Morgunblaðið - 19.04.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Nú styttist í lokapróf hjá Háskóla
Íslands. Isabel Alejandra Diaz, for-
seti Stúdentaráðs HÍ, segir fyrir-
komulag próf-
anna það sama
og háskólinn hef-
ur lagt upp með
á síðustu miss-
erum.
„Sem er þessi
lína um að það sé
rafræn kennsla
með möguleika á
staðnámi og þar
falla prófin und-
ir. Ef hægt er að hafa þau á staðn-
um, þá verða þau þannig,“ segir
Isabel og bendir á að samkvæmt
próftöflu séu langflest prófin stað-
próf.
Isabel segir þá að Stúdentaráði
hafi borist athugasemdir og póstar
frá nemendum vegna þessa.
„Núna er fólk meira að hugsa um
að það hefur verið í rafrænni
kennslu í svo langan tíma, af hverju
geta þau þá ekki tekið heimapróf,
af hverju þurfa þau að mæta í skól-
ann? Það eru kannski meira þessar
pælingar,“ segir Isabel.
„Við túlkum þetta þannig að
ástandið sé enn breytilegra núna
heldur en á haustmisseri, þannig að
það er alveg klárlega þannig að
þetta veldur mikilli óvissu og þar af
leiðandi áhyggjum,“ segir Isabel og
bendir á að síðustu vikur hafi verið
mikil óvissa og sérstaklega eftir
smittölur helgarinnar.
„Þó svo að það verði 10 manna
samkomutakmarkanir, þá gætu
enn þá verið 50 manna takmark-
anir í háskólanum,“ segir Isabel og
bendir á að reglugerðin í haust hafi
kveðið á um slíkt en Stúdentaráði
hafi ekki þótt það svigrúm ákjósan-
legt.
Vonbrigði að ekki sé meira
fjárfest í stúdentum
Nýlega var greint frá því að
stjórnvöld ætluðu að grípa til þess
úrræðis að fjölga tímabundnum
störfum fyrir námsmenn í sumar.
Síðasta sumar voru störfin að sögn
Isabel 3.400 en í ár verða þau
2.500. Í fyrra var ráðningar-
tímabilið tveir mánuðir en í ár á
það að vera tveir og hálfur mán-
uður.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að til þess að hækka upp í tvo og
hálfan mánuð þurfi að fækka störf-
um og til að geta haft ráðning-
artímabilið lengra og til að geta
haft launin aðeins hærri í samræmi
við breytingu á kjarasamningum,“
segir Isabel og bætir við:
„Ég held að vonbrigðin séu að
það sé ekkert verið að fjárfesta
meira í stúdentum, að það þurfi
annaðhvort að stytta ráðningar-
tímabil eða fækka störfum til þess
að geta einhvern veginn komið til
móts við okkur í staðinn fyrir að
það sé bara verið að fjárfesta
meira.“
Morgunblaðið/Ómar
Próf Nú styttist í lokapróf hjá HÍ. Isabel, forseti Stúdentaráðs, segir línu
skólans vera þá að ef hægt sé að halda próf á staðnum verði það gert.
Ástandið veldur klárlega mikilli óvissu
- Samkvæmt próftöflu verða langflest
vorpróf hjá Háskóla Íslands staðpróf
Isabel Alejandra
Diaz.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Eigendur Hótel Grímsborga hafa
ekki þurft að loka hótelinu einn ein-
asta dag síðan heimsfaraldur kórón-
uveiru hófst í mars á síðasta ári og er
reksturinn síðastliðið ár ekki í mínus.
„Ég held að ég geti fullyrt að þetta
sé eina hótelið sem hefur verið opið
hvern einasta dag. Ég hef ekki lokað
einn dag síðan þetta kom upp,“ segir
Ólafur Laufdal Jónsson, eigandi Hót-
els Grímsborga
„Um helgar er mjög gott að gera.
Að vísu er þetta mikið á tilboðum og
náttúrlega 95% eða meira en það eru
Íslendingar,“ segir Ólafur. Hann seg-
ir einnig að mjög margir komi til að
halda upp á stórafmæli og brúðkaups-
afmæli.
