Morgunblaðið - 04.06.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 04.06.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 ✝ Jóhann Páls- son fæddist 5. mars 1949 í Reykjavík. Hann lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borg- arnesi 19. maí 2021. Foreldrar hans voru Páll Sveins- son, f. 28. október 1919, d. 14. júlí 1972, og Margret Guðmunds- dóttir Buehler, f. 2. mars 1924, d. maí 2015. Fósturforeldrar hans voru Bergur Guðjónsson, f. 3. ágúst 1892, d. 18. janúar 1985, og Magdalena Zakaríasdóttir, f. 17. september 1904, d. 11. mars 1998. Hálfsystkini hans eru þrjú: 1) Helga Eiler, f. 27. maí 1945, maki Emerson og eiga þau eina dóttur. 2) Berglind Inga, f. 29. nóv- ember 1978, maki Egill Örn Erlingsson, f. 19. september 1988. 3) Bergur Ingimar, f. 28. apríl 1994. Jóhann var tekinn í fóstur 1 og ½ árs gamall að Smiðjuhóli. Jóhann bjó á Smiðjuhóli alla sína ævi þangað til hann veikt- ist í nóvember 2010. Árið 2011 í september seldum við jörðina og fluttum í Borgarnes. Jóhann vann sem skólabíl- stjóri í mörg ár þangað til hann veiktist. Einnig var hann mikið að aðstoða sveitunga sína með viðgerðir á drátta- vélum, bílum eða í búskapnum. Einnig átti hann steypu- hrærivél og steypti nokkra grunna fyrir Borgnesinga og nærsveitunga. Útförin fer fram í Borg- arneskirkju, í dag, 4. júní 2021, klukkan 14. Athöfninni verður einnig streymt og er hægt að nálgast streymishlekk á: https://www.mbl.is/andlat/. 2) Davíð Páls- son, f. 27. febrúar 1963, maki Sigrún Ágústsdóttir, f. 2. desember 1969 og eiga þau 2 börn. 3) Páll S. Páls- son, f. 1. janúar 1971, maki Hildur Gunnarsdóttir, f. 5. september 1969 og eiga þau 2 börn. Eiginkona Jó- hanns er Sigrún Einarsdóttir, f. 4. september 1955. Þau giftu sig 9. september árið 1977. Saman eiga þau 3 börn. 1) Margrét Helga, f. 16. ágúst 1977, maki Gunnar Hall- berg, f. 27. febrúar 1972 og eiga þau 1 barn, Gabríel Dag- ur, f. 22. júlí 2010. Margrét á 2 syni úr fyrra hjónabandi, Daní- el Ágúst Björnsson, f. 21. júní 2000, Sindri Már Björnsson, f. 4. febrúar 2003. Elsku eiginmaður minn og fað- ir, nú ertu kominn upp til himna eftir hetjulega baráttu við heila- blóðfallið sem þú fékkst fyrir 10 árum. Þú hefur átt góða og slæma daga en tókst þetta alltaf á þrjósk- unni og þinni jákvæðni sem ein- kenndi þig alla tíð. Þú áttir mikið meira en níu líf eins og kettirnir því að baráttan var löng og ströng. Sterka hjartað þitt hélt þér gang- andi þangað til á síðasta degi. Þú varst vinmargur og vildir allt fyrir alla gera. Ef eitthvað bjátaði á hjá sveitungum þínum varstu oft fyrstur á svæðið að að- stoða. Bílaviðgerðir, traktorsvið- gerðir eða aðstoð við búskapinn var það helsta sem fólk fékk að- stoð við frá þér. Smiðjuhóll var jörðin þín og voru það þung skref að selja þá jörð eftir að þú veiktist. Við fjöl- skyldan sjáum einnig mjög mikið eftir henni en við höldum bara í allar þær yndislegu minningar sem við áttum þar. Ferðalög voru hans yndi á seinni árum eftir að búskapurinn lagðist af. Farið var um allt land á heimatilbúnum húsbílum sem hann gerði upp með vinum sínum. Þessir dásamlegu bílar áttu það til að bila en alltaf komust þeir áfram. Farið var í ferðalög með systkinum Sigrúnar og voru þetta ætíð eftirminnilegar ferðir. Þú hafðir gaman af því að fara á fjallabílnum þínum í leitir hjá Álftaneshreppi. Þú keyrðir leitar- fólkið snemma um morguninn og tókst þátt í leitunum með því að keyra um fjöll og firnindi og benda á hvar kindurnar voru. Eftir veikindi þín þurftir þú að fara í hjólastól. En það stoppaði ekki okkur fjölskylduna við að ferðast með þig í sumarbústaði hingað og þangað um landið. Sveitungar