllum bestu kveðjur.
Hlökkum til að hitta ykkur í bíó aftur og upplifa
skemmtilegar stundir saman.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR
VÆNTANLEG Í BÍÓ
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef oft lýst eftir meiriíslenskri þjóðlagatónlist ípistlum mínum. Mér hefur
oft fundist skorta á þá ástundun, sér-
staklega eftir að hafa búið í Skot-
landi hvar þarlend þjóðlagatónlist er
þrædd nokkuð kirfilega inn í þjóðar-
sálina. Hún er sjálfsagður hluti af
daglegu lífi, hvort heldur í hefð-
bundnu formi eða framsæknu. Hlið-
stætt dæmi væru
Færeyjar. Mér
finnst minna um
þetta hérlendis,
eins og sú hugsun
liggi dálítið djúpt
hjá okkur að slík-
ar æfingar eigi
helst heima á helgarviðburðum í
Norræna húsinu eða Þjóðminjasafn-
inu hvar eldra fólk sem talar um
altan og skammel er mætt. Íslenskar
þjóðlagaplötur koma vissulega út,
ég hugsa um Ylju, Kjass og Snorra
Helga t.d., þar sem nefndir aðilar
leika sér með minni úr íslenskri
þjóðlagatónlist, annaðhvort í textum
eða sjálfri tónlistinni. Allir þessir
aðilar heyra undir „mitt“ svið, eru í
tengingum við popp og rokk ef svo
mætti segja.
Mig rak því í rogastans er ég
fékk hressilegt tölvubréf frá Björk
Níelsdóttur þar sem hún sagði mér
frá nýrri plötu, Peysur & Parruk,
sem hljómsveitin hennar var að gefa
út. Ég fæ slatta af svona stöðluðum
fréttatilkynningum en svalur tónn-
inn og sérstaklega ljósmyndin af
sveitinni, þar sem þau líta út eins og
síðrokkshljómsveit frá Portland,
kveikti hjá mér áhuga (ó, en ekki
hvað!). Björk sagði mér að sveitin
væri að leika sér með nýja tónlistar-
stefnu sem hún kallaði baðstofu-
barokk og þau væru að vinna með
orðin „fágað en örlítið lúðalegt“.
Snilld, hugsaði ég. Sveitina skipa,
ásamt henni, þau Eyjólfur Eyjólfs-
son (söngvari, langspil og flauta),
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
(barrokselló, söngur og skáldkona)
og Björk syngur og leikur á langspil.
Lykillinn að nálgun hópsins er
samsláttur tveggja heima. Nafnið
Gadus morhua er latneska fræði-
heitið yfir atlantshafsþorsk og því
þjóðlegt og alþjóðlegt í senn. Stefnu-
mót sellós og langspils er hugsað
sem sambræðsla barokks og bað-
stofu, mörlandinn hittir fyrir menn-
ingarlega evrópska strauma. En
gengur þetta upp?
„Yfir kaldan eyðisand“ hefur
leika og setur dumbungslegan tón.
Hópurinn tónar yfir tónlistinni sem
er drónkennd og dularfull. „Vorið
langt“ er næst og flautan setur glað-
værari áferð á. Lagið íslenskt tví-
söngslag. „Stúlkan og fullveldið“ er
franskt lag frá 16. öld en textinn eft-
ir Steinunni. Við erum að klifra upp í
meiri fegurð og stillu. „Heimildar-
skrá“ er hins vegar lag eftir Eyjólf
við texta eftir sjálfan Eggert Ólafs-
son, þann mikla meistara. Kersknis-
legur ljóðabálkur og tónlistin fylgir
efninu. Langspilið drynur undir
(ásamt öðru strengjaplokki) á með-
an flautan sér um melódíuna. Flott
og vel heppnuð sambræðsla.
Þessi dæmi lýsa heildinni ágæt-
lega. Frumsamið í bland við æva-
fornt, íslenskir textar og franskir,
dökkleitt langspil úr innstu kynstr-
um baðstofunnar og flauta úr furðu-
skógi. Óvæntir bólfélagar, allir sam-
an. Eyjólfur semur fleiri þjóðlög og
svo á Steinunn lagið „Air Iceland
eða Fósturlandsins flug“. Þvílíkur
titill! Eyjólfur og Steinunn syngja
þetta eins og þau séu uppábúin,
norpandi í sveitabæ á Suðurlandi en
í textanum segir m.a.: „Flugfreyjan
með raunalega augnaráðið/ók vagn-
inum á misfellu í gólfinu.“ Þetta er
eiginlega ótrúlegt, hálfgert töfra-
raunsæi. Vel spilað krakkar!
Þetta síðasta dæmi sem ég tek
færir heim sanninn um að tónlistar-
mennirnir eru mjög svo áfram um
að gera plötu sem fer ekki eftir hefð-
bundnum, „þreyttum“ leiðum. Nei,
unnið er með arfinn, líkt og Þursar
gerðu í eina tíð. Það er ekki hægt að
setja tónlist inn í glerskáp, eitthvað
sem Gadus-félagar skynja greini-
lega mætavel.
Djöflast í forminu
Peysur & parruk er
plata eftir Gadus Mor-
hua Ensemble, hvar ís-
lensk þjóðlagatónlist er
toguð eilítið og teygð.
Hér er rýnt í plötuna
sem slíka auk þess sem
staða íslenskrar þjóð-
lagatónlistar er gerð að
umtalsefni.
»
Eyjólfur og Stein-
unn syngja þetta
eins og þau séu uppá-
búin, norpandi í
sveitabæ á Suðurlandi.
Rokkarar Gadus morhua
hafa nef fyrir skapandi
framsetningu á sínu efni.
Tónlistarkonan Sigurlaug Gísla-
dóttir, sem gengur undir lista-
mannsnafninu Mr. Silla, opnar
myndlistarsýninguna Sub arc í
Gallery Porti, Laugavegi 23b, í
dag, laugardag, kl. 14 til 18. Á
sýningunni verður röð málverka
sem Sigurlaug vann að á undan-
förnu ári í Berlín, Aþenu og
Reykjavík.
Í tilkynningu segir að Sigurlaug
hafi einstakt næmi fyrir jafnvægi í
litasamsetningum og myndbygg-
ingu, líkt og sjá megi í tónlistar-
myndböndum sem hún hafi unnið
að. „Óræð rými verka sýning-
arinnar verða til í flæði lista-
mannsins þar sem hver flötur
ákvarðar næsta og svo framvegis
þar til eins konar borgarlandslag
hefur myndast. Í verkunum leitast
Sigurlaug eftir því að fanga arki-
tektúr undirmeðvitundarinnar og
skapar með því sögusvið eða sviðs-
mynd drauma, minninga og hug-
mynda,“ segir í tilkynningunni um
listsköpun Sigurlaugar.
Sigurlaug útskrifaðist með BA-
gráðu í myndlist frá Listaháskóla
Íslands árið 2009 og auk þess að
starfa sem tónlistarmaður hefur
hún starfað við hönnun, mynd-
bandagerð og förðun.
Sub arc er fyrsta einkasýning
hennar.
Fyrsta einka-
sýning Mr.
Silla í Porti
Litríkt Verk eftir Sigurlaugu.