Morgunblaðið - 04.06.2021, Síða 21
✝
Guðmundur
Sigurpáll Guð-
mundsson fæddist
11. júlí 1939. Hann
lést á hjartadeild
Landspítalans 25.
maí 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Þor-
björg Pálsdóttir, f.
1915, d. 2002, og
Guðmundur Sigfús-
son, f. 1913, d.
1996.
Systkini Guðmundar eru:
Jónína Björg, f. 1937, d. 2011,
Garðar, f. 1941, Sveinveig f.
1942, Árni Þór, f. 1946, d. 2017,
Þórdís Gróa, f. 1949, Svanhild-
ur, f. 1950, Brynjar Heimir, f.
1957, drengur, f. 1958, d. 1958.
Hinn 1. júlí 1961 kvæntist
Guðmundur eiginkonu sinni
Guðnýju Kristjönu Vilhjálms-
dóttur, f. 1939. Foreldrar henn-
Kelduhverfi. Þegar hann var sjö
ára gamall fluttist fjölskyldan að
Fljóti (Fljótsdal) í Fljótshlíð og
bjó þar. Um tvítugt flutti hann til
Reykjavíkur og stundaði bif-
reiðaakstur. Guðmundur og
Guðný bjuggu í Reykjavík fyrstu
búskaparárin. Árið 1963 flutti
fjölskyldan að Sámsstöðum í
Fljótshlíð, en þar var Guð-
mundur ráðsmaður hjá Klemensi
Kristjánssyni tilraunastjóra.
Seinna fluttist fjölskyldan að
Torfastöðum í sömu sveit.
Árið 1969 flutti fjölskyldan á
Hvolsvöll þar sem þau reistu sér
hús og bjuggu þar síðan.
Guðmundur starfaði lengst af
hjá Kaupfélagi Rangæinga við
bifreiðaakstur og á bílaverk-
stæði, einnig stundaði hann
vinnu við akstur fyrir Aust-
urleið og Suðurverk.
Útför Guðmundar fer fram
frá Stórólfshvolskirkju í dag, 4.
júní 2021, klukkan 14. Athöfn-
inni verður streymt. Stytt slóð á
streymið:
https://tinyurl.com/2ua6wdem/.
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/.
ar voru hjónin Vil-
hjálmur Jónasson
og Guðný Krist-
jánsdóttir.
Börn Guð-
mundar og Guð-
nýjar Kristjönu
eru: 1) Kristín, f.
1961. 2) Þorbjörg
Hlín, f. 1963, maður
Ingvi Þór Magn-
ússon. 3) Guð-
mundur Birgir, f.
1971, kona Hrefna Hugadóttir.
4) Helena, f. 1975, maður Ást-
mundur Sigmarsson.
Stjúpbörn Guðmundar, börn
Guðnýjar Kristjönu, eru Vilberg
Pálmarsson, f. 1956, og Lydia
Pálmarsdóttir, f. 1957, maður
Vigfús Gunnar Gíslason.
Afabörn Guðmundar eru 13,
langafabörn 19 og langa-
langafabarn eitt.
Guðmundur fæddist í Garði í
- Úr hugvekjum Jónasar
Gíslasonar vígslubiskups í Skál-
holti:
Ég vil þig, pabbi, kveðja, þótt brostin
sé þín brá
og bleikt og fölt sé ennið, er kossi’
þrýsti ég á.
Ég veit ógerla enn þá, hve mikið ég hef
misst,
en mér er ljóst, að fölt er ennið, sem
ég hefi kysst.
Þótt lát þitt, góði faðir, nú leggist
þungt á mig
þá lengst af finn ég huggun við minn-
inguna’ um þig.
Hún stendur mér svo skýr, og hún er
svo helg og heit
og hreinni bæði’ og ástríkari’ en nokk-
ur maður veit.
Ég vil hér ekki ljóða neitt lof eða hól
um þig,
en lengst af þessi hugsun mun fróa og
gleðja mig.
