Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt 19. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.74 Sterlingspund 175.03 Kanadadalur 101.37 Dönsk króna 20.425 Norsk króna 15.163 Sænsk króna 15.033 Svissn. franki 137.96 Japanskt jen 1.1652 SDR 181.25 Evra 151.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.3178 Hrávöruverð Gull 1766.45 ($/únsa) Ál 2297.5 ($/tonn) LME Hráolía 66.86 ($/fatið) Brent « Bandarískar hlutabréfavísitölur héldu áfram að styrkjast í síðustu viku. Þannig bætti S&P 500 við sig 1,4% í vikunni sem leið og er það fjórða vikan í röð sem vísitalan styrkist. Dow Jones- vísitalan hækkaði um 1,2% í vikunni og Nasdaq-vísitalan um 1,1%. Financial Times tengir hækkunina við örvunaraðgerðir bandarískra stjórn- valda og ýmis batamerki í bandarísku efnahagslífi. Athygli vekur að viðsnúningurinn er ekki lengur drifinn áfram af smáum hópi risafyrirtækja heldur dreifist hækkunin víða um markaðinn. Nefnir Wall Street Journal að af þeim félögum sem mynda S&P 500 vísitöluna sé verð 184 fyrirtækja hærra núna en það hef- ur verið undanfarnar 52 vikur. Þá er hlutabréfaverð 95% fyrirtækja í S&P 500 vísitölunni yfir meðaltali undanfar- inna 200 daga. ai@mbl.is Víðtækari viðsnúningur á hlutabréfamarkaði BNA Hækkun Greina má merki bolamarkaðar. STUTT FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Rafmyntin bitocin tók að veikjast skarplega á laugardag og fór úr rúm- lega 62.400 dölum á laugardags- morgni niður í rösklega 53.500 dali á sunnudag sem er nærri 15% lækkun. Bitcoin styrktist ögn í framhaldinu og var markaðsverðið ríflega 55.200 dalir seint á sunnudag samkvæmt mælingu Coindesk. Samhliða þessu lækkaði rafmyntin ether um nærri 18% þegar verst lét. Ýmsar kenningar fóru á kreik um hvað gæti skýrt þessa miklu niður- sveiflu. Greindi Reuters frá að sumir vildu tengja verðlækkunina við raf- magnsleysi í Xinjiang-héraði í Kína þar sem töluverð rafmyntafram- leiðsla á sér stað. Telegraph bendir á að veiking bitcoin kunni líka að tengjast orðrómi þess efnis að bandaríska fjármálaráðuneytið hyggist ráðast í átak gegn notkun rafmynta til peningaþvættis. Þá tilkynntu tyrknesk stjórnvöld á föstudag að þar í landi yrði bannað að nota rafmyntir sem greiðslumiðil. Sagði fulltrúi seðlabanka Tyrklands ástæðuna m.a. að gengi rafmynta væri of sveiflukennt og hægt að nota rafmyntir í glæpsamlegum tilgangi. Loks er búist við því að stjórnvöld á Indlandi muni senn banna rafmyntir og sekta þá sem stunda rafmynta- viðskipti. Til að gera markaðinn enn líflegri var rafmyntin dogecoin á miklu flugi í liðinni viku. Dogecoin var upphaf- lega ætlað að vera eins konar brand- ari rafmyntaáhugafólks en nafn myntarinnar er dregið af vinsælu mími (e. meme), þ.e. netbrandara sem byggist á mynd af japönskum hundi með skemmtilega sposkan svip. Hefur dogecoin smám saman orðið að uppáhaldi netverja og m.a. birst nokkrum sinnum í tíst- um auðjöf- ursins Elons Musks. Má rekja styrkingu dogecoin undanfarnar vikur til umræðuvefs- ins Reddit þar sem áhugafjárfestar tóku að beina sjónum sínum að raf- myntinni strax í febrúar. Hjálpaði það dogecoin enn frekar að fjárfest- ingaforritið Robinhood leyfir not- endum að kaupa og selja doge- coin-rafmyntir með tiltölulega einföldum hætti. Í vikunni var eft- irspurnin eftir dogecoin svo mikil á tímabili að vefur Robinhood varð óstarfhæfur. Bara á föstudag hækkaði verð dogecoin um 110% gagnvart banda- ríkjadal. Á tímabilinu frá 11. til 16. apríl hækkaði verð