Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 2
Létu í sér heyra á Reykjavíkurflugvelli
Trúnaðarmenn í Eflingu og virkir félagsmenn, stóðu fyrir dreifingu upplýsingamiða til innanlandsfarþega Icelandair á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. Til-
gangurinn var að vekja athygli á máli hlaðkonunnar Ólafar Helgu Adolfsdóttur, sem Icelandair sagði nýverið upp. Ólöf Helga gekk með Sólveigu Önnu Jóns-
dóttur, formanni Eflingar, og félagsmönnum Eflingar að flugstöðinni, þar sem þau létu í sér heyra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skólastjóri Víkurskóla segir
seinkun á skólabyrjun draga
úr streitu, bæði kennara og
nemenda. Það smiti út frá sér
á jákvæðan hátt til heimila.
bth@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Börn í einum grunnskóla
á landinu, Víkurskóla í Grafarvogi,
þurfa ekki að mæta í skólann á
mánudagsmorgnum fyrr en klukk-
an tíu. Hina fjóra daga vikunnar
hefst skólinn klukkan 8.40.
Ákveðið var þegar við upphaf skóla-
starfs í Víkurskóla, haustið 2020, að
gefa skólabörnum aukinn tíma á
mánudagsmorgnum áður en þau
hefja störf.
„Við ákváðum að gefa þeim góðan
tíma á mánudögum, það er betra
fyrir þau að fá lengri svefn,“ segir
Þuríður Óttarsdóttir, skólastjóri
Víkurskóla. Hún segir skólann vera
safnskóla, börn komi úr fjórum
hverfum og fari um mislangan veg
í skólann.
Fréttablaðið hefur síðustu daga
fjallað um lítinn svefn barna og
ungmenna. Ákall hefur komið fram
hjá foreldrum um að skólabyrjun
verði seinkað á morgnana.
Tilraunaverkefni er í pípunum hjá
Reykjavíkurborg þar sem nokkrir
skólar verða valdir og upphafi
kennslu seinkað á morgnana.
Þuríður hefur mikla reynslu af
kennslu og segist hún þeirrar skoð-
unar að fyrirkomulagið í Víkur-
skóla sé til bóta fyrir heilsu skóla-
barnanna og bæti námsárangur
þeirra. Sum börn ákveði að mæta
töluvert fyrir klukkan 10 á mánu-
dögum en þau hafi þá aðgengi að
bókasafni, geti fengið sér graut í
morgunmat eða slakað á og búið sig
undir fyrstu kennslustundir.
„Ég held að þetta skapi betra and-
rúmsloft,“ segir Þuríður og bætir við
að þótt starfsfólk mæti alla daga
klukkan átta sé einnig til bóta fyrir
kennarana að fá tíma til að undir-
búa skólastarfið.
„Þetta fyrirkomulag léttir á
streitunni. Þegar minni streita er
hjá starfsfólki smitar það líka yfir í
nemendahópinn,“ segir Þuríður.
Einnig verði minni streita á heim-
ilum.
„Ef börnin þurfa ekki að vera
mætt eldsnemma, þarf engan asa
til að koma þeim í skólann," segir
Þuríður. ■
Börnin mæta ekki fyrr en
klukkan tíu á mánudögum
Þuríður, skólastjóri í Grafarvogi, segir að seinkun á fyrstu kennslustundum
skapi betra andrúmsloft, auki svefn og minnki streitu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ef börnin þurfa ekki að
vera mætt eldsnemma
þarf engan asa við að
koma þeim í skólann
Þuríður Óttarsdóttir, skólastjóri í
Víkurskóla
Birgir Ármanns-
son, þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins og
formaður undir-
búningsnefndar.
adalheidur@frettabladid.is
KOSNINGAR Opinn fundur verður
í undirbúningsnefnd kjörbréfa-
nefndar klukkan 10.45 í dag. Á fund
nefndarinnar koma Trausti Fannar
Valsson, forseti lagadeildar Háskóla
Íslands, og Ragnhildur Helgadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík, og
fjalla um lögfræðileg álitaefni í
tengslum við verkefni nefndar-
innar. Hægt verður að fylgjast með
beinni útsendingu af fundinum á
vef Fréttablaðsins, frettabladid.is.
Aðspurður segist Birgir Ármanns-
son, formaður nefndarinnar, gera
ráð fyrir því að lögregla svari upp-
lýsingabeiðni nefndarinnar í dag,
en fyrr í vikunni óskaði nefndin
upplýsinga um rannsókn lögreglu
á talningu í Norðvesturkjördæmi.
Rannsókninni er lokið og hefur
málinu verið vísað til ákærusviðs. ■
Lögreglan svarar
nefndinni í dag
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Málefni RÚV og einka-
rekinna fjölmiðla eru ekki meðal
þeirra mála sem formenn stjórnar-
flokkanna eru að ræða í viðræðum
um áframhaldandi samstarf.
Viðræðurnar hafa hingað til
að mestu varðað mál sem sigldu í
strand á síðasta kjörtímabili, önnur
stefnumál flokkanna sem stangast á
og helstu samfélagslegu verkefnin
fram undan. Málefni fjölmiðla voru
sannarlega meðal umdeildra mála
í stjórninni á síðasta kjörtímabili,
en frumvarp menntamálaráðherra
um styrki til einkarekinna miðla
var stöðugt bitbein, ekki síst milli
ráðherrans, Lilju Alfreðsdóttur, og
einstakra stjórnarþingmanna.
„Nei, þessi mál hafa ekki verið
rædd í viðræðum okkar þriggja,“
sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra, aðspurð um fjölmiðla-
málin.
Katrín sagði formennina ekki
hafa fundað í gær vegna Artic Circle,
en þau muni halda áfram í dag. ■
RÚV og fjölmiðlar
ekki til umræðu
arib@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Eldsupptök í íbúð-
inni í Hafnarfirði, þar sem kona á
sjötugsaldri lést aðfaranótt fimmtu-
dags, eru ókunn. Slökkvilið var kall-
að út að íbúð í þríbýli við Álfaskeið
um tvöleytið um nóttina, íbúðin
var full af reyk og einnig mikill hiti.
Nágranni kounnar hringdi í neyðar-
línuna. Tæknideild lögreglu var að
störfum í íbúðinni í dag.
Rauði krossinn aðstoðaði tvær fjöl-
skyldur sem eiga heima í húsinu með
gistingu og sálrænan stuðning. ■
Upptökin ókunn
Íbúðin var full af reyk.
2 Fréttir 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