Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 16
Horfist stjórnmála-
menn ekki í augu við
þessar alvarlegu stað-
reyndir verða afleið-
ingarnar alvarlegar.
Í tímans rás hafa stjórnmálaflokkar
á Íslandi fæðzt og dáið eins og lífs-
ins lög gera ráð fyrir. Þeir létust úr
ýmiss konar uppdráttarsýki, en
enginn þeirra úr klámi fyrr en nú
að Miðflokkur lagðist í rúmið og er
að deyja úr klámi. Birgir Þórarins-
son miðflokksmaður sté ekki inn í
klaustrið góða hér um árið, en tók
um daginn snögglega til fótanna
rakleitt inn í viðhafnarstofur Sjálf-
stæðisflokksins. Vilhjálmur Bjarna-
son hefur ritað fróðlega grein um
loftræstikerfið þar. Í þeim stofum
var Birgi fagnað samstundis eins
og bezta bróður, enda kom hann
færandi hendi: hafði meðferðis
sjálfa „skynsemishyggjuna“, bæði
hina almennu og hina „róttæku
skynsemishyggju“; einhvers staðar
verður að koma henni vel fyrir nú
þegar Miðflokkurinn er í andarslitr-
unum. Birgir ályktaði með réttu að
hvergi fyndist eðlilegra rými fyrir
„skynsemishyggjuna“ í heild en í
húsum Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Þórarinsson er guðfræðing-
ur að mennt og mun ekki vera klám-
hundur í frístundum. Hann reisti
guði til dýrðar og sjálfum sér til
fremdar kirkju á bæ sínum, Minna-
Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd.
Hún var vígð síðastliðið sumar. En
nokkru áður hafði Birgir hraðað því
að settur yrði kross á kirkjuna vegna
þess að þá skulfu fjöll og grundir
suðvestanlands. Haft var eftir
honum í Morgunblaðinu 11. marz
að í þeim krossi fælist „ákall og bæn
til Drottins um að hemja náttúru-
öflin. Hér skelfur og við höfum ekki
náð heilum svefni lengi“. Einnig tók
hann fram að Vatnsleysuströnd gæti
verið í hættu, kæmi til goss á Reykja-
nesskaga; sama ætti við um „skák á
hraununum við Keili“ sem tilheyrði
ábúðarjörð hans.
Þarna talar maður sem er ágæt-
lega að sér í „skynsemishyggjunni“:
náttúruöfl eru af hinu góða, ef þau
gagnast mannskepnunni eða láta
hana að minnsta kosti í friði, að
öðrum kosti eru þau af hinu illa.
Þessi grein „skynsemishyggjunnar“
teygir anga sína aftur til eingyðis-
trúarmanna í forneskju sem hug-
kvæmdist það snjallræði að búa
til satan, því einhver hlaut að hafa
spillt sköpunarverkinu, mönnum og
náttúru, frá því er guði almáttugum
þótti það allt saman harla gott í
öndverðu. Ekkert vit var í því að
láta alfullkominn guð bera ábyrgð
á sköpunarverki sem var gallað.
Meðal þess sem satan hafði á valdi
sínu var eldurinn í iðrum jarðar.
Þegar Fjölnismenn börðust fyrir
því að alþing Íslendinga hið nýja
yrði háð á völlunum við Öxará
orti Jónas Hallgrímsson tvö kvæði
til lofs Þingvöllum: Fjallið Skjald-
breiður og Leiðarljóð til Jóns Sig-
urðssonar. Af fyrra kvæðinu má
ljóst vera að Jónas hefði aldrei reist
kross í móti náttúruöflum, svo sem
landskjálftum og jarðeldum. Þing-
staðurinn forni bar því vitni að guð
hafði jarðeld í þjónustu sinni þegar
hann vann að smíði hans, „gat ei
nema guð og eldur/gjört svo dýrð-
legt furðuverk“. Þetta stríðir vitan-
lega gegn hinum „kristnu gildum“
Birgis Þórarinssonar og „skyn-
semishyggjunni“ yfirleitt. En svona
var nú Jónas skáld Hallgrímsson,
hann trúði á skapara (nefndi hann
gjarnan „föður“) sem var ekki klof-
inn í tvennt eftir geðþótta manna, í
algóðan og almáttugan guð á annan
bóginn, á hinn bóginn í satan.
Allir viðurkenna að það er mjög
sárt hve hörð náttúruöf lin eru
okkur mönnum oft og einatt. En
væri þó ekki skynsamlegt að taka
undir með Sveinbirni Egilssyni
sem segir í kvæði að blítt og strítt
fari saman í tilverunni að vilja þess
sem hana skóp?
