Morgunblaðið - 04.06.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 04.06.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Langur biðlisti er í þyrluflug að gos- stöðvunum í Geldingadölum hjá tveimur þyrlufyrirtækjum sem Morgunblaðið ræddi við. Þau fljúga bæði frá Reykjavíkurflugvelli. Nokkur þyrlufyrirtæki til viðbótar bjóða upp á slíkt útsýnisflug. Erlendir ferðamenn eru í vaxandi mæli farnir að bóka þyrluflug að gosstöðvunum. Flogið er yfir gos- svæðið og síðan lent þar sem sést vel til gossins. Farþegar fá að fara út í 15-20 mínútur og njóta útsýnisins og taka myndir áður en farið er aftur í loftið. Lendingarstaðirnir eru valdir með tilliti til veðurs og vindáttar. Til dæmis er gætt að því að gasmengun frá gosinu leggi ekki yfir staðinn þar sem lent er hverju sinni. Mikill áhugi á gosflugi „Það er mikill áhugi fyrir þessu eldgosi. Það er 3-4 vikna biðlisti eftir því að komast í flug. Stundum er veðrið að hrekkja okkur og þá er erf- itt að halda áætlun en þegar er gott veður þá náum við að vinna þetta niður. Annars lengist biðin,“ sagði Birgir Ómar Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Norðurflugs (heli- copter.is). Það er með þrjár þyrlur í rekstri og getur hver þyrla farið um sjö ferðir á dag þegar vel viðrar. Þannig er hægt að fljúga með allt að 120 manns á hverjum degi við bestu aðstæður. Birgir segir að reynt sé að halda þyrluumferðini eins fjarri göngu- fólki og mögulegt er. Erlendir ferða- menn séu farnir að koma í flug að gosstöðvunum í viðbót við heima- menn. Uppgrip í þyrlurekstrinum „Við gerum lítið annað en að fljúga að eldgosinu þessa dagana. Það hafa verið uppgrip í þyrlubrans- anum frá því að gosið hófst. Aðsókn- in er að aukast, sérstaklega vegna þess að erlendir ferðamenn eru mik- ið byrjaðir að bóka. Þeim fjölgar hratt þessa dagana,“ sagði Friðgeir Guðjónsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Þyrluþjónustunni ehf. (helo.is). Fram undir þetta hafa flestir far- þegarnir verið heimamenn. Í gær var verið að bóka fólk í útsýnisflug að gosinu eftir 4-5 vikur. Dæmi eru um að fólk bóki flug enn lengra fram í tímann, jafnvel á næsta ári. Veðrið setur oft strik í reikninginn. Öllu flugi að gosinu var aflýst eftir miðj- an dag í gær vegna veðurs á gos- stöðvunum. Þegar vel viðrar getur hvor þyrla flutt 50-60 manns á dag. Friðgeir sagði að til skoðunar væri að fjölga þyrlunum en það tæki tíma. Mikil ásókn er í þyrluflug að gosinu - Panta þarf flug með löngum fyrirvara - Erlendir ferðamenn bóka útsýnisflug í vaxandi mæli - Ekkert lát virðist vera á eldgosinu - Rennislétt helluhraun hefur breiðst yfir Geldingadalina Ljósmynd/Halldór Halldórsson Eldgos Rásin sem kvikan streymir upp um er tiltölulega þröng og nær nið- ur á um 17 km dýpi. Talið er að hún hafi víkkað frá því eldgosið hófst. Eldgosið í Geldingadölum 19. mars -2. júní Flatarmál hrauns, km2 2,67 2. júní var flatarmál hraunsins um 2,67 ferkílómetrarsem er á við um 380 Laugardalsvelli Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ, Náttúru- fræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands Ný gosop mars apríl maí júní Hraunflæði, m3/s 12,4 Hraunrennslið er um 12,4 rúmmetrará sekúndu Rennslið svarar til að vera nærri 50 vörubílshlöss á mínútu mars apríl maí júní Hildur Stjórnmál Sverris skipta máli dóttir 3.– 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Eftirlaun fólks eiga að fá að vera í friði frá pólitísku vopnaskaki“ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er mikilvægt skref fyrir okk- ur á Bíldudal. Gríðarleg vöntun er á íbúðarhúsnæði, bæði til leigu og kaups, og því þurfti nauðsynlega að fara af stað með svona verkefni,“ segir Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Fyrirtæki er að hefja byggingu 10 íbúða fjölbýlishúss á Bíldudal. Þrjú tengd félög standa fyrir byggingu íbúðarhússins. Bæjartún ehf. byggir fjórar íbúðir með stofn- framlögum frá ríki og Vesturbyggð. Fjórar íbúðir eru byggðar af Nýja- túni leigufélagi ehf. og tvær eru byggðar af Hrafnshóli ehf. Síðast- nefnda félagið hefur viðurkenningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og því geta kaupendur að sinni fyrstu íbúð, þeir sem uppfylla skil- yrði, fengið hlutdeildarlán, að því er fram kemur á vef Vesturbyggðar. Íbúðirnar eru tveggja og þriggja herbergja, 51 og 76 fermetrar að stærð og þeim verður skilað full- búnum með helstu tækjum í eldhúsi og gólfefnum. Framkvæmdir munu hefjast á næstu vikum. Hluti íbúð- anna sem byggðar verða er þegar kominn á sölu. Biðstaða vegna varna Atvinnulífið á Bíldudal er í mikl- um vexti vegna laxeldis og kalkþör- ungavinnslu og hefur orðið mikil fjölgun í Vesturbyggð. Íslenska Kalkþörungafélagið lét byggja átta íbúða raðhús á Bíldudal fyrir fáein- um árum. Iða Marsibil segir að eftir snjó- flóðin á Flateyri í byrjun síðasta árs hafi allar snjóflóðavarnir verið tekn- ar til endurskoðunar. Það hafi sett áætlanir um byggingu íbúðar- húsnæðis á Bíldudal í biðstöðu. Ótt- ast hún að það tefji nauðsynlega uppbyggingu. Þurft hafi að breyta skipulagi til að skapa grundvöll fyrir byggingu fjölbýlishússins sem nú á að fara að byggja. Iða segir ekki nóg að bjóða áhuga- verð störf, samgöngur þurfi að vera í lagi og möguleikar á að úthluta lóð- um fyrir þá sem vilja setjast að á staðnum. Bíldudalur Svona mun fjölbýlishúsið á Hafnartúni 9 líta út. Nauðsynlegt að hefja slíkt verkefni - Tíu íbúðir byggðar á Bíldudal „Hraunið hefur farið mjög mikið í Geldingadali síðustu tvær vikur og þar hefur það þykknað mikið. Þar er rennislétt helluhraun og landið hefur al- gjörlega breytt um yfirbragð á tveimur til þremur vikum,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann var á gosstöðvunum í gær. Brún gígsins er í um 300 metra hæð yfir sjó og sést frá Reykjavík. Hún er um 100 metrum hærri en landið var fyrir gos. Gígurinn rís um 60 metra upp úr 40 metra þykku hrauni næst gígnum. Gígurinn sést frá Reykjavík MIKLAR BREYTINGAR Í GELDINGADÖLUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.