Byggja tíu nýjar svítur
Hafist verður handa við byggingu
tíu nýrra svíta á Hótel Grímsborgum í
dag. Ólafur gerir ráð fyrir að verklok
verði í lok árs og að hægt verði að
bóka svíturnar í byrjun þess næsta.
Hótel Grímsborgir hlaut 5 stjörnur
fyrir um einu og hálfu ári og var
fyrsta hótel á Íslandi til að hljóta vott-
unina. Ólafur segir stækkunina vera
lið í því að gera betur við gestina sem í
takt við aukinn fjölda stjarna geri
auknar kröfur um gæði.
„Gestirnir eru orðnir kröfuharðari
og margir útlendingar sem koma
hingað eru vel efnaðir og vilja aðeins
það besta sem völ er á,“ segir Ólafur.
Um er að ræða svokallaðar „juni-
or“ svítur sem eru 40 fermetra íbúðir
með sér baðherbergi með baðkari og
sturtu. Verönd er við íbúðirnar með
aðgengi að heitum potti. Fyrir eru
junior svíturnar átta og að fram-
kvæmdum loknum verða þær því 18.
Heitu pottarnir hafa mikið aðdráttar-
afl að sögn Ólafs en þeir eru nú 29 við
hótelið, ýmist til sameiginlegra nota
eða einkaafnota. Hótel Grímsborgir
var opnað sumarið 2009 og síðan þá
hefur reksturinn dafnað.
Ólafur er bjartsýnn á framhaldið,
allar helgar fram í júní séu nú bókað-
ar og bókanir farnar að berast frá er-
lendum ferðamönnum.
„Útlendingar eru að byrja að panta
núna, ekki í miklu magni, en stöðugt,
allavega fjórar til fimm bókanir á dag.
Mest fyrir haustið en líka aðeins fyrir
sumarið,“ segir Ólafur. Þeirra sterk-
asti markaður er Bandaríkin og Bret-
land og þaðan eru bókanirnar farnar
að berast. Í Bandaríkjunum og Bret-
landi ganga bólusetningar vel og því
kominn ferðahugur í fólk þar.
Hann segir að það hjálpi líka til að
áfangastöðum hjá flugfélaginu Ice-
landair muni fjölga mikið í maí og að
flugfélagið Delta Air Lines hefji flug
frá Bandaríkjunum til Íslands í maí.
„Það tekur einhvern tíma þar til við
förum að ná að hafa fullt aftur. Í
venjulegu árferði er alltaf allt fullt hjá
okkur, meira að segja yfir jól og ára-
mót,“ segir Ólafur.
Hann segir að undanfarið ár hafi
gengið betur en hann gerði ráð fyrir
enda segi það sína sögu að þau hafi
ekki þurft að loka einn einasta dag.
„Við erum allavega ekki í mínus á síð-
astliðnu ári í rekstrinum,“ segir Ólaf-
ur.
Ekki lokað einn dag síðan faraldur hófst
- Byggja tíu nýjar svítur á Hótel Grímsborgum - Gestir vilja aðeins það besta - Bókanir farnar að
berast frá útlöndum - Helst Bandaríkjamenn og Bretar sem bóka - Ekki í mínus þrátt fyrir faraldur
Morgunblaðið/RAX
Viðbót Framkvæmdir hefjast við 10 svítur á Hótel Grímsborgum í dag.
Hjónin Ólafur Laufdal Jónsson og Kristín Ketilsdóttir eiga hótelið.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
leggja til að Reykjavíkurborg óski
eftir því við Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) að Árbæjarlónið verði fyllt að
nýju í sumarstöðu í samræmi við
gildandi deiliskipulag. Þá verði
borgarstjóra falið að ræða við
stjórnendur OR hið fyrsta og fylgja
þeim óskum eftir, enda sé Reykja-
víkurborg eigandi Elliðaáa og fari
með 93% hlut í Orkuveitunni.
Björn Gíslason, borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna, segir mikilvægt
að skapa frið um málið og að það
þurfi að gerast skjótt til þess að
koma í veg fyrir að lífríkið beri
skaða af.
Lónið tæmt í óleyfi
Forsaga málsins er sú að í lok
október sl. tæmdi Orkuveitan Ár-
bæjarlónið varanlega, en það var
gert án samráðs við stjórn OR,
borgaryfirvöld, Náttúrufræðistofn-
un, Orkustofnun og skipulags-
yfirvöld. „Það héldu flestir að tæm-
ingin væri tímabundin og ætti sér
eðlilegar skýringar eins og viðhald,
en svo kom í ljós að stjórnendur
Orkuveitunnar ákváðu þetta bara
upp á sitt eindæmi, meira að segja
án samráðs við stjórn fyrirtækisins,“
segir Björn. Með ólíkindum sé
hvernig þetta gat gerst og enn
óskiljanlegra að ákvörðunin hafi ver-
ið látin standa. „Það er nánast allt að
við þessa ákvörðun sem hugsast get-
ur og hún og framkvæmdin brot á
ýmsum lögum.“ Hann nefnir nátt-
úruverndarlög, en lónið og svæðið
allt eru á náttúruminjaskrá og OR
því óheimilt að tæma lónið án þess
að fá fyrst umsögn Náttúrufræði-
stofnunar. Þá hafi skipulagslög verið
brotin, því samkvæmt bæði nýju og
fyrra deiliskipulagi sé lónið í sumar-
stöðu og er því óheimilt að hrófla við
því án undangenginnar deiliskipu-
lagsbreytingar og fengins bygg-
ingar- eða framkvæmdaleyfis. Þetta
hafi skipulagsfulltrúi borgarinnar
staðfest í fyrra og greint frá því að
OR hefði ekkert samráð átt við
skipulagsyfirvöld um þetta.
Reiði meðal íbúa
Björn segir mikilvægt að borgin
geri hreint fyrir sínum dyrum og
geri eins og lög mæli fyrir um, hvort
sem ætlunin sé að standa við tæm-
ingu lónsins eða hætta við. Mikil
reiði ríki hjá íbúum í Árbæ og Breið-
holti vegna málsins, sem Reykjavík-
urborg geti ekki litið fram hjá.
Hópur íbúa í Árbæjarhverfi hefur
átt í samskiptum við borgarstjóra og
borgarlögmann, þar sem tæmingu
lónsins hefur verið mótmælt sem
ólögmætum gjörningi. Hún sé brot á
vatnalögum, skipulagslögum og
mannvirkjalögum, þvert á álit skipu-
lagsfulltrúa og alvarlegar athuga-
semdir Skipulagsstofnunar, Nátt-
úrufræðistofnun telji hana brot á
náttúruverndarlögum, litið sé fram
hjá því að svæðið sé á náttúruminja-
skrá, vatnsbúskap á svæðinu og líf-
ríki sé stefnt í hættu, en hætta sé á
neikvæðum votlendisáhrifum.
Vilja fylla Árbæjarlón aftur
- Sjálfstæðismenn í borgarstjórn gera tillögu um fyllingu
lónsins - Íbúar í Árbæ mótmæla ólögmætri tæmingu þess
Morgunblaðið/Eggert
Árbæjarstífla Álkulegar álftir
þegar OR tæmdi lónið sl. haust.
Árekstur varð á Vesturlandsvegi, við Esjuberg, klukkan 14 í gær og voru
fimm einstaklingar fluttir á slysadeild eftir áreksturinn.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um
harða aftanákeyrslu að ræða. Fimm einstaklingar voru í bifreiðunum og
voru þeir allir fluttir á slysadeild. Flestir voru þeir með minniháttar
áverka.
Báðar bifreiðarnar voru fluttar óökuhæfar með kranabíl af vettvangi
slyssins. Að sögn varðstjóra lauk aðgerðum slökkviliðs á svæðinu skömmu
fyrir klukkan 15 í gær.
Fimm fluttir á slysadeild eftir árekstur