þínir gripu til þess ráðs að halda styrktartónleika fyrir þig til að safna fyrir bíl sem við fjölskyldan gætum ferðast með þig í. Þetta var mjög hugul- samt af sveitungunum og öllum þeim sem að komu og tóku þátt í þessum tónleikum. Þetta var eft- irminnilegt kvöld fyrir okkur fjöl- skylduna og þú brostir hringinn allan tímann. Vinnan þín var ávallt einhver keyrsla. Þú vannst sem skólabíl- stjóri í mörg ár og áttir því eitt- hvað í hverju barni sem þú keyrð- ir. Enda sagðir þú alltaf „ég er að keyra börnin mín“. Einnig vannst þú við steypuvinnu og var fyrir- tækið þitt kallað Steypuvélin Kynorka. Þú steyptir marga grunna hér í Borgarnesi og nær- sveitum. Þú fluttir áburð frá Reykjavík til sveitunga þinna á Bedfordinum þínum. Þú nýttir þér ferðirnar með Akraborginni og voru þeir sem unnu þar farnir að þekkja þig vel. Elsku Jóhann, við þökkum þér innilega fyrir samfylgdina í gegn- um árin. Minningarnar lifa í hjört- um okkar. Þín verður sárt saknað. Hvíl í friði. Sigrún, Berglind Inga og Bergur Ingimar. Elsku pabbi er látinn eftir ára- löng veikindi. Fyrstu minningar mínar um pabba eru flestallar af honum að keyra eitthvert tæki, traktor, vörubíl – allt með dekk. Hann vaknaði um miðja nótt til að moka veginn í sveitinni svo hann kæmist með krakkana í skólann. Hann keyrði suður og sótti áburð fyrir bændurna. Hann sinnti heyskap, mest hjá öðrum en sjálfum sér en tókst einhvern veginn að klára sitt líka. Hann keyrði skólabílinn í mörg ár, á mismunandi tryllitækj- um. Ef hann var ekki að keyra þá var hann að laga eitthvert tæki. Það sem pabbi hafði mest gam- an af, ja næstmest gaman af, voru ferðalög. Að keyra um landið og skoða hvern fermetra elskaði hann, best ef nógu margir ferða- félagar voru með. Fyrst var það gamalt appelsínugult og blátt tjald frá Seglagerðinni Ægi sem við tróðum okkur í og að lokum var það heil rúta sem hann breytti í húsbíl með pálmatré og sól aftan á. Ef það var eitthvað sem pabbi átti nóg af þá voru það brandarar. Hann hafði mjög gaman af að skemmta fólki og segja því brand- ara og hló oft manna hæst í lokin. Þetta breyttist ekki þegar hann veiktist, hann hafði ennþá gaman af því að fá fólk til að hlæja þó að brandararnir yrðu færri. Eftir að hann veiktist þá töluð- um við fjölskyldan alltaf um að það sem héldi honum á floti væri þrjóskan þó það sé líklegra að það hafi verið sterkt hjarta sem kom honum í gegnum þessi veikindi í öll þessi ár. Þetta sterka hjarta fylgdi honum alla ævi og kom fram bæði í góðri heilsu framan af og í hjálpsemi og óeigingirni gagnvart ættingjum og vinum. Hann var sveitapiltur í grunn- inn þó það hafi kannski aldrei ver- ið hans æðsta ósk að vera bóndi. Hann kaus að vinna með bíla og vera í kringum fólk og það er það sem hann elskaði. Hann var með áberandi nærveru og sterka rödd en þrátt fyrir það var hann hinn mesti ljúflingur sem flestum líkaði við og eiga eftir að sakna. Hann reyndi að vera vinur allra. Það var mikið gæfuspor fyrir hann og fjölskylduna að hann komst inn í Brákarhlíð. Það var honum eins og heimili og var okk- ur fjölskyldunni það greinilegt að þar var hugsað um hann af ein- stakri alúð og umhyggju. Við er- um endalaust þakklát fyrir það. Pabbi komst í gegnum rúm tíu ár af alvarlegum veikindum með þrautseigju, þrjósku, jákvæðni og ótrúlegum hetjuskap. Hann bar höfuðið hátt við erfiðar aðstæður sem voru í grunninn mjög ósann- gjarnar en þessi tíu ár gáfu okkur aukatíma með honum sem var kraftaverk. Elsku pabbi, þín verður sárt saknað. Hvíl í friði. Þín dóttir, Margrét Helga. Ég kynntist konunni minni árið 2009. Fljótlega hófst sambúð okk- ar og kynni mín af fjölskyldu hennar. Mín fyrstu kynni af Jóa Páls komu mér verulega á óvart og ég átti ekki von á þeim manni sem tók í höndina á mér í bláum samfestingi með derhúfu. Eigin- lega varð mér brugðið þegar þessi stóri og sterki maður tók fast í höndina á mér og kynnti sig með háværri og beinskeyttri rödd: „Jóhann Pálsson.