Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 39
Þeir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir og Víðir Reynis-
son yfirlögregluþjónn segjast
treysta fólki til að gleyma ekki
sóttvarnareglum í gleðinni
um helgina. Annaðhvort
Víkingar eða Breiðablik munu
hampa Íslandsmeistaratitl-
inum.
fanndisbirna@frettabladid.is
FÓTBOLTI Víkingur á möguleika á
að tryggja sér Íslandsmeistaratitil-
inn um helgina, þegar liðið mætir
Leiknismönnum á Víkingsvellin-
um á laugardag. Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson
yfirlögregluþjónn segjast treysta
fólki til að gleyma ekki sóttvarna-
reglum í gleðinni.
Aðspurður um hvort það sé hætta
á því að fólk gleymi sér ef Víkingar
vinna sinn fyrsta Íslandsmeistara-
titil í þrjátíu ár, segir Víðir í samtali
við Fréttablaðið að það geti gerst.
„Það er hætta á því að menn láti
gleðina bera skynsemina ofurliði
en ég held nú, út frá því sem maður
hefur heyrt frá þeim, að þeir séu
alveg meðvitaðir um þetta og með
sín plön um hvernig þeir ætli að gera
þetta eins skynsamlega og hægt
er. Þeir undirbúa sig fyrir að fagna
gríðarlega,“ segir Víðir.
Þórólfur bætir við að hann
treysti á að fólk fari eftir þeim
reglum sem eru í gangi og passi sig.
„Það væri ánægjulegt ef menn geta
glaðst yfir einhverjum titli, það
er náttúrulega ekki útséð um það
kannski enn þá, en ég vona bara að
þau fari eftir reglunum,“ segir Þór-
ólfur enn fremur.
Víðir bendir á að Víkingar hafi
gefið út að þeir muni krefja gesti
um hraðpróf fyrir leikinn, en þegar
hraðprófum er beitt mega 1.500
manns koma saman í hverju hólfi
í stað 500. Vísar hann til þess að
Víkingur hafi í fyrri leikjum verið
með tvö aðskilin hólf og því geti þau
tekið við allt að þrjú þúsund manns.
„Svo geta þeir hugsanlega bætt við
hólfum ef þeir eiga von á fleirum, en
þeir hafa greinilega hugsað það að
fara þessa leið og hafa þá heimild til
svona viðburða,“ segir Víðir.
„Það verður ekkert eftirlit með
þessu meira en bara öðru sem við
erum að gera, við höfum verið að
skoða íþróttaviðburði undanfarið
og komið með ábendingar um það
ef okkur hefur sýnst eitthvað vera
ekki í lagi,“ segir Víðir. n
Sóttvarnafögnuður um helgina
Öll vötn falla í Fossvog um helgina þar sem Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen munu væntanlega lyfta Íslandsmeist-
arabikarnum fyrir framan fjölmarga Víkinga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
44%
íbúa höfuðborgar-
svæðisins á aldrinum
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
68%
íbúa höfuðborgar-
svæðisins á aldrinum
55-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
49%
íbúa höfuðborgar-
svæðisins á aldrinum
35-65 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup 20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
NÁÐU TIL FJÖLDANS!
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins.* Á höfuðborgarsvæðinu, þar sem
Fréttablaðinu er dreift í heimahús, eru yfirburðirnir ótvíræðir. Hafðu samband og
leyfðu okkur að hjálpa þér og þínu fyrirtæki að ná til fjöldans.
Sími: 550 5050 – soludeild@frettabladid.is
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Enska deildakeppnin
ákvað í gær að draga tólf stig af
Derby sem er því komið með stiga-
töluna í mínus í næstefstu deild
enska boltans. Var ákvörðunin
tekin eftir að stjórn félagsins óskaði
eftir gjaldþrotaskiptum fyrir helgi.
Derby er sögufrægt félag sem
vann tvo meistaratitla á sínum
tíma, en fjárhagsvandræði hafa
einkennt rekstur félagsins undir
stjórn Morris, sem hefur að eigin
sögn reynt að selja félagið undan-
farin ár. Wayne Rooney, fyrrum
leikmaður Manchester United og
enska landsliðsins, stýrir Derby
þessa dagana, í frumraun sinni sem
knattspyrnustjóri.
Undir stjórn Rooney var Derby
að sigla lygnan sjó um miðja deild
með tíu stig eftir átta umferðir,
þrátt fyrir að fá úr litlu að moða í
leikmannaglugganum í sumar.
Tuttugu ár eru liðin síðan Þórður
Guðjónsson lék með Derby seinni
hluta tímabilsins og skoraði eitt
mark fyrir Hrútana. n
Missa tólf stig
vegna gjaldþrots
Rooney hefur verk að vinna í vetur.
FIMMTUDAGUR 23. september 2021 Íþróttir 17FRÉTTABLAÐIÐ