Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 11

Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 11
TAUGATRYLLIR Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Ný bók eftir háspennu- drottninguna Lilju Sigurðardóttur komin í verslanir. PC / METRO (UM HELKÖLD SÓL) Rafbók HljóðbókInnbundin benediktboas@frettabladid.is VINNUMARKAÐUR Það sem af er ári hafa konur verið ráðnar fram- kvæmdastjórar í aðeins 20 pró- sentum nýráðninga, samkvæmt gögnum Creditinfo. Konur eru nú framkvæmdastjórar í um 18 prósentum virkra fyrirtækja, en þá er horft til um 6.000 fyrirtækja sem eru með virkan rekstur og tekjur yfir 30 milljónum króna síðustu ár. Konur bera enn skarðari hlut frá borði ef horft er til rúmlega 1.000 tekjuhæstu fyrirtækjanna, en þá er hlutfallið um 13 prósent. Þetta kom fram á ráðstefnu Jafnvægisvogar Félags kvenna í atvinnurekstri í gær. „Við sjáum í gögnum okkar að almennt séð lækkar hlutfall kvenna í framkvæmdastjórastöðum eftir því sem fyrirtæki eru stærri. Niðurstað- an er í takti við það sem við höfum séð undanfarin ár, en vissulega mikil vonbrigði að hægt hafi aftur á ráðningum kvenna í stöður fram- kvæmdastjóra,“ segir Gunnar Gunn- arsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar Creditinfo á Íslandi. Tölur Creditinfo sýna að í hópi 1.000 tekjuhæstu fyrirtækja er hlut- fall kvenna meðal æðstu stjórnenda hæst í ferðaþjónustu og afþreyingu, 20 prósent, en lægst í framleiðslu- fyrirtækjum, um 8 prósent. Til að hlutfall kynjanna verði nokkuð jafnt fyrir árið 2027, þyrfti hlutfall kvenna af nýráðningum framkvæmdastjóra strax að verða um 70 prósent. n Konum fækkar í efstu stigum þegar fyrirtækin verða stærri Hlutfall kvenna meðal æðstu stjórnenda er hæst í ferða- þjónustu og afþreyingu, eða 20 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Styttur af Leopold II. Belgíukonungi á nýlendutímanum hafa orðið fyrir skemmdarverkum. arib@frettbladid.is BELGÍA Fimm konur sem fæddust í Belgísku Kongó og voru teknar frá mæðrum sínum með valdi, hafa höfðað mál á hendur belgíska ríkinu fyrir glæpi gegn mannkyni. Kongó var undir stjórn Belgíu frá 19. öld fram til ársins 1960 þegar landið öðlaðist sjálfstæði. Nýlendustjórn Belga kom vægast sagt illa fram við íbúa og létu milljónir lífið. Konurnar fimm, Léa, Monique, Simone, Noëlle og Marie-Josée, eiga hvíta feður og svartar mæður, nýlendustjórnin tók öll börn sem feður gengust ekki við og kom þeim fyrir á stofnunum. Komurnar fara fram á 50 þúsund evrur, eða um 7,4 milljónir íslenskra króna, í bætur. Belgíska stjórnin hafnar því að um sé að ræða glæpi gegn mannkyni. Belgíska ríkið baðst afsökunar á framferði sínu í Kongó fyrir tveimur árum. n Belgía sökuð um glæpi gegn mannkyni benediktboas@frettablaid.is ELDGOS Nú þegar rúmur mánuður er síðan virkni greindist síðast í eldgosinu við Fagradalsfjall, svarar Sigurður Steinþórsson spurningu á Vísindavefnum um hversu stórt það hafi verið. Sigurður segir að telja megi að gosið hafi verið langt en aðeins þrjú eldgos á 20. og 21. öld vörðu lengur. Hvað varðar rúmmál gos- efna eru Geldingadalir neðarlega á lista. Hvað meðalafl, eða rúmmetra á sekúndu, gossins snertir, er gosið í Geldingadölum raunar næstaftast á merinni. Aðeins afl flæðigoss Heklu 1981 sem varði í viku, var minna. n Máttlaust gos miðað við önnur Lítið hefur verið að gerast eftir að virkni datt niður í Geldingadölum. FÖSTUDAGUR 15. október 2021 Fréttir 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.