“ Í framhaldi af þessum hittingi komu hnitmiðað- ar og ákveðnar spurningar, svolít- ið eins og vera staddur í CSI- þætti í litlu yfirheyrsluherbergi, ásakaður. Mér leið frekar vand- ræðalega að fá slíkar umbúðalaus- ar spurningar og átti erfitt með að átta mig á þessu öllu. Þetta leit út eins og í amerískri unglingamynd þar sem pabbi stelpunnar hakkar í sig strákinn sem er að hitta dótt- ir hans. Ég komst þó fljótt að því að persónuleiki Jóa og hjarta var úr gulli. Þessi stóri og sterki maður var alltaf í vinnugallanum að redda málum og hjálpa öðrum. Hann var bjargvætturinn í fjöl- skyldunni og lagði mikið upp úr því að styrkja tengsl milli fólks. Jóa var umhugað um fjölskyldu sína og börnin sín og afar stoltur af þeim og sparaði ekki stóru orð- in við aðra um stolt sitt af börnum sínum. Tilkynnti það með hárri rödd. Ég átti þó stutt kynni af þess- um sterka manni uppistandandi því alvarleg veikindi hans voru sá raunveruleiki sem ég og fjölskyld- an bjuggum við fram að andláti hans. Að Jói hafi lifað slíkt af var kraftaverk í sjálfu sér og merki um hversu sterkur hann var lík- amlega og andlega. Veikindin mörkuðu þó djúp spor í líf allra og sérstaklega Jóa Páls. Hann hélt þó alltaf reisn sinni og æru og húmorinn hans hvarf aldrei. Jói var frjáls eins og fuglinn í huga sínum og hjarta og ég upplifði hann aldrei öðruvísi þó svo líkam- inn hafi misst vængi sína eftir veikindin. Jói kvaddi okkur með reisn. Í söknuði okkar minnist ég hans sem hetju sem ég er stoltur af. Gunnar Hallberg. Fallinn er frá kær mágur minn, Jói Páls frá Smiðjuhóli. Hann átti við erfið veikindi að stríða frá nóv- ember 2010, en húmor, bjartsýni og jákvæðni voru ávallt til staðar hjá honum allt til síðustu stundar, enda heyrði maður hann aldrei kvarta. Jói ólst upp á Smiðjuhóli hjá fósturforeldrum sínum þeim Bergi og Magdalenu. Ég man fyrst eftir Jóa í sláturhúsinu í Borgarnesi 1973-1975 þar sem hann vann á haustin. Þar kynnt- ust hann og Sigrún systir mín. Mig langar að minnast allra þeirra fjölmörgu stunda sem fjölskyldur okkar áttu saman. Öll þorrablótin á Þórólfsgötunni, ættarmótin, af- mælin, fjölskylduhittingar og ekki síst öll ferðalögin, en ferðalög og útilegur voru meðal helstu áhuga- mála Jóa. Á sumrin var brunað um landið okkar fallega og flest- allir staðir heimsóttir. Jói og fjöl- skylda á bláa fjallabílnum, skóla- bílnum eða stóru rútunni sem hann útbjó sem húsbíl með ýms- um græjum. Og vorum við fjöl- skyldan oftar en ekki í samfloti með þeim ásamt öðrum í stórfjöl- skyldunni. Yndislegar minningar frá þessum tímum og heilu myndaalbúmin á ég frá þessum ferðum okkar og öðrum viðburð- um, sem gaman er að skoða og rifja upp. Jói var svo hjálpsamur og alltaf tilbúinn að aðstoða ef á þurfti að halda, hvort sem var bílaviðgerðir eða annað. Enda ófá bílavandræðin sem hann reddaði mér út úr eftir að ég varð ein. Hann var einhvern veginn alltaf til staðar og reddaði málunum. Ef mann vantaði fréttir úr sveitinni eða Nesinu þá vissi hann yfirleitt allt sem var í gangi. Jói var mjög minnugur og gat hann þulið upp allskonar vísur, brandara og slíkt og var oft mikið hlegið og gaman þegar Jói og Óli minn voru í essinu sínu, enda miklir félagar og húm- oristar. En nú er víst komið að kveðjustund. Sjáumst í næsta stríði, eins og þú sagðir oft þegar þú kvaddir eftir heimsókn til okk- ar. Og takk fyrir allt