Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 29
hana inn í sitt kerfi. Í dag kemur þessi nýja virkni inn sjálfvirkt með mánaðarlegu útgáfunum, svo enginn viðbótarkostnaður fer í að fá virknina inn. Það er mjög skemmtilegt fyrir viðskiptavini að sjá hlutina bara birtast allt í einu í viðmótinu, daginn eftir sjálfvirka uppfærslu frá Microsoft. Einnig er kostnaður við kerfið í dag miklu fyrirsjáanlegri en áður, sem að mínu mati er ótvíræður kostur. Þar að auki eru öll leyfi seld sem mán­ aðargjöld og því auðvelt að skala upp og niður eftir þörfum, sem er sérstaklega mikilvægt hjá fyrir­ tækjum í árstíðabundnum rekstri, ólíkt því sem áður var. Kostnaður­ inn getur þannig verið minni þá mánuði sem veltan er lítil, en þegar umfangið verður meira er auðvelt að skala upp með lítilli fyrirhöfn.“ útskýrir Karl og heldur áfram: „Uppitími og öryggi hjá Micro­ soft eru einnig með því besta sem gerist í heiminum í dag. Microsoft hefur varið gríðarlegum fjár­ munum í öryggismál ásamt því að lofa 99,9 prósenta uppitíma. Þarna eru þeir á heimavelli og fáir sem geta keppt við þessi gæði.“ Ný tækni En hvernig er þetta mögulegt, spyrja sig kannski sumir, þekkjandi hina gömlu tíma? „Samhliða þessum breytingum hjá Microsoft, þegar Dynamics NAV varð að Business Central, var kynnt til sögunnar nýtt forritunarmál og ný aðferð til að forrita í kerfinu. Í stað þess að fara inn í kerfið og breyta því sjálfu, skrifum við nú svokallaðar viðbætur (e. extens­ ions) sem liggja utan á kerfinu. Við breytum því ekki lengur kerfinu sjálfu heldur smíðum utan á það. Microsoft uppfærir svo kerfið, en við berum ábyrgð á því að okkar viðbætur haldi í við þeirra þróun,“ skýrir Karl. Rue de Net er brautryðjandi í að skrifa viðbætur fyrir Business Central og strax árið 2017 voru fyrstu vörurnar tilbúnar og aðgengilegar á markaðstorgi Microsoft. „Við byrjuðum mjög snemma að skoða þessa nýju tækni og höfum í dag tileinkað okkur hana alfarið. Allar okkar vörur eru í viðbótum og allar sérbreytingar sem við gerum á Business Central eru það líka. Að mínu mati er mikilvægt að fyrir­ tæki sem ekki eru komin í skýið byrji strax í dag á því að koma sínu kerfi yfir í viðbætur, því það gerir á endanum flutninginn upp í skýið svo miklu einfaldari.“ Karl nefnir einnig nýja leið fyrir kerfi til að eiga samskipti sín á milli. „Azure Service Bus er nokkurs konar skilaboðaskjóða sem keyrir í skýinu. Með notkun hennar getur eitt kerfi sent skilaboð til skjóðunnar þegar því hentar og önnur kerfi geta sótt þau, ef og þegar þeim hentar. Þannig geta þessi kerfi átt samskipti án þess að vera háð hvert öðru. Þetta er ný leið til að eiga samskipti og kemur í staðinn fyrir að samtengja kerfi með vefþjónustum, þar sem kerfin eru mjög háð hvert öðru. Það má sem sagt segja að þetta slíti kerfin í sundur, hvert kerfi sinni sínu hlutverki og skili af sér gögnum til skjóðunnar, án vitneskju um hvaða önnur kerfi taki við þeim og hvernig gögnin eru notuð,“ segir Karl og bætir við: „Við höfum innleitt Azure Ser­ vice Bus í fjölda verkefna hjá okkur við mjög góðan orðstír.“ AppSource-markaðstorgið – frábær nýjung Allir þekkja markaðstorgin Play Store fyrir Android og App Store fyrir Apple. „AppSource er ekki ósvipað markaðstorg, nema fyrir Business Central. AppSource er samansafn viðbóta sem hugbúnaðarfyrirtæki um allan heim hafa smíðað fyrir Business Central og sem viðskipta­ vinir geta keypt inn í sín kerfi,“ upplýsir Karl. Hann segir íslenska notendur hingað til hafa verið tiltölulega háða íslenskum þjónustuaðilum þegar kemur að sérlausnum og við­ bótum við kerfið. „Íslenskir þjónustuaðilar hafa ýmist þurft að leita erlendis til að finna lausnir eða smíða þær sjálfir. Með tilkomu AppSource er hægt að leita að lausnum á miðlægum stað. Lausnirnar skipta nú þegar hundruðum, og bætist í á degi hverjum. Því má með sanni segja að AppSource hafi stækkað heim Business Central töluvert. Þetta er einn af stóru kostum Business Central, og að mínu mati ættu not­ endur kerfisins ávallt að leita fyrst í AppSource þegar einhverja lausn vantar, í stað þess að hlaupa strax til og láta sérsmíða hana fyrir sig.