Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 26
HM 2021 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í hand- bolta þarf á kraftaverki að halda á Ásvöllum næstkomandi miðvikudag er seinni leikur liðsins við Slóveníu í undankeppni HM fer fram eftir 14:24-tap í fyrri leik liðanna í Lju- bljana á laugardag. Eins og lokatölurnar gefa til kynna tapaðist leikurinn á slökum sóknarleik, en íslenska liðið réð lítið við sterka vörn og markvörslu Sló- vena. Þá var ákveðinn gæðamunur á liðunum, en sterkar slóvenskar skyttur virtust geta stokkið upp að vild fyrir utan og skorað falleg mörk. Oftar en ekki endaði boltinn í lúkum varnarmanna Slóveníu er skyttur íslenska liðsins reyndu svip- uð skot. Lovísa Thompson var markahæst með fimm mörk, en hún var ekki í öfundsverðu hlutverki. Hvað eftir annað neyddist hún til að taka af skarið, oft í erfiðum stöðum, þar sem liðsfélagar hennar urðu ragir og virkuðu smeykir. Slóvenska liðið er einfaldlega betra en það ís- lenska og það sást. Vörn og markvarsla í lagi Varnarleikur og markvarsla var helsta ástæða þess að munurinn er ekki meiri fyrir seinni leikinn, enda alls ekkert stórslys að fá á sig 24 mörk. Íslenska vörnin var grimm framan af og þær Helena Rut Örv- arsdóttir og Mariam Eradze litu sérstaklega vel út í hjarta varn- arinnar. Eftir því sem leið á leikinn fann slóvenska liðið fleiri glufur á vörninni, en fyrir aftan hana var El- ín Jóna Þorsteinsdóttir í fínum ham. Saga Sif Gísladóttir hélt svo hreinu, en hún kom inn á í fjórum vítum og aldrei tókst þeim slóvensku að finna leið framhjá henni. Ljóst er að keppnisbannið sem var hér á landi hafði áhrif á íslenska liðið, enda spila nánast allir leik- menn þess með liðum hér heima. Aðeins Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Jóna Þorsteinsdóttir leika utan landsteinanna og það er ljóst að nokkura ára vera í Danmörku hefur gert Elínu gott. Hún er orðin afar góður markvörður. Bitnar á landsliðinu Það hefur verið ákveðið fagnaðar- efni að sjá góða leikmenn koma heim úr atvinnumennsku og gera ís- lensku deildina sterkari, en það hef- ur bitnað á landsliðinu. Nánast eng- inn í íslenska liðinu hefur það að atvinnu að spila handbolta á meðan stór hluti slóvenska liðsins eru at- vinnumenn, sem margir hverjir hafa gert góða hluti í Meistaradeild Evr- ópu. Það vantaði sterka leikmenn á borð við Þóreyju Rósu Stefáns- dóttur, Steinunni Björnsdóttur og Hildigunni Einarsdóttur í íslenska liðið en að sama skapi vantaði besta leikmann Slóvena, Önu Gros. Það er nokkuð ljóst að Ísland vinnur Slóveníu ekki með tíu marka mun á heimavelli, enda getumun- urinn einfaldlega of mikill. Íslenska liðið var í afar svipaðri stöðu fyrir tveimur árum eftir níu marka tap fyrir Spánverjum á útivelli í fyrri leiknum, en þá vann Ísland eins marks heimasigur og féll úr leik með reisn. Það er ekki hægt að biðja um mikið meira en það að sinni. Íslenska liðið lenti á slóv- enskum vegg - Tíu marka tap í Ljubljana - Fundu fá svör við sterkri vörn Slóvena Ljósmynd/Robert Spasovski Markahæst Lovísa Thompson var markahæst hjá Íslandi með fimm mörk. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021 England Arsenal – Fulham .................................... 1:1 - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Manchester United – Burnley................ 3:1 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 88 mínúturnar með Burnley. Newcastle – West Ham ........................... 3:2 Wolves – Sheffield United ....................... 1:0 Staðan: Manch. City 32 23 5 4 67:23 74 Manch. United 32 19 9 4 64:35 66 Leicester 31 17 5 9 55:37 56 West Ham 32 16 7 9 53:42 55 Chelsea 31 15 9 7 50:31 54 Liverpool 31 15 7 9 53:37 52 Tottenham 32 14 8 10 54:37 50 Everton 31 14 7 10 43:40 49 Arsenal 32 13 7 12 44:36 46 Leeds United 31 14 3 14 49:49 45 Aston Villa 30 13 5 12 43:33 44 Wolves 32 11 8 13 32:41 41 Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38 Southampton 31 10 6 15 39:56 36 Newcastle 32 9 8 15 35:53 35 Brighton 31 7 12 12 33:38 33 Burnley 32 8 9 15 26:45 33 Fulham 33 5 12 16 25:43 27 WBA 31 5 9 17 28:59 24 Sheffield Utd 32 4 2 26 17:56 14 Bikarkeppni karla, undanúrslit: Chelsea – Manchester City ..................... 