Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021 ✝ Valgerður Hannesdóttir fæddist 18. ágúst 1956 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru J. Halldóra Kristjánsdóttir, f. 31. maí 1931 í Hvítadal, Saurbæj- arhreppi, Dala- sýslu, d. 28. októ- ber 2013, og Hannes Alfonsson, f. 10. ágúst 1927 á Garð- staðagrundum, Ögurhreppi, N- Ísafjarðarsýslu, d. 26. mars 2005. Valgerður hóf sambúð 1. jan- úar 1987 með Haraldi Helga- syni, f. 23. október 1957 í Reykjavík. Þau gengu í hjóna- band 24. júní 1995. Foreldrar Haraldar voru Hulda Haraldsdóttir, f. 28. jan- úar 1927 í Reykjavík, d. 1. des- ember 1993, og Helgi Þorkels- son, f. 17. september 1920 í Markaskarði, Kolhreppi, Rang- árvallasýslu, d. 4. mars 2014. Fyrir átti Valgerður dótt- urina, Halldóru Kristjánsdóttur Larsen, f. 4. apríl 1986 í Svandís, f. 11. mars 1960, og Jóhanna Benný, f. 10. sept- ember 1967. Valgerður vann við ýmis störf á barnsaldri s.s. barna- pössun, sendlastarf og að tína kringlur í poka hjá bakaríi. Með skóla vann hún við þrif í heimahúsi, afgreiddi í sjoppu og sá um heimili og tvö börn. Árið 1974 eftir grunnskólann skellti hún sér í húsmæðraskól- ann Varmaland í Borgarfirði. Árið 1975 hóf hún nám í Fósturskóla Íslands og lauk þar námi 1978. Strax eftir útskrift hóf hún störf hjá Kópavogsbæ og starfaði bæði sem deildar- stjóri, aðstoðarleikskólastjóri og skólastjóri en hún starfaði þar í 11 ár. Þá tók við svolítið flakk og vann hún eitt ár í Nes- kaupstað sem deildarstjóri, fimm ár í Hveragerði sem deildarstjóri, 5 ár á Ísafirði, þar af eitt ár sem deildarstjóri og fjögur sem leikskólastjóri, og að lokum 13 ár hjá Hvíta- sunnukirkjunni á Akureyri á leikskólanum Hlíðarbóli, þar af 12 ár sem leikskólastjóri. Valgerður lést á Sjúkrahús- inu á Akureyri 3. apríl 2021. eftir langvarandi veikindi. Útförin fer fram í Gler- árkirkju í dag, 19. apríl 2021, kl. 13. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni: Jarðarfarir í Glerárkirkju. Reykjavík. Faðir hennar var Krist- ján B. Larsen, f. 21. maí 1961 á Ak- ureyri, d. 29. sept- ember 1997. Börn Halldóru eru Emelía Valey, f. 2005, Kristján Arn- ar, f. 2009, Har- aldur Wilhelm, f. 2010, Þóra Kristín, f. 2014, og Hákon Andri, f. 2016. Valgerður og Haraldur eign- uðust þrjú börn saman. Fyrstur var Eyvindur, fædd- ur andvana 31. mars 1988. Síð- an Theódór Sölvi, f. 17. október 1989 í Reykjavík. Theódór er kvæntur Maríu Sigurlaugu Jónsdóttur, f. 19. júlí 1990. Börn þeirra eru Valgerður Edda, f. 2014, Jón Eyvindur, f. 2016, Hulda Guðrún, f. 2018, og Þóra Bríet, f. 2020. Yngst er Hulda, f. 10. mars 1993 í Reykjavík. Hún er í sam- búð með Karli Inga Björnssyni, f. 12. apríl 1988. Systkini Valgerðar voru Alf- ons, f. 16. september 1955, Elsku mamma mín, elsku mömmulingur. Orð fá ekki lýst hvað ég sakna þín mikið. Þú hef- ur kennt mér svo margt í gegn- um lífið en það sem þú hefur kennt mér og sýnt síðustu ár er að gefast ekki upp, horfa á björtu hliðarnar og vera jákvæð. Í gegn- um öll veikindaárin kvartaðir þú aldrei og gafst aldrei upp. Þú varst og verður alltaf hetjan mín og fyrirmynd. Ég gat alltaf leitað til þín með allt. Hvort sem það var andleg vanlíðan, aðrir erfið- leikar eða jafnvel að biðja um að- stoð með skólaverkefni eða prjónaverkefni, þá varst þú alltaf til staðar. Þú varst alltaf tilbúin að lesa yfir skólaverkefnin mín, alltaf tilbúin að hlusta og gefa mér ráð þegar ég upplifði kvíða og alltaf tilbúin að hlusta þegar mér leið illa. Þú samgladdist