Morgunblaðið - 04.06.2021, Side 20

Morgunblaðið - 04.06.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 ✝ Sveinn Steins- son fæddist á Hrauni á Skaga 9. september 1929. Hann lést á Landa- koti 21. maí 2021. Foreldrar Sveins voru Steinn Leó Sveinsson, bóndi og hreppstjóri, f. 17. jan. 1886, d. 27. nóv. 1957, og Guð- rún Kristmunds- dóttir húsfreyja, f. 12. okt. 1892, d. 24. okt. 1978. Sveinn var sá níundi í röð 12 systkina, 11 náðu fullorðinsaldri en eitt dó í frumbernsku. Þau eru: Gunnsteinn, f. 10. jan. 1915, Guðrún, f. 4. sept. 1916, Rögn- valdur, f. 3. okt. 1918, Svava, f. 17. nóv. 1919, Guðbjörg, f. 30. jan. 1921, Tryggvina, f. 7. apr. 1922, Kristmundur, f. 24. jan. 1924, Svanfríður, f. 18. okt. 1926, Ásta, f. 27. nóv. 1930, Haf- steinn, f. 7. maí 1933, og Hrefna, f. 11. maí 1935. Eina eftirlifandi systkinið er Svan- fríður. Sveinn giftist 10.12. 1955 Pál- ínu Önnu Jörgensen, f. 9.9. 1935, d. 5.4. 2015. Foreldrar hennar voru Halla Soffía Hjálmsdóttir, f. 12.5. 1910, d. 2.9. 1988 og Lauritz Constantin Jörgensen, f. 4.3. 1902, d. 23.7. 1952. Börn Sveins og Önnu eru: 1. Erla Hrönn, f. 1955, fv. sam- býlismaður Jón Magnússon, inni, jafnt til sjós og lands. Sum- arið 1953 kom að Hrauni 18 ára kaupakona, Anna Jörgensen, og felldu þau hugi saman. Leiðir þeirra beggja lágu suður á land og um haustið fluttu þau að Sól- heimum í Grímsnesi. Árið 1954 stofnuðu þau heimili í Reykja- vík og vann Sveinn hjá Vega- gerðinni við ýmis störf. 1961 fluttu þau aftur að Sólheimum, þar sem hann sinnti starfi bú- stjóra. Árið 1965 fluttist hann ásamt fjölskyldunni að Geita- gerði í Skagafirði þar sem hann gerðist bóndi og bjó þar til árs- ins 2003. Í gegnum tíðina sinnti hann ýmsu félagsstarfi sem og trúnaðarstörfum. Barnabörnin hans dvöldu oft hjá honum í sveitinni og nutu þar hlýju og ástúðar. Hann gaf sér ávallt tíma til að spjalla við og hafa þau með sér. Árið 2003 hætti hann búskap. Eftir það var hann ýmist fyrir norðan eða í Reykjavík, þar sem þau Anna hreiðruðu um sig. Eftir andlát Önnu flutti hann í Furugerði 1 þar sem hann bjó sín síðustu ár. Þar átti hann góðan tíma og var virkur í öllu félagsstarfi. Hann var handlaginn og bæði skar út í timbur og bjó til fallega gler- verksmuni. Prýða þeir nú heim- ili afkomendanna. Útförin fer fram frá Bústaða- kirkju í dag, 4. júní 2021, klukk- an 13. Streymt verður frá at- höfninni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/frzb5hjy/. Virkan hlekk á streymið má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/. börn: Magnús, sam- býliskona Sigurrós Jakobsdóttir, börn: Jón Arnór og Hin- rik Aron, og Anna Katrín, sambýlis- maður Ólafur Hannesson, barn með Þorsteini Thorarensen: Embla Mey. 2. Steinn Leó, f. 1957, kona hans er Krist- ín Dís Kristjánsdóttir, börn: Kristján Leó og Ragnheiður Anna, börn Steins frá fyrra hjónabandi með Ágústu Sigurð- ardóttur: Sigríður Halla, gift Gunnlaugi Sigurðssyni, börn: Jökull Logi, Freyja Ísold og Katla Katrín, Íris Dröfn, sam- býlismaður Guðni Sigurjónsson, börn: Hildur María, Sölvi Steinn og Haukur Hrafn, og Sveinn, kona hans er Ana Vanessa, börn: Marta María, barn Sveins með Hafdísi Þórsdóttur er Alex- andra Ósk. 3. Drengur, f. og d. 1963. 