Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Atvinnuauglýsingar
Interviews will be held in Reykjavik
in May and June
For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492
Fax:+ 36 52 792 381
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Study Medicine and Dentistry
In Hungary “2021”
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Aðalfundur Þorbjarnar hf. vegna ársins 2020
verður haldinn mánudaginn 3. maí nk.
kl. 10.00 á skrifstofu félagsins í Grindavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
18. grein samþykkta félagsins
2. Önnur mál
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir
aðalfund.
Stjórn Þorbjarnar hf.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Kraftur í KR
kl.10:30, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10, Grandavegi 47 kl.10:15 og
Aflagranda kl.10:20 – Útskurður kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Vegna
fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði og það er grímuskylda í
Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og
passa uppá sóttvarnir - Nánari upplýsingar í síma 411-2702.
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10.
Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Enskukennsla
kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í
viðburði eða hópa: 411-2600.
Boðinn Myndlist með leiðb. kl. 13:00-16:00. Munið sóttvarnir.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-15:40.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Handavinnu-
hornið kl. 13-14:30.Tálgun með Valdóri kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl.
14:30-15:30. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma 100-2790.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9:45. Jóga með Kristrúnu kl. 9:15. Minningahópur kl. 10:00.
Jóga með Ragnheið Ýr á netinu kl. 11:15. Stólaleikfimi 13:30.
Gönguhópur – lengri ganga kl. 13:30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30 í Borgum. Morgunleikfimi
kl. 9:45 í Borgum. Ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í
Egilshöll. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11:00 í Borgum, þátttöku-
skráning. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum og tréútskurður á Korpúlfs-
stöðum kl. 13 í dag. Línudans í Borgum kl. 14:00. Grímuskylda í Borg-
um og á Korpúlfsstöðum, kaffi á könnunni og allir velkomnir.
Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri í samráði við leiðbeinendur.
Billjard í Selinu kl. 10.00. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga
í salnum á Skólabraut kl. 10.00 og svo aftur kl. 11.00. Handavinna,
samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13.00 - 16.00. Virðum
almennar sóttvarnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr Mitsubishi Outlander Hybrid
Instyle Leður og rúskin á sætum.
18” álfelgur. 5 ára evrópsk verk-
smiðjuábyrgð.
Litir : Svartur og Hvítur.
Langt undir listaverði á
5.280.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
Laga ryðbletti á
þökum og tek að
mér ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
✝
Kristján Magn-
ús Finn-
bogason, fæddist á
Ísafirði 6. apríl
1926. Hann lést á
Landspítalanum
Fossvogi 1. apríl
2021.
Sonur hjónanna
Finnboga Ingólfs
Magnússonar, f.
23. júní 1898, d. 30.
desember 1951 og
Dagmarar Unu Gísladóttur, f.
20. september 1898, d. 21. mars
1971.
Systkini:
Guðrún Margrét Finn-
bogadóttir, f. 19. jan. 1918, d.
10. des. 1941,
Rögnvaldur Finnbogason, f.
25. okt. 1919, d. 9. júlí 1997,
Ellen Svava Finnbogadóttir,
f. 25. okt. 1922, d. 23. maí 2012,
Bogi Arnar Finnbogason, f.
10. des. 1934, Dag-
mar Gréta Finn-
bogadóttir, f. 13.
feb. 1936, d. 8.
ágúst 1936.
Fyrri eiginkona
Margrét Geirs-
dóttir, f. 14. júní
1934, d. 1.des.
2020, þau skildu.
Börn þeirra eru:
Dagmar Inga
Kristjánsdóttir, f.
24. maí 1953 og Margrét Geir-
rún Kristjánsdóttir, f. 9. mars
1957.
Seinni eiginkona Björg
Ólafsdóttir, f. 12. apríl 1927, d.
21. nóv. 2019.
Kristján vann lengst af sem
bensínafgreiðslumaður hjá
Hreyfli.
Útförin fer fram í dag, 19.
apríl 2021, í kyrrþey að ósk
hins látna.
