Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 8
AðAlfundur Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins Aðalfundur Hollvinasamtaka v.s. Óðins verður haldinn miðvikudaginn 6. október næstkomandi. Fundurinn verður um borð í Óðni sem nú liggur við Síldarbryggjuna, Grandagarði (næst togarabryggju Brims) og hefst klukkan 16:00. Fundarefni: • Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar. Hollvinir varðskipsins Óðins hafa með samstilltu átaki bjargað þessu merkilega skipi, gert það að lifandi safni um baráttu okkar í þorska- stríðunum og helsta djásni Sjóminjasafnsins. Hollvinir, fjölmennið á fundinn. Nýir félagar velkomnir. Stjórn Hollvinasamtaka Óðins Viðurkenningu geta hlotið ein- staklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félaga- samtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði kynjajafn- réttismála. Skipuð hefur verið sérstök val- nefnd í samræmi við 2. málsl. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem velur úr innsendum tilnefningum. Tilnefningum skal skila rafrænt eigi síðar en 10. október 2021 til forsætisráðuneytisins á netfangið for@for.is. Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með. Forsætisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til jafnréttis- viðurkenningar fyrir árið 2021. Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Brautarholt Heimili Angjelin Sterkaj þar sem hin ákærðu hittust meðal annars. Rauðarárstígur Reykjavík Downtown Apartments þar sem Armando heimsótti reglulega vini sína. Rauðagerði Heimili Armando Beqirai þar sem morðið var framið. MIKLABRAUT 2 3 SÆBRAUT KR IN GL UM ÝR AR BR AU T Vettvangur atburða nóttina sem morðið var framið 1 1 2 3 Atburðarásin í Rauðagerði 23.44 Bíllinn sem Angjelin og Shpetim voru á sést á Sogavegi. 23.45 Armando fer frá Rauðar­ árstíg og Claudia sendir Angjelin skilaboð. 23.51 Armando sést í mynda­ vélum koma að heimili sínu og keyra inn í bílskúr þar sem hreyfi­ skynjaraljós kviknar. 23.55 Bíll Angjelin og Shpetim sést við hús Armando. 23.56 Ljós við bílskúrinn kviknar aftur og var Armando þar líklega á leiðinni út úr bíl­ skúrnum áður en hann var skotinn. 23.57 Bíll Angjelin og Shpetim sést á Sogavegi. Fjögur eru ákærð í tengslum við Rauðagerðismálið svo- kallaða, en farið var um víðan völl við skýrslutökur í síðustu viku, meðal annars hvar allir voru daginn örlagaríka. Einn hefur játað sök og segist hafa verið einn að verki, en þrjú eru ákærð fyrir samverknað. fanndis@frettabladid.is DÓMSMÁL Málflutningur í Rauða- gerðismálinu svokallaða fer fram í dag en skýrslutökum í málinu lauk í síðustu viku, þar sem skýrslur voru teknar af 40 manns á fjórum dögum. Fjögur eru ákærð í málinu og hefur eitt þeirra, Angjelin Sterkaj, játað að hafa skotið Armando Beq- irai til bana fyrir utan heimili hins síðarnefnda í Rauðagerði skömmu fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. Claudia Sofia Coelho Carvahlo, Murat Selivrada, og Shpetim Qerimi eru síðan ákærð fyrir samverknað, en þau hafa neitað sök. Farið var um víðan völl við skýrslutökur í síðustu viku en þar kom fram frá ýmsum sjónarhornum hvað gerðist daginn sem Armando var myrtur. Angjelin kom til Reykjavíkur á laugardeginum úr sumarbústað, en dagana þar áður höfðu hótanir gengið á víxl milli hans og Armando. Um kvöldið hitti Angjelin bæði Shpetim og Murat, þar sem Claudia sá að mestu leyti um að skutla á milli, en þeir voru meðal annars að ræða um byggingarverkefni í Borgargerði, sem Shpetim og Murat fóru að skoða. Þar á eftir fór Angjelin ásamt Clau- diu aftur heim til sín. Bæði sögðust þau hafa séð grunsamlega einstakl- inga fyrir utan og fyrir dómi sögðu þau líklega hafa verið um að ræða vini Armando, en vinir sem gáfu skýrslu neituðu því alfarið. Angjelin sagðist í kjölfarið hafa ákveðið að fara einn að hitta Arm- ando í von um að ná sáttum, þar sem hann óttaðist að hann yrði drepinn ef vinir Armando væru með í för. Claudia fékk þau fyrirmæli frá Angjelin að fylgjast með bíl í eigu Armando við Rauðarárstíg, þar sem Armando var oft, og átti hún að senda fyrir fram ákveðin skila- boð þegar einhver hreyfing yrði á bílnum. Murat er sagður hafa sýnt Claudiu bílinn, en sjálfur neitar hann því alfarið. Eftir nokkurn tíma bað Angjelin Claudiu um að fylgjast með öðrum bíl í eigu Armando en Claudia sagð- ist ekki hafa spurt hvers vegna hún ætti að fylgjast með bílunum. Fyrir og eftir vinnu um kvöldið hafði Armando komið við á Rauð- arárstíg. Um korter í tólf um kvöldið lagði Armando af stað heim og sendi Claudia þá skilaboðin. Angjelin hafði þá beðið Shpetim um að koma með sér í sumarbústað en fyrst stoppuðu þeir í Rauðagerði. Armando kom heim skömmu fyrir miðnætti en Angjelin beið þá við heimili hans og skaut hann til bana. Shpetim fór síðan með Angj- elin af vettvangi, en að hans sögn vissi hann ekki hvað hafði gerst. Á leiðinni í bústaðinn stoppuðu þeir í Kollafirði þar sem Angjelin fleygði skotvopninu í sjóinn. Líkt og áður segir er Angjelin sá eini sem hefur játað í málinu og hefur hann þvertekið fyrir það að hin meðákærðu hafi vitað af morð- inu. Öll eru þau hvert með sinn verj- andann og því má gera ráð fyrir að málflutningur muni taka nokkurn tíma. n Sönnunargögn og frásagnir fjörutíu vitna dregin saman thorgrimur@frettabladid.is ÞÝSKALAND „Þetta er of beldisverk sem gerir mann orðlausan,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari í gær, um morð á bensínstöð í Rínar- landi-Pfalz um helgina. Um var að ræða morð á tvítugum afgreiðslumanni bensínstöðvar í bænum Idar-Oberstein. Hann var myrtur á laugardaginn eftir rifrildi við viðskiptavin, sem neitaði að fara eftir grímuskyldu sem var viðhöfð inni á stöðinni. Morðinginn, Þjóð- verji á fimmtugsaldri, gaf sig fram daginn eftir og játaði á sig sök. „Þýska ríkisstjórnin fordæmir morðið af öllu af li,“ sagði Ulrike Demmer, talskona kanslarans. „Við hörmum dauða þessa unga manns sem var skotinn til bana á hrotta- legan hátt.“ Morðið er talið hið fyrsta í Þýska- landi sem rakið er til andstöðu við sóttvarnaaðgerðir yfirvalda. Quer- denken-mótmælahreyfingin hefur beitt sér gegn sóttvarnaaðgerðun- um frá því í fyrra en þýska innanrík- isráðuneytið telur ekki að morðið tengist stærri hreyfingu. Þó taldi talsmaður ráðuneytisins morðið merki um auknar öfgar í viðspyrnu gegn sóttvarnaaðgerðunum. n Merkel fordæmir sóttvarnamorð Angela Merkel Þýskalands­ kanslari 6 Fréttir 23. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.