og allt. Elsku Sigrún, Bergur, Berglind, Magga og fjölskylda. Innilegar samúðar- kveðjur sendi ég ykkur. Blessuð sé minning Jóa. Kveðja, Ingveldur Einarsdóttir og fjölskylda. Í dag verður jarðsunginn mág- ur minn og góður vinur Jóhann Pálsson eða Jói á Smiðjuhóli eins og flestir kannast við hann. Okkar kynni hófust fyrir 45 árum þegar hann fór að venja komur sínar vestur að Glaumbæ í Staðarsveit þar sem ég bjó þá og var að draga sig eftir systur minni henni Sig- rúnu. Mín fyrsta minning um hann var hvað mér fannst hann tala hátt og þessi hlátur hans sem var svo smitandi og var þetta hans aðalsmerki alla tíð. Þau fóru fljót- lega að búa á Smiðjuhóli og var oft komið við þar ef maður átti leið um. Eitt sumar var ég meira að segja svo lánsamur að gerast kaupamaður hjá þeim. Alltaf var gott að leita til Jóa með hvaða vandræði sem ég kom mér í, hvort sem var að sjóða saman púst, gera við vélar eða flytja búslóðir milli landshluta. Taldi hann þá ekkert eftir sér að koma á Bedfordinum sínum sem var honum svo kær. Jói var mjög félagslyndur og voru þau ófá skiptin sem hann þurfti að skreppa á næstu bæi eða í Borg- arnes til að spjalla og segja sögur og hlæja. Veisluglaðari mann var ekki hægt að hugsa sér. Alltaf var haldið upp á öll stórafmæli bæði hjá honum og Sigrúnu og það helst á fimm ára fresti. Stóð þá Sigrún í bakstri eða eldamennsku og var vel veitt á eftir af einhverju sterkara en kóki, eins og hver gat torgað. Var alltaf mikið fjör og stundum fékk hann vini sína sem voru í hljómsveit til að spila fyrir dansi. Eins voru þorrablótin í sveitinni í miklu uppáhaldi hjá honum. Ferðalög voru líf hans og yndi og mörg sumrin var brunað um landið á húsbílnum. Oft var fjölmennt í þessum ferðalögum og var þá margt gert sér til gamans. Kannski þegar búið var að grilla var farið í fótbolta og hafði Jói mjög gaman af því. Ef maður ætl- aði að reyna að komast fram hjá honum með boltann átti hann það til að snúa mann í jörðina og átti maður sér þá ekki viðreisnar von enda maðurinn með afbrigðum sterkur og hraustur eftir því. Allt- af var hann tilbúinn að slá á létta strengi og segja brandara eins og honum var einum lagið. Ef manni tókst að læða einum að var hann alltaf tilbúinn með nokkra og var fljótur að kveða mann í kútinn. Í nóvember 2011 dró ský fyrir sólu hjá honum. Þá varð hann fyrir því að fá heilablóðfall sem varð til þess að hann lamaðist öðrum megin og þurfti þá á hjólastól að halda síðustu 10 árin. Það er mikið áfall fyrir mann sem elskaði að vera í hringiðu lífsins að vera kippt þannig út úr hinni daglegu rútínu. En okkar maður tókst á við það af miklu æðruleysi og gat alltaf slegið á létta strengi þegar við hittumst. En við sem þekktum hann vitum að þetta var oft á tíð- um mikil þrautaganga hjá honum, og sérstaklega síðustu árin. Ég votta Sigrúnu og börnunum þeirra, Margréti, Berglindi og Bergi, og fjölskyldum þeirra, mína innilegustu samúð. Hvíl í friði kæri vinur. Kristmundur Einarsson. Kær frændi er látinn, en bjart- ar minningar um góðan mann munu lifa áfram í huga mínum og minni fjölskyldu. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg. Jóhann ólst upp á Mýrum við búskap hjá fóstur- foreldrum sínum. Tók svo við búi þeirra á Smiðjuhóli, eignaðist mikilhæfa konu og þrjú mann- vænleg börn. Jörðin var rýr til búsakapar þannig að Jóhann stundaði samhliða búskapnum bæði vörubíla- og skólaakstur. Hann var annálaður fyrir greið- vikni sína og hjálpsemi og gerði nágrönnum og félögum margan greiðann og eignaðist mikinn fjölda kunningja og vina í Borg- arfirðinum. Fyrir liðlega tíu árum varð hann fyrir miklu áfalli er hann lamaðist. En með hörku og