mér líka þegar mér gekk vel og hvatt- ir mig áfram í öllu sem ég gerði. Við áttum margar góðar stundir saman og er ég þakklát fyrir þær stundir, ég er þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir mömmu. Einnig er ég þakklát fyrir að hafa eytt síðustu tveimur mánuðum af lífi þínu með þér. Við gátum spjallað saman og prjónað saman síðustu mánuð- ina. Mér finnst sárt að þú hafir far- ið frá okkur allt of snemma og að við fengum ekki lengri tíma með þér. Ég get þó huggað mig við það að veikindin og sársaukinn þinn er farinn og þú þjáist ekki lengur. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að þú munt ekki sjá mig út- skrifast úr háskólanum, munt ekki vera með mér þegar ég gifti mig og munt ekki sjá börnin sem ég mun eignast. Ég veit samt að þú munt alltaf fylgjast með mér og alltaf vera með mér. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, gerðir fyrir mig og kenndir mér. Takk fyrir að vera mamma mín. Ég elska þig og sakna þín. Þinn Huldulingur og dóttir, Hulda. Elsku mamma mín. Nú hefur þú lokið jarðvist þinni og því langar mig að kveðja þig í síðasta sinn með þessum orðum. Nú lít ég yfir farinn veg og efst í huga mér er þakklæti. Þakklæti til þín og pabba fyrir gott uppeldi. Þakklæti fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman í eld- húsinu og voru þær þó nokkrar. Kannski ekki skrýtið að ég end- aði svo sem matreiðslumeistari. Ef ég ætti að lýsa þér í einu orði þá væri það jafnaðargeð. Að- allega vegna þess að sama hvað gekk á hjá okkur fjölskyldunni þá varst þú ekki mikið að æsa þig eða stressa þig yfir hlutunum. Alla vega sýndir þú það ekki. Það fannst mér alveg magnað. Með sama hugarfari tókst þú á við veikindin þín sem tóku yfir líf okkar fjölskyldunnar 2014. Ég man þegar þú veiktist fyrst og varst svo fljótlega eftir sjúkra- húsdvölina tengd með súrefnis- línu við hann herra kút. Einmitt, þú kynntir súrefniskútinn sem herra kút og sagðir einmitt að hann ætlaði sko aldeilis ekki að staldra lengi við. En hann fylgdi þér þessi sjö ár og gerði það sko alveg upp á 10. Svo ákveðin varstu að takast á við veikindin. Ég hugsaði alveg nokkrum sinn- um í gegnum veikindin hjá þér að nú væri komið að kveðjustund en þá reifstu þig alltaf upp aftur. Þvílík baráttukona varstu af lífi og sál. Stór partur af þessari þrautseigju var auðvitað trú þín á Jesú Krist frelsara þinn. Það er alveg bókað mál elsku mamma að hann stóð við bakið á þér allan tímann ásamt pabba og herra kút sem studdu við bakið á þér hér á jörðinni. Er ég þeim og öllum þeim sem studdu við bakið á þér í þessi sjö ár ævinlega þakklátur. Þú varst nefnilega umvafin fólki sem elskaði þig mjög mikið og vorum við öll tilbúin að gera allt fyrir þig þó svo að það reyndist erfitt fyrir þig að vera mikil byrði fyrir alla. Við vildum bara taka á þessum veikindum með þér. En núna ertu loksins laus við elsku vin þinn hann herra kút og ert komin í faðm föður þíns á himnum. Trúi ekki öðru en hann sé glaður að sjá þig. Þessi veik- indi tóku á mamma mín og nú er kominn tími til að þú hvílir þig hjá þínum himneska föður. Fáðu þér nú einn góðan tebolla með frelsaranum þínum og spjallaðu við hann inn í eilífðina. Hlauptu nú upp á næsta fjallstind þar sem þú ert stödd mamma mín og horfðu yfir farveg þinn í gegnum lífið og þú mátt vera stolt af sjálfri þér, hvernig þú eyddir tímanum með okkur fjölskyld- unni og hvernig þú stóðst þig í baráttunni við veikindin. Njóttu hvíldarinnar mamma mín, þú átt það svo sannarlega skilið að slaka á eftir allt erfiðið síðustu ár. Hafðu ekki áhyggjur af herra kút, hann er eflaust farinn að sinna næsta skjólstæðingi og stendur sig alveg með prýði eins og honum einum er lagið. Læt fylgja hérna í lokin eitt vers úr Biblíunni sem einkenndi þig: Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar (Orðskv. 