Og lengi mun þín röddin lifa’ í minni sál
til leiðbeiningar för minni’ um veraldar-
ál.
Og tár af mínum hrjóta hvörmum
og heit þau falla niður kinn,
því vafinn dauðans er nú örmum
hann elsku hjartans pabbi minn.
(Kristján Albertsson)
Takk fyrir allt og allt elsku
pabbi minn.
Þín
Helena.
Guðmundur S. Guðmundsson
móðurbróður minn er kvaddur
hinstu kveðju. Hann lést í faðmi
eiginkonu og barna á Landspít-
alanum 25. maí sl. eftir stutt en
snörp veikindi. Þrátt fyrir að
heilsu Gumma hafi smám saman
hrakað á síðustu fimm árum eða
svo veit ég ekki til þess að hann
hafi nokkurn tíma kvartað. Með
Gumma frænda er genginn góð-
ur félagi og vinur sem allir kunn-
ugir minnast að góðu einu og
með þakklæti.
Þegar Gummi var sjö ára flutti
hann með foreldum og systkinum
að Fljótsdal í Fljótshlíð og ólst
þar upp við fjölbreytt sveitastörf
og bjó í foreldrahúsum fram und-
ir tvítugt. Hann var næstelstur
átta systkina og elstur bræðra og
kom það oft í hlut Gumma að
taka ábyrgð á ýmsum verkum á
bænum en afi var oft fjarri heim-
ili vegna vinnu utan bús.
Gummi kom víða við á sinni
starfsævi og var hann fjölhæfur
til allra verka. Upp úr tvítugu fór
hann til Reykjavíkur og vann hjá
Mjólkursamsölunni og síðar ók
hann leigubíl hjá Bifreiðastöðinni
Steindóri. Á þeim tveimur árum
sem Gummi bjó og vann í
Reykjavík kynntist hann eigin-
konu sinni henni Guðnýju Krist-
jönu Vilhjálmsdóttur eða Kiddý.
Gummi átti sterkar rætur í
Fljótshlíðina en fyrstu hjúskap-
arárin eftir að hann og Kiddý
fluttu frá Reykjavík bjuggu þau á
Sámsstöðum en Gummi starfaði
um tíma á Tilraunastöðinni og
síðar bjuggu þau á Torfastöðum.
Það var svo upp úr 1970 sem
þau fluttu í Hvolsvöll. Á Hvols-
velli vann Gummi lengst af hjá
Kaupfélagi Rangæinga við akst-
ur flutningabíla. Einnig vann
hann á sprautu- og réttingaverk-
stæði Kaupfélagsins og síðar hjá
N1. En af og til vann Gummi hjá
Dofra vini sínum hjá Suðurverki
ehf., síðast við útkeyrslu á mat-
arbökkum til þeirra sem unnu að
gerð Landeyjahafnar.
Gummi var einn af stofnend-
um Björgunarsveitarinnar Dag-
renningar á Hvolsvelli og fór
ófáa björgunarleiðangra á árum
áður. Hann átti iðulega góða og
öfluga jeppa og fór í margar
fjallaferðir. Einni góðri minningu
skaut nýverið upp á Facebook
þegar maður sem bjargað var úr
Markarfljóti um verslunar-
mannahelgina 1988 hóf leit að
bjargvætti sínum. Þar var
Gummi að verki og ekki ofsögum
sagt að hann hafi framkvæmt þar
hetjudáð.
Árið 1991 samdi Gummi við
Runólf bónda í Fljótsdal um að fá
að girða af landskika nálægt
gljúfrinu við Þórólfsá. Þar hóf
Gummi að setja niður margs kon-
ar trjáplöntur og skjólbelti. Þau
hjónin komu fyrir hjólhýsi í garð-
inum og byggðu við það pall og
þar áttu þau sannkallaðan sælu-
reit. Í dag 30 árum síðar er þarna
myndarlegur trjálundur með
margra metra háum trjám.