Eftir að Birgir Þórarinsson reisti
krossinn á kirkju sinni kom upp
jarðeldur í Geldingadölum. Sem
betur fer hefur hann ekki hingað
til þurft að hlaupa undan þeim
satanísku kröftum sem þá losnuðu
úr læðingi. En nú er greinilegt orðið
að hann hefði einnig átt að beina
kirkjukrossi þessum gegn Mið-
f lokknum, því ekki dylur hann
lengur að þar væri á reiki „margur
óhreinn andinn“. n
Kirkjubóndi á hlaupum
Þeirrar ríkisstjórnar sem mynduð
verður á næstu vikum bíður enginn
dans á rósum. Fram til þessa hefur
umræðan snúist að mestu um
barnalegar vangaveltur um ráð-
herrastóla, valdahlutföll og sam-
kvæmisleiki um einstaklinga og
völd.
Fyrir kosningarnar í september
streymdu fram loforð um útgjöld
hér og þar, verkalýðshreyfingin
hélt úti auglýsingum þar sem því
var haldið fram fullum fetum að
nóg væri til af peningum fyrir
allt og alla. Stjórnmálaf lokkarnir
lofuðu ýmist miklum útgjöldum
eða skattalækkunum, nema hvort
tveggja væri. Enginn minntist á þá
alvarlegu staðreynd að skuldastaða
ríkissjóðs er skelfileg. Þar kemur
til mikill Covid-kostnaður, en ekki
má gleyma því að fyrir Covid var
rekstur ríkisins ósjálf bær. Ríkis-
báknið hefur þanist taumlaust
út og ríkissjóður er rekinn með
vaxandi halla. Covid hefur svo
aukið á þann vanda. Vextir eru
farnir að hækka að nýju þannig að
vaxtamunurinn á milli Íslands og
umheimsins eykst nú með hverjum
vaxtaákvörðunardegi Seðlabank-
ans og gengi krónunnar er orðið
of hátt, sem rýrir afkomu útf lutn-
ingsatvinnugreina.
Ekkert hefur breyst eftir kosning-
ar. Enginn ræðir um kjarna málsins,
sem er hin alvarlega skuldastaða
ríkissjóðs og ósjálfbær rekstur rík-
isins í bráð og lengd. Stjórnmálafor-
ingjarnir kjósa fremur að spekúlera
í ráðherrastólum
Gríðarleg skuldabyrði
Samanlagður halli ríkissjóðs 2020
og 2021 verður yfir 500 milljarðar,
sem er helmingur af fjárlögum rík-
issjóðs í ár, og þá er verið að horfa
til gjaldahliðarinnar. Ef horft er á
tekjuhliðina nemur halli þessara
tveggja ára nær 2/3 tekjuöf lunar
ríkisins í ár. Þetta hlutfall er skelfi-
legt. Ráðamenn reyna að kenna
veirufjandanum um stöðuna en
rekstur ríkissjóðs var hins vegar
orðinn ósjálfbær áður en Covid-19
dundi yfir.
Ljóst er að ríkissjóður stendur
uppi með um það bil 700 milljarða
halla eftir Covid og skuldasöfnun
sem hafin var með hallarekstri rík-
isins fyrir faraldurinn. Að óbreyttu
stefnir í áframhaldandi skuldasöfn-
un ríkisins hvort sem faraldurinn
heldur áfram eða gefur eftir. Ef tekið
er mið af verðbólguhorfum, sveiflu-
kenndum gjaldmiðli og vaxtahækk-
unarferli Seðlabankans er varlegt að
ætla vaxtabyrði ríkissjóðs, aðeins
vegna þessa skuldahala, á bilinu 30
til 40 milljarða á ári.
Áhrif loðnuvertíðar ofmetin
Þær góðu fréttir bárust í byrjun
mánaðar að loðnukvótinn verður
yfir 900 þúsund tonn að ráði Haf-
rannsóknastofnunar. Greiningar-
deildir meta það svo að þetta
geti aukið þjóðartekjur um 100
milljarða á næsta ári og bætt 0,8
prósentum við hagvöxt. Gott og
vel, hér kemur innspýting en hún
verður hvergi nærri jafn mikil og
greiningardeildir búast við. Góð
vertíð eftir áramót hjálpar vissulega
í nokkrar vikur. Það skot mun hins
vegar valda styrkingu krónunnar
sem dregur úr ávinningnum. Inn-
spýtingin setur aukinn þrýsting á
vaxtahækkunarferli Seðlabank-
ans, sem aftur veldur hærra gengi
og þenslu.
Mikið framboð loðnuafurða mun
lækka verð þeirra. Þar er að verki
lögmálið um framboð og eftirspurn.