frá- bærri umhyggju fjölskyldu og hjúkrunarfólks náði hann nokkr- um bata og bar hlutskipti sitt með reisn. Jóhann kynntist í raun aldrei föður sínum, Páli Sveinssyni land- græðslustjóra, en það var afar sérstakt að Jóhann erfði samt skaftfellska málróminn frá hon- um. Áherslur hans og málfar var með þeim hætti að manni fannst að Páll væri að tala þegar maður hitti Jóhann. Að leiðarlokum er mér efst í huga söknuður og þakklæti fyrir áralanga frændsemi, drengskap og samskipti sem aldrei bar skugga á. Það var mér heiður að fá að kynnast Jóhanni. Öll voru þau samskipti á einn veg, hann var traustur frændi, hreinn og beinn, vinafastur og frá honum stafaði mikil innri hlýja. Það voru forrétt- indi að kynnast honum og minn- ingin lifir um góðan dreng. Sigrún, börn, ættingjar og vinir kveðja nú mikilhæfan mann með söknuði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna við hann. Ég bið þeim Guðs blessunar og votta þeim mína dýpstu samúð. Sveinn Runólfsson. Með örfáum orðum langar mig að minnast vinar míns Jóhanns Pálssonar frá Smiðjuhóli. Jóa Páls, eins og hann var oftast kall- aður, kynntist ég árið 1998 er ég tók við starfi skólastjóra í Borg- arnesi en Jói var skólabílstjóri við skólann og ók börnum úr Álfta- neshreppi. Tókust strax með okk- ur góð kynni. Gott var að eiga Jóa að þegar skipuleggja þurfti skóla- akstur utan þess hefðbundna af Mýrunum. Oft þurfti ég bara að hringja í hann og biðja um að bjarga málum á sem hagkvæm- astan hátt fyrir skólann og nem- endur, stundum með stuttum fyr- irvara, var það gert samviskusamlega. Jói var á þess- um tíma hættur hefðbundnum bú- skap en átti nokkur hross. Fór svo að mín hross fengu að vera á Smiðjuhóli í nokkur misseri eftir því sem þurfti. Kom ég því oft að Smiðjuhóli og naut ríkulegrar gestrisni þeirra hjóna, Sigrúnar og Jóa. Oft kom það fyrir að ég, ásamt mörgum öðrum, þurfti að leita liðsinnis Jóa þegar bíll bilaði eða skipta þurfti um varahluti. Var hann ævinlega boðinn og bú- inn að hjálpa mér við slíkt enda snillingur við viðgerðir og úrræða- góður. Fyrir það ber að þakka. Þegar Jói og Sigrún byggðu sér nýtt hús á Smiðjuhóli, sem raunar var ekki vanþörf á, gat ég lagt þeim lið með vinnu t.d. við járna- bindingu og fleiri hluti. Var það mikil gleðistund þegar flutt var í nýja húsið og því fagnað með mik- illi veislu. Leiklist var mikið áhugamál hjá Jóa og tók hann þátt í mörgum uppfærslum leikverka hjá leik- deild Skallagríms, oft í burðar- hlutverkum. Var alltaf gaman að fara á sýningar og síðan ræða um þær við Jóa næst þegar við hitt- umst. Það var mikið högg þegar Jói varð fyrir alvarlegu áfalli sem kippti honum snögglega út úr hans venjubundna lífi, rétt rúm- lega sextugum. Var jörðin þá seld og hús keypt í Borgarnesi fyrir fjölskylduna en Jói bjó í Brákar- hlíð þar sem hann naut góðs at- lætis til þess tíma er hann and- aðist. Heimsótti ég hann nokkuð reglulega fram til þess tíma er Co- vid skall á með þeim takmörkun- um sem þá voru settar. Áttum við þá spjall um allt mögulegt, gamalt og nýtt. Að leiðarlokum þakka ég Jóa vini mínum fyrir góð samskipti og einlæga vináttu og votta Sigrúnu og fjölskyldu hans innilega samúð. Kristján Gíslason. Jóhann Pálsson Útför í kirkju Þjónusta kirkjunnar við andlát utforikirkju.is Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRAUSTI THORBERG ÓSKARSSON, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést fimmtudaginn 27. maí á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. júní klukkan 13. Elsa Thorberg Traustadóttir Stefán Gunnarsson Óskar Thorberg Traustason Berglind Steindórsdóttir afa- og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.