Gummi var náinn vinur föður
míns og var mikill samgangur á
milli fjölskyldna og rétti Gummi
systur sinni og mági oft og iðu-
lega hjálparhönd þegar mikið lá
við. Fyrir það ber að þakka.
Lífið gaf Gumma margar góð-
ar gjafir og sú stærsta var Kiddý
eiginkona hans til nærri 60 ára.
Einnig börn þeirra sex og síðar
barnabörnin og barnabarnabörn-
in.
Við Hlín og börn okkar send-
um Kiddý, börnum þeirra og öll-
um vandamönnum einlægar sam-
úðarkveðjur. Megi björt minning
um góðan dreng styrkja þau á
stund sorgar og saknaðar.
Guðbjörn Árnason.
HINSTA KVEÐJA
Elsku Gummi afi.
Takk fyrir að vera alltaf
skemmtilegur.
Takk fyrir að vera alltaf
góður við okkur.
Takk fyrir að kenna okk-
ur að borða súkkulaði þótt
mamma hafi ekki verið
mjög ánægð með það.
Takk fyrir að fara með
okkur í berjamó á haustin.
Takk fyrir allt klinkið
sem þú gafst okkur.
Takk fyrir að vera
prakkari með okkur.
Takk fyrir allt elsku afi
okkar. Við munum alltaf
geyma minningu þína í
hjörtum okkar.
Söknum þín alltaf.
Sigríður og Guðmunda.
Guðmundur Sigur-
páll Guðmundsson
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
✝
Svavar Jó-
hannsson fædd-
ist 22. júní 1970 á
Sólvangi í Hafn-
arfirði. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 20. maí
2021.
Foreldrar Svav-
ars eru Herdís Ósk
Herjólfsdóttir, f. 21.
mars 1943, og Jó-
hann Sævar Sím-
onarson, f. 21. júlí 1943.
Systkini Svavars eru: And-
vana fæddur drengur (Þor-
steinn), f. 10. nóvember 1971;
Margrét, f. 7. janúar 1973, gift
Svavari Guðna Gunnarssyni, f.
15. október 1969. Hún á tvö börn;
Jóhanna Lovísa, f. 12. nóvember
1974, sambýlismaður Árni Guðni
1999, barn þeirra er Kristinn
Stormur, f. 16. mars 2019. 4)
Brimar Örn, f. 11. mars 2003.
Eiginkona Svavars er Hrefna
Mjöll Kristvinsdóttir, f. 3. októ-
ber 1975, barn hennar er Elva Sif
Guðbergsdóttir, f. 4. janúar 2004.
Svavar bjó mestalla ævi í Vog-
um á Vatnsleysuströnd. Hann
vann ýmis störf þar til hann hóf
nám við Iðnskólann í Hafnarfirði
þar sem hann lauk prófi í múr-
verki. Svavar vann við múrverk í
mörg ár þar til hann hóf störf hjá
Isavia á Keflavíkurflugvelli, síð-
ustu árin vann hann hjá Suður-
flugi á Keflavíkurflugvelli.
Útför Svavars fer fram frá
Kálfatjarnarkirkju í dag, 4. júní
2021, klukkan 14.
Streymt verður frá athöfninni.
Stytt slóð á streymið:
https://tinyurl.com/hh99syyp/.
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/.
Helgason, f. 16. jan-
úar 1968, þau eiga
þrjú börn; Harpa
Rós, f. 16. júlí 1976,
gift Maríuszi
Drzymkowski, f. 1.
október 1973, þau
eiga þrjú börn; Sím-
on Georg, f. 11. maí
1978, kvæntur Sig-
rúnu Dögg Sigurð-
ardóttur, f. 28. nóv-
ember 1976, þau
eiga fjögur börn.
Börn Svavars eru: 1) Jóhann
Sævar, f. 22. ágúst 1994, barn
hans er Marinó Breki, f. 11. mars
2018. 2) Fanney Dís, f. 22. ágúst
1996, d. 29. október 2000. 3)
Kristín Helga, f. 26. apríl 1996,
sambýlismaður hennar er Auð-
unn Reynaldsson, f. 20. apríl
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól
láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens)
Guð geymi þig elsku hjartans
drengurinn okkar.
