Fréttablaðið - 15.10.2021, Qupperneq 22
Dekkjaþjónusta Vöku býður
upp á frábæra og faglega
þjónustu þegar leitað er eftir
vetrardekkjum. Hægt er að
fá ný eða notuð gæðadekk
á mjög góðu verði. Dekkja-
þjónustan er á Héðinsgötu 2.
Reynir Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri segir að umfelgun
hjá Vöku taki aðeins 15-30
mínútur eftir stærð bílsins. „Það er
alltaf best að panta tíma fyrir fram
og við mælum með því, en það er
samt ekki nauðsynlegt. Hægt er að
panta tíma í gegnum Noona sem er
ákaflega þægilegt app og á heima-
síðunni okkar vaka.is,“ segir hann.
„Með því að panta á netinu getur
fólk ákveðið hvaða dekk það vill og
við getum undirbúið okkur betur.“
Hjá Vöku skoða starfsmenn
hvort felgur séu í lagi og jafn-
vægisstilla dekkin enda eru þau
mikilvægur öryggisbúnaður. „Við
bjóðum upp á alhliða dekkja-
þjónustu. Í boði er mikið úrval af
nýjum dekkjum, meðal annars frá
Sailun sem henta vel íslenskum
aðstæðum og eru á góðu verði.
Auk þess erum við með notuð
dekk enda styðjum við við endur-
nýtingu. Við viljum halda hring-
rásinni gangandi.“
Reynir bendir á að það sé hægt
að gera mjög góð kaup í not-
uðum dekkjum. „Þegar bílar eru
á leiðinni í úrvinnslu tökum við
dekkin og yfirförum þau með
áframhaldandi notkun í huga
frekar en að henda þeim. Þessi
dekk eru ódýr og góður kostur
fyrir þá sem hafa minna á milli
handanna. Þetta geta verið mjög
vönduð og góð dekk. Heildarpakk-
ann undir bílinn verður töluvert
ódýrari heldur en ef um ný dekk
væri að ræða. Þetta getur verið
allt frá flottum, nýlegum Mich-
elin hjólbörðum niður í ódýrari
kínversk. Vaka býður upp á dekk
fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla.
Við höfum ekki verið að þjónusta
Endurnýting minnkar kostnað
Vaskir starfs-
menn hjá Vöku,
frá vinstri Greta
Egilsdóttir,
Reynir Guð-
mundsson,
Halldór Krist-
jánsson og Gísli
Svanbergsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Það eru vanir menn sem starfa hjá Vöku og eru fljótir að skipta um hjólbarða.
Kristján Örn Þrastarson er
forfallin jeppaáhugamaður
og hefur verið frá því í barn-
æsku. Hann hefur smíðað
og breytt fjölda bíla og eyðir
stórum hluta vetrarins á
fjöllum.
sandragudrun@frettabladid.is
„Ég held ég hafi smitast af bílabakt-
eríunni af afa, Herði Guðmunds-
syni, en hann var vélvirki. Um leið
og ég var farinn að labba, þá vorum
við farnir að tala um bíla, svo er
pabbi líka jeppakarl. Mig minnir
að ég hafi keypt minn fyrsta bíl
með pabba 15 eða 16 ára,“ segir
Kristján Örn.
„Við tókum bensínvélina úr
honum, settum í hann dísilvél og
breyttum honum meira. Svo um
leið og ég var kominn með bílpróf,
þá fór ég að jeppast. Síðan hefur
þetta farið síversnandi,“ bætir
hann við hlæjandi.
Kristján Örn fer mikið í jeppa-
ferðir á fjöll á veturna og notar
breyttan jeppa í ferðirnar.
„Ég er á 46 tommu 80 Cruiser. En
þetta er eini Cruiser-inn á landinu
sem er með Cummins-mótor.
Þegar ég keypti hann var hann 44
tommur, breyttur með orginal vél.
Ég setti í hann Cummins-vélina
og breytti honum í 46 tommur,“
útskýrir hann.
