Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 16
Horfist stjórnmála- menn ekki í augu við þessar alvarlegu stað- reyndir verða afleið- ingarnar alvarlegar. Í tímans rás hafa stjórnmálaflokkar á Íslandi fæðzt og dáið eins og lífs- ins lög gera ráð fyrir. Þeir létust úr ýmiss konar uppdráttarsýki, en enginn þeirra úr klámi fyrr en nú að Miðflokkur lagðist í rúmið og er að deyja úr klámi. Birgir Þórarins- son miðflokksmaður sté ekki inn í klaustrið góða hér um árið, en tók um daginn snögglega til fótanna rakleitt inn í viðhafnarstofur Sjálf- stæðisflokksins. Vilhjálmur Bjarna- son hefur ritað fróðlega grein um loftræstikerfið þar. Í þeim stofum var Birgi fagnað samstundis eins og bezta bróður, enda kom hann færandi hendi: hafði meðferðis sjálfa „skynsemishyggjuna“, bæði hina almennu og hina „róttæku skynsemishyggju“; einhvers staðar verður að koma henni vel fyrir nú þegar Miðflokkurinn er í andarslitr- unum. Birgir ályktaði með réttu að hvergi fyndist eðlilegra rými fyrir „skynsemishyggjuna“ í heild en í húsum Sjálfstæðisflokksins. Birgir Þórarinsson er guðfræðing- ur að mennt og mun ekki vera klám- hundur í frístundum. Hann reisti guði til dýrðar og sjálfum sér til fremdar kirkju á bæ sínum, Minna- Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd. Hún var vígð síðastliðið sumar. En nokkru áður hafði Birgir hraðað því að settur yrði kross á kirkjuna vegna þess að þá skulfu fjöll og grundir suðvestanlands. Haft var eftir honum í Morgunblaðinu 11. marz að í þeim krossi fælist „ákall og bæn til Drottins um að hemja náttúru- öflin. Hér skelfur og við höfum ekki náð heilum svefni lengi“. Einnig tók hann fram að Vatnsleysuströnd gæti verið í hættu, kæmi til goss á Reykja- nesskaga; sama ætti við um „skák á hraununum við Keili“ sem tilheyrði ábúðarjörð hans. Þarna talar maður sem er ágæt- lega að sér í „skynsemishyggjunni“: náttúruöfl eru af hinu góða, ef þau gagnast mannskepnunni eða láta hana að minnsta kosti í friði, að öðrum kosti eru þau af hinu illa. Þessi grein „skynsemishyggjunnar“ teygir anga sína aftur til eingyðis- trúarmanna í forneskju sem hug- kvæmdist það snjallræði að búa til satan, því einhver hlaut að hafa spillt sköpunarverkinu, mönnum og náttúru, frá því er guði almáttugum þótti það allt saman harla gott í öndverðu. Ekkert vit var í því að láta alfullkominn guð bera ábyrgð á sköpunarverki sem var gallað. Meðal þess sem satan hafði á valdi sínu var eldurinn í iðrum jarðar. Þegar Fjölnismenn börðust fyrir því að alþing Íslendinga hið nýja yrði háð á völlunum við Öxará orti Jónas Hallgrímsson tvö kvæði til lofs Þingvöllum: Fjallið Skjald- breiður og Leiðarljóð til Jóns Sig- urðssonar. Af fyrra kvæðinu má ljóst vera að Jónas hefði aldrei reist kross í móti náttúruöflum, svo sem landskjálftum og jarðeldum. Þing- staðurinn forni bar því vitni að guð hafði jarðeld í þjónustu sinni þegar hann vann að smíði hans, „gat ei nema guð og eldur/gjört svo dýrð- legt furðuverk“. Þetta stríðir vitan- lega gegn hinum „kristnu gildum“ Birgis Þórarinssonar og „skyn- semishyggjunni“ yfirleitt. En svona var nú Jónas skáld Hallgrímsson, hann trúði á skapara (nefndi hann gjarnan „föður“) sem var ekki klof- inn í tvennt eftir geðþótta manna, í algóðan og almáttugan guð á annan bóginn, á hinn bóginn í satan. Allir viðurkenna að það er mjög sárt hve hörð náttúruöf lin eru okkur mönnum oft og einatt. En væri þó ekki skynsamlegt að taka undir með Sveinbirni Egilssyni sem segir í