Góða nótt minn litli ljúfur, mitt ljósið
bjarta.
Lífið hefur öðlast tilgang með þér.
Þú átt sömu þrána í þínu hjarta.
Þrána sem um eilífð mun fylgja þér.
(Jóhanna G. Erlingsson)
Kveðja,
mamma og pabbi.
Í dag kveð ég elskulega stóra
bróður minn. Það voru erfiðar
fréttir sem við fengum um miðjan
apríl að þú hefðir greinst með
krabbamein. Eftir það gerðust
hlutirnir mjög hratt og rétt um
mánuði síðar varstu búinn að
kveðja okkur. Svavar var elstur af
okkur systkinum og sinnti því
hlutverki mjög vel, öll litum við
upp til stóra bróður okkar. Það er
þyngra en tárum taki að skrifa
þessi orð til þín elsku bróðir.
Þú varst alltaf glaður og kátur
og hrókur alls fagnaðar. Þú varst
alltaf að grínast og það sem þú
varst mikil eftirherma. Það er
varla til sá samferðamaður sem þú
varst ekki búinn að taka upp á þína
arma og herma eftir, en alltaf á
góðan hátt og aldrei var hermt eft-
ir þeim sem minna mega sín. Á
svona tímum fljúga margar minn-
ingar í gegnum hugann. Það er
erfitt að taka eitthvert eitt atvik út
því að þitt líf einkenndist af gleði.
Þú varst aldrei að velta þér upp úr
hvað öðrum fannst, lifðir bara þínu
lífi eins og þú vildir hafa það. Alla
tíð hefur verið mjög gott að leita til
þín og á fullorðinsárum var varla
farið í framkvæmd í fjölskyldunni
nema þú tækir þátt í henni, bón-
betri manni hef ég ekki kynnst. Þú
varst aldrei að trana þér neitt fram
en þegar þú varst beðinn um að-
stoð varstu strax mættur á svæðið.
Tónlist var alltaf stór hluti af
þér og hlustaðir þú á allar tegundir
tónlistar. Mikið á ég eftir að sakna
þess að fá ekki lengur snöpp frá
þér þar sem þú ert búinn að snúa
út úr alls konar lögum og betrum-
bæta textana. Snappið okkar var
fullt af alls konar skemmtilegu frá
þér.
Þú varst mikill fjölskyldumaður
og sinntir því hlutverki mjög vel, þú
varst alltaf stoltur af börnunum
þínum og ég tala nú ekki um litlu
afastrákunum þínum. Nú er það
okkar hlutverk að segja þeim sög-
ur af afa. Þegar Hrefna kom inn í
líf þitt bættist Elva Sif í barnahóp-
inn og það var gaman að sjá hvað
hún small strax inn í hópinn, þú
tókst henni strax eins og þinni eig-
in enda áttuð þið gott samband.
Hrefna var ljósið í lífi þínu og tal-
aðir þú oft um það hvað þú værir
hrifinn af henni og ánægður með
að hafa náð í hana. Það var ynd-
islegt að sjá hvað þið voruð ánægð
saman og alltaf samstiga í öllu.
Elsku Svavar, ég er svo þakklát
fyrir að hafa fengið þig sem stóra
bróður minn og að hafa fengið að
taka þátt í lífinu með þér. Það er
óskiljanlegt að þú hafir verið tek-
inn svona fljótt frá okkur en ég trúi
því að þín bíði annað verkefni ann-
ars staðar. Ég veit að Fanney Dís
og allir hinir sem farnir eru taka
vel á móti þér og þú ert eflaust far-
inn að reyta af þér brandarana.
Elsku Hrefna, Jóhann Sævar,
Kristín Helga, Brimar Örn og Elva
Sif, missir ykkar er mikill, megi
guð gefa ykkur styrk og huggun til
að takast á við söknuðinn og sorg-
ina á þessum erfiðu tímum.
