Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 15
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Í síðustu viku endurheimti Ísland
gamalt heimsmet. Hlutabréfavísi
talan hafði þá á tólf mánuðum
hækkað meira en á nokkru öðru
byggðu bóli í veröldinni.
Það gerðist síðast fyrir hrun og
þótti þá merki um efnahagsundur.
Nú fara flestir hjá sér.
Lágir vextir og innspýting stjórn
valda hafa víðast hvar leitt til þess
að hlutabréf hafa hækkað í verði.
En Ísland hækkar mest og tvöfalt
meira en önnur Norðurlönd.
Hér er óstöðugleiki
Þetta stafar ekki af því að vöxturinn
í þjóðarbúskapnum hafi farið
hraðar af stað eftir faraldurinn en
annars staðar. Þvert á móti. Ísland
er heldur á eftir öðrum þjóðum í
Evrópu. Við förum hægar í að skapa
verðmæti á ný, en hraðar í að keyra
verðmæti fyrirtækjanna upp.
Endurheimt þessa gamla heims
mets er þó ekki vísbending um
annað bankahrun. En það sýnir
tvennt: Verulegan efnahagslegan
óstöðugleika og froðumyndun. Það
er alvarleg staða, sem kallar á alvar
lega pólitík.
Við þetta bætist að verðbólgan
er á tvöföldum þeim hraða, sem
stjórnvöld hafa sett sem viðmið.
Með öðrum orðum: Hér er ekki
stöðugleiki. Það markmið náðist
ekki. Halli á fjárlögum var til að
mynda orðinn umtalsverður fyrir
faraldurinn.
Fast viðvörunarskot
Þeir forystumenn ríkisstjórnar
flokkanna þriggja og atvinnu
lífsins, sem halda því fram að
kosningarnar gangi út á það að
varðveita stöðugleika, hafa allt
aðrar hugmyndir um hvað stöðug
leiki er en ríkisstjórnir og forystu
menn atvinnulífs í samkeppnis
löndunum.
Meiri óstöðugleiki hér þýðir
að íslensk fyrirtæki hafa veikari
samkeppnisstöðu. Þetta lagast ekki
með því að halda því fram að úfinn
sjór sé sléttur og vextir lækki þegar
þeir hækka.
Í síðustu viku sendi seðlabanka
stjóri fast viðvörunarskot inn í
kosningabaráttuna. Frekari lausa
tök á ríkisfjármálum munu leiða til
enn meiri vaxtahækkana en orðið
hafa og eru fyrirsjáanlegar. Þær bíta
nú þegar í fyrirtækin og höggva í
fjárhag heimilanna.
Kostnaðurinn lendir á
ungum barnafjölskyldum
Seðlabankastjóri er einfaldlega að
segja: Loforð um stóraukin útgjöld
og skattalækkanir þurfa kjósendur
að borga með vaxtahækkunum.
Kostnaðurinn lendir með
mestum þunga á herðum ungra
barnafjölskyldna, sem nú þegar
finna fyrir aukinni vaxtabyrði af
húsnæðislánum. Og hann veikir
viðnámsþrótt atvinnulífsins.
Ný ríkisstjórn getur ekki varð
veitt stöðugleika, sem ekki er. Hún
þarf að koma á stöðugleika. Takist
það ekki er eins víst að misbrestur
verði á framkvæmd mikilvægra
áforma í loftslagsmálum og endur
skipulagning heilbrigðiskerfisins
lendi á biðlista enn eitt kjörtíma
bilið.
Sérstaða VG og Viðreisnar
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarflokk
anna til næstu fimm ára er sannar
Gamalt heimsmet endurheimt
lega götótt. En hún er þó það sem
pólitíkin kemst næst þokkalegri
ábyrgð á kosningaári.
Framsókn hóf kosningabarátt
una með því að blása fjármála
áætlunina út af borðinu. En
Sjálfstæðisflokkurinn gerði svo
skattalækkanir án samsvarandi
niðurskurðar að forgangsmáli,
þegar halla tók undan fæti í skoð
anakönnunum fyrir stuttu.
Staðfestuleysi af þessu tagi er
himinhrópandi, þegar jafnvel
breski Íhaldsflokkurinn telur óhjá
kvæmilegt að stórhækka skatta við
aðstæður sem þessar.
VG hefur sýnt meiri ábyrgð.
Þau hafa teygt á ramma fjármála
áætlunarinnar en ekki sett hann til
hliðar. Viðreisn er svo eini stjórnar
andstöðuflokkurinn, sem ekki
hyggst auka útgjöld með lántökum
og talar gegn skattahækkunum.
Grafið undan
samkeppnisstöðu Íslands
Ógætileg lækkun skatta og aukin
útgjöld leiða til enn meiri vaxta
hækkana. Þær ýta svo áfram
upp gengi krónunnar, sem hefur
hækkað að undanförnu.
Sú hækkun er studd af erlendum
lántökum ríkissjóðs. Hún byggist
ekki á aukinni framleiðni. Eins var
þetta fyrir hrun. Þá fóru erlendar
lántökur í gegnum bankana. Nú
fara þær í gegnum ríkissjóð. En
gengisáhrifin eru þau sömu.
Gengishækkun getur dregið
tímabundið úr verðbólgu, en veikir
samkeppnishæfni útflutnings
atvinnuveganna.
Ríkisstjórnin segir að allt velti
á vexti ferðaþjónustu og þekk
ingariðnaðar. En hún situr svo með
hendur í skauti þegar hækkun á
gengi krónunnar grefur undan
möguleikum þessara greina til
öflugrar viðspyrnu. Það er ekki
traustvekjandi.
Stöðugur gjaldmiðill mun kalla
á mikla ábyrgð stjórnmálaflokka.
En hann myndi auðvelda okkur
að verja velferðarkerfið og tryggja
samkeppnishæfni íslenskra fyrir
tækja. n
Tryggjum framtíð
okkar nánustu.
Líf- og sjúkdómatrygging kostar
minna en þú heldur.
Við veitum ráðgjöf á sjova.is/lifogsjuk.
FIMMTUDAGUR 23. september 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