Kristján Finnbogason, sá góði
karl, er fallinn frá. Við Kristján
vorum vinir og höfum verið
lengi þó aldursmunur okkar
væri talsverður. Vináttu hans
eignaðist ég ungur að árum
gegnum afa minn og ömmu.
Þegar Kristján var á barnsaldri
var hann vistaður til sumardval-
ar á nágrannabæ við heimili afa
og ömmu en undi ekki vistinni
og strauk til þeirra. Það teygðist
úr sumardvölinni og hann ólst
að mestu leyti upp hjá þeim
fram á unglingsár og talaði jafn-
an um þau sem fóstra sinn og
fóstru. Þar eð Kristján var
tryggðatröll gekk vinátta hans
frá þeim til barna þeirra og
barnabarna og afkomenda allra.
Hann talaði jafnan um þau og
allt mitt fólk sem fjölskyldu sína
fyrir norðan. Trygglyndi hans
við afa minn og ömmu var tak-
markalaust. Þegar við stóðum
við kistu afa mín eftir kistulagn-
inguna sagði hann við mig: „Nú
er ég lítill eins og þegar ég kom
til hans fyrst.“ Slík eftirmæli er
gott að hljóta. Eftir að hann fór
að stunda almenna vinnu en átti
hvorki konu né börn sótti hann
hingað í fríum til að rétta hjálp-
arhönd og greiðasemi hans var
ótakmörkuð ef einhverju þurfti
að bjarga í Reykjavík, hvort
sem var útvegun varahluta eða
keyrsla um borgina.
Fyrri konu Kristjáns, Mar-
gréti, þekkti ég ekki og ferðum
hans hingað fækkaði meðan þau
bjuggu saman enda áttu þau
tvær ungar dætur. Eftir að þau
skildu fórum við að sjá meira af
Kristjáni. Hann var á þeim ár-
um bormaður hjá Jarðborunum
ríkisins enda hraustur vel og
vinnuþjarkur. Í fríum átti hann
til að skvetta í sig án þess að
vera þó drykkjumaður. Hann
varð fyrir því óhappi á þessum
árum að verða fyrir slæmu slysi
þegar hann hrundi niður úr bor-
mastri við borun á Laugalandi á
Þelamörk norðan Akureyrar.
Veran þar var þó ekki merkt því
óhappi því á Akureyri kynntist
hann þá síðari konu sinni,
Björgu Ólafsdóttur. Hún var
happafengur fyrir Kristján og
þau hvort fyrir annað og voru
samhent. Björg réð því sem
þurfti að ráða og Kristján lét
sér vel líka. Þau hjón voru dug-
leg að ferðast og fóru orlofs-
ferðir ár hvert á æskuslóðir
Bjargar á Akureyri og í Eyja-
firði. Í þessum ferðum komu
þau undantekningarlítið við hér
og gistu nokkrar nætur, bæði á
norður- og suðurleið. Það var
alltaf gaman að rabba við Krist-
ján. Hann var vel lesinn á þjóð-
legan fróðleik og hafsjór af sög-
um um menn og málefni. Björg
hafði frá unga aldri og þar til
hún flutti suður starfað með
Ferðafélagi Akureyrar og
þekkti afar vel til á hálendi Ís-
lands. Þau voru jafnan aufúsu-
gestir.
Aldur færðist yfir og heilsu
hrakaði. Björg lést fyrir tæpu
einu og hálfu ári og hafði þá
dvalið á hjúkrunarheimili um
tíma. Kristján var hins vegar
heima þar til hann lagðist bana-
leguna. Það tókst honum með
frábærum stuðningi Geirrúnar
dóttur sinnar. Þegar hann var
orðinn einn og sjónin orðin
þannig að hann var að mestu
hættur að lesa sagði hann mér:
„Ég er nú flesta daga í hug-
anum norður í Hvammi uppi í
fjalli, frammi á Skarði þar sem
ég átti mörg sporin ungur.“ Þar
var hans Draumaland.
Ingu og Geirrúnu dætrum
hans svo og fjölskyldum þeirra
vottum við Systa og börn okkar
samúð.