kvæði að blítt og strítt fari saman í tilverunni að vilja þess sem hana skóp? Eftir að Birgir Þórarinsson reisti krossinn á kirkju sinni kom upp jarðeldur í Geldingadölum. Sem betur fer hefur hann ekki hingað til þurft að hlaupa undan þeim satanísku kröftum sem þá losnuðu úr læðingi. En nú er greinilegt orðið að hann hefði einnig átt að beina kirkjukrossi þessum gegn Mið- f lokknum, því ekki dylur hann lengur að þar væri á reiki „margur óhreinn andinn“. n Kirkjubóndi á hlaupum Þeirrar ríkisstjórnar sem mynduð verður á næstu vikum bíður enginn dans á rósum. Fram til þessa hefur umræðan snúist að mestu um barnalegar vangaveltur um ráð- herrastóla, valdahlutföll og sam- kvæmisleiki um einstaklinga og völd. Fyrir kosningarnar í september streymdu fram loforð um útgjöld hér og þar, verkalýðshreyfingin hélt úti auglýsingum þar sem því var haldið fram fullum fetum að nóg væri til af peningum fyrir allt og alla. Stjórnmálaf lokkarnir lofuðu ýmist miklum útgjöldum eða skattalækkunum, nema hvort tveggja væri. Enginn minntist á þá alvarlegu staðreynd að skuldastaða ríkissjóðs er skelfileg. Þar kemur til mikill Covid-kostnaður, en ekki má gleyma því að fyrir Covid var rekstur ríkisins ósjálf bær. Ríkis- báknið hefur þanist taumlaust út og ríkissjóður er rekinn með vaxandi halla. Covid hefur svo aukið á þann vanda. Vextir eru farnir að hækka að nýju þannig að vaxtamunurinn á milli Íslands og umheimsins eykst nú með hverjum vaxtaákvörðunardegi Seðlabank- ans og gengi krónunnar er orðið of hátt, sem rýrir afkomu útf lutn- ingsatvinnugreina. Ekkert hefur breyst eftir kosning- ar. Enginn ræðir um kjarna málsins, sem er hin alvarlega skuldastaða ríkissjóðs og ósjálfbær rekstur rík- isins í bráð og lengd. Stjórnmálafor- ingjarnir kjósa fremur að spekúlera í ráðherrastólum Gríðarleg skuldabyrði Samanlagður halli ríkissjóðs 2020 og 2021 verður yfir 500 milljarðar, sem er helmingur af fjárlögum rík- issjóðs í ár, og þá er verið að horfa til gjaldahliðarinnar. Ef horft er á tekjuhliðina nemur halli þessara tveggja ára nær 2/3 tekjuöf lunar ríkisins í ár. Þetta hlutfall er skelfi- legt. Ráðamenn reyna að kenna veirufjandanum um stöðuna en rekstur ríkissjóðs var hins vegar orðinn ósjálfbær áður en Covid-19 dundi yfir. Ljóst er að ríkissjóður stendur uppi með um það bil 700 milljarða halla eftir Covid og skuldasöfnun sem hafin var með hallarekstri rík- isins fyrir faraldurinn. Að óbreyttu stefnir í áframhaldandi skuldasöfn- un ríkisins hvort sem faraldurinn heldur áfram eða gefur eftir. Ef tekið er mið af verðbólguhorfum, sveiflu- kenndum gjaldmiðli og vaxtahækk- unarferli Seðlabankans er varlegt að ætla vaxtabyrði ríkissjóðs, aðeins vegna þessa skuldahala, á bilinu 30 til 40 milljarða á ári. Áhrif loðnuvertíðar ofmetin Þær góðu fréttir bárust í byrjun mánaðar að loðnukvótinn verður yfir 900 þúsund tonn að ráði Haf- rannsóknastofnunar. Greiningar- deildir meta það svo að þetta geti aukið þjóðartekjur um 100 milljarða á næsta ári og bætt 0,8 prósentum við hagvöxt. Gott og vel, hér kemur innspýting en hún verður hvergi nærri jafn mikil og greiningardeildir búast við. Góð vertíð eftir áramót hjálpar vissulega í nokkrar vikur. Það skot mun hins vegar valda styrkingu krónunnar sem dregur úr ávinningnum. Inn- spýtingin setur aukinn þrýsting á vaxtahækkunarferli Seðlabank- ans, sem aftur veldur hærra gengi og þenslu. Mikið framboð loðnuafurða mun lækka verð þeirra. Þar er að verki lögmálið um framboð og