Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 6
Það hafa orðið til ný málefni svo sem umverfismál og ýmsar nýjar hugmyndir um framkvæmd lýðræðis. Málefnasviðið er því flóknara núna, sem opnar rými fyrir nýja flokka. Eva H. Önnu- dóttir, prófessor í stjórnmála- fæðideild HÍ 50% 40% 30% 20% 10% 19 19 19 23 19 27 19 31 19 33 19 34 19 37 19 42 19 44 19 46 19 49 19 53 19 56 19 59 19 61 19 63 19 67 19 71 19 74 19 78 19 79 19 83 19 87 19 91 19 95 19 99 20 03 20 07 20 09 20 13 20 16 20 17 n Sjálfstæðisflokkurinn n Framsóknarflokkurinn Þróun fylgis Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks frá upphafi framboðanna til kosninga 2017: Myndin sýnir fylgisniður- sveiflu seinni ára í saman- burði við gullaldartíma Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks. Þrjár breytingar hafa orðið á kjör- dæmaskipan á þessum tíma. Heimild: https://kosn- ingasaga.wor- dpress.com) K Y N N U M N ÝJ A N J E E P® A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 *VERÐ EFTIR ÁRAMÓT VEGNA HÆKKUNAR Á VSK: 7.179.000 KR. • STÆRRI VÉL 240 HÖ • 360° MYNDAVÉL • LÁGT DRIF • RAFDRIFIN LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI 6.699.000 KR.** * * S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 8 6 2 . 0 0 0 ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ ÁDRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID TRYGGÐU ÞÉR B ÍL FYRIR VERÐHÆKKUN UM ÁRAMÓT* • SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA • FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR • 10,1” SNERTISKJÁR MEÐ LEIÐSÖGUKERFI • BLINDHORNS OG AKREINAVARI kristinnhaukur@frettabladid.is MOSFELLSBÆR Gullleitarfyrirtækið Iceland Resources hefur lagt fram gögn til Mosfellsbæjar um rann- sóknarboranir í Þormóðsdal. Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar bæjarins, segir að nú verði kannað hvort fram- kvæmdin teljist meiriháttar og kalli á framkvæmdaleyfi. Mosfellsbær hefur lagst gegn gull- leit á svæðinu og í aðalskipulagi er ekki gert ráð fyrir byggingum, vegum eða öðrum mannvirkjum í tengslum við námavinnslu. Bærinn synjaði Iceland Resources um fram- kvæmdaleyfi árið 2017 og var það mál tekið fyrir hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Fleiri mál hafa ratað inn á borð nefndarinnar vegna verkefna félags- ins en landeigendur í Vopnafirði og á Tröllaskaga hafa einnig kært útgefin leyfi Orkustofnunar. Gull- leit fylgir oft jarðrask og hætta á að vatnsból spillist, en samkvæmt lögum geta rannsóknarleyfishafar farið inn á landareignir fólks, enda á ríkið það sem finnst í jörðu. Samskipti félagsins við Mos- fellsbæ hafa gengið brösuglega, en í fundargerð gerir skipulagsnefnd bæjarins alvarlegar athugasemdir við framgöngu og röksemdafærslu Iceland Resources ehf. í samskiptum sínum við sveitarfélagið.“ Arnar segir bæinn ítrekað hafa óskað eftir frekari gögnum frá félaginu. Eigandi þess er Vilhjálmur Þór Vilhjálms- son, sem á langa sögu gjaldþrota félaga á ýmsum kennitölum. n Erfið samskipti Mosfellsbæjar og gullleitarfyrirtækis Tengslarof losaði um kjarna- fylgi Sjálfstæðisflokksins. Flóknari málefni en áður opna leið fyrir ný framboð. bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Tveir af fyrrum burðar- bitum fjórflokksins á Íslandi standa enn, Sjálfstæðisf lokkur og Fram- sóknarf lokkur. Ef fylgi þeirra er borið saman við gullaldarár þeirra verður að segja að vinsældirnar séu aðeins svipur hjá sjón. Áður fyrr áttu f lestar pólitískar skoðanir landsmanna heimili í þeirri fjórskiptu byggð sem saman- stóð af Alþýðubandalagi, Alþýðu- flokki, Framsóknarflokki og Sjálf- stæðisf lokki. Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur runnu saman í Sam- fylkinguna og heyra því sögunni til hvað fjórflokkakerfið varðar. Fylgi Samfylkingarinnar náði mest 30 prósentum, en f lokksmenn urðu að sætta sig við rúm 12 prósent í síðustu þingkosningum. Efnahags- hrunið og klofningsframboð eru meðal skýringa sem nefndar hafa verið á veikingu fjórflokksins. Ný öfl leysa gömul af hólmi og veikja þau sem eftir standa. Sjálfstæðisf lokkurinn, í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag, var stofnaður 1929 við samruna Íhaldsf lokksins og Frjálslynda flokksins. Hann hefur verið ríkjandi í ríkisstjórnum. Flokkurinn fékk 35-46 prósenta fylgi á landsvísu í þingkosningum nánast frá upp- hafi stofnunar og fram á þessa öld. Síðustu 12 ár hafa Sjálfstæðismenn mátt sætta sig við innan við 30%. Í kosningum 2009, eftir hrunið, varð niðurstaða alþingiskosninganna sú að Sjálfstæðisflokkur fékk 23,7 pró- sent, sem er versta útkoma flokksins til þessa. Hann fór í 29 prósent árið 2016 en sumar kannanir mæla nú Fjórflokkurinn aðeins svipur hjá sjón fylgið undir því sem hann hefur minnst fengið áður. Framsóknarflokkurinn var stofn- aður árið 1916 og er því aldurshöfð- ingi. Flokkurinn var oft áhrifamikill og einkar ríkjandi í stjórnmálasögu 1971-1991. Framsóknarflokkurinn fékk 35,9 prósenta  landsfylgi árið 1931. Fylgið rokkaði í kosningum næstu áratugi en var oftast á bilinu 20 til 27 prósent, fram á þessa öld. Árið 2007 varð kröpp dýfa þegar fylgið  fór niður í 11,7 prósent. Flokkurinn stökk upp í heil 24,7 pró- sent árið 2013 en seig niður í 10 til 12 prósent í síðustu tvennum þing- kosningum. Wintris-málið og Mið- flokkurinn koma þar mjög við sögu. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir að í kosning- unum 2009, eftir hrunið, hafi komið skarpt los á tengingu kjósenda við fjórflokkinn. Sá sem tapaði mestu á því sem mætti kalla tengslarof, hafi verið Sjálfstæðisf lokkur sem átti langmesta kjarnafylgið. Afleið- ingar þessa hafi svo birst enn frekar í kosningunum 2013. Innt eftir skýringum á fyrrum vinsældum fjórflokksins svarar Eva að stundum sé talað um að flokka- kerfið hafi frosið upp úr 1930. Eftir það hafi um langa hríð orðið litlar breytingar á pólitísku landslagi. Um 1990 hafi nýtt stöðugleikatímabil hafist sem hafi ekki skapað mikið rými fyrir nýja f lokka. Fjölgun stjórnmálaflokka hin síðari ár sé í takti við þróun sem hafi orðið áður í nágrannalöndunum. Málefnasviðið sé orðið miklu flóknara. Áður hafi íslensk stjórnmál snúist mikið um félagshyggju og markaðshyggju. Minni áhersla hafi verið á alþjóða- hyggju en nú. „Það hafa orðið til ný málefni svo sem umhverfismál og nýjar hugmyndir um framkvæmd lýðræðis. Málefnasviðið er því flóknara núna, sem opnar rými fyrir nýja flokka,“ segir Eva. n arib@frettabladid.is STJÓRNMÁL Borgarstjórn hefur vísað frá tillögu Sjálfstæðisflokksins um að borgin taki upp sveigjanleg starfslok í stað starfsloka við 70 ára aldur. Nú þegar sé verið að vinna að slíkri innleiðingaráætlun. „Við teljum aldurstengdar við- miðanir brjóta í bága við jafnræðis- reglu stjórnarskrárinnar. Þetta er fullkomlega tilviljanakennt, þetta er ekki inni í neinum í lögum. Það skiptir mjög miklu máli að þessu verði breytt,“ segir Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara. Aldursviðmiðin of tilviljanakennd Helgi Péturs- son, formaður Landssambands eldri borgara. birnadrofn@frettabladid.is HAFNARFJÖRÐUR Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun bygginga- fulltrúa Hafnarfjarðar um heimild fyrir byggingu fjölbýlishúsaklasa með tuttugu og þremur íbúðum og einu atvinnurými við Lækjargötu 2. Samkvæmt úrskurðinum brýtur byggingar leyfið í bága við gildandi skipulag hvað landnotkun varðar. Því verði að fella ákvörðunina úr gildi. n Ekkert verður af byggingu blokkar  Gullleitaráform í Þormóðsdal og víðar hafa verið umdeild. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM 4 Fréttir 23. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.