Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 52
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þetta er bara ótrúlegt
fólk sem hefur unnið
sig í gegnum missi,“
segir Reynir um við-
mælendurna í Missi.
„Og það merkilega er
einhvern veginn
hversu mikil von og
fegurð er í þessu.
Reynir Lyngdal
Fólk sem hefur misst börn,
maka, foreldra eða systkini,
hleypir þeim Reyni Lyngdal
og Frey Eyjólfssyni að sínum
dýpstu hjartarótum í sjón-
varpsþáttunum Missi, þar
sem þau segja frá því hvernig
þau unnu úr þungum áföllum
og sorg. Eitthvað sem þeir
báðir þekkja eftir að hafa
annars vegar misst barn en
hins vegar föður.
toti@frettabladid.is
„Þetta er með erfiðustu en jafnframt
fallegasta verkefni sem ég hef tekist
á við,“ segir fjölmiðlamaðurinn
þrautreyndi, Freyr Eyjólfsson, um
aðkomu sína að þáttaröðinni Missi,
sem verður aðgengileg á Sjónvarpi
Símans Premium í dag.
„Þetta var mjög mikil þerapía
fyrir okkur sem stóðum að þessu en
við náttúrlega komum öll að þessu
með eitthvað í bakpokanum. Reynir
var þarna nýbúinn að missa pabba
sinn, ég og konan mín misstum barn
á síðustu metrunum í meðgöngu og
allur hópurinn var búinn að ganga
í gegnum sorg og missi, þegar við
komum fyrst saman. Síðan fórum
við að hitta annað fólk sem var erfitt
en fallegt og mjög uppbyggjandi.“
Þættirnir eru unnir í nánu sam-
starfi við Sorgarmiðstöð, enda
umfjöllunarefnið viðkvæmt og
grunnhugmyndin að þeim kviknaði
þar. „Ég kem þannig að þessu að þær
Ína Lóa og Eva Dís hjá Sorgarmið-
stöð hafa samband við mig og biðja
mig hreinlega að taka hugmynd sem
þær voru með aðeins lengra og gera
einhvers konar heimildaseríu um
sorg og sorgarmissi,“ segir Reynir
Lyngdal. Hann leikstýrir þáttunum
sem byggja fyrst og fremst á við-
tölum sem Freyr tekur, við fjölda
fólks sem hefur misst börn, maka,
foreldra eða systkini og talar opin-
skátt um þessi þungu áföll.
Að elska er að syrgja
„Ég var tiltölulega nýbúinn að missa
pabba minn og kveikti svona sterkt
á þessu,“ heldur Reynir áfram og
bætir við að hann hafi í raun furðað
sig á því að ekki væri löngu búið að
gera þætti af þessum toga.
„Hvað getur maður sagt? Þetta
eru þannig sögur að í þeim gefur
raunveruleikinn ímyndunaraflinu
á kjaftinn. Þetta eru stórar sögur og
merkilegar og magnað fólk,“ segir
Freyr og líkir þáttagerðinni við
ótrúlegt ferðalag.
„Maður deyr. Það er náttúrlega
eina lokaniðurstaðan í lífinu og
ef maður ætlar að elska þá verður
maður að syrgja. Þannig er bara
díllinn. Þær eru systur og fylgjast að,
sorgin og ástin,“ heldur Freyr áfram
og bætir við að þannig lagað sé lítið
við það að athuga.
„Þetta er ekki vond tilfinning,
sorgin, en hún er bara viðbragð við
missi, sem eins og ég segi, við förum
öll í gegnum. Og í þessum þáttum
einbeittum við okkur að því að
finna fólk sem hefur farið í gegnum
þungan og erfiðan missi. Upp-
lifað mikla og djúpa sorg en unnið í
henni. Eitthvað sem er ekki endilega
sjálfgefið. Vegna þess að sorgin, hún
fer aldrei. Ég held nefnilega að það
sé stór misskilningur,“ segir Freyr og
heldur áfram:
„Hún er alltaf til staðar en þú ferð
að lifa með henni og við vildum
sérstaklega finna fólk sem hafði
unnið markvisst í sinni sorg og það
er einhvern veginn ótrúlegt hvað
fólkið sem við hittum og tölum við
er viturt. Þetta er fólk sem lifir með
sorg, en er mjög hamingjusamt þrátt
fyrir allt.“
Hamingjan í sorginni
„Það var svona útgangspunktur-
inn. Að finna von og fegurð í þessu
annars dimma efni. Og kannski slá
líka á þessa dauðafóbíu sem er svo-
lítið ríkjandi í nútímasamfélagi,
þannig að við tölum aldrei um það
sem mun á endanum gerast,“ segir
Reynir.
„Það er hægt að vera sorgmæddur
en hamingjusamur á sama tíma,“
heldur Freyr áfram. „Það er hægt
að lifa með sorg en eiga samt bara
mjög hamingjusamt og innihalds-
ríkt líf og það var þannig fólk sem
við vorum að leita að og fundum.
Það var einhvern veginn ótrúlegt
að setjast niður með þessu fólki.
Stundum komum við saman og
hlustuðum á sögur í fjóra til fimm
tíma og allur hópurinn bara ein-
hvern veginn sat agndofa og grét
yfir þessum sögum. Þetta voru mjög
magnaðar upptökur og stundir
þegar við hittum allt þetta fólk,“
segir Freyr, um bæði þau sem segja
frá missi sínum sem og allan þann
fjölda sérfræðinga sem rætt er við í
þáttunum. „Þannig að þetta er búið
að vera mjög magnað og lærdóms-
ríkt ferli.“
Von og fegurð
„Þetta er bara ótrúlegt fólk sem
hefur unnið sig í gegnum missi,“
segir Reynir um viðmælendurna
í Missi. „Og það merkilega er ein-
hvern veginn hversu mikil von og
fegurð er í þessu.“
Reynir segir þetta ekki síst merki-
legt í ljósi þess að hann hafi mest
fengist við leikið efni, þar sem
reynt er að finna einhvern sann-
leik í einhverju sammannlegu. „En
þarna þarf bara ekki annað en að
kveikja á myndavélinni og spyrja
réttu spurningarinnar og þá er það
bara komið. Þetta er svo ótrúlega
magnað.“ n
Leitið og þér munuð finna
fegurð og von í missinum
Freyr Eyjólfsson er spyrill í þáttunum Missir og fer með áhorfendur á fund átján viðmælenda sem segja frá átakan-
legum missi og hamingjunni sem þó kann að leynast í djúpri sorg þegar unnið er úr henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BARÓNSTÍGUR
KEFLAVÍK OG AKUREYRI
8-24
24/7
WWW.EXTRA.IS
299kr.stk.
Tweeks nammi 65/100 g
249kr.stk.
Slow Cow Mind Cooler 330 ml
199kr.stk.
Kristall 2 L
!!
VINSÆL VARA
!!
VINSÆL VARA
30 Lífið 23. september 2021
FIMMTUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