Morgunblaðið - 19.04.2021, Page 1
ir margar sakir, ekki síst vegna staðsetningar gossins, en að
sögn Páls er gosið á þeim stað á Reykjanesskaga þar sem er
ólíklegast að verði eldgos. „Ef við hefðum fyrirfram átt að
giska hvar líklegast væri að næsta eldgos á Reykjanesskaga
Hinn 19. mars síðastliðinn fór að gjósa í Geldingadölum og er
gosið því mánaðargamalt í dag. Gosið er þó ekki nema síðasti
þátturinn í atburðarás sem hófst miklu fyrr, að sögn Páls Ein-
arssonar jarðeðlisfræðings. Páll segir eldgosið merkilegt fyr-
yrði, þá hefðum við alveg örugglega ekki bent á þennan stað,“
segir Páll og bendir á að eldgosavirknin hafi lengi vel verið
miklu meiri bæði Krýsuvíkur- og Reykjanesmegin, þ.e.a.s. sitt
hvorum megin við eldgosið í Geldingadölum. »6
Ljósmynd/Ólafur Þórisson
Eldgosið í Geldingadölum á mánaðarafmæli í dag
M Á N U D A G U R 1 9. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 90. tölublað . 109. árgangur .
ARON ER LÍK-
LEGA Á LEIÐ TIL
ÁLABORGAR
STEFNA AÐ
OPNUN
KIRKJUNNAR
VÍSINDALEG
ÞEKKING MIKILVÆG
UNDIRSTAÐA
NOTRE DAME 28 UMHVERFISMÁLIN 11FRÁ BARCELONA 27
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Reisa á tíu nýjar svítur við Hótel
Grímsborgir á þessu ári. Fram-
kvæmdir hefjast í dag og gerir eig-
andi hótelsins, Ólafur Laufdal Jóns-
son, ráð fyrir að svíturnar verði
komnar í notkun í lok árs. Fram-
kvæmdirnar eru liður í því að gera
betur við gesti, en hótelið hlaut fimm
stjörnur fyrir um einu og hálfu ári,
fyrst hótela á Íslandi. Ólafur segir að
bókanir séu farnar að berast frá út-
löndum en sterkustu markaðirnir eru
í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hann
segir að þótt fjöldinn sé ekki mikill sé
fjöldi bókana stöðugur og greinir
hann meiri áhuga frá Bandaríkjunum.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir að Bandaríkjamarkaður
sé að taka fyrr við sér heldur en Evr-
ópumarkaðurinn og að fyrirtæki sem
þjónusti helst ferðamenn frá Evrópu
gætu þurft að bíða lengur en þau
fyrirtæki sem þjónusti ferðamenn frá
Bandaríkjunum. Bólusetningar leiki
þar stórt hlutverk og staðan á faraldr-
inum á hverju markaðssvæði fyrir sig.
Sumarið sé mikilvægur tími fyrir
fyrirtækin í ferðaþjónustunni og það
sé mikilvægt að ferðamenn skili sér til
landsins. Þessi tími mun skera úr um
afkomu fyrirtækja í ferðaþjónustu
sem hafa mörg hver safnað skuldum
og verið tekjulaus í eitt og hálft ár.
Bæði Ólafur og Jóhannes segja að
aukið flugframboð til landsins hafi
haft áhrif á áhuga og skilað sér líka í
fleiri bókunum. Í sumar mun Ice-
landair fljúga til 34 áfangastaða í
Norður-Ameríku og í Evrópu. Þá
mun bandaríska flugfélagið Delta Air
Lines hefja flug til Íslands frá þremur
borgum í Bandaríkjunum í maí.
Reisa tíu nýjar svítur
þrátt fyrir faraldurinn
- Bókanir berast frá útlöndum - Meiri bjartsýni en áður
MFerðamannasumarið »4, 10
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
María Heimisdóttir, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), von-
ast til þess að ljúka samningum al-
veg á næstunni við Reykjalund,
Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilsu-
stofnun í Hveragerði hvað varðar
endurhæfingu vegna langvarandi
einkenna Covid-19. Reykjalundur
hefur ekki getað tekið á móti nýjum
einstaklingum í slíka endurhæfingu
um nokkurt skeið vegna samnings-
leysis.
María segir að málið sé í algerum
forgangi. „Við vinnum þetta eins
hratt og okkar mannafli leyfir en síð-
ustu 2 ár höfum við gert um það bil
30% fleiri nýja samninga en tvö árin
þar á undan. Auðvitað eru fleiri Co-
vid-tengdir samningar eins og til
dæmis um sóttkvíarhótel eða önnur
bráðaúrræði enn framar í forgangs-
röðuninni hjá okkur en þetta er
sannarlega í forgangi.“
María leggur áherslu á að sam-
hæfa þurfi þjónustuna. „Það þarf að
vera ákveðin samræming á milli
þessara aðila og Covid-göngudeild-
arinnar á Landspítalanum og heilsu-
gæslunnar.“ »14
Endurhæfingin í
algerum forgangi
- 30% fleiri samningar á síðustu árum