Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 22
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
SÍGILD KÁPUBÚÐ
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinni
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
dúnúlpurnar
komnar með
ekta skinni.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir er ein af þeim stjórn-
málakonum sem hafa vakið
athygli fyrir sinn persónu-
lega og töffaralega fatastíl
gegnum tíðina. Hún hefur
kjark, þor og dug til að fara
sínar eigin leiðir og skapa
sinn stíl sem henni líður
best með.
Þorgerður Katrín er fædd í Reykja-
vík og uppalin í Breiðholtinu en fór
snemma til Hafnarfjarðar að elta
ástina sem blómstraði á unglings-
árunum. Hún náði ástinni sinni í
Hafnarfirði og eiga þau hjónin þrjú
börn og hund og ástin blómstrar
sem aldrei fyrr. Þorgerður Katrín er
menntaður lögfræðingur og starfar
í dag sem alþingismaður sem er
einmitt starf þar sem klæðaburður
er áskorun og ákveðnar kröfur
eru gerðar til alþingismanna um
klæðaburð.
Fyrsta val eru gallabuxur og bolur
Þegar Þorgerður Katrín er spurð
hvort hún hafi alltaf haft skoðun á
því hvernig fötum hún vilji klæðast
segir hún svo ekki vera. „Ég hef ekki
haft miklar skoðanir eða áhuga á
fötum fyrr en síðari árin. Mér finnst
gaman að fylgjast með íslenskri
hönnun og gróskunni á þeim vett-
vangi. Fyrsta val mitt án allra skuld-
bindinga eru gallabuxur og bolur.
Húfur og slár eru líka ómissandi.“
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum?
„Mjög venjuleg í klæðaburði,
Er pínu brussa og klæði mig í samræmi við það
„Mér finnst
mikilvægt að
hvert og eitt
okkar fái að
vera eins og við
kjósum sjálf og
líður vel með.
Vera frjáls í fata-
vali – líkt og í
lífinu sjálfu – án
þess að það kalli
á endalausar
aðfinnslur,“
segir Þorgerður
Katrín. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/EYÞÓR
Þorgerður Katrín segist oft taka fram kjóla þegar hún fer
í vinnuna eða jakka og betri buxur.
Þorgerður segist vera hrifin af samfestingum og hér
klæðist hún einum slíkum.
gallabuxur, grófir skór eða
hvítir íþróttaskór, bolir og alls kyns
peysur. Elska rúllukragann. Er
kannski ekki alltaf alveg kvenleg
í fatavali. Er pínu brussa og klæði
mig kannski í samræmi við það.“
Þorgerður Katrín er mikill
náttúruunnandi og nýtur þess
sem mest að vera í sveitinni með
fjölskyldunni og þá er þægilegur
fatnaður viðeigandi og hentar best.
Fer tiltölulega snyrtileg í vinnuna
Aðspurð segir Þorgerður Katrín
það skipta máli að velja klæðnað
til að vera í, eftir tilefni. „Mér finnst
tilefnið oft skipta máli. Þú klæðir
þig eðlilega öðruvísi þegar þú ferð
í sveitina eða göngutúra frekar en
í vinnuna. Fer tiltölulega snyrti-
leg í vinnuna og tel skipta máli að
sýna Alþingi virðingu og vera ekki
drusluleg til fara. Það er hins vegar
smekksatriði þannig að það fer bara
eftir hverjum og einum. Ég tel til að
mynda snyrtilegar gallabuxur ekki
stríða gegn óformlegum reglum
Alþingis þótt ekki séu allir sam-
mála því. Tek þó oftar fram kjóla á
þeim vettvangi eða jakka og buxur.
Sama gildir um leikhús. Hver og
einn spilar á sína fiðlu þegar kemur
að fötum. Finnst afar gaman að sjá
fólk í áhugaverðum klæðnaði og fá
hugmyndir á mannamótum. Dáist
að hugmyndaflugi margra og sköp-
unargáfu í samsetningu fatnaðar.“
Góður samfestingur vanmetinn
Þegar kemur að vali á sniðum, er
eitthvað sem heillar þig frekar en
annað?
„Já, mér finnst alltaf gaman að
góðum samfestingum og svo á
kona aldrei nóg af kjólum. Eitt-
hvað sem ég vildi alls ekki vera í
á mínum fyrri árum. Kjólar leysa
mjög margt og eru langflestir
þægilegir. Samfestingar eru einnig
vanmetnir.
Svo þetta klassíska, ég er veik
fyrir skóm, og er víst ekki ein um
það.“
Þorgerður Katrín segist halda
upp á einstaka f líkur og það fari
svolítið eftir árstíðum hvaða
f líkur eru í uppáhaldi hverju
sinni. „Það fer svolítið eftir árs-
tíðum. Stundum tilteknir sam-
festingar, stundum gallabuxur og
ákveðin lopapeysa. Svo þykir mér
alltaf vænt um mokkakápu sem
ég splæsti á mig fyrir meira en 20
árum. Nota hana mikið.“
Jarðlitir eru uppáhalds
Þorgerður Katrín á mjög erfitt með
að nefna einhvern einn uppáhalds-
hönnuð frekar en einhvern annan.
„Mér finnst íslenskir hönnuðir
margir hverjir frábærir. Þori vart
að byrja að nefna þá af hræðslu
við að gleyma einhverjum en fötin
frá Steinunni eru afar smekkleg og
falleg, það sama gildir um marga
hönnuði hjá Kiosk sem er búð, líka
úti á Granda.“
Fyrir utan hönnuðina hér heima
á Íslandi finnst henni Massimo
Dutti ágætt merki. „Þokkalega
ódýrt en margt smart og gott
úrval.“
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni eða
áttu þér þína uppáhaldsliti sem
þér finnst klæða þig best?
„Ég sæki alltaf mest í jarðliti.
Appelsínugult og svart er síðan
alltaf innan seilingar. Og auðvitað
bláar gallabuxur.“
Hvernig myndir þú lýsa skótísk-
unni sem þú heillast helst af?
„Grófir brúnir skór með þokka-
legum hæl er alltaf fyrsta val yfir
daginn. Finnst mikilvægt að eiga
hvíta íþróttaskó. Ef það er eitt-
hvert skómerki sem ég laðast að þá
eru það Chie Mihara og Nike.“
Þegar þú velur þér fylgihluti
hvað finnst þér vera ómissandi að
eiga í dag?
„Gróf armbönd og flotta lokka.“
Þorgerður Katrín er á því að
hver og einn eigi að velja sinn per-
sónulega fatastíl sem viðkomandi
líður vel með, það sé fyrir öllu.
„Mér finnst mikilvægt að hvert
og eitt okkar fái að vera eins og
við kjósum sjálf og líður vel með.
Vera frjáls í fatavali – líkt og í lífinu
sjálfu – án þess að það kalli á enda-
lausar aðfinnslur.“ n
4 kynningarblað A L LT 23. september 2021 FIMMTUDAGUR