Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 39
18. – 24. október verður listamaðurinn á staðnum. BÆKUR Út að drepa túrista Þórarinn Leifsson Útgefandi: Mál og menning Fjöldi síðna: 288 Björn Þorláksson Á baksíðu Út að drepa túrista eftir Þórarin Leifsson kemur fram að bókin sé fyrsta glæpasaga höfundar. „Egghvöss og ísmeygilega fyndin glæpasaga mitt úr brjálæði massa- túrismans“. Snörp og meinfyndin greining Margir Íslendingar hafa velt vöngum yfir því vertíðaskotna álagi sem starfsmenn ferðaþjónustunnar hafa þurft að höndla eftir að Ísland sprakk út. Einn kostur bókarinnar er hve vel höfundur er inni í starfi aðalsöguhetjunnar, enda hefur hann sjálfur unnið við leiðsögu- mennsku löngum stundum. Í þessu brjálæði trúir maður því að leiðsögumaður sem gengur fram á einn í hópnum sínum voveiflega látinn og haldi svo áfram að vinna, sé ekki bara siðblindur heldur eigi ekki annan kost; við íslensku dugn- aðarforkarnir megum nefnilega sjaldnast nokkurn tíma missa. Og í bransanum gildir bara ein regla: The show must go on! Sagan gusast áfram með frekar örum sjónarhornsklippingum, ýmsum óvæntum uppákomum og margs konar mislúmskum grein- ingum á íslenskum amatörisma. Persónurnar eru sumar áhugaverðar en fæstar sympatískar. Ef lesanda er sama um persónur verður honum meira sama um framvindu. Eitthvað sem mætti kalla óþekkt höfundar er áþreifanleg: „Umminn skreið áfram og Kalman benti upp til vinstri í átt að Strokki sem gat tekið upp á því hvenær sem var að spýta heitu sæði sínu upp í bláan himininn.“ Hvorki falleg mynd né smekkleg en höfundinn langar ekki að skrifa þannig. Ísland sem vont líkingamál, Ísland sem klisja í asa og látum er ágætis yrkisefni í höndum hans. Vænn skammtur af landslagi og Íslandssögu. Matseðl- arnir dásamlega hnyttið stílbragð og margt f leira gott mætti tína til. Hlýja birtist í blálokin en kannski hefði mátt kvikna á henni fyrr. Titill bókarinnar er líka sérlega skemmti- legur sem og bókarkápan. Örlítill ágalli er að prófarkalestri er ábóta- vant. Tvær prentvillur í tveimur málsgreinum í röð á blaðsíðu 75 er aðeins of mikið. Og svo er þetta með glæpasöguna: Kannski hugar höfundur ekki nóg- samlega að því að nostra við þann þátt fyrr en lausnin birtist lesanda í örfáum orðum. Kannski er höf- undur aðeins of upptekinn við að segja samfélagssöguna, segja frá hinum hraða og jafnvel innantóma heimi sem við lifum í. „Mergjuð Fargó-sápa,“ segir í markaðssetningu. Kannski það bara? n NIÐURSTAÐA: Kærkomin innsýn í klikkaðan heim. Samfélagsrýnin tekst betur en glæpasagan. kolbrunb@frettabladid.is Laugardaginn 16. október kl. 16 verð- ur opnuð sýning á verkum Gunnars Jónssonar í Úthverfu á Ísafirði. Sýn- ingin ber heitið Í viðjum og er hluti af myndlistartvíæringnum Sequences. Á menningarhátíð Ísafjarðarbæjar, Veturnóttum, 18.-24. október, verður listamaðurinn á staðnum og spjallar um sýninguna og svarar spurning- um gesta. Sýningin er opin fimmtu- daga og föstudaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur sýnt talsvert á Íslandi og erlendis síðan hann útskrifaðist. n Gunnar Jónsson sýnir í Úthverfu á Ísafirði Verk eftir Gunn- ar á sýningunni. Láttu þér líða vel! Eitt mesta úrval skrifborðsstóla landsins, komdu og finndu stólinn sem hentar þér. Vandaður skrifborðsstóll með allar helstu stillingar. Stóllinn hentar vel á skrifstofuna eða fyrir vinnustöðina heima. 540-2000 // Skeifunni 10, Reykjavík // Hafnarstræti 91-93, Akureyri Vöruúrval er mismunandi eftir verslunum. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl. ID Mesh Tilboðsverð 119.900 kr. VERÐ ÁÐUR 164.247 KR. Þægilegur og smekklegur skrifborðsstóll á skrifstofuna. Stóllinn sameinar fallega hönnun og vinnuvistfræðilega eiginleika. Hann hefur allar helstu stillingar og fjölstillanlega 3D arma. Kinnarps 6242 Tilboðsverð 113.662 kr. VERÐ ÁÐUR 162.375 KR. 6242 er einn vinsælasti skrifborðsstóll Pennans fyrr og síðar. Góður skrifborðsstóll með hæðarstillanlegu bólstruðu baki, fljótandi setu og öllum helstu stillingum. Shape Mesh Tilboðsverð 131.162 kr. VERÐ ÁÐUR 187.375 KR. Aeron Tilboðsverð 299.900 kr. VERÐ ÁÐUR 374.875 KR. Aeron sameinar framúrskarandi hönnun, vinnuvistfræði og sjálfbæra framleiðslu. Frá því að stóllinn kom á markað árið 1994 hefur hann verið álitinn einn allra besti skrifborðsstóll sem fyrirfinnst. Aeron vann gullverðlaun fyrir hönnun aldarinnar og er mest seldi skrifborðsstóll allra tíma. Hann kemur í þremur stærðum A, B og C sem henta nær öllu fólki óháð líkamsvexti. FÖSTUDAGUR 15. október 2021 Menning 23FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.