Hvíl í friði elsku Svavar.
Þín systir,
Jóhanna Lovísa (Hanna Lóa).
Elsku Svavar minn.
Mikið er erfitt að þurfa að
kveðja þig svona snöggt. Ég er
enn að átta mig á fréttunum sem
við fengum fyrir rúmum mánuði,
það hvarflaði ekki að mér að mán-
uði síðar værir þú farinn frá okk-
ur. Þrátt fyrir stutt og erfið veik-
indi þá var húmorinn og gleðin
alltaf til staðar, alveg fram á síð-
asta dag. Þú varst alltaf hrókur
alls fagnaðar, alltaf svo skemmti-
legur og fyndinn. Þegar við Mar-
iusz byrjuðum að vera saman urð-
uð þið strax bestu vinir. Þið
Lufsarnir eins og þið kölluðuð
hvor annan náðuð svo vel saman
og voruð eins og bræður.
Það eru svo ótal margar og góð-
ar minningar sem við eigum sam-
an. Það var alltaf svo gott að leita
til þín ef eitthvað bjátaði á, þú
hlustaðir alltaf og gafst góð ráð.
Það var alltaf svo gaman að koma
til ykkar Hrefnu og það skein af
þér stoltið og hamingjan.
Það var ómetanlegt að eiga
bróður sem var minn besti vinur.
Þú skilur eftir þig mikið tómarúm
og söknuðurinn er ólýsanlegur.
Hvíldu í friði, elsku Svavar, og ég
veit að þegar minn tími kemur þá
verður tekið vel á móti mér. Minn-
ing þín mun lifa í hjörtum okkar.
Takk fyrir allt.
Það þarf fólk eins og þig fyrir
fólk eins og mig.
Þín systir,
Harpa Rós.
Elsku Svavar.
Þú varst mér svo dýrmætur
frændi. Þú skilur eftir mikið tóma-
rúm en um leið margar hlýjar
minningar. Við vorum í sambandi
nánast daglega þar sem við skipt-
umst yfirleitt á alls konar fíflalát-
um. Í kringum þig var alltaf gam-
an. Ég beið alltaf spennt eftir þér í
fjölskylduhittingum þar sem þú
tókst eftirhermur eða sagðir
brandara sem fengu alla til að
hlæja. Öll snöppin sem við fengum
frá þér – hljómsveitirnar sem við
pabbi vorum í ófá skipti sett í,
fréttirnar og auðvitað rússnensku
popplögin með íslenskuðum texta,
alltaf opnaði maður þetta með
bros á vör.
Ég er þakklát fyrir stundirnar á
liðnu ári, í skúrnum ykkar Hrefnu
að hlusta á tónlist í nýju græjunum
þínum eða að spjalla um allt og
ekkert. Ég er einstaklega þakklát
fyrir síðasta sumar þar sem við
skemmtum okkur í góðum veislum
saman. Útskriftin okkar Anítu þar
sem ég var svo heppin að fá gjöf frá
ykkur Hrefnu og hinum eina sanna
Herberti Guðmunds, fjölskyldu-
dagurinn þar sem við skemmtum
okkur langt fram eftir nóttu og síð-
ast en ekki síst stórafmælið þitt
sem var ein tær snilld, þvílíkt partí
og ég gleymi ekki hvað þú varst
glaður og stoltur með allt fólkið þitt
í kringum þig, brostir út að eyrum
allt kvöldið, þú varst svo ánægður.
Eins og alltaf, hrókur alls fagnaðar
alls staðar og það er það sem ein-
kenndi þig, aldrei vesen, bara gam-
an, brosa, njóta lífsins, vera í núinu
og alltaf með húmorinn meðferðis.
