Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 15
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Í síðustu viku endurheimti Ísland gamalt heimsmet. Hlutabréfavísi­ talan hafði þá á tólf mánuðum hækkað meira en á nokkru öðru byggðu bóli í veröldinni. Það gerðist síðast fyrir hrun og þótti þá merki um efnahagsundur. Nú fara flestir hjá sér. Lágir vextir og innspýting stjórn­ valda hafa víðast hvar leitt til þess að hlutabréf hafa hækkað í verði. En Ísland hækkar mest og tvöfalt meira en önnur Norðurlönd. Hér er óstöðugleiki Þetta stafar ekki af því að vöxturinn í þjóðarbúskapnum hafi farið hraðar af stað eftir faraldurinn en annars staðar. Þvert á móti. Ísland er heldur á eftir öðrum þjóðum í Evrópu. Við förum hægar í að skapa verðmæti á ný, en hraðar í að keyra verðmæti fyrirtækjanna upp. Endurheimt þessa gamla heims­ mets er þó ekki vísbending um annað bankahrun. En það sýnir tvennt: Verulegan efnahagslegan óstöðugleika og froðumyndun. Það er alvarleg staða, sem kallar á alvar­ lega pólitík. Við þetta bætist að verðbólgan er á tvöföldum þeim hraða, sem stjórnvöld hafa sett sem viðmið. Með öðrum orðum: Hér er ekki stöðugleiki. Það markmið náðist ekki. Halli á fjárlögum var til að mynda orðinn umtalsverður fyrir faraldurinn. Fast viðvörunarskot Þeir forystumenn ríkisstjórnar­ flokkanna þriggja og atvinnu­ lífsins, sem halda því fram að kosningarnar gangi út á það að varðveita stöðugleika, hafa allt aðrar hugmyndir um hvað stöðug­ leiki er en ríkisstjórnir og forystu­ menn atvinnulífs í samkeppnis­ löndunum. Meiri óstöðugleiki hér þýðir að íslensk fyrirtæki hafa veikari samkeppnisstöðu. Þetta lagast ekki með því að halda því fram að úfinn sjór sé sléttur og vextir lækki þegar þeir hækka. Í síðustu viku sendi seðlabanka­ stjóri fast viðvörunarskot inn í kosningabaráttuna. Frekari lausa­ tök á ríkisfjármálum munu leiða til enn meiri vaxtahækkana en orðið hafa og eru fyrirsjáanlegar. Þær bíta nú þegar í fyrirtækin og höggva í fjárhag heimilanna. Kostnaðurinn lendir á ungum barnafjölskyldum Seðlabankastjóri er einfaldlega að segja: Loforð um stóraukin útgjöld og skattalækkanir þurfa kjósendur að borga með vaxtahækkunum. Kostnaðurinn lendir með mestum þunga á herðum ungra barnafjölskyldna, sem nú þegar finna fyrir aukinni vaxtabyrði af húsnæðislánum. Og hann veikir viðnámsþrótt atvinnulífsins. Ný ríkisstjórn getur ekki varð­ veitt stöðugleika, sem ekki er. Hún þarf að koma á stöðugleika. Takist það ekki er eins víst að misbrestur verði á framkvæmd mikilvægra áforma í loftslagsmálum og endur­ skipulagning heilbrigðiskerfisins lendi á biðlista enn eitt kjörtíma­ bilið. Sérstaða VG og Viðreisnar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarflokk­ anna til næstu fimm ára er sannar­ Gamalt heimsmet endurheimt lega götótt. En hún er þó það sem pólitíkin kemst næst þokkalegri ábyrgð á kosningaári. Framsókn hóf kosningabarátt­ una með því að blása fjármála­ áætlunina út af borðinu. En Sjálfstæðisflokkurinn gerði svo skattalækkanir án samsvarandi niðurskurðar að forgangsmáli, þegar halla tók undan fæti í skoð­ anakönnunum fyrir stuttu. Staðfestuleysi af þessu tagi er himinhrópandi, þegar jafnvel breski Íhaldsflokkurinn telur óhjá­ kvæmilegt að stórhækka skatta við aðstæður sem þessar. VG hefur sýnt meiri ábyrgð. Þau hafa teygt á ramma fjármála­ áætlunarinnar en ekki sett hann til hliðar. Viðreisn er svo eini stjórnar­ andstöðuflokkurinn, sem ekki hyggst auka útgjöld með lántökum og talar gegn skattahækkunum. Grafið undan samkeppnisstöðu Íslands Ógætileg lækkun skatta og aukin útgjöld leiða til enn meiri vaxta­ hækkana. Þær ýta svo áfram upp gengi krónunnar, sem hefur hækkað að undanförnu. Sú hækkun er studd af erlendum lántökum ríkissjóðs. Hún byggist ekki á aukinni framleiðni. Eins var þetta fyrir hrun. Þá fóru erlendar lántökur í gegnum bankana. Nú fara þær í gegnum ríkissjóð. En gengisáhrifin eru þau sömu. Gengishækkun getur dregið tímabundið úr verðbólgu, en veikir samkeppnishæfni útflutnings­ atvinnuveganna. Ríkisstjórnin segir að allt velti á vexti ferðaþjónustu og þekk­ ingariðnaðar. En hún situr svo með hendur í skauti þegar hækkun á gengi krónunnar grefur undan möguleikum þessara greina til öflugrar viðspyrnu. Það er ekki traustvekjandi. Stöðugur gjaldmiðill mun kalla á mikla ábyrgð stjórnmálaflokka. En hann myndi auðvelda okkur að verja velferðarkerfið og tryggja samkeppnishæfni íslenskra fyrir­ tækja. n Tryggjum framtíð okkar nánustu. Líf- og sjúkdómatrygging kostar minna en þú heldur. Við veitum ráðgjöf á sjova.is/lifogsjuk. FIMMTUDAGUR 23. september 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.