Innspýtingin mun síðan ekki koma
inn í hagkerfið sjálft nema að tak-
mörkuðu leyti. Laun og ýmis kostn-
aður tengdur vinnslu á loðnunni
rennur inn í hagkerfið en söluverð-
mætið erlendis kemur ekki nema að
litlu leyti inn í hagkerfið. Gjaldtaka
vegna nýtingar sjávarauðlindar-
innar er í mýflugumynd og megnið
af útflutningstekjunum endar sem
nokkurs konar einokunar hagnaður
stórútgerðarinnar sem situr að afla-
heimildum. Þær tekjur auka fjár-
festingargetu stórútgerðarinnar og
möguleika á greiðslu arðs en fara
ekki nema að litlu leyti inn í hring-
rás hagkerfisins hér á landi. Því eru
væntingar um að aukinn loðnu-
kvóti til stórútgerðarinnar reynist
hvalreki fyrir ríkissjóð fullkomlega
innistæðulausar.
Nauðsynlegt að forgangsraða
Allir stjórnmálaflokkar hafa lofað
stórauknu fjármagni í heilbrigðis-
kerfið. Vafasamt er að slík loforð séu
raunhæf við þessar kringumstæður.
Verði fjármagn aukið til heilbrigðis-
mála þarf greinilega að taka það
einhvers staðar frá. Gæluverkefni á
borð við hálendisþjóðgarð, sem nær
yfir nær allt hálendi Íslands, verða
vegin á móti þörfinni fyrir fjármagn
í heilbrigðiskerfið. Ekkert svigrúm
er fyrir gæluverkefni af slíku tagi
ætli menn að taka af ábyrgð á stöðu
ríkissjóðs.
Krónan er of há og vaxtahækkun-
arferli Seðlabankans og stór loðnu-
vertíð munu enn auka á vandann,
sem óhjákvæmilega fylgir þeim
örgjaldmiðli sem krónan er. Raun-
ar blasir við að f lökt krónunnar
verði mikið á komandi misserum.
Ómögulegt er að tala um stöðug-
leika í hagkerfi sem ekki býr við
stöðugan gjaldmiðil. Hér á landi
ríkir því hvorki stöðugleiki né er
hann fyrirsjáanlegur um ókomna
tíð.
Ótryggur gjaldmiðill
og óvissa á vinnumarkaði
Þá eru lausir kjarasamningar haust-
ið 2022. Fyrir liggur að atvinnulífið
ræður illa við þær hækkanir sem
þegar eru komnar til framkvæmda
og eru mismunandi eftir hópum,
allt frá 5,8 prósentum og upp í 12,5
prósent. Ærið verkefni er að standa
undir slíkum launahækkunum og
verðbólguþrýstingur stafar meðal
annars af því að mörg fyrirtæki geta
ekki annað en velt kostnaðarhækk-
unum út í verðlagið. Ræður atvinnu-
lífið við nýja bylgju launahækkana í
vaxtahækkunarferli með gjaldmiðil
sem skoppar eins og korktappi í
stórsjó?
S a m ke ppn i s st að a í slen sk s
atvinnulífs er þegar mjög löskuð
vegna launahækkana, gengisþró-
unar og vaxtastigs, sem þyngir fjár-
mögnun íslenskra fyrirtækja gífur-
lega, þrátt fyrir að vextir hér á landi
hafi ekki verið lægri í marga áratugi.
Sýnir þetta gjörla hve mjög krónan
hamlar samkeppnishæfni íslensks
atvinnulífs, eða alla vega þeim hluta
þess sem ekki fær niðurgreiddan
aðgang að þjóðarauðlindum.
Horfist stjórnmálamenn ekki
í augu við þessar alvarlegu stað-
reyndir verða afleiðingarnar alvar-
legar. Kjósi þeir fremur að stunda
áfram samkvæmisleiki um völd
og stólaskipan en að einbeita sér
að kjarna málsins er einsýnt að
næsta ríkisstjórn lendir á hvolfi úti
í skurði. Þá verða engir sigurvegarar,
nema kannski helst þeir sem tapa
stólaleiknum sem nú er í gangi. n
Nýrrar ríkisstjórnar bíður hrikalegur efnahagsvandi
Ólafur Arnarson
hagfræðingur
Allir viðurkenna að það
er mjög sárt hve hörð
náttúruöflin eru okkur
mönnum oft og einatt.
En væri þó ekki skyn-
samlegt að taka undir
með Sveinbirni Egils-
syni sem segir í kvæði að
blítt og strítt fari saman
í tilverunni að vilja þess
sem hana skóp?
Hannes
Pétursson
rithöfundur
16 Skoðun 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