eftirspurn. Innspýtingin mun síðan ekki koma inn í hagkerfið sjálft nema að tak- mörkuðu leyti. Laun og ýmis kostn- aður tengdur vinnslu á loðnunni rennur inn í hagkerfið en söluverð- mætið erlendis kemur ekki nema að litlu leyti inn í hagkerfið. Gjaldtaka vegna nýtingar sjávarauðlindar- innar er í mýflugumynd og megnið af útflutningstekjunum endar sem nokkurs konar einokunar hagnaður stórútgerðarinnar sem situr að afla- heimildum. Þær tekjur auka fjár- festingargetu stórútgerðarinnar og möguleika á greiðslu arðs en fara ekki nema að litlu leyti inn í hring- rás hagkerfisins hér á landi. Því eru væntingar um að aukinn loðnu- kvóti til stórútgerðarinnar reynist hvalreki fyrir ríkissjóð fullkomlega innistæðulausar. Nauðsynlegt að forgangsraða Allir stjórnmálaflokkar hafa lofað stórauknu fjármagni í heilbrigðis- kerfið. Vafasamt er að slík loforð séu raunhæf við þessar kringumstæður. Verði fjármagn aukið til heilbrigðis- mála þarf greinilega að taka það einhvers staðar frá. Gæluverkefni á borð við hálendisþjóðgarð, sem nær yfir nær allt hálendi Íslands, verða vegin á móti þörfinni fyrir fjármagn í heilbrigðiskerfið. Ekkert svigrúm er fyrir gæluverkefni af slíku tagi ætli menn að taka af ábyrgð á stöðu ríkissjóðs. Krónan er of há og vaxtahækkun- arferli Seðlabankans og stór loðnu- vertíð munu enn auka á vandann, sem óhjákvæmilega fylgir þeim örgjaldmiðli sem krónan er. Raun- ar blasir við að f lökt krónunnar verði mikið á komandi misserum. Ómögulegt er að tala um stöðug- leika í hagkerfi sem ekki býr við stöðugan gjaldmiðil. Hér á landi ríkir því hvorki stöðugleiki né er hann fyrirsjáanlegur um ókomna tíð. Ótryggur gjaldmiðill og óvissa á vinnumarkaði Þá eru lausir kjarasamningar haust- ið 2022. Fyrir liggur að atvinnulífið ræður illa við þær hækkanir sem þegar eru komnar til framkvæmda og eru mismunandi eftir hópum, allt frá 5,8 prósentum og upp í 12,5 prósent. Ærið verkefni er að standa undir slíkum launahækkunum og verðbólguþrýstingur stafar meðal annars af því að mörg fyrirtæki geta ekki annað en velt kostnaðarhækk- unum út í verðlagið. Ræður atvinnu- lífið við nýja bylgju launahækkana í vaxtahækkunarferli með gjaldmiðil sem skoppar eins og korktappi í stórsjó? S a m ke ppn i s st að a í slen sk s atvinnulífs er þegar mjög löskuð vegna launahækkana, gengisþró- unar og vaxtastigs, sem þyngir fjár- mögnun íslenskra fyrirtækja gífur- lega, þrátt fyrir að vextir hér á landi hafi ekki verið lægri í marga áratugi. Sýnir þetta gjörla hve mjög krónan hamlar samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, eða alla vega þeim hluta þess sem ekki fær niðurgreiddan aðgang að þjóðarauðlindum. Horfist stjórnmálamenn ekki í augu við þessar alvarlegu stað- reyndir verða afleiðingarnar alvar- legar. Kjósi þeir fremur að stunda áfram samkvæmisleiki um völd og stólaskipan en að einbeita sér að kjarna málsins er einsýnt að næsta ríkisstjórn lendir á hvolfi úti í skurði. Þá verða engir sigurvegarar, nema kannski helst þeir sem tapa stólaleiknum sem nú er í gangi. n Nýrrar ríkisstjórnar bíður hrikalegur efnahagsvandi Ólafur Arnarson hagfræðingur Allir viðurkenna að það er mjög sárt hve hörð náttúruöflin eru okkur mönnum oft og einatt. En væri þó ekki skyn- samlegt að taka undir með Sveinbirni Egils- syni sem segir í kvæði að blítt og strítt fari saman í tilverunni að vilja þess sem hana skóp? Hannes Pétursson rithöfundur 16 Skoðun 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.