Farðu vel gamli vinur, þín er
gott að minnast.
Rögnvaldur Ólafsson,
Flugumýrarhvammi.
Kristján Magnús
Finnbogason✝ Ísak Möllerfæddist í
Reykjavík 14. maí
1948. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 31. mars
2021. Foreldrar
hans voru Sverre
Möller, f. 29.7.
1908, d. 21.11.
1953 og Rannveig
O. Möller, f. 23.6.
1917, d. 22.12.
2001. Systkini hans eru Oddur,
f. 3.10. 1939, Ísak, f. 12.1.
1942, d. 13.4. 1947, Kristjana,
f. 9.4. 1951 og Hlynur, f. 23.2.
1953. Hinn 17. desember 1977
kvæntist Ísak eiginkonu sinni,
Steinunni Bárðardóttur, f.
12.9. 1949.
Börn þeirra eru Bárður Eyj-
ólfsson, f. 17.6. 1974, börn
hans eru Aníta Björk Bárð-
ardóttir, f. 20.3.1997 og Krist-
ófer Ísak Bárðarson, f. 13.8.
2003. Ragnar Örn Möller, f.
19.8. 1978, og Ebba Sif Möller,
f. 23.5. 1987, maki hennar er
Haraldur Gunnar Guðmunds-
son, f. 12.6. 1987, sonur þeirra
er Guðmundur Gunnar Har-
aldsson, f. 24.1.
2017.
Ísak og Stein-
unn bjuggu sín
hjúskaparár í
Seláshverfi í
Reykjavík. Ísak
ólst upp í Lang-
holtshverfinu í
Reykjavík. Hann
fór ungur að vinna
og fór fljótlega að
keyra vörubíla og
vinnuvélar hjá Reykjavík-
urborg, en seinna meir varð
hann svo rekstrarstjóri hjá
borginni. Ísak gekk í Odd-
fellowregluna 31. janúar 2002
og var í bræðrastúkunni nr. 20
Baldri. Hann kom að mörgum
líknarmálum og sinnti ýmsum
embættisstörfum og fann sig
mjög vel í þeim félagsskap og
hafði mikla ánægju af. Ísak
verður jarðsunginn frá Garða-
kirkju í dag, 19. apríl 2021, kl.
13, að viðstöddum nánustu
fjölskyldu og vinum. Athöfn-
inni verður streymt á slóðinni:
https://youtu.be/293JuL6An20.
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat.
Elsku besti pabbi minn. Mik-
ið er erfitt og sárt að þurfa að
kveðja þig svona fljótt. Miss-
irinn er mikill fyrir mig sem og
Gunna litla, en ég á margar
ljúfar og góðar minningar sem
ylja mér um ókomin ár.
Þú varst alltaf svo ljúfur og
þolinmóður við litlu stúlkuna
þína og vildir allt fyrir mig
gera. Þau voru ófá skutlin um
allan bæ, hvort sem það var í
dansinn, tónlistarskólann eða
bara í bíó með vinkonunum.
Alltaf varstu til í að hjálpa
mér.
Seinna meir þegar við Har-
aldur fluttumst svo til Oxford
fann ég virkilega hvað ég átti
góða að í ykkur mömmu og
hvað þið aðstoðuðuð okkur
með margt. Ákveðin tilhlökkun
og spenningur kom alltaf yfir
mig þegar þið mamma voruð á
leiðinni, smá dekur og til-
breyting í námslífið okkar og
er ég voðalega þakklát fyrir
alla þá tíma sem við áttum
saman. Mér eru einnig fast í
minni allir pabbadjókarnir
sem maður þurfti að hlusta á
sem breyttust svo í afadjók
þegar litlu barnabörnin komu í
heiminn. Þú varst alltaf svo
stoltur af barnabörnunum þín-
um og mátti heyra stoltið þeg-
ar þú talaðir um þau. Ég vil
þakka þér, elsku pabbi minn,
fyrir allt sem þú gafst Gunna
litla afakalli. Þið Gunni tengd-
ust líka svo sterkum böndum
þegar við bjuggum hjá ykkur
mömmu. Þið áttuð svo fallegt
samband og voruð svo miklir
vinir, röbbuðuð um allt milli
himins og jarðar meðan þú
tókst hann á háhest leiðina
heim af leikskólanum. Þú varst
maður fárra orða en gafst
samt alltaf bestu ráðin. Takk
elsku pabbi minn fyrir að vera
besti pabbinn, góður tengda-
faðir og yndislegur afi. Við
elskum þig og minning þín lifir
í hjarta okkar.
