Fréttablaðið - 15.10.2021, Page 30

Fréttablaðið - 15.10.2021, Page 30
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Notaðu N1 kortið Alla leið á öruggari dekkjum ALLA LEIÐ Michelin X-ICE Snow Nýjasti meðlimurinn í vetrardekkjalínu Michelin. Aukið grip í hálku, snjó og slabbi. Endingargott grip út líftímann. Einstakir akstureiginleikar og þægindi við erfiðustu aðstæður. Allir bestu eiginleikarnir – Michelin Total Performance. Michelin X-ICE North 4 Besta hemlun í hálku, hvort sem dekkin eru ný eða ekin 10.000 km. Betri aksturseiginleikar í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Hámarksgrip með sérhönnuðu mynstri fyrir hverja stærð. Einstök ending. Lágmarks hljóðmengun. Michelin Alpin 6 Nýr mynsturskurður sem opnast eftir því sem dekkið slitnar. Endingargott grip út líftímann. Lagskipt gúmmíblanda sem veitir. hámarksgrip. Pantaðu tíma í dekkjaskipti á n1.is E N N E M M / S ÍA / N M - 0 0 2 1 6 4 Henta vel undir rafbíla Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Vefverslun Skoðaðu úrvalið og skráðu þitt fyrirtæki 12 kynningarblað 15. október 2021 FÖSTUDAGURVETR ARDEKK Mikilvægt er að ganga úr skugga um lágmarks mynstursdýpt dekkja. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY thordisg@frettabladid.is Hjólbarðar mynda einu snertingu bílsins við veginn og því er afar mikilvægt að þeir séu alltaf í góðu lagi og ættu ökumenn að athuga ástand þeirra reglulega. Meðal þess sem ber að huga að er hvort loftþrýstingur sé réttur miðað við stærð hjólbarðanna. Ef loftþrýstingurinn er annað hvort of mikill eða of lítill minnkar snertiflötur hjólbarðanna og um leið veggrip þeirra. Yfirleitt er upp- lýsingar um réttan loftþrýsting að finna í handbók bílsins en einnig má spyrjast fyrir hjá þeim sem til þekkja, svo sem hjá bifvélavirkj- um, starfsmönnum hjólbarðaverk- stæða eða skoðunarstöðva. Einnig er mikilvægt að jafn loft- þrýstingur sé í hjólbörðunum, það er að segja, að það sé sami þrýst- ingur í báðum afturhjólum og sami þrýstingur í báðum framhjólum. Bíleigendur verða að fylgjast með sliti á hjólbörðum bíla sinna, enda minnkar veggrip þeirra við slit og þar með öryggið. Samkvæmt reglugerð má dýpt mynsturraufa í hjólbarða ekki vera minni en 1,6 mm. Lágmarks mynstursdýpt dekkja er: ■ 3,0 mm lágmarks mynstursdýpt yfir vetrartímann (1. nóvember til 14. apríl) ■ 1,6 mm lágmarks mynsturdýpt yfir sumartímann (15. apríl til 31. október). ■ HEIMILD: FIB.IS Ávallt skal vita um ástand hjólbarða Enn eru margir sem aka á nagla- dekkjum en þeim hefur fækkað mikið á höfuðborgarsvæðinu. elin@frettabladid.is Þeir sem kjósa að aka á nagladekkj- um mega setja þau undir þann 1. nóvember samkvæmt reglunum og aka á þeim fram til 14. apríl. Nagla- dekkin eru því bönnuð frá 15. apríl til 31. október. Undanþágur eru veittar sé þess þörf vegna aðstæðna. Engar takmarkanir eru á notkun heilsársdekkja eða vetrardekkja. Betra er þó að spara vetrardekkin yfir sumarmánuðina því þá endast þau mun betur. Það er hins vegar ágætt að setja vetrardekkin undir núna til að forðast traffíkina sem myndast við fyrsta snjóinn. Ef ekið hefur verið lengi á heilsársdekkjum ætti jafnframt að koma við á dekkja- verkstæði og láta athuga ástand þeirra. Framdekkin slitna hraðar en afturdekkin. Helsta öryggið í umferðinni er að aka á heilum og góðum dekkjum. ■ Ekki nagladekkin undir strax Gúmmínabbarnir á dekkjum eru aukaafurð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY johannamaria@torg.is Bíldekk eru aðallega úr náttúru- gúmmíi sem framleitt er úr latexi úr berki gúmmítrjáa. Gúmmíið er hvítt eins og það kemur af kúnni, en sérstöku efni, kolefnissvörtu (e. carbon black) er bætt út í. Við- bótin gerir efnið stöðugra og gefur dekkjunum sinn einkennandi kol- svarta lit. Náttúrugúmmí er þeim eiginleikum gætt að rifna síður eða springa vegna álags en annað gúmmí og hentar því vel í bíldekk. Margir hafa tekið eftir litlum gúmmínöbbum á bíldekkjunum sínum þegar þau eru glæný. Nabb- arnir kallast loftopsvellur (e. vent spews). Margir halda að þessi gúmmíhár gegni þeim tilgangi að minnka hávaða frá dekkjum eða sýna fram á slit. Sannleikurinn er sá að nabbarnir eru aukaafurð framleiðslunnar. Mótin sem dekk- in eru steypt í eru útbúin litlum holum svo að loft geti sloppið út. Þegar fljótandi gúmmíinu er þrýst í alla króka og kima mótsins nær örlítið af því að fljóta gegnum loft- götin og mynda lítil gúmmíhár. ■ Kolsvart gúmmí

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.