4. Birgitta, f. 1968, sam- býlismaður Stefán G. Indr- iðason, börn: Hákon Ingi, sam- býliskona Linda B. Valbjörnsdóttir, barn: Stefán Heiðar, Vala Rún, sambýlis- maður Dagur Hjálmarsson, Hulda Ósk, f. og d. 2001, Óskar Aron og Bríet Bergdís. Sveinn ólst upp í foreldra- húsum á Hrauni þar sem hann gekk að öllum störfum í sveit- Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. (Valdimar Briem) Þessar ljóðlínur eiga vel við þegar ég lít til baka yfir samferð okkar pabba í gegnum lífið. Ég naut þess heiðurs að búa lengstan hluta ævi minnar með honum og var alltaf í miklum samskiptum við hann. Æskuár mín í Geitagerði voru ljúf og góð. Þar var oft og iðu- lega margt um manninn og mikið líf og fjör. Ég var alltaf eins og skugginn af pabba, fylgdi honum jafnt úti sem inni. Ótal minningar koma upp í hugann, flestar tengdar fjölskyld- unni. Pabbi var stoltur af fólkinu sínu og ánægður með að öll barna- börnin voru í miklu sambandi við hann og nutu hlýju og ástúðar í afafangi. Afi hafði alltaf tíma til að spjalla og gefa börnunum gaum. Með pabba á ég einnig margar minningar tengdar fjósverkum, fjárhúsum, heyskap, smala- mennsku, réttarstörfum og fé- lagsstörfum af ýmsu tagi. Lengi var pabbi formaður ungmenna- félagsins í sveitinni og stóð fyrir mörgum viðburðum, m.a. í félags- heimilinu Melsgili. Margar ferðir áttum við í bókasafnið þar, því lestur bóka var sameiginlegt áhugamál okkar. Úr Melsgilinu koma líka kærar minningar um danskennslu, sem sveitungarnir slógu í saman. Þar áttu mamma og pabbi marga góða stund við vals, polka, ræl og masúrka. Pabbi hafði gaman af alls konar orðaleikjum og þrautum. Til gam- ans gerði hann það oft að leik, að búa til orð og nöfn. Gaman væri að taka saman orðabók í hans anda, t.d. kallaði hann lyftitækin á gamla Deutzinum okkar grænk- araverk. Þegar pabbi hætti bú- skap í Geitó var hann lengi vel með annan fótinn heima hjá okkur Stebba og börnunum, bæði í Varmahlíð og í Álfheimum. Fyrir allar þær stundir getum við aldrei fullþakkað. Ég hafði aldrei haldið jól, páska eða sumarfrí án pabba fyrr en nú allra síðustu árin. Það má með sanni segja að hjá okkur komu jólin ekki fyrr en afi var mættur í hús og búinn að skera út laufabrauðið með okkur. Börnin okkar elskuðu afa sinn afar heitt og er margt sem þau hafa brallað saman gegnum tíðina. Sólböð á pallinum, með hundinum Plútó, leikir í garðinum, spil við eldhús- borðið, spjall í stofunni og bóka- lestur að kvöldi dags eru meðal góðra minninga. Þá má ekki gleyma stundunum með spjald- tölvunni, sem pabbi lagði sig allan fram við að læra á og stóð sig með miklum sóma. Pabbi var mikill náttúruunn- andi og elskaði að ferðast og njóta náttúrunnar. Best fannst honum ef hann gat farið úr skóm og sokk- um og jarðtengst um stund. Eftir að pabbi fór að búa í Reykjavík áttum við margar góð- ar samverustundir, fyrst á Bjarg- arstígnum og síðan í Furugerðinu. Þar var alltaf tekið á móti okkur eins og höfðingjum og var hægt að ganga að því vísu að fá ís og Sæ- mund sex-kex. Hann var mjög handlaginn og bæði skar út í timb- ur og bjó til fallega glermuni. Þessir fallegu gripir prýða nú heimili afkomendanna. Mér þykir afar vænt um síðustu samtöl okk- ar pabba, sem flest snerust um fjölskylduna, dýrin og sveitina, sem alltaf voru honum kærust. Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir allt. Hvíl í friði. Þín dóttir, Birgitta og fjölskylda. Elsku pabbi. Á langri ævi þinni og á langri samferð okkar feðga er margs að minnast. Ég man fyrst eftir þér á Ásvallagötunni þegar þú varst að hefla hjá Vegagerð- inni. Maður var ekkert smá stolt- ur að eiga „pabbann á skafaran- um“ sem hinir krakkarnir litu líka upp til. Svo fórum við austur til „Sesselju ömmu“ þar sem þú varst bú- stjóri og stýrðir heimilisbúinu af miklum myndarskap. Flestar minningarnar tengjast þó verunni í Geitagerði enda bjóstu þar í 38 ár. Ég var heima allt til ársins 1978 og hef alla tíð haft sterkar taugar til litla bæjarins, umhverf- isins, dýranna