3:5-6) Elska þig mamma mín, ég bið að heilsa ömmu og afa. Hugsa ávallt til þín. Við sjáumst svo aftur einn daginn. Þinn sonur, Theódór Sölvi Haraldsson. Vallý, systir mín, er dáin. Það er eitthvað svo skrítið til- hugsunar en um leið svo gott. Skrítið að geta ekki heyrt í henni, séð hana né snert og gott því nú er hún laus úr viðjum sínum og komin í faðm Drottins. Vallý var næstelst af okkur systkinunum og ellefu árum eldri en ég. Ég var örverpið, litla krúttið sem stóra systir dekraði með gjöfum og ýmsum skemmti- legum uppákomum og fyrir vikið var hún uppáhaldssystir mín á þeim tíma. Hún var alltaf mikil barnakerling og var snemma bú- in að ákveða ævistarfið. Hún fór í Fósturskólann og ruddi þannig brautina fyrir yngri systur sínar tvær sem fylgdu í fótspor henn- ar. Vallý kynntist Jesú eftir að hún var orðin fullorðin en þar ruddum við systkini hennar brautina fyrir hana. Hún elskaði Jesúm og hann var haldreipið hennar, styrkur og besti vinur bæði í gleði og sorg að ég tali nú ekki um þessi ár frá því hún veiktist af lungnabólgu og var bundin við súrefnisvél eftir það. Það bar aldrei skugga á þeirra samband og nú er hún í faðmi hans. Ég mun minnast stóru systur minnar fyrir trúfesti, kærleika og gleði, ég mun minnast þess hversu handlagin hún var og hugmyndarík, ég mun muna eftir bensínsnúðunum, sörunum og pizzunum, fæðingu frumburðar- ins hennar sem ég fékk að vera viðstödd og síðustu ferðarinnar okkar saman síðastliðið sumar. Nú hefur hún farið ein í ferð til fundar við frelsarann. Í garði mínum greri jurt hún gægðist upp úr svartri mold. Þó lítið væri um ljós, þá breiddi hún út blöðin sín og bað um vorsins gróðuryl svo rauða bæri hún rós. Og sjálfur Drottinn sá þá rós og sagði, hún er gjöf frá mér og ber þér boðin mín. Ég græddi hana í garðinn þinn þú gætir hennar fyrir mig uns lokast augun þín. (Brynhildur L. Bjarnadóttir) Takk fyrir allt, elsku stóra systir mín, við sjáumst síðar. Jóhanna Benný Hannesdóttir. Með sorg í hjarta minnumst við Valgerðar Hannesdóttur, góðrar vinkonu og samstarfs- félaga. Leiðir okkar lágu saman á 9. áratugnum í leikskólanum Kópaseli, sem var útivistarpardís og náttúrperla í Lækjarbotnum. Þarna þróaðist vinskapur sem hefur haldist allar götur síðan. Það átti vel við Vallý að vinna í Kópaseli og þar nutu mannkostir hennar sín vel. Hún var jákvæð og hafði góða og hlýja nærveru. Börnin hændust að henni sem og starfsfólkið. Hún hafði einstaka frásagnarhæfileika, gæddi sög- urnar lífi og hreif með sér bæði börn og fullorðna. Hún var af- skaplega hugmyndarík, frjó og skapandi í starfi sínu sem leik- skólakennari. Hún var hæglát en tókst á við verkefnin sín af yf- irvegun, æðruleysi og viljafestu. Það leið öllum vel í návist hennar og það var einstaklega gott að leita til hennar. Greiðvikni var einn af hennar eðlislægu mann- kostum. En við vorum ekki bara saman í vinnunni, heldur hitt- umst við mikið utan vinnu og þá var oft glatt á hjalla. Hún var alltaf til í skemmtilega tilbreyt- ingu. Við hugsum til Vallýjar með miklum hlýhug. Við eigum svo ótal margar góðar minningar um þessa yndislegu vinkonu. Við Kópaselsvinkonur sendum eigin- manni, börnum og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Takk fyrir tímann sem með þér við átt- um, tímann, sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð eftir kveðjuna hér. Þinn orðstír mun lifa um ókomna daga indælar minningar hjarta okkar ber. (P.