1:0 Leicester – Southampton ........................ 1:0 B-deild: Brentford – Millwall................................ 0:0 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu hjá Millwall. C-deild: Blackpool – Sunderland ......................... 1:0 - Daníel Leó Grétarsson lék fyrstu 76 mínúturnar með Blackpool. D-deild: Exeter – Southend................................... 0:0 - Jökull Andrésson lék allan leikinn með Exeter. Þýskaland Augsburg – Arminia Bielefeld............... 0:0 - Alfreð Finnbogason kom inn á sem vara- maður á 65. mínútu hjá Augsburg. Eintracht Frankfurt – Sand................... 4:0 - Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður á 83. mínútu hjá Frankfurt. Spánn B-deild: Gijon – Real Oviedo................................. 0:1 - Diego Jóhannesson lék allan leikinn með Real Oviedo og skoraði sigurmarkið. Ítalía AC Milan – Napoli.................................... 4:0 - Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með Napoli. Lára Kristín Pedersen lék seinni hálfleikinn. B-deild: Empoli – Brescia...................................... 4:2 - Birkir Bjarnason lék fyrstu 85 mínút- urnar með Brescia og skoraði. Hólmbert Aron Friðjónsson leysti Birki af hólmi. Pólland Raków – Lech Poznan ............................ 3:1 - Aron Jóhannsson lék seinni hálfleikinn með Lech Poznan. Grikkland PAOK – Olympiacos................................ 2:0 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Danmörk Meistarakeppnin: Bröndby – AGF ........................................ 2:2 - Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 57 mínúturnar með AGF. Fallkeppnin: OB – SönderjyskE ................................... 1:1 - Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn með OB. Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 61. mínútu. Lettland Riga – Daugavpils ................................... 4:0 - Axel Óskar Andrésson lék fyrstu 56 mín- úturnar með Riga. Bandaríkin DC United – New York City................... 2:1 - Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 71 mínútuna með New York City. Svíþjóð Hammarby – Mjällby............................... 2:0 - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Häcken – Malmö ...................................... 1:2 - Valgeir Lunddal Friðriksson lék fyrstu 73 mínúturnar með Häcken og Oskar Sverrisson leysti hann af hólmi. Djurgården – Norrköping...................... 1:0 - Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Norrköping og Ísak B. Jóhannesson fyrstu 75 mínúturnar. Linköping – Rosengård .......................... 0:1 - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård. Djurgården – Örebro.............................. 1:0 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Djurgården. - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með Örebro en Cecilía Rán Rúnars- dóttir sat á bekknum. Vittsjö – Piteå .......................................... 2:1 - Hlín Eiríksdóttir lék allan leikinn með Piteå. 50$99(/:+0$ Slóvenía – Ísland 24:14 Ljubljana, umspil HM, laugardaginn 17. apríl 2021. Gangur leiksins: 3:2, 6:3, 19:11, 9:6, 12:7, 13:7, 15:8, 18:11, 21:11, 23:13, 24:14. Mörk Slóvenía: Elizabeth Omoregie 9, Maja Svetik 4, Tjasa Stanko 4/3, Barbara Lazovic 3, Manca Juric 2, Amra Pandzic 1, Natasa Ljepoja 1. Varin skot: Amra Pandzic 14/1, Branka Zec 1. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Ísland: Lovísa Thompson 5, Slóvenía – Ísland 24:14 Rut Jónsdóttir 2, Thea Imani Sturlu- dóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 2, Karen Knútsdóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1, Ásdís Guðmunds- dóttir 1. Varin skot: Elín Jóna Þorsteins- dóttir 12, Saga Sif Gísladóttir 3/3. Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: Ekki leyfðir. Dómarar: Ismailj Metalari og Nenad Nikolovski, Norður-Makedóníu. _ Seinni leikurinn fer fram á Ásvöll- um miðvikudaginn 21. apríl klukkan 19:45. _ Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Björn Gunnlaugsson hefur gert sam- komulag um að leika með Florida Southern Moccasins í bandaríska há- skólaboltanum. Ólafur, sem er 18 ára, hefur leikið með Val og ÍR og þá var hann um tíma samningsbundinn Bonn í Þýskalandi. Ólafur hefur leikið með yngri landsliðum Íslands. _ Körfuknattleiksmennirnir Deane Williams, Arnór Sveinsson og Magnús Pétursson framlengdu allir samning sinn við Keflavík á laugardag um eitt ár. Williams hefur verið einn besti leikmaður Íslands- mótsins í vetur en Arnór og Magnús eru ungir og upp- aldir Keflvíkingar. Á heimasíðu Kefla- víkur kemur fram að fleiri fréttir muni berast úr herbúðum félagsins á næstu dögum. _ Handknattleikskonurnar Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hans- dóttir leika ekki áfram með danska lið- inu Vendsyssel á næstu leiktíð. Félagið greindi frá á Facebook-síðu sinni í gær. Elín Jóna kom til Vendsyssel frá Hauk- um sumarið 2018 og hefur verið aðal- markvörður íslenska landsliðsins að undanförnu. Steinunn kom til Vend- syssel fyrir leiktíðina. Steinunn hefur lengi leikið í Danmörku og var hún áð- ur hjá Horsens, Gudme og Skander- borg. Lék hún síðast með Selfossi hér á landi. _ Barcelona varð á laugardag spænsk- ur bikarmeistari í fótbolta í 31. skipti með 4:0-sigri á Athletic Bilbao í bik- arúrslitum en leikið var í Sevilla. Bilbao hefur tapað bikarúrslitum í tvígang á tveimur vikum því úrslitaleikur síðustu leiktíðar var leikinn í byrjun mánaðar. Antoine Griezmann og Frenkie de Jong skoruðu tvö fyrstu mörkin og arg- entínski snillingurinn Lionel Messi bætti við tveimur mörkum áður en flautað var til leiks- loka. Barcelona er sigursælasta lið spænska bikarsins. _ Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, meiddist í æfingaleik liðsins gegn Víkingi Reykjavík á Víkingsvelli á laugardag. Þetta kemur fram á Fót- bolta.net, þar sem segir að Tryggvi hafi fótbrotnað og sökum þess sé bú- ist við að hann verði frá æfingum og keppni í um tvo mánuði. Íslandsmótið rúllar af stað undir lok þessa mán- aðar og því er ljóst að Tryggvi, sem Eitt ogannað Hlauparinn efnilegi Baldvin Þór Magnússon hélt áfram að slá Íslandsmet á laugardagskvöld þegar hann bætti 39 ára gamalt Íslandsmet Jóns Diðrikssonar í 1.500 metra hlaupi á háskólamóti í Richmond í Kentucky-ríki í Bandaríkjunum. Baldvin hljóp á 3:40,74 mínútum en met Jóns, sem hann setti í Þýskalandi vorið 1982, var 3:41,65 mínútur. Þetta er jafnframt aldursflokkamet í 20-22 ára flokki, sem og lágmark fyrir Evrópumót yngri en 23 ára í sum- ar en þar hefur Baldvin einnig náð lágmarkinu í 5.000 metra hlaupi. Baldvin hefur heldur betur látið að sér kveða á há- skólamótum að undanförnu. Hann stórbætti Íslandsmetið í 5.000 metra hlaupi 25. mars og skömmu áður Íslandsmetið í 3.000 metra hlaupi innan- húss. Hann keppir fyrir Eastern Michigan-háskólann. Báðum metunum náði hann af Hlyni Andréssyni. Bætti 39 ára gamalt met Baldvin Þór Magnússon HSÍ hefur tekið ákvörðun um að breyta leikjafyrirkomulagi Íslands- móts karla að beiðni formanna fé- laganna. Mun mótið hefjast að nýju 22. apríl. Í yfirlýsingu frá samband- inu segir að fyrri ákvörðun hafi verið tekin með tilliti til sjónarmiða formanna félaganna um að byrja ekki of fljótt vegna meiðslahættu og að ekki yrði spilað í landsleikja- hléi til að gæta jafnræðis. Olísdeild- inni mun því ljúka viku fyrr en áætlað var, þann 27. maí, og tekur þá við 8 liða úrslitakeppni. Breytt leikja- fyrirkomulag Ljósmynd/Árni Torfason Handbolti Olísdeildin fer fyrr af stað og keppni lýkur viku fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.