og nágrannanna. Við áttum okkur draum saman á tímabili sem var að kaupa okkur jörð og stofna félagsbú. Ekkert varð af þessu og fór ég á önnur mið. Samt togaði þessi litla jörð alltaf í mig og reyndi ég að koma eins oft og ég gat til að njóta samvista með ykkur mömmu og komast í smá at við búskapinn. Að vinna með þér og mömmu á góðum degi var nokkuð sem ekkert jafnast á við. Heimilið var oft yfirfullt af fólki, fullorðnum og börnum. Börnin mín voru hjá þér langtím- um saman og ástin og alúðin sem þú sýndir þeim er ómetanleg. Takk fyrir að leyfa þeim að vera hjá ykkur, það kenndi þeim svo margt og bjó til svo mikið af því mikilvægasta sem eru góðar minningar. Í Geitagerði höfðu allir hlutverk og ábyrgð og allir tóku þátt í heimilis- og bústörfum. Líka gafst tími til að setjast niður við eldhúsborðið, spila og spjalla eða „spökúlera“ eins og þú sagðir svo gjarnan. Þarna voru línurnar lagðar og hugað að næstu skrefum við búskapinn eða gerð plön um stækkun á fjósinu, rumpa upp hrútakofa, byggja kálfafjós og hlöðu. Svo jarðræktin, heyskapur- inn og dýrin. Minningarnar frá Geitagerði eru óendanlegar og enn í dag leit- ar hugurinn þangað. Minni þitt pabbi var með eindæmum og hélst það allt fram á síðasta dag. Lestur og lærdómur var þitt yndi og „hvernig gastu munað allt sem þú last og/eða heyrðir“?. Þú fylgdist með öllu og öllum, alltaf með allt á hreinu. Núna síðustu árin höfum við líka oftar en ekki yljað okkur við að rifja upp frá þessum tíma og eftirminnilegur er glampinn sem færðist í augu þín þegar þennan tíma bar á góma. Ekki má gleyma veiðiferðunum og ferðalögunum sem við fórum í saman bæði hérlendis og erlendis. Oft kom ég við á Bjargó og kippti þér með mér þegar ég var að sinna ýmsum verkefnum. Alltaf varstu klár í að koma með enda þurfti ég á þér að halda, þurfti að „spökú- lera“ og hvern var betra að hafa með sér en pabba við slíkar að- stæður? Á meðan þú gast varstu alltaf boðinn og búinn að koma austur til okkar og leggja hönd á plóg við að rækta garðinn með okkur eða smíða pall. Þú elskaðir að „vera að“ eins og sagt er og varst alltaf með einhver plön. Núna síðast sast þú við að „skera í spýtu“ eða dundaðir með „gler og tin“ og bjóst til hluti sem verða okkur eft- irlifendum ævarandi minning um þig, þennan hægláta, trygga, fjöl- skyldurækna mann sem gerðir líf okkar fullt af góðum minningum. Minning um góðan mann lifir. Farðu í friði elsku pabbi, Steinn Leó Sveinsson. Okkur langar í nokkrum orðum að minnast elsku afa okkar. Við söknum hans mikið og það verður skrýtið að geta ekki heimsótt hann í framtíðinni. En það er gott að eiga margar góðar minningar að ylja sér við. Við minnumst heimsókna afa til okkar í gegnum tíðina. Hann gaf sér alltaf góðan tíma til að vera með okkur og spjalla. Það var gott að sitja í fangi hans og vera hjá honum. Afi spil- aði oft við okkur, spil eins og veiði- mann, lönguvitleysu, þjóf, kvikk og kasínu. Við gátum setið heilu dagana og spilað. Afi lagði líka mikið af spilaköplum og kenndi okkur þá í leiðinni. Öll æfðum við okkur í að lesa, m.a. með því að lesa fyrir afa á kvöldin. Afi var mikill hundavinur og voru þeir Plútó miklir vinir. Iðulega sátu þeir félagarnir úti á pallinum og sleiktu sólina þegar færi gafst. Afi var mikill áhugamaður um íþrótt- ir. Við sjáum hann fyrir okkur, sitjandi í stofunni að horfa á bolta- leik, oft mjög spenntan og með ráð til leikmannanna á skjánum. Þegar afi kom í heimsókn var farið í bíltúra til að skoða Skaga- fjörð og gá hvort eitthvað hefði breyst frá síðustu heimsókn. Eins fórum við saman í heimsóknir, alltaf