Ó.T.) Anna Magna, Auður, Erla Vigdís, Rannveig, Sigríður, Sólveig og Þórdís. Valgerður Hannesdóttir ✝ Ragnhildur Einarsdóttir fæddist 7. nóv- ember 1922. Hún lést 22. mars síðast- liðinn. Ragnhildur ólst upp í Holtakotum í Biskupstungum. Foreldrar hennar voru Einar Jör- undur Helgason, f. 1896, d. 1985, og Jónasína Sveinsdóttir, f. 1890, d. 1967. Systkini Ragnhildar: Helgi Kristbergur, f. 1921, d. 2004, Ingigerður, f. 1924, d. 2006, Mál- fríður Heiðveig, f. 1925, d. 1927, Hlíf, f. 1930, Dóróthea Sveina, f. 1932, d. 2011. Ragnhildur giftist Ragnari Þórðarsyni, f. 1922, d. 2014, frá Kvíarholti í Holtum 12. maí 1956. Bjuggu þau lengst af á Heiðar- eru María Sól og Tindra Mist. 3) Heiðveig, f. 1957, búsett í Danmörku, maki Henning Fre- driksen, f. 1954, sonur hennar er Sævar Már, f. 1975. Barnabörn eru Jóel Örn, María Rós og Sím- on Valur. 4) Jóhanna, f. 1959, búsett í Reykjavík, maki Bjarni Hall- dórsson, f. 1956, börn þeirra eru Kristín Björk, f. 1980, og Ragnar Þór, f. 1984. Barnabörn eru Aníta Eik, Almar Þór, Unnar Þór og Bjarni Hrafn. 5) Eyrún, f. 1966, búsett í Hafnarfirði, maki Sigurður Már Guðmundsson, f. 1957, börn þeirra eru Einar Már, f. 1989, Katla Sif, f. 1993. Stjúpbörn Reg- ína Harpa, f. 1978, og Eggert Smári, f. 1980 og barnabörn eru Urður Alda, Úlfrún Elva, Samson Smári, og Athena Guðrún. 6) Einar Jónas, f. 1968, búsett- ur á Selfossi, maki Petra Vijn, f. 1969, synir þeirra eru Símon Thor, f. 2002, og Erik Freyr, f. 2004. Útför Ragnhildar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 19. apríl 2021, klukkan 13:30. vegi 11 Selfossi. Börn þeirra eru: 1) Elfa Bryndís Þorleifsdóttir, f. 1947, búsett í Reykjavík, maki Örn Sigurðarson, f. 1941, börn þeirra eru Eva, f. 1963, Sigurður Örvar, f. 1966, Ragnhildur Mjöll, f. 1970, barnabörn þeirra eru Vilhjálmur, Arndís Ey, Ingv- ar Örn, Guðfinna Rós, Kamil Daníel, Elfar Oliver, Hafsteinn Ingi, Alexander Örn, Elfa María og Lúkas Daníel og barnabarna- börnin eru sjö. 2) Þórmar, f. 1956, búsettur í Reykjavík, maki Jónína María Kristjánsdóttir, f. 1957, og börn þeirra eru Kristján Valdimar, f. 1979, Lísibet, f. 1981. Barnabörn Í dag verður móðir mín, hún Ragna á Heiðarveginum, jarð- sungin í Selfosskirkju. Hún lést 22. mars síðastliðinn. þetta voru erfið skilaboð að fá. Þó svo hún væri komin á þennan aldur þá er hún mamma mín. Það koma margar minningar fram, sérstaklega þegar við bjuggum á Heiðarveginum. Þetta var lítið hús með mörg börn og alltaf pláss fyrir vini okkar. Á Heiðarveginum var margt brallað, man eftir mörgum stundum þar sem hún sat ann- aðhvort við saumavélina eða með prjónana og hvernig hún teiknaði munstrið upp þegar hún saumaði föt á okkur systk- inin. Hún var mjög góð í hönd- unum, hún saumaði, prjónaði, batt inn bækur, tréskurður og svo margt annað sem hún gerði. Ég lærði margt af henni, hún kenndi mér margt sem ég er mjög þakklát fyrir í dag. Ég minnist þess líka hvað oft ég gat komið heim á Heiðar- veginn og vantaði hjálp við klára að sauma fötin sem ég ætlaði að nota eftir nokkra tíma eða þegar ég þurfti á barnapíu að halda. Eftir að ég flutti til Dan- merkur hittumst við ekki svo oft en ég mun sakna hennar mjög mikið og að geta