Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 36
Það er löng hefð fyrir því
að fólk safnist saman yfir
kosningavökunni og geri sér
misglaðan dag. Það er okkur
bæði ljúft og skylt að aðstoða
landsmenn við val á girni-
legum kræsingum, enda útlit
fyrir að fram undan sé langt
laugardagskvöld.
bjork@frettabladid.is
Einn vinsælasti matarbloggari
landsins, Berglind Hreiðarsdóttir
sem heldur úti síðunni gotteri.is,
situr sjaldnast auðum höndum
og bíður nú eftir að nýjasta bókin
hennar, Börnin baka, sem hún gerði
ásamt dóttur sinni, komi til lands-
ins og í verslanir. Berglind taldi það
þó ekki eftir sér að gefa landsmönn-
um nokkrar góðar uppskriftir fyrir
kosningapartíið í kvöld. ■
Kræsingar í
kosningapartíið
Bakaður ostur með grilluðum paprikum og pestói
1 x Dala-Auður
3 msk. Sacla-pestó með „Roasted pepper“
Sacla Peperoni grigliati (grilluð paprika í olíu)
Furuhnetur
Fersk basilíka
Meðlæti:
Baguette
Kex
Hnetur
Hráskinka
Vínber
Annað sem ykkur dettur í hug
Takið ostinn úr umbúðunum og leggið í eldfast mót eða á bökunarpapp-
ír. Setjið vel af pestói ofan á hann, skerið grillaða papriku niður og setjið
þar næst ofan á ásamt furuhnetum. Bakið við 190°C í um 10 mínútur
Stráið smá ferskri basilíku yfir og berið fram með góðu brauði, kexi og
öðru meðlæti.
Berglind reiðir fram einfalda en góða partírétti fyrir landsmenn sem ætla að vaka yfir kosningasjónvarpinu í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nachos-dýfur
eru gríðarvin-
sælar í veislur en
þessi er ferskari
en þær flestar.
Heimatilbúin beikonídýfa er sannar-
lega eitthvað annað og meira.
Bakaður ostur,
verður hvorki
einfaldara, né
betra.
Hið klassíska ostasalat klikkar aldrei.
Fersk nachos-ídýfa
1 lítil krukka salsasósa (um 300 g)
400 g rjómaostur
1 rauðlaukur
Iceberg (ca. ¼ haus eftir stærð)
1 rauð paprika
½ blaðlaukur
Smátómatar og nokkrir hringir af blaðlauk til skrauts
Nachos-flögur
Saxið rauðlauk mjög smátt og dreifið í botninn á þeirri skál/fati/bakka
sem verður fyrir valinu. Setjið salsasósu og rjómaost í hrærivélarskálina
og blandið þar til kekkjalaust og létt í sér. Smyrjið rjómaostblöndunni
yfir rauðlaukinn.
Saxið grænmetið smátt (nema tómata) og dreifið yfir blönduna (að sjálf-
sögðu má nota annað grænmeti, bara það sem ykkur þykir gott). Skerið
nokkra smátómata niður og skreytið með þeim og heilum hringjum af
blaðlauk.
Gott er að kæla nachos-dýfuna aðeins áður en hennar er notið með
stökkum nachos-flögum, en þó ekki nauðsynlegt.
Ostasalat og snakk
1 hvítlaukskryddostur
1 Mexíkókryddostur
1 rauð paprika
4 vorlaukar
15-20 rauð vínber
180 g (ein dós) sýrður rjómi
100 g majónes
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
Finn Crisp-snakk
Skerið ostana niður í litla teninga
og setjið í skál. Saxið papriku og
vorlauk smátt og skerið vínberin
í 4 hluta og hellið í skálina. Setjið
að lokum sýrðan rjóma, majónes
og krydd í skálina og blandið öllu
varlega saman. Njótið með Finn
Crisp-snakki.
Beikon- og laukídýfa
100 g beikon
2 laukar
3 msk. ólífuolía
2 msk. sykur
220 g Philadelphia-rjómaostur
150 g sýrður rjómi
90 g rifinn cheddar-ostur
2 stk. smátt saxaður vorlaukur
Salt og pipar
Eldið beikonið þar til það er vel
stökkt og myljið/saxið niður. Skerið
laukinn í ræmur og steikið upp úr
ólífuolíu og sykri við meðallágan
hita í um 20-30 mínútur þar til hann
er mjúkur í gegn, kryddið til með
salti og pipar. Saxið hann þá smátt
niður og geymið. Hrærið rjómaosti
og sýrðum rjóma saman í skál og
bætið þá restinni af hráefnunum
saman við og blandið vel. Berið
fram með Maarud-snakki með salti
og pipar.
34 Helgin 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