til Fríðu frænku, systur afa. Flestöll jól okkar hingað til höfum við átt með afa. Okkur fannst jólin aldrei koma fyrr en hann var kom- inn til okkar að skera út laufa- brauðið með okkur. Síðustu ár átti afi tvo sérstaka félaga – það voru þau Tóki og Skrunka. Hann átti það til að búa til skrítin orð og nöfn. Tóki var göngustafurinn hans og Skrunka var göngugrind- in hans. Við þurftum alltaf að prófa þessi tæki aðeins og reynd- um að hjálpa upp á að hafa þau til- tæk fyrir afa þegar þurfti. Afa fannst alltaf jafn gaman að fá okkur í heimsókn og tók á móti okkur eins og við værum kóngar. Við minnumst allra góðu heim- sóknanna til afa og ömmu á Bjargó. Þá mátti treysta því að til væri ís í frystinum handa okkur. Oft gengum við með afa í sjopp- una, vídeóleiguna, búðina og niður á tjörn. Það voru góðar ferðir. Eins fannst okkur alltaf svo gam- an að leika í garðinum á Bjargó og tína berin sem spruttu þar. Síðar þegar afi var fluttur í Furugerði minnumst við þess að hann átti alltaf kex eða konfekt handa okk- ur og mjög oft Pepsí. Afi kallaði kremkexið Sæmund í sparifötun- um eða Sæmund sex-kex. Eitt sinn gáfum við afa bangsa- hund í afmælisgjöf. Þessi bangsi fékk nafnið Snati. Alla tíð síðan sat Snati á rúminu hans afa og þurft- um við ætíð aðeins að klappa hon- um þegar við komum í heimsókn. Afi var ákaflega stoltur af okkur og þurftum við halda honum upp- lýstum um hvað var í gangi hjá okkur í hvert sinn. Við hringdum í hann og sendum honum myndir þegar eitthvað var að gerast hjá okkur. Alltaf hrósaði hann okkur í hástert og hvatti okkur áfram. Elsku afi, við erum afar þakklát fyrir allar góðu stundirnar okkar og minningarnar, sem ylja okkur. Við trúum því að nú líði þér vel og þú sért kominn í sveitasæluna á ný. Kannski ertu búinn að hitta hana Önnu ömmu aftur. Við vonum að góður Guð geymi afa okkar vel. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Vala Rún, Óskar Aron og Bríet Bergdís Stefánsbörn. Elskulegur afi minn, þakka þér fyrir allar góðu minningarnar. Þú varst mér og mínum góður vinur og áttum við margar góðar stund- ir saman, sem ég mun sakna. Ég var hjá þér og ömmu nánast öll sumur frá því að ég man eftir mér þangað til ég varð tvítugur. Í fyrstu þvældist ég að mestu bara fyrir en það var alltaf ómæld þol- inmæði gagnvart litla stubbnum sem var á stundum nokkuð óþekk- ur. Það var ávallt mikil spenna að fá að hjálpa við búskapinn og tók ég það hlutverk mjög alvarlega. Maður lærði svo margt á þessum árum og er ég ævinlega þakkátur fyrir að hafa fengið að fá að vera hjá ykkur ömmu þessi sumur. Margar minningar koma upp í hugann þegar maður hugsar til baka en það sem stendur upp úr fyrst og fremst er hvernig þið tók- uð á móti manni með ást og hlýju. Það var alltaf gott að koma í Geita- gerði, þar var ávallt gleði þrátt fyrir oft annasama tíma. Í seinni tíð voru samskiptin oft- ar en ekki í gegnum síma og þurfti afi stöðugt að fá fréttir af strákun- um og ekki síst af nýja hundinum á heimilinu. Gamli var mikill hundakarl. Afi var ávallt vel inni í öllum málum og fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni. Maður kom sjaldan að tómum kofunum hjá honum og var gaman að ræða um heima og geima á góðum stundum. Þegar ég hitti afa minn í síðasta sinn, nokkrum dögum fyr- ir andlátið, var ljóst að lífsljósið var að dofna. Ég náði þó að ræða við afa í stutta stund og sýna hon- um nokkrar myndir af strákunum, hann lifnaði allur við þegar hann sá ungviðið. Ég kveð þig, elsku afi minn, með trega í hjarta en það yljar að þú ert kominn í sumarlandið til ömmu og ef ég þekki hana