Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Marek Moszcynski var í gær sýkn- aður af refsikröfu fyrir að hafa kveikt í húsi á Bræðraborgarstíg síðasta sumar með þeim afleið- ingum að þrír létust. Honum verður gert að sæta öryggisgæslu á viðeig- andi stofnun vegna ósakhæfis. Var hann strax fluttur á réttargeðdeild í gær frá fangelsinu á Hólmsheiði. Marek er gert að greiða aðstand- endum þeirra þriggja sem létust í brunanum og þeim sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni um 30 millj- ónir króna í bætur. Málskostnaður verður greiddur úr ríkissjóði. Mar- ek mætti ekki sjálfur í dómssal. Marek neitaði sök um manndráp og íkveikju við þingfestingu máls- ins síðasta haust. Þrír geðlæknar hafa metið manninn ósakhæfan og staðfestu þeir þar með fyrra mat geðlækna. Í ákærunni er Marek sagður hafa kveikt eld á gólfi í her- bergi sínu á annarri hæð, á tveimur stöðum á gólfi í sameiginlegu rými á sömu hæð og undir stiga sem lá upp á þriðju hæð hússins. Þegar hann kveikti eldinn voru 13 manns í húsinu. Marek dæmdur ósakhæfur - Greiði aðstand- endum 30 milljónir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ósakhæfur Marek Moszcynski var sendur á réttargeðdeild í gær. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Uppsetning kláfs upp á 730 metra hátt Eyrarfjall á Ísafirði þarf að fara í mat á umhverfisáhrifum skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar. Til stendur að setja upp kláf til að flytja fólk frá rótum Eyrarfjalls og upp á topp. Tilgangurinn er að gera ferðamönnum og íbúum kleift að njóta útsýnis frá toppi fjallsins og þróa svæðið til útivistar og af- þreyingar. Er gert ráð fyrir að um 29.000 farþegar verði fluttir með kláfnum á ári. Í fyrsta áfanga er fyrirhugað að setja upp kláf með byrjunarstöð í þéttbýlinu á Ísafirði neðan Eyrar- fjalls. Setja á upp tvo kláfa sem ganga hvor á móti öðrum og í lýs- ingu á framkvæmdinni kemur fram að í öðrum áfanga er fyrirhugað að byggja veitingahús uppi á Eyrarfjalli í tengslum við enda- stöðina. Í þriðja áfanga á að byggja sjálfbærar gistieiningar eða hótel. Reisa á um 10 metra háa bygg- ingu sem hýsi byrjunarstöð kláfsins og ofan á Eyrarfjalli verður enda- stöð kláfsins með biðsal og stjórnstöð í um 10 metra hárri og 200-300 fermetra stórri byggingu. Lengd kláfvíranna verður um 1,4 km. 45 manns eiga að komast fyrir í kláfhúsinu sem geti annað um 500 farþegum á klukkustund. Hótelið á að geta tekið á móti 60-70 gestum. Í umsögn Veðurstofunnar kemur fram að þótt kláfurinn verði ekki í notkun að vetrarlagi þurfi að gæta alls öryggis vegna veðurfars og reka þurfi veðurstöð samhliða rekstrinum til að geta ákveðið hve- nær óhætt sé að nota kláfinn. Fram kemur að fyrirhugað er að setja upp veðurstöð á Eyrarfjalli í sumar. Í svörum framkvæmdaraðila segir m.a. að lyftu fylgi veðurstöð sem geri kleift að fylgjast daglega með veðri en kláfurinn verði að mestu leyti í rekstri yfir sumarið. Eyrarfjallskláfur þarf í umhverfismat Morgunblaðið/Kristinn Ísafjörður Reisa á mannvirkin á rúmlega einu og hálfu ári. - Kláfvírarnir verði um 1.400 metrar - 45 manns komist fyrir í kláfhúsinu Lagt hefur verið upp úr því að færa ökumenn yfir á rafbíla. Drif rafbíla stóreykst milli ára en er þó enn almennt minna en þeirra sem knúnir eru af eldsneyti svo mikilvægt er að hafa greiðan aðgang að hleðslustöð. Að koma upp hleðslu- stöðvum getur reynst kostnaðar- samt og tækni þeirra fleygir hratt fram. Orka náttúrunnar býður nú upp á svokallaða hleðsluáskrift. ON kemur upp hleðslustöð á þeim stað sem óskað er eftir, sér um viðhald og uppfærslur. Áskrifendur borga svo bæði fyrir rafmagnsnotkun og fast mánaðargjald. Þessi þjónusta er í dag eingöngu veitt á höfuðborgar- svæðinu en það á líklega eftir að breytast. thorab@mbl.is Hleðsluáskrift fyrir rafbíla- eigendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.