Morgunblaðið - 19.04.2021, Side 25
Arnheiður, f. 30.7. 1975, landfræð-
ingur og kennari, búsett á Siglufirði.
Fyrrverandi sambýlismaður: Sig-
urður Ægisson prestur. Börn þeirra
eru Mikael, f. 11.1. 2004, og Margrét
f. 2.2. 2006; 2) Droplaug Margrét, f.
2.6. 1978, mannfræðingur og sérfræð-
ingur í vefmálum, búsett á Seltjarn-
arnesi. Maki: Guðbjörn Logi Björns-
son, sérfræðingur í gæðamálum.
Börn þeirra eru Ninna Kolbrún, f.
11.5. 2009, Þorri Hrafn, f. 12.1. 2012,
og Hugi Freyr, f. 30.7. 2017; 3) Eilífur
Örn, f. 26.5 1982, vélvirkjameistari,
býr í Haga 1. Maki: Sigrún Aagot
Ottósdóttir, fjölmiðlafræðingur og
skólafulltrúi. Sonur þeirra er Emil
Darri, f. 27.11. 2020; 4) Ingibjörg
Dóra, f. 16.5, 1988, vörulínustjóri hjá
Puma, búsett í Boston í Bandaríkj-
unum. Maki: Alvaro Antoni Perez
lögfræðingur. Sonur þeirra er Franc-
is Alexander Alfonso Antoni Perez, f.
12.10. 2018.
Systkini Jóns eru Hjálmar Jakob,
f. 4.12. 1937, smiður, býr í Keflavík;
Anna, f. 22.4. 1940, verkakona og hús-
móðir, býr á Akureyri; Sigtryggur
Pétur, f. 17.9. 1941, bóndi í Fornhaga
í Aðaldal; Nanna, f. 11.8. 1948, verka-
kona og húsmóðir, býr á Hallbjarnar-
stöðum á Tjörnesi, og Sesselja, f. 7.6.
1951, verkakona og húsmóðir á Húsa-
vík.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Margrét Hjálmarsdóttir, f. 30.8. 1918,
d. 1.1. 2005, húsmóðir og Forni
Jakobsson, f. 16.11. 1908, d. 8.12.
1998, bóndi. Þau stofnuðu nýbýlið
Fornhaga í Aðaldal. Seinni maður
Margrétar var Hörður Bjarnason, f.
18.6. 1924, d. 17.6. 1998, verslunar-
maður og húsvörður. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Jón
Fornason
Þorgrímur Pétursson
bóndi í Nesi
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfreyja í Nesi í Aðaldal
Jakob Þorgrímsson
bóndi í Haga
Sesselja Jónasdóttir
húsfreyja og saumakona
í Haga í Aðaldal
Forni Jakobsson
bóndi í Fornhaga í Aðaldal
Jónas Sigurðarson
bóndi í Hrauni, Hraungerði
og víðar í Aðaldal
Jóna Andrésdóttir
húsfreyja í Hrauni, Hraun-
gerði og víðar í Aðaldal
Lárus Erlendsson
bóndi í Holtastaðakoti
Sigríður Hjálmarsdóttir
húsfreyja í Holtastaða-
koti í Langadal
Hjálmar Lárusson
smiður og útskurðarmeistari á
Blönduósi og í Reykjavík
Anna Halldóra Bjarnadóttir
húsfreyja á Blönduósi og í Reykjavík
Bjarni Þorbergsson
bóndi í Klúku
Guðrún „yngri“ Magnúsdóttir
húsfreyja í Klúku í Bjarnarfirði
Úr frændgarði Jóns Fornasonar
Margrét Hjálmarsdóttir
húsfreyja í Fornhaga í Aðaldal
og Reykjavík
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
E60
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum allt eftir pöntunum.
Verð frá: 33.900 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
„EF ÉG NÆ KJÖRI ER ÉG REIÐUBÚINN
AÐ HRINDA Í FRAMKVÆMD AÐGERÐUM
GEGN LOFTSLAGSBREYTINGUM – EF
VEÐUR LEYFIR“
„GETUR ÞÚ STAÐIÐ Á HÆGRI FÆTI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa samband við
vini sína.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU
HUNDINN …“
ÉG SÉ AÐ FÍFA PÚÐLU-
HUNDUR ER ENN AÐ REYNA
AÐ ÞAGA ÞIG Í HEL
DÆS
HVER FER ÞAR …VINUR
EÐA VARGUR?
ÉG ER BARA
VILLTUR
PÍTSUSENDILL!
HEI, ÞÚ ÞARNA! PÍTSAN ER
HANDA MÉR!
HVERJIR ERU
ÞESSIR TVEIR? ÞESSI ER VINUR,
HINN VARGUR!
HÆ!
Dagbjartur Dagbjartsson skrif-ar á Boðnarmjöð: „Nafni
minn og nágranni rekur ágæta
bruggfabrikku og heldur úti heim-
sendingarþjónustu. Meðal annars
hefur hann framleitt Hvalabjór og
jólabjórana Hallelúja og Almátt-
ugur. En allt kostar sitt eins og
önnur veraldleg gæði“:
Hal- er bjórinn –lúja –le-
löngum –stur og talinn be-
-ndur heim þó hann er se-
heimtar karlinn –ninga pe-
Þessi háttur heitir slitruháttur.
Elías Mar orti þessa slitru:
Anta- jafnan etur bus
einnig Pega- ríður sus
spíri- því ei teigar tus
Thorla- karlinn frækn cius.
Stefán Jónsson fréttamaður og
síðar alþingismaður hafði gaman
af að yrkja í anda Jóns Pálmason-
ar á Akri og með hans áherslum, –
og hér í tilefni af afmæli Páls Ís-
ólfssonar. Þannig varð slitran
fleyg en ég hef síðar heyrt aðrar
útgáfur.
Ó- það læt ég ekki gert
af- ég mæli syng um.
Tónakálfinn töluvert
teitur dansa kringum.
Anton Helgi Jónsson kveður:
Um hérað reið sóttfrelsishetja
sem hugsanleg smit vildi setja
í einangrun heima
og agnir sem sveima
til ökklabandsnotkunar hvetja.
Anton Helgi yrkir „óstjórn-
arlimru dagsins“ og kallar
„Hyggna ráðgjafann“:
Hvað ég ætla og vona og vil
ég veit svei mér ekki né skil:
enn síður hvað veldur
og set mér því heldur
að segja þeim rugluðu til.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Það er hollt fyrir andann að efast
er æskunnar stórviðri sefast
og sitja í ró
sem söngfugl í mó
og grípa þá orma sem gefast
.
Gripið niður í gömlu vísnasafni.
Íslendingur orti í Khöfn:
Vornæturnar valda því,
vinalega bjartar,
að hringsnúast mér innan í
ótal vísupartar.
Ragnar Ásgeirsson orti:
Ysta skart þótt eigir fátt
ógna ei svartar nætur
vonir bjartar ef þú átt
innst við hjartarætur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Slitruháttur og fleira gott