„Ég frétti af því að enginn á
landinu væri með Cummins í Land
Cruiser, svo ég varð að vera fyrstur
í því,“ bætir hann við og útskýrir
að Cummins sé stór iðnaðarmótor
sem er í alls kyns vélum eins og
ljósavélum, gröfum og vörubílum.
„Þetta er mótor sem eyðir litlu,
vinnur vel og er með mikið af hest-
öflum. Hann er þungur, en hag-
stæður,“ segir hann og bætir við
hlæjandi að hann sé það hrifinn af
Cummins-mótornum að hann sé
oft kallaður Stjáni Cummins.
Snýst ekki bara um að keyra
Það þarf alltaf að passa upp á að
bíllinn sé vel búinn fyrir svona
vetrarjeppasport, að sögn Krist-
jáns Arnar.
„Góður vetrarbíll er með
læsingar að framan og aftan,
flestir eru með skriðgír og svo er
nauðsynlegt að hafa talstöð, GPS-
tæki, spil, tjakka og spotta. Svo er
maður alltaf með helstu verkfæri
ef eitthvað bilar. Þegar ég fer í
þessar ferðir er ég yfirleitt með allt
of mikið af drasli með mér. Ekki
endilega af því ég þurfi á því að
halda heldur tek ég það líka með ef
eitthvað skyldi bila hjá einhverjum
öðrum. Það er mottóið mitt að vera
frekar með aðeins of mikið en lítið,
þó það þyngi aðeins bílinn.“
Það sem heillar Kristján Örn
mest við jeppaferðir á veturna er
adrenalín-kikkið sem hann fær út
úr því, en líka útsýnið, fjöllin og
landið.
„Þetta snýst ekki bara um að
keyra, líka að njóta útsýnis, gista í
skálum, segja hetjusögur og hlusta
á aðra segja sögur. Þetta er alveg sér
menning þessi fjallamennska. Þetta
er hrikalega skemmtilegt sport.“ n
Fyrstur til að setja Cummins-vél í Land Cruiser
Kristján hefur breytt fjöldanum öllum af bílum. MYNDIR/AÐSENDAR
Kristján keyrir á fjöll á breyttum Land Cruiser með Cummins-vél.
vörubíla eða önnur stærri atvinnu-
tæki nema okkar eigin,“ útskýrir
Reynir og segir að starfsmenn finni
fyrir aukinni eftirspurn síðustu
daga, sérstaklega eftir að smá
snjóföl kom um daginn. „Það er þó
alltaf þannig að traffíkin hefst með
fyrsta snjónum.“
Hjá Vöku eru lyftur fyrir 5 bíla.
Fyrirtækið er með fyrsta flokks
tæki til umfelgunar og dekkja-
skipta. „Verkfærin hafa verið að
þróast til að gera starfið léttara og
menn þurfa að beygja sig minna
við vinnuna og hafa betra vinnu-
umhverfi. Einnig er góð biðaðstaða
fyrir viðskiptavini.“
Reynir segir misjafnt hvort
fólk kaupi vetrardekk, heilsárs-
dekk eða negld dekk. „Langflestir
vilja vera á heilsársdekkjum eða
vetrardekkjum. Þeir sem þurfa að
fara út úr borginni og yfir heiði
velja frekar negld dekk. Hjá Vöku
er einnig boðið upp á dekkjahótel
þar sem hægt er að geyma sumar-
dekkin þar til þau fara aftur undir
bílinn í vor.“
Reynir hefur verið fram-
kvæmdastjóri Vöku frá því í júlí í
fyrra en hann segist eiga margar
minningar frá barnæsku um fyrir-
tækið því faðir hans var bílaáhuga-
maður og fylgdist gjarnan með því
hvað var í boði á uppboðum sem
þar fara fram reglulega. n
Nánar má skoða úrvalið á heima-
síðunni vaka.is eða renna við að
Héðinsgötu 2. Síminn hjá Vöku er
567 6700.
4 kynningarblað 15. október 2021 FÖSTUDAGURVETR ARDEKK