Ebba Sif, Haraldur og
Gunnar (Gunnsi).
Ísak Möller mágur okkar er
látinn. Ísak var fæddur og upp-
alinn í Reykjavík, missti föður
sinn ungur og ólst upp með
móður sinni og systkinum og
lífsbaráttan var ekki alltaf auð-
veld á þeim tímum.
Við systkinin kynntumst
honum fyrst fyrir tæplega 45
árum þegar hann sem ungur
maður kom inn í líf stóru syst-
ur okkar. Þessum myndarlega
manni var vel tekið í fjölskyld-
unni og fljótlega stofnuðu þau
Steinunn heimili og giftu sig.
Þau eignuðust Ragnar Örn og
Ebbu Sif en fyrir var Bárður
sem Ísak gekk í föðurstað. Ísak
og Steinunn voru afar samheld-
in hjón og höfðu mikil sam-
skipti við foreldra okkar á með-
an þau voru á lífi. Það voru
notalegar stundir í Garða-
bænum þar sem fjölskyldan
kom saman nær vikulega til að
borða saman og stússa í kring-
um heimilið, börnin og önnur
áhugamál. Var Ísak föður okk-
ar sem annar sonur og mjög
kært á milli þeirra.
Ísak var traustur fjölskyldu-
maður, þolinmóður, talaði ekki
af sér en alltaf til staðar, hlust-
aði vel og til í að ræða málin og
heyra hvernig gengi. Hann
hafði ekki síst áhuga á að heyra
af börnunum og var mjög annt
um barnabörnin og naut þess
mjög að hafa meiri tíma með
þeim hin síðari ár. Það var
ávallt gott að koma í kaffi til
þeirra hjóna í Árbænum og
finna sig velkominn, sitja í eld-
húsinu við fjörugt spjall, oft um
þjóðmálin en Ísak fylgdist vel
með og hafði ákveðnar skoð-
anir.
Þau hjónin voru fljót til þeg-
ar á þurfti að halda og ávallt
tilbúin að rétta hjálparhönd.
Ísak var einstaklega vandaður
og vandvirkur maður, vinnu-
samur og ósérhlífinn. Hann
gaf sér góðan tíma til að hugsa
út lausnir og spá í verkefnin
og taldi aldrei eftir sér að
leggja lið þegar þurfti að laga
til og snurfusa. Hann hafði á
langri starfsævi sem verk-
stjóri komið að margs konar
verkefnum við framkvæmdir
og kunni lausnir á mörgu og
leiðir til að finna þær sem
hann vantaði. Hann starfaði
nær alla sína tíð hjá Reykja-
víkurborg og var að hætta að
vinna fyrir rúmu ári þegar
hann greindist með ólæknandi
krabbamein. Það var að vonum
mikið áfall en hann og Stein-
unn tóku þeim fréttum af
æðruleysi og reyndu að lifa
sínu lífi eins og hægt var.
Heimsfaraldur setti ekki síst
mark sitt á þennan tíma og
gerði allt erfiðara með hinum
ýmsu takmörkunum. Við hefð-
um gjarnan viljað hafa þennan
tíma allt öðruvísi, sjást meira
og eyða fleiri stundum á fal-
legu heimili þeirra hjóna og
ekki síst fylgja Ísak og hitta
síðustu vikurnar. Við kveðjum
Ísak í dag með sorg í hjarta en
minning hans lifir með okkur, í
verkum hans og fjölskyldu
sem við vottum okkar dýpstu
samúð. Megi guð blessa þau
og styðja.
Herjólfur, Auður,
Elínborg og Ásta.
Ísak Möller