ekki far- ið til hennar á Grænumörkina þar sem hún bjó síðustu árin og fengið íslenskan mat, kjötsúp- una hennar eða að fá heitan mat í hádeginu, ein góð hefð sem hún hélt alltaf við. Ég mun sakna þess að geta ekki hitt hana þegar ég kem til Íslands en ég vil muna allar þær góðu stundir sem við höf- um haft saman. Ég gleymi þér aldrei, elsku mamma mín. Heiðveig Ragnarsdóttir. Bið að heilsa! Svona kvaddi hún mig alltaf hún Ragna amma mín sem nú er látin á 99. aldursári. Það er löng ævi og sagði hún stundum aðspurð hvernig hún hefði það „nú ég er hér eins og hvert annað rusl sem gleymst hefur að henda“, svo hlógum við. Amma varð ekkja í október 2014 og varð hún aðeins dauf fyrst eftir það og en svo reif hún sig upp og hef ég hana grunaða um að hafa haft það markmið að verða hundrað ára. En heilsu hennar hrakaði hratt síðustu mánuði og fór svo að hjartað gaf sig. Hún fór á sjúkrahús 4. mars, fékk inni á Lundi á Hellu 15. mars og lést þar 22. mars. Fram að því hafði hún haldið eigið heimili en síðustu árin með góðri aðstoð. Undanfarið ár hefur verið henni erfitt eins og mörgum öðrum. Starfsfólkið í Dagdvöl aldraðra og starfs- fólkið á vaktinni í Grænumörk var einstaklega gott við hana ömmu, dekraði hana í bak og fyrir og kann ég því góða fólki miklar þakkir. Amma var mjög minnug og sagði oft sögur frá löngu liðn- um tímum. Einnig þuldi hún blaðlaust upp heilu kvæðabálk- ana og revíurnar. Þá lifnaði yfir henni og augun glömpuðu eins og í barni, hún var líka liðtæk í að hnoða saman vísum en flík- aði því ekki. Alltaf þegar amma sagði sögur urðu þær ljóslif- andi fyrir manni, hún hafði ein- staka frásagnarhæfileika. Amma bar ekki tilfinningar sín- ar á torg og ekki er ég viss um að margir hafi séð hana gráta. Hún átti góðan stað í bænum þar sem hún gat falið sig ef illa lá á henni. Það var skot inn af eldhúsinu þar sem einn steinn- inn stóð út úr hleðslunni. Þar var fínt að setjast, gráta svolít- ið eða hugsa. Amma átti alltaf svar við öllu og var aldrei ráðalaus og hún kunni að láta hlutina endast og duga. Næstum allur fatnaður var heimasaumaður og -prjón- aður. Hún átti líka prjónavél sem hún notaði til að prjóna ullarnærfatnað sem hún svo seldi eða konur komu með garn til hennar sem hún svo prjónaði úr. Engu var hent fyrr en það var orðið algjörlega ónothæft og þá var jafnvel búið að sauma og prjóna nokkrum sinnum upp úr flíkunum. Amma var mikil jafnaðar- manneskja og þoldi illa ójöfnuð, hún var trúnaðarmaður þegar hún vann hjá SS og starfaði fyrir Verkalýðsfélagið Þór. Það eru aðrir en ég sem geta sagt frá því félagsmálastarfi hennar, nema það fólk sé allt farið í Sumarlandið. Það var alltaf ein- hver gleði í kringum ömmu, hún gat alltaf séð eitthvað spaugilegt og gert grín. Þessu fékk ég að kynnast þegar ég fullorðnaðist, við urðum miklar vinkonur og þau bönd urðu enn sterkari eftir að hún varð ekkja. Eitt kenndi hún mér sem er dýrmætt og það er að liggja ekki á fúleggjum eins og hún kallaði það, þ.e. að halda ekki á lofti óvild og gremju. Líf mitt er orðið tómlegra núna því ég fór yfirleitt nokkrum sinnum í viku til hennar og þegar Co- vid-19 skall á kom það í minn hlut að aðstoða hana heima við með ýmsar þarfir sem annars var sinnt í Dagdvöl aldraðra. Ég sakna ömmu minnar, sakna félagsskapar hennar og sögu- stundanna, sakna púslstund- anna og samræðnanna. Guð geymi ömmu mína og blessi minningu hennar. Bið að heilsa! Eva. Ragnhildur Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.