dogecoin nærri sjöfalt en veiktist síðan töluvert. Seint á sunnudag hafði dogecoin hækkað um 6.521% það sem af er ári. Byrjaði rafmyntin árið í 0,005 dölum en kostaði 0,317 dali á sunnudags- kvöld. Hækkun dogecoin virðist tekið sem hálfgerðu gríni og bendir t.d. Reuters á að Elon Musk hafi hellt ol- íu á eldinn með tísti sem hann sendi frá sér á fimmtudag. Þar skrifaði hann: „Doge geltir á tunglið“ og fylgdi með ljósmynd af verki listmál- arans Joan Miró „Hundur geltir á tunglið“ (cat. Gos bordant a la lluna). Rafmyntakauphöll álíka verðmæt og NYSE Stærsta rafmyntafrétt liðinnar viku er þó ekki bitcoin-lægðin né dogecoin-sprengingin heldur skrán- ing rafmyntakauphallarinnar Coin- base á Nasdaq-hlutabréfamark- aðinn. Var Coinbase metið á 75,9 millj- arða dala við skráningu á miðviku- dag en um er að ræða fyrstu stóru rafmyntakauphöllina sem skráð er á markað. FT greinir frá að verð Coin- base hafi sveiflast töluvert á fyrsta degi en við lok viðskipta á skráning- ardaginn var markaðsvirði félagsins á svipuðu róli og virði móðurfélags kauphallarinnar í New York. Coinbase heldur utan um rafmynt- ir nærri 56 milljóna viðskiptavina og starfrækir stærsta rafmyntamarkað Bandaríkjanna. Bendir FT á að hátt hlutabréfaverð Coinbase sé ekki byggt á framtíðarvæntingunum ein- um saman því á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu tekjur félagsins 1,8 milljörðum dala og höfðu nærri tí- faldast frá sama tímabili árið áður. Ólga á rafmyntamarkaði AFP Rafmyntasjálfsali í verslun í New York. Vikan á rafmyntamarkaði var heldur betur viðburðarík. - Rafmagnsleysi og orðrómur töppuðu lofti af bitcoin-bólunni um helgina - Rafmyntamarkaðurinn Coinbase skráður í Nasdaq í tugmilljarða dala útboði Hundalíf Doge, inn- blástur rafmynt- arinnar dogecoin. Ný rannsókn seðlabanka Bandaríkj- anna bendir til þess að á fyrsta ári kónrónuveirufaraldursins megi rekja þrot innan við 200.000 fyrir- tækja þar í landi til faraldursins. Reuters greinir frá að í venjulegu ár- ferði leggi um 600.000 bandarísk fyrirtæki upp laupana en seðlabank- inn áætlar að á tímabilinu frá mars 2020 til febrúar á þessu ári hafi þessi tala hækkað um fjórðung en í mesta lagi um þriðjung. Reuters segir þetta lægri tölu en reiknað hafi verið með. Höfðu svart- sýnustu spár gert ráð fyrir að farald- urinn myndi gera út af við allt að 400.000 fyrirtæki umfram það sem vænta má í meðalári. Reiknast seðlabankanum til að erfiðleikarnir hafi verið hvað mestir hjá fyrirtækjum þar sem starsfólk þarf að vera í nánu samneyti við við- skiptavini, s.s. hjá hárgreiðslustof- um og naglasnyrtistofum. Hins veg- ar hafi verið minna um rekstrarþrot en venjulega hjá t.d. mtavöruversl- unum, fyrirtækjum sem bjóða upp á afþreyingu utandyra og hjá veitinga- stöðum sem leyfa viðskiptavinum að taka matinn heim. Seðlabankinn segir þetta benda til að efnahagslegt tjón vegna kórónu- veirufaraldursins verði ekki eins langvinnt og margir höfðu óttast. Þó verði að taka niðurstöðum rannsókn- arinnar með þeim fyrirvara að leigu- salar, bankar og kröfuhafar hafa í mörgum tilvikum veitt fyrirtækjum í rekstrarvanda aukið svigrúm og kann þetta svigrúm að minnka snögglega þegar tekst að koma dag- legu lífi Bandaríkjamanna aftur í eðlilegt horf. ai@mbl.is AFP Þol Rannsókn seðlabankans gefur tilefni til bjartsýni um framhaldið. Tjónið minna en spáð hafði verið - Faraldurinn gerði út af við færri fyrir- tæki en óttast var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.