Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 23
Dekkjaverkstæði Arctic Trucks hefur verið tekið í gegn, það stækkað og nýjar vélar keyptar. Arctic Trucks býpur alhliða þjónustu fyrir jeppafólk eins og aukahluta- verslun, viðgerðarþjónustu og jeppabreytingar. Hið endurbætta verkstæði Arctic Trucks er á Kletthálsi 3. Nýjar dekkjavélar af fullkomnustu gerð prýða nú verkstæðið, sem henta fyrir allar stærðir jeppadekkja og jepplingadekkja. Þar má meðal annars finna sérhæfða vél fyrir „low profile“ dekk eins og koma á lúxusjeppum í dag. „Verkstæðið er þannig að við eigum að geta brugðist við hverju sem er þar inni. Við erum með alhliða jepplinga- og jeppadekkja- þjónustu eins og hefðbundna dekkjaskiptinu, neglingar og míkróskurð sem er mjög vinsæll í jeppadekkjum og við mælum eindregið með,“ segir Stefán Þór Jónsson, verslunarstjóri hjá Arctic Trucks. Nokkrir kostir míkróskurðar að sögn Stefáns Þórs eru: Meira grip, minna veghljóð, meiri mýkt og mun betri ending, „Með míkróskurði eru stóru kubbarnir í munstrinu skornir í sundur til að mýkja þá. Við það fær dekkið mun betri spyrnu bæði í hemlun og upptaki. Með mýkri kubbum mýkist dekkið og þar með bíllinn í akstri, en míkróskurður hefur einnig áhrif á endingu þar sem dekkið kælir sig betur,“ segir hann. Arctic Trucks er þjónustumið- stöð fyrir jeppafólk og ferðafólk. Í þjónustumiðstöðinni á Kletthálsi er auk dekkjaþjónustu boðið upp á viðgerðarþjónustu, smurþjónustu og jeppabreytingar. Einnig er þar að finna aukahlutaverslun með miklu úrvali. „Við reynum að vera með allt á einum stað fyrir jeppa og ferða- fólk. Við stækkuðum dekkjaverk- stæðið af því sala á jeppadekkjum er að aukast hjá okkur. Við leggjum mesta áherslu á þá bíla sem hafa verið hvað mest í breytingum hjá okkur, þeir eru á bilinu 33-35 tommu dekkjum. Við leggjum áherslu á að eiga gott úrval fyrir þann hóp og þjónusta hann vel,“ segir Stefán Þór. „Síðan Íslendingar fóru að ferðast meira innanlands þá hafa minni og millistærðarbreytingar aukist gríðarlega, en það eru þessi 33-35 tommu dekk. En svo erum við með harðari ferðamenn sem eru í vetrar- ferðamennsku. Við erum með mjög sterkt úrval af dekkjum fyrir þá. Við erum með toppana í stóru dekkj- unum, það er frá 38 tommu upp í 44 tommu dekk. Í 38 tommum erum við með okkar eigið dekk, AT 405 sem við höfum selt frá árinu 2005,“ bætir hann við. „Við erum einnig að fá núna í fyrsta sinn í einhverju magni 40 tommu dekk frá Pro Comp, sem er merki sem við erum að byrja með aftur. Það er mikil eftirspurn eftir þessu 40 tommu dekki og menn eru farnir að skrá sig á biðlista eftir því. En það kemur í næsta mánuði.“ Fjallakóngurinn frá Nokian Eitt besta dekkið fyrir stærstu bílana er fjallakóngurinn Nokian AT 44 að sögn Stefáns. „Þetta er stórt „radial“ dekk, það drífur rosalega, keyrir ofboðslega vel og það heyrist lítið í því. Það hefur eiginlega alla eiginleika sem gott jeppadekk þarf að hafa. Þetta er tímamótadekk í þessari stærð,“ segir hann. Dekkið er hægt að nota í allan akstur þrátt fyrir að bílar með 44" dekk séu fyrst og fremst notaðir utanbæjar. „Ferðaþjónustan notar þessi dekk mikið sem og hinn almenni jeppamaður. Þetta er dekk sem gerir það að verkum að menn geta notað stóru bílana sína meira en áður, því hægt er að keyra á dekkjunum eins og á venjulegum fólksbíl,“ segir Stefán Þór. Helstu dekkjategundirnar sem fást hjá Arctic trucks eru Dick Cepek og Pro Comp. Hægt er að fá dekk frá þessum framleiðendum fyrir alla bíla sem nota frá 30" upp í 40" dekk. Mest selda dekkið hjá Arctic Trucks í dag er Dick Cepek Trail Country EXP. „Þetta dekk hentar mjög vel fyrir íslenskar aðstæður allan ársins hring. Þetta er mynstur- mikið jeppadekk sem hægt er að negla og míkróskera. Það er mjúkt með sterkar hliðar og vatnsrás í mynstri,“ segir Stefán Þór. „Við erum líka með fínmynstr- að dekk frá Pro Comp sem við höfum ekki verið með áður. Það heitir AT Sport. Það hentar þeim sem fara minna út fyrir malbikið og vilja bara þægilegt alhliða akstursdekk. Við eigum líka til frá báðum framleiðendum MT dekk, sem er skammstöfun á mud terrain. Það eru almennilega gróf dekk sem henta í drullu, sandi og grjóti.“ Stefán Þór segir að hjá Arctic Trucks sé eitthvað í boði fyrir alla í dekkjaflóru þeirra. „Við leggjum áherslu á að finna vörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður. Við erum svolítið sér á báti, við fáum svo margar árstíðir á Íslandi. Við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Við höfum þess vegna reynt að velja vörur sem henta fyrir Ísland og íslenskt jeppafólk.“ n Nýtt og endurbætt jeppadekkjaverkstæði  Stefán Þór Jóns- son ásamt sölu- teymi dekkja hjá Arctic Trucks. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is HJÓLBARÐAVE RKSTÆÐI Öll almenn de kkjaþjónusta á staðnum. Tímapantanir í síma 540 49 00. JEPPA- OG JEPPLINGADEKK VÖNDUÐ DEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR KANNAÐU ÚRVALIÐ! VERSLUN.ARCTICTRUCKS.IS kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 15. október 2021 VETR ARDEKK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.