rétt þá verður engin lognmolla. Magnús Jónsson. Fyrstu minningar mínar af afa eru af okkur að hjálpast að við sveitastörfin í Geitagerði. Fara með afa í fjósið, rogast á eftir hon- um með heytuggu í fanginu og furða mig á því hvernig afi gæti haldið á svona miklu heyi í einu, brynna kindunum og mjólka kýrn- ar. Það var svo alltaf spennandi að fá að sitja með afa í dráttarvél- unum, þó sér í lagi þegar farið var á gamla Deutz. Afi átti stóran sess í æsku minni og var minn besti vinur, ásamt Snata. Þær voru ófáar stundirnar sem afi sat með mér og við lékum saman, hvort sem það var gripið í spil, púslað eða leikið með kubba. Einnig lékum við mik- ið með leikfangadýr og minnist ég þess svoleiðis að hefði afi átt eitt- hvert erindi í Krókinn hafi hann yfirleitt alltaf komið til baka með ný dýr í safnið. Það var hægt að ganga að því vísu að hægt væri að leita til afa ef eitthvað bjátaði á eða ef manni leiddist. Hann tók manni alltaf opnum örmum og veitti hlýju, sagði manni sögu eða dró fram eitthvað spennandi sem kallaði fram bros á augabragði. Ég minn- ist þess einnig að hafa vaknað á nóttunni og skriðið upp í til afa frekar en foreldranna eða jafnvel gengið í svefni og vaknað í rúminu hjá afa, þrátt fyrir að það hefði þurft að ferðast milli hæða til þess. Eftir að afi flutti suður til Reykjavíkur til ömmu var heldur aldrei komið að tómum kofunum þar. Ég hugsa að afi hafi á tímabili verið einn helsti viðskiptavinur Tiger á Laugaveginum því alltaf átti hann til nýjar græjur úr Tiger og iðulega var maður leystur út með einhverju þaðan eða hand- verki. Afi var einkar laginn í hönd- unum og gerði mörg falleg gler- og útskurðarlistaverk sem hver sem er gæti verið stoltur af. Afi var svo magnaður að hann keypti sér spjaldtölvu á gamals aldri til þess að geta haldið sam- bandi við fjölskylduna. Það var frábært að geta hringt og spjallað við afa í mynd, þrátt fyrir að vera hvor í sínum landshlutanum, sem við gerðum mjög reglulega. Sér í lagi hafði afi gaman af því að spjalla við Stefán Heiðar eftir að hann fæddist. Hann ávarpaði Stefán Heiðar ávallt sem höfðingj- ann og náðu þeir vel saman. Stef- án Heiðar sýndi langafa sínum leikföngin sín og lék við hann í gegnum skjáinn og var jafnvel far- inn að biðja um að hringja í lang- afa, sem mér þykir mjög vænt um. Þær eru margar minningarnar til að ylja sér við, hvort sem það eru sveitastörfin í Geitagerði, veiðiferðir út á Skaga, skreppur í Bónusvídeó eða heimsókn til þín í Furugerði. Það væri langur listi ef það ætti að koma honum öllum í orð, en ég er mjög þakklátur fyrir allar okkar samverustundir. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson) Þakkir fyrir allt elsku afi, þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði. Hákon Ingi. Sveinn Steinsson - Fleiri minningargreinar um Svein Steinsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, CARL JÓHANN LILLIENDAHL klæðskerameistari, lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 30. maí. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 10. júní klukkan 13. Íris Lilliendahl Alfreð Örn Lilliendahl Eva Björk Karlsdóttir Árni Halldór Lilliendahl Belinda Kristinsdóttir Karl Rúnar Lilliendahl Edda Jónsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KARLOTTA BIRGITTA AÐALSTEINSDÓTTIR, löggiltur endurskoðandi, lést þriðjudaginn 1. júní. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Lárus Pétur Ragnarsson Ragnar Jóhann Lárusson Ann Sofie Egholm Sigurbjörn Birkir Lárusson Brynhildur Magnúsdóttir Jón Bjartmar Lárusson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.