Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2021, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 15.10.2021, Qupperneq 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Fagmennska, mikil reynsla og þekking mætir viðskiptavinum Dekk1 á Funa- höfða 6. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI 30 daga skilafrestur og 2 ára neytendaábyrgð á öllum dekkjum ■ Verðvernd – alltaf ódýrari Með verðvernd tryggjum við að þú fáir alltaf besta verðið á dekkjum hjá okkur. Ef svo ólíklega vill til að þú finnir betra verð á sambærilegri vöru hjá öðrum söluaðila á Íslandi innan sjö daga frá kaupdegi, endurgreiðum við þér mismuninn og veitum þér að auka 10 prósenta afslátt. ■ 30 daga skilafrestur Ef þú pantaðir vitlaust, líkar ekki varan eða ef eitthvað hefur breyst og þú þarft ekki lengur á vörunni að halda, getur þú ein- faldlega skilað vörunni. Þú hefur 30 daga frá kaupdegi til að skila og getur þá fengið vöruna endurgreidda að fullu. Þetta er þó auð- vitað háð því að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi. ■ Tveggja ára neytendaábyrgð Allar okkar vörur bera tveggja ára neytendaábyrgð vegna fram- leiðslugalla. Ef svo ólíklega vill til að vörur frá okkur séu gallaðar bætum við viðskiptavinum það upp með nýrri alveg eins eða sambærilegri vöru. Gámatilboð í október! Þetta árið var ákveðið að fara nýjar leiðir til að geta boðið viðskiptavinum gæðadekk á enn betra verði. Við bjóðum viðskipta- vinum að tryggja sér gæða vetrardekk á verði sem ekki hefur sést áður á Íslandi. Dekkin koma til landsins 18. október og er um bæði heilsársdekk og nagladekk að ræða. Dekkin eru sér- merkt á síðunni okkar sem „Gámatilboð“. Dekkin sem um ræðir eru HiFly. Það er tegund sem við höfum selt með frábærum árangri síðastliðin átta ár. HiFly er okkar allra vinsæl- asta tegund og ætti engan að undra því þar fara saman góð gæði og ótrúlegt verð. Af hverju mælum við með HiFly? ■ Með beinum innflutningi getum við boðið verð sem ekki hefur sést áður á Íslandi. ■ HiFly eru gæðadekk sem skarta öllum helstu gæðastöðlum: ISO 9001, ISO 9000, ISO 14001, ISO 14000, ISO 20000. ■ HiFly-dekk hafa verið seld á Íslandi með frábærri reynslu í átta ár. ■ Vinsæl dekk hjá leigubílstjórum landsins. ■ Margar bílaleigur á Íslandi velja HiFly undir flotann sinn. ■ Tveggja ára neytendaábyrgð, að sjálfsögðu. ■ 30 daga skilafrestur, að sjálfsögðu. Farðu á Dekk1.is og tryggðu þér dekk á betra verði! Gott að vita um HiFly-dekk ■ Betra grip tryggir betri akstursgæði Undirstaða þess að tryggja stöðugleika bíls á veginum er að vera á góðum dekkjum. Við íslenskar aðstæður er mikilvægt að vera á traustum og góðum dekkjum. Gróft og djúpt munstur tryggir gott veggrip í öllum aðstæðum og góða vatnslosun í regni. ■ Stöðugleiki á íslenskum vegum Öll vetrar- og heilsársdekk frá HiFly eru míkróskorin. Þegar dekk eru míkróskorin eru skornar fínar línur þvert yfir dekkið til að auka aksturseiginleika bílsins og auka veggrip í bleytu og hálku. Ásamt því eykur míkróskurður endingu dekkja. Míkróskurður var fundinn upp af John Sipe, starfsmanni sláturhúss. Hann átti það til að detta á hausinn í vinnunni þegar gólfið var blautt og tók þá upp á því að míkróskera sólana á vinnuskóm sínum til auka grip skónna á gólfi sláturhússins. ■ Verksmiðjunegld nagladekk Dekkin koma verksmiðjunegld með finnskum gæða karbít- nöglum sem tryggja gott veggrip og góða endingu. Shandong Changfeng Tires Co, Ltd. er framleiðandi HiFly-dekkjanna. Fyrirtækið er einn stærsti og virtasti dekkjaframleiðendi í Kína. Það var stofnað árið 1995 og er með meira en 10.000 starfsmenn í vinnu. Fyrirtækið á í dag sex verksmiðjur í kínversku borgunum Dongying og Linyi í Shandong-héraði, með árlega framleiðslugetu upp á 36 milljónir dekkja. Stofnun fyrirtækisins kemur til af þörfinni á að veita dekkjamarkaðnum endingargóð, áreiðanleg og hagkvæm dekk. Frá upphafi starfseminnar hefur fyrirtækið vaxið í eitt stærsta og traustasta nafn í dekkjaframleiðsluiðnaði Kína og á heimsvísu. verið að geta boðið upp á mjög lága álagningu og með fjölbreyttu vöruúrvali og lægra verði skilar það sér beint í vasa neytenda,“ segir Davíð og nú geta allir drifið í því að setja vetrardekk undir bílinn. „Við bjóðum upp á greiðslumáta sem hentar hverjum og einum. Hægt er að greiða með korti eða fá greiðsludreifingu í gegnum Borgun, Símann Pay, Netgíró og Pei í pöntunarferli á síðunni okkar. Það getur auðveldað mörgum útgjöldin.“ ■ Dekk1 er með verkstæði á Funa- höfða 6 í Reykjavík. Opið frá klukkan 9 til 18 alla virka daga. Lokað um helgar. Nánari upplýs- ingar á dekk1. is, í síma 519 1516 og á netfanginu fyrirspurnir@dekk1.is Það er bæði ódýrt, traust og fljótlegt að láta Dekk1 sjá um umfelgun dekkja, og í hví- vetna vandað til allra verka. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Verð á umfelgun Umfelgun fólksbíla 12”-13” – 6.990 kr. Umfelgun fólksbíla 14”-15” – 7.990 kr. Umfelgun fólksbíla 16” – 8.990 kr. Umfelgun fólksbíla 17-18” – 13.990 kr. Umfelgun jepplinga og minni sendibíla til 17” – 13.990 kr. Umfelgun jepplinga 18” – 15.990 kr. 2 kynningarblað 15. október 2021 FÖSTUDAGURVETR ARDEKK

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.