Frá því ég man eftir mér hefur
þú alltaf verið stór partur af fjöl-
skyldunni og verður alltaf. Þú
verður alltaf í hjarta okkar og það
þýðir að við höldum alltaf í
gleðina, gamanið og húmorinn, því
það misstir þú aldrei þrátt fyrir
stutt og erfið veikindi. Lufsi,
Habba Kabba kúkalabba og Aníta
varst’ að skíta, ég mun sakna þess
að heyra þig segja þessi nöfn, þá
sérstaklega Lufsi, þið pabbi verðið
alltaf Lufsarnir tveir.
Elsku Svavar, lífið er ósann-
gjarnt. Söknuðurinn er mikill og
sár, ég mun sakna þess að fá aldr-
ei aftur að sjá þig, hitta þig eða að
fá fleiri snöpp og skilaboð frá þér.
En ég er þakklát fyrir allar góðu,
skemmtilegu og dýrmætu minn-
ingarnar. Þú varst einstakur og
gafst lífinu lit. Ég mun alltaf minn-
ast þín með bros á vör, enda ekki
annað hægt. Í þér býr það besta.
Þín frænka,
Sædís María.
Elsku Svavar. Það er erfitt að
hugsa til þess að þú sért farinn frá
okkur. Á erfiðum dögum er gott
að eiga margar góðar minningar
til að hugsa um og er ég hrikalega
heppin að eiga þær.
„Strúna fúna með rassinn
brúna“ er það fyrsta sem kemur
upp í hugann þegar ég hugsa um
Svavar. Ég man svo vel eftir því
þegar ég var lítil og þú fórst að
kalla mig þessu nafni. Í þá daga
var ég ekki sátt við þetta en hafði
þó alltaf lúmskt gaman af því. Í
dag er þessi minning mér enn
dýrmætari.
Ég man ekki eftir neinu nema
skemmtilegu í kringum Svavar,
alltaf gleði og glens enda húmor-
inn alltaf í lagi hjá þér. Þú varst
mikill húmoristi og margar eftir-
hermurnar sem þú tókst.
Ég fékk þau forréttindi að
fagna með þér fimmtugsafmælinu
í fyrrasumar. Það var alvörupartí
að hætti Svavars og verður það
seint, ef einhvern tímann, toppað.
Ég mat það mikils þegar þú
komst og fagnaðir með mér og
mömmu útskrift okkar í fyrra-
sumar. Allir höfðu svo gaman af
því hversu skemmtilegur þú varst
og auðvitað má ekki gleyma öllum
eftirhermunum sem þú tókst.
Enda var lengi vel á eftir talað um
skemmtilega veislu og að ég ætti
ótrúlega fyndinn og skemmtileg-
an frænda.
Ekki má svo gleyma öllum
skemmtilegu snöppunum sem við
fengum frá þér, þau voru óborg-
anleg og alltaf komu þau manni til
að hlæja.
Ég sakna þín ótrúlega mikið en
ég trúi því að þú sért kominn á
betri stað og að þú fáir ekkert
nema það besta hvar sem þú verð-
ur; góðan mat, gott fólk í kringum
þig og að sjálfsögðu góða tónlist. Í
þér býr það besta.
Minning þín er mér ei gleymd,
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Elsku Hrefna, Jóhann Sævar,
Kristín Helga, Brimar Örn og
Elva Sif, missir okkar allra er
mikill og er hugur minn hjá ykk-
ur.
Þín frænka,
Sólrún Ósk.
Svavar Jóhannsson HINSTA KVEÐJA
Elsku Svavar. Takk fyrir
allan þann tíma og þær frá-
bæru stundir sem við höf-
um átt saman þótt ég vildi
óska þess að þær hefðu ver-
ið miklu fleiri. Þú varst
hrókur alls fagnaðar hvar
sem var og sást alltaf til
þess að fólk í kringum þig
gæti hlegið.
Stórt skarð hefur verið
höggvið í hjörtu okkar sem
þig þekktum og verður þín
sárt saknað.
Minning þín mun lifa í
hjörtum okkar allra.
Þín frænka,
Aníta Ósk.
- Fleiri minningargreinar
um Svavar Jóhannsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.