“ Síðasta uppfærslan Það eru án efa fyrirtæki á mark­ aðnum í dag sem eru og hafa verið lengi með viðskiptakerfi sitt í gamalli útgáfu og hugsa til þess að erfitt verði að færa sig yfir í nútímann. En hvernig komast fyrirtæki á þennan nýja stað? „Stutta svarið er að fyrirtækin þurfa að fara í gegnum eina upp­ færslu í viðbót, upp í nýjustu útgáfu af Business Central, en eftir það er leikur einn að koma kerfinu fyrir hjá Microsoft. Þessi síðasta uppfærsla þarf þó ekki að vera ein stór sorgarsaga; það er vel hægt og raunar mjög mikilvægt, að skipu­ leggja hana vel og sjá tækifærin í nýrri útgáfu. Mjög skynsamlegt er að nýta tækifærið til að hagræða og einfalda, en við hvetjum öll fyrirtæki til að skoða hvort ekki sé hægt að nota staðlaðar lausnir í stað sérsmíða. Oft eru líka hlutir sem áður voru sérskrifaðir orðnir staðlaðir í nýrri útgáfum. Auðvitað er ekki allt til, t.d. tengingar við hin ýmsu kerfi sem fyrirtæki nota, en þarna koma sérsmíðuðu við­ bæturnar sterkar inn,“ svarar Karl. Framtíðarsýn Rue de Net Þegar litið er til framtíðar sér Karl ekkert annað gerast en að skýja­ lausnir taki smátt og smátt yfir, jafnvel hraðar en fólk telur. „Við hjá Rue de Net ætlum okkur Þjónusta Rue de Net er persónuleg og starfsfólkið leitast við að kynnast viðskiptavinum vel og þekkja þarfir þeirra. að nýta þessa nýjustu tækni til hins ítrasta og erum farin að horfa á erlenda markaði. Allar okkar vörur eru til sölu í AppSource og nú erum við einnig farin að bjóða þjónustu og ráðgjöf í AppSource. Það þýðir að vörurnar okkar eru ekki það eina sem erlendir við­ skiptavinir geta keypt frá okkur í AppSource, heldur einnig þjón­ ustan,“ greinir Karl frá. Sjálfvirknivæðing er einnig fyrirferðarmikil í framtíðarsýn Rue de Net. „Markmið okkar hefur ávallt verið að nýta tæknina til góðs, og auðvelda og létta undir í starfsemi fyrirtækja. Krafan um sjálfvirkni­ væðingu er alltaf að verða meiri og meiri, hraðinn í nútímasamfélagi er mikill og því nauðsynlegt að geta brugðist hratt við breyttum aðstæðum. Þar spilar tæknin lykil­ hlutverk. Það er svo mikilvægt að mismunandi hlutar starfsemi fyrirtækja tali vel saman og þar kemur Microsoft sterkt inn með Power Platform­i sínu. Ég sé því fyrir mér að við munum nýta Power Platform miklu meira þegar fram líða stundir,“ bætir Karl við. „Fyrir Business Central er endapunkturinn nokkuð skýr: Á endanum munu allir keyra sitt við­ skiptakerfi í skýinu. Þessi vegferð er löngu hafin, en margir okkar viðskiptavina eru nú þegar komnir í skýið og fleiri og fleiri bætast við í hverjum mánuði. Þessi þróun heldur því bara áfram.“ Taktu skrefið upp í skýið – því fyrr því betra Að mati Karls ættu öll fyrirtæki að taka skrefið upp í skýið, og það fyrr en seinna. Einfaldlega til að geta notið góðs af öllu því sem skýið hefur upp á að bjóða. „Sumir velta kannski fyrir sér hvort þetta sé ekki bara skref sem minni fyrirtæki geta tekið í dag, en það er síður en svo. Fyrstu inn­ leiðingarnar voru hjá minni fyrir­ tækjum en nú eru stærri fyrirtæki líka búin að taka skrefið. Engin fyrirtæki eru of lítil né stór fyrir skýið,“ segir Karl. „Það er svo margt sem verður einfaldara og betra í skýinu. Fyrir­ sjáanleiki og skalanleiki sem ekki hefur áður þekkst er nú í boði fyrir öll fyrirtæki. Aðgengi verður einnig svo miklu betra, sem er mjög mikilvægt í nútíma vinnu­ umhverfi, eins og við höfum öll kynnst síðastliðna átján mánuði. Við hjá Rue de Net höldum því ótrauð áfram á skýjavegferð okkar og hvetjum fyrirtæki til að byrja að hugsa til framtíðar. Við höfum ein­ sett okkur að styrkja framsækin fyrirtæki á þeirra vegferð og erum til í spjallið hvenær sem er.“ Rue de Net Reykjavík er á Suður- landsbraut 8. Sími 414 5050. Allar nánari upplýsingar á ruedenet.is Öll fyrirtæki ættu að taka skrefið upp í skýið, og það fyrr en seinna. Einfaldlega til að geta notið góðs af öllu því sem skýið hefur að bjóða. Karl Einarsson Karl er sæll í starfi sínu hjá Rue de Net, sem hann segir annasamt en gefandi. Rue de Net sé braut- ryðjandi á sínu sviði og hafi að markmiði að nýta tæknina til góðs, til að auð- velda og létta starfsemi fyrir- tækja. FRÉTTA- BLAÐIÐ/EYÞÓR kynningarblað 7FIMMTUDAGUR 23. september 2021 UPPLÝSINGATÆKNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.