Morgunblaðið - 19.04.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Bandamenn Alexeis Navalnís hvöttu
í gær stuðningsmenn stjórnarand-
stæðingsins fræga til að efna til
fjöldamótmæla í bæjum og borgum
víðsvegar um Rússland. Ástæðan er
sú að fregnir hafa borist af því að
Navalní, sem situr í fangelsi, sé
hættulega veikur, og jafnvel við
dauðans dyr. Læknum Navalnís hef-
ur ekki verið heimilað að heimsækja
hann, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir.
Guardian greinir frá þessu.
Áður höfðu bandamenn Navalnís
sagt að mótmæli gegn fangelsun
hans myndu hefjast aftur á götum
úti þegar þeir hefðu náð 500.000 und-
irskriftum til stuðnings þeim. Nú-
verandi undirskriftalista vantar enn
um 50.000 undirskriftir.
Í myndskeiði sem birt var á You-
tube-rás Navalnís sögðu Lenoid Vol-
kov og Ican Zhadanov, bandamenn
Navalnís, að heilsu hans hefði hrak-
að svo gífurlega að það væri ekki
annað hægt en að grípa til fjöldamót-
mæla. Volkov hvatti óbreytta borg-
ara til þess að láta sjá sig klukkan
sjö, að rússneskum tíma, á miðviku-
dagskvöld á torgum víða um landið.
Á sama tíma og mótmælin eru
fyrirhuguð á Vladimir Pútín Rúss-
landsforseti að fara með árlegt ávarp
sitt til rússnesku þjóðarinnar.
Í janúarmánuði börðust stjórn-
völd í Moskvu hart gegn mótmæl-
endum á götum úti sem hliðhollir
voru Navalní. Þá voru þúsundir
handteknar.
„Ef við látum ekki í okkur heyra
núna eru myrkir tímar fyrir frjálsa
borgara fram undan. Rússland mun
enda í algjöru vonleysi,“ sagði Vol-
kov í fyrrnefndu myndskeiði.
Navalní hefur verið í hungurverk-
falli í yfir þrjár vikur til þess að
krefjast þess, án árangurs, að óháð
læknateymi fái að skoða hann.
Bandamenn Navalnís segja að hann
sé nú orðinn svo heilsuveill að hann
eigi á hættu að fara í hjartastopp á
„hverri stundu“ og gæti fallið frá á
næstu dögum.
Dóttirin biður um aðstoð
Í gær bað Dasha, dóttir Navalnís,
um að föður hennar yrði veitt sú
umönnun sem hann þarfnast.
„Leyfið læknum að hitta pabba,“
skrifaði Dasha í færslu á samfélags-
miðlinum Twitter.
Navalní sneri aftur til Moskvu frá
Þýskalandi í janúarmánuði. Í Þýska-
landi hafði Navalní jafnað sig eftir að
eitrað var fyrir honum, að sögn hans.
Navalní telur að leynileg eining inn-
an rússnesku njósnastofnunarinnar
FSB hafi eitrað fyrir honum með
taugaeitrinu Novichok. Stjórnvöld í
Mosvku segja það alrangt.
AFP
Stjórnarandstæðingur Navalní situr í fangelsi í Pokrov í Rússlandi.
Hvetja þjóðina til að rísa upp
- Ástand Navalnís er sagt alvarlegt eftir þriggja vikna hungurverkfall
- Bandamenn hvetja til mótmæla á sama tíma og Vladimir Pútín ávarpar þjóðina
Hinni átta ára gömlu Mia Monte-
maggi var bjargað úr haldi mann-
ræningja í Sviss í gær. Miu hafði
verið rænt af heimili móðurömmu
sinnar í þorpinu Poulieres í Frakk-
landi fimm dögum áður. Móðir
hennar, Lola Montemaggi, var ein af
þeim sem skipulögðu ránið og hefur
hún verið handtekin ásamt fimm
karlmönnum sem komu að ráninu.
Þrír mannanna þóttust vera frá
barnaverndaryfirvöldum og fölsuðu
skilríki og önnur plögg til að sýna
fram á það. Þeir fóru inn á heimili
ömmunnar á þriðjudag og kröfðust
þess að Mia kæmi með þeim. Þeir,
ásamt móður hennar, fóru svo fót-
gangandi með hana yfir landamæri
Frakklands til Sviss. Þar beið þeirra
maður á Porsche-bifreið sem keyrði
þær mæðgur á hótel.
Mia fannst svo ásamt móður sinni
eftir fimm daga leit yfirvalda í yfir-
gefnu vöruhúsi í Sainte-Croix í
Sviss.
Mennirnir beittu engu ofbeldi við
að nema hana á brott en aðgerðin
var gríðarlega vel skipulögð, að sögn
Francocis Perain, saksóknara í
borginni Nancy. Aðgerðin bar nafn-
ið „Operation Lima“ og voru þeir
með talstöðvar og falsaðar bílnúm-
eraplötur. Lögreglan hafði ekki haft
afskipti af mönnunum áður, en sagði
þá deila skoðunum með ákveðnum
hóp fólks sem berst gegn barna-
verndaryfirvöldum og því að börn
séu tekin af foreldrum sínum.
Mia er nú örugg og við góða heilsu
en verður í umsjón félagsráðgjafa og
barnasálfræðings uns hún getur far-
ið til ömmu sinnar aftur. Móðir
hennar situr nú í fangelsi í Sviss en
er gert ráð fyrir að hún verði færð
yfir til Frakklands fljótlega.
Fannst eftir
fimm daga leit
- Móðirin einn af mannræningjunum
AFP
Fundin Lýst var eftir Miu Monte-
maggi á þriðjudag í síðustu viku.
Yfir 13 milljónir manns í Bretlandi
fylgdust með útsendingu frá
jarðarför Filippusar prins, eigin-
manns Elísabetar II. Bretadrottn-
ingar, sem fór fram á laugardag. 11
milljónir fylgdust með beinu
streymi breska ríkisútvarpsins
BBC, 2,1 milljón með útsendingu
ITV og 450 þúsund með útsendingu
Sky. Jarðarförin var einnig send út
á YouTube og á rás BBC horfðu yf-
ir 7,5 milljónir um allan heim.
Útförin var lágstemmd miðað við
það sem venjulega tíðkast, bæði að
ósk hertogans sjálfs og einnig
vegna heimsfaraldurs. Elísabet
drottning sat ein í kirkjunni vegna
sóttvarnaráðstafana en sonur henn-
ar, Andrés prins, sat næstur henni.
BRETLAND
AFP
Frá útför Filippusar prins á laugardag.
Milljónir horfðu á
jarðarför Filippusar
Rúmlega 130
milljónir Banda-
ríkjamanna eldri
en 18 ára hafa
fengið að
minnsta kosti
eina sprautu af
bóluefni við kór-
ónuveirunni. Það
eru um 50,2% af
öllum fullorð-
num. Frá þessu greinir Sótt-
varnastofnun Bandaríkjanna en um
84 milljónir fullorðinna eru nú full-
bólusettar þar í landi eða um 32,5%.
Fjöldi greindra smita á hverjum
degi er nú á uppleið í Bandaríkj-
unum og Anthony Fauci sóttvarna-
læknir varar við ástandinu. 109
milljónir skammta af bóluefni Pfi-
zer hafa verið notaðar, 92 milljónir
af bóluefni Moderna og 7,9 millj-
ónir af bóluefni Johnson & Johnson.
BÓLUSETNINGAR
Helmingur fengið
eina sprautu
Anthony Fauci.
Tæplega 800 manns týndu lífinu í
árásum lögreglu í brasilíska fylkinu
Rio de Janeiro á níu mánuðum.
Lögreglan ræðst inn í fátækra-
hverfi, eða favela á máli heima-
manna, á nær hverjum degi þrátt
fyrir að hæstiréttur hafi úrskurðað
að draga ætti úr slíku á meðan
heimsfaraldur geisar.
Nýjar tölur frá Federal Flum-
inese-háskólanum sýna að 797
manns voru myrtir í fylkinu öllu á
tímabilinu júní 2020 fram í mars
2021. 85% þeirra í borginni Rio og
úthverfum borgarinnar.
Úrskurður féll í hæstarétti í júní
2020 í kjölfar þess að lögregla skaut
14 ára dreng til bana í einni árás-
anna.
Næstu þrjá mánuði fækkaði
áhlaupum lögreglu inn í fátækra-
hverfin um 64%. Fjöldi áhlaupa tvö-
faldaðist svo í október. Talsmaður
lögreglunnar segir að áhlaupin séu
gerð til að bregðast við ofbeldis-
fullum átökum um yfirráðasvæði á
milli glæpagengja og að markmið
þeirra sé að fylgja lögunum og
vernda líf almennra borgara. Lög-
reglan í Rio de Janeiro-fylki myrðir
næstum því tvöfalt fleiri á ári
hverju en lögreglan í öllum Banda-
ríkjunum. „Þetta er fáránlegt.
Hæstiréttur tekur ákvörðun og
stjórnvöld virða hana ekki og fara
gegn henni vísvitandi. Þetta stefnir
réttarríki Brasilíu í hættu,“ segir
Daniel Hirata, prófessor í fé-
lagsfræði við Federal Fluminense-
háskóla.
Þessa miklu aukningu á lögreglu-
ofbeldi má rekja til kosningar Wil-
sons Witzels sem fylkisstjóra í Rio,
en í kosningabaráttunni lofaði hann
ofbeldi og hét því að „slátra“ glæpa-
mönnum. Witzel neyddist til að
segja af sér í fyrrahaust vegna spill-
ingarmála. Eftirmaður hans hefur
þó haldið uppi álíka harðri stefnu í
málefnum glæpagengja.
Tæplega 800 manns myrt af lögreglu
- Áhlaup lögreglu daglegt brauð í
fátækrahverfum Rio de Janeiro-fylkis
AFP